Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 11
Í gleðigöngu Hinsegin daga staðfestir
hinsegin fólk tilveru sína, sýnileika og gleði.
Þar sameinast lesbíur, hommar, tví- og
pankynhneigðir, transfólk og intersex fólk
í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og
vinum. Gleðigangan er hápunktur og stolt
hátíðarinnar. Hinsegin dagar skipuleggja
hana og ráða alfarið hvaða atriði fá aðgang
að henni. Gangan er engu að síður sprottin
úr grasrótinni og það eru einstaklingar og
hópar sem móta og setja saman einstök
atriði hennar.
Gangan hefst, eins og undanfarin ár, á
Vatnsmýrarvegi (rétt hjá BSÍ) þar sem henni
er stillt upp. Gengið er eftir Vatnsmýrarvegi,
inn á Gömlu-Hringbraut, eftir Sóleyjargötu,
Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og framhjá
Arnarhóli þar sem útitónleikarnir eru haldnir.
Það er algjörlega óheimilt að auglýsa
fyrirtæki eða þjónustu í göngunni án
samráðs við stjórn Hinsegin daga. Athugið
Gleðigangan
Pride Parade
að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum
og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af
stað. Brot á þessum reglum getur leitt til þess
að atriði verði hafnað eða vísað úr göngunni.
Leikstjórn og hvatningarverðlaun
Hinsegin dagar leggja áherslu á að hvert
atriði sem tekur þátt í göngunni miðli
skilaboðum sem varða veruleika hinsegin
fólks á einn eða annan hátt og vandi til
verka við skreytingar vagna og búninga.
Skilaboðin geta verið með óteljandi móti og
þar skiptir hugkvæmni þátttakenda miklu
máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla
peninga. Í fyrra var besta atriðið heiðrað
eftir hátíðina með hvatningarverðlaunum og
fjárstyrk og sama hætti verður haldið í ár.
Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra
sem gefa góð ráð til göngufólks. Ræðið
hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og
þau benda á leiðir sem kosta lítið en
setja flottan svip á atriðin ykkar. Sendið
póst til Hinsegin daga í tæka tíð (pride@
reykjavikpride.com) og við aðstoðum ykkur
við að komast í samband við leikstjóra
sem hafa langa reynslu af götuleikhúsi og
uppákomum af öllu tagi.
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í
gleðigöngunni verða að sækja um það til
Hinsegin daga eigi síðar en föstudaginn
1. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með
því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað
sem finna má á vefsíðunni reykjavikpride.com.
Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir
Ásta, Helga, Setta og Steina en hægt er að
senda þeim póst á gongustjori@gmail.com.
Athugið að ekki er hægt að veita fólki
með atriði aðgang að göngunni nema
rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og
send og skilmálar samþykktir.
Would you like to participate?
Viltu vera með atriði?
Öllum er velkomið að ganga í göngunni en
Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem
vilja taka þátt í göngunni án þess að vera
með sérstakt atriði fylgi henni alla leið frá
Vatnsmýrarvegi. Aðrir eru vinsamlega beðnir
um að bíða með að slást í hópinn þar til
síðasti vagninn hefur farið framhjá.
Uppstilling
Byrjað verður að raða göngunni upp á
Vatnsmýrarvegi, ofan við Læknagarð, kl. 12
laugardaginn 9. ágúst. Þeir þátttakendur
sem eru með atriði verða skilyrðislaust að
mæta á þeim tíma til að fá sitt númer og
fara í röð. Gangan leggur stundvíslega af
stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum.
Göngustyrkir
Hinsegin dagar veita minni háttar fjárstyrki
til gönguatriða. Umsóknir um þá skulu
berast Gunnlaugi Braga Björnssyni,
fjármálastjóra hátíðarinnar, um leið og
sótt er um þátttöku. Netfang hans er
gjaldkeri@reykjavikpride.com. Styrkir eru
einungis veittir gegn framvísun reikninga
og skulu þeir hafa borist til Hinsegin
daga (b.t. Gunnlaugs Braga Björnssonar),
Laugavegi 3, 101 Reykjavík, fyrir 31. ágúst.
Ekki er veittur styrkur til að fjármagna
leigu á farartækjum eða eldsneyti. Gæði
atriðanna skipta hér máli en dómnefnd
starfar á göngudaginn og metur bestu
atriðin. Hinsegin dagar áskilja sér rétt til að
samþykkja eða hafna öllum beiðnum um
styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar.
Göngu- og öryggisstjórar: (f.v.)
Steina Rún Daníelsdóttir, Eva
Jóhannsdóttir, Ásta Kristín
Benediktsdóttir, Helga Kristjana
Bjarnadóttir og Sesselja María
Mortensen.
Groups that wish to participate in the
parade must apply to Reykjavik Pride
before 1 August by filling out a form
which can be found on the website,
www.reykjavikpride.com. For any further
information about the parade, please
contact the parade managers Ásta, Helga,
Setta and Steina by e-mail, gongustjori@
gmail.com. The parade leaves from
Vatnsmýrarvegur, close to the Bus
Terminal BSI, and ends in front of the
concert stage at Arnarhóll, city center. All
participants are asked to show up at the
starting point at 12 p.m. on Saturday, 9
August. The parade starts at 2 p.m. sharp.
Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru
ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Finnið ykkur vinsamlegast annan
vettvang fyrir steggja- og gæsapartí dagsins. Við göngum í þágu mannréttinda
og mannvirðingar, ekki niðurlægingar!
Trans-Ísland
hlaut hvatningar-
verðlaun fyrir atriði
sitt í göngunni árið
2013
20 21