Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 5
Alþjóðasamfélagið
standi saman
Jóhanna Sigurðardóttir
Frelsi og mannréttindi. Fátt skiptir meira máli en að þessi orð séu
virt og í heiðri höfð. Þetta er það sem heimurinn þarfnast hvað
mest og hver einstaklingur þráir í hjarta sínu. Frelsi og mannréttindi
endurspegla það fegursta í lífinu, að hver maður fái lifað með reisn
og notið lífsins eins og aðstæður bjóða. Ákall hinsegin fólks um
allan heim er bæði skýrt og réttmætt. Enginn á að þurfa að sæta
skoðanakúgun, ofbeldi eða frelsissviptingu – hvað þá að eiga á
hættu líflát – vegna þeirra grundvallarréttinda hverrar manneskju að
geta lifað í samræmi við tilfinningar sínar.
Deila og drottna
Víða um heim eru þessi mannréttindi þó fótum troðin. Þeir sem
virða þau að vettugi eru oft sjálfskipaðir valdhafar sem telja sig
handhafa sannleikans, einstaklingar sem deila og drottna í nafni
einhvers „rétttrúnaðar“ eða óstjórnlegrar græðgi í verðmæti
og völd. Valdhafar sem svífast einskis til að fá fólk til fylgis við
andlýðræðislegan boðskap sinn. Líf manna, heilsa og hamingja
skiptir þar engu máli.
Mannréttindasamtök um heim allan, ásamt lýðræðissinnuðum
stjórnmálaöflum sem aðhyllast frelsi, jafnrétti og bræðralag, hafa
vissulega náð miklum árangri við að gera veröldina betri og vinna
gegn öfgaöflum sem allt of víða brjóta grimmilega á sjálfsögðum
réttindum hinsegin fólks. En það er sorglegt hve hægt miðar
í fjölmörgum löndum og hvað við förum stundum mörg skref
afturábak eftir góð og giftudrjúg spor fram á veginn.
Ást er einfaldlega ást
Samtökin ´78 hafa starfað hér á landi af miklum krafti í 35 ár.
Þau komu á vettvang eins og hvítur stormsveipur með gunnfána
réttlætis og mannréttinda einan að vopni. Þau, ásamt Hinsegin
dögum, ögruðu fordómum, vanþekkingu og grimmd sem hér hafði
sannarlega ríkt í garð samkynhneigðra um ár og aldir, eins og víðast
hvar í veröldinni. Fordómum sem meðal annars höfðu kostað mörg
mannslíf vegna sjálfsvíga, að ógleymdri þeirri vanlíðan sem fylgdi því
að lifa alla ævi á skjön við sinn innri mann.
Á síðustu áratugum hafa Íslendingar, með fáum
undantekningum, blessunarlega losað sig við fordóma í garð
samkynhneigðra og áttað sig á að tilfinningar pars af sama kyni
eru ekkert öðruvísi en tilfinningar pars af gagnstæðu kyni. Ást er
einfaldlega ást.
Við sem þekkjum óttann, togstreituna, sársaukann og
sjálfsásakanirnar sem fylgdu því að lifa í felum með tilfinningar sínar
erum í dag stolt af íslensku samfélagi. Við erum hreykin af því að
vera Íslendingar og búa í þjóðfélagi sem síðastliðna áratugi hefur
verið meðal þeirra fremstu í að ryðja burt lagalegu ranglæti og
neikvæðum viðhorfum í garð hinsegin fólks.
Alþjóðastofnanir fræði heimsbyggðina
Í sumar var okkur Jónínu, konu minni, boðið að ávarpa
mannréttindaráðstefnu í Toronto, The WorldPride Human Rights
Conference 2014. Þótt þar hafi verið hægt að fagna mörgum
áföngum í réttindabaráttu hinsegin fólks í heiminum, eins og að
í 16 löndum eru nú ein hjúskaparlög fyrir gagnkynhneigða og
samkynhneigða, þá eru víða blikur á lofti.
Auðvitað er mikilvægt að fagna öllum framfarasporum í þágu
mannréttinda samkynhneigðra. Við fögnum þeim af heilum hug og
með djúpu þakklæti til þeirra sem ruddu brautina. Það varpar þó
vissulega skugga á gleði okkar þegar við hugsum til hinsegin bræðra
okkar og systra sem búa á þeim stöðum í heiminum þar sem réttindi
þeirra sem elska einstakling af sama kyni eru enn fótum troðin.
Það sem helst kemur í veg fyrir vitræna umræðu um málefni
hinsegin fólks eru fordómar og vanþekking. Þetta er ólíðandi ástand
í heimi sívaxandi þekkingar. Það hlýtur að vera algjör lágmarkskrafa
að virtar alþjóðastofnanir taki að sér, með öllum tiltækum ráðum, að
fræða heimsbyggðina með skipulögðum hætti um samkynhneigð.
Grýtt til dauða
Er það líðandi, nú á 21. öld, að þjóðarleiðtogar komist upp með að
leggja að jöfnu barnaníð og samkynhneigð? Er líðandi að ósvífnir
valdhafar fullyrði að samkynhneigð sé sjúkdómur?
Nei, það er hræðilegt að fólk þurfi að sæta grimmd og
ofsóknum vegna slíkrar vanþekkingar. Það er hræðilegt að vita að
fólk geti átt á hættu andlegt og líkamlegt ofbeldi, fangelsisvist og
jafnvel líflát vegna tilfinninga sinna – og allt lögum samkvæmt.
Það er hræðilegt að árið 2014 skuli 83 lönd í heiminum ennþá
hafa í gildi lög af ýmsum toga sem hamla frelsi samkynhneigðra
(svokölluð anti-gay lög). Og í sumum þessara landa er fólki refsað
grimmilega ef þessi lög eru brotin. Það er hræðilegt að í mörgum
löndum heims sé löglegt að varpa hinsegin fólki í fangelsi til
æviloka, dæma það til þrælkunarvinnu, húðstrýkja það eða senda
í útlegð. Það er hræðilegt að dauðadómur skuli virkilega liggja við
samkynhneigð í allt að tíu löndum heims og að til séu lög sem kveða
á um að hinsegin fólk sé grýtt til dauða opinberlega.
Leiðtogar þjóða taki höndum saman
Leiðtogar þeirra þjóða heims sem virða frelsi og mannréttindi mega
ekki láta þetta viðgangast. Þeir þurfa að taka höndum saman. Þeir
verða að knýja alþjóðastofnanir á borð við Sameinuðu þjóðirnar til
aðgerða gegn þeim ríkjum sem af fullkominni grimmd ganga gegn
grundvallarmannréttindum hinsegin fólks. Ýmsir þjóðarleiðtogar
hafa lagt mannréttindabaráttu samkynhneigðra lið, annaðhvort á
alþjóðavettvangi eða í heimalöndum sínum. Þetta á meðal annars
við um Obama Bandaríkjaforseta, Hollande Frakklandsforseta og
Cameron, forsætisráðherra Bretlands. En fleiri þurfa að koma að
málinu í alþjóðlegu samhengi, enda er hinsegin fólk að finna í öllum
löndum.
Niðurstöður rannsókna benda til þess að 5–10% jarðarbúa
tilheyri þessum hópi, það er að segja 350–700 milljónir manna. Til
samanburðar má nefna að árið 2013 var íbúafjöldi allra 52 landa
Evrópu tæplega 738 milljónir. Eiga þessi hundruð milljóna jarðarbúa
ekki skilið að alþjóðasamfélagið standi betur saman í baráttu fyrir
frelsi þeirra og mannréttindum?
Lj
ós
m
yn
d:
S
ig
tr
yg
gu
r A
ri
Jó
ha
nn
ss
on
Hluti af ferðasumrinu
www.n1.is facebook.com/enneinn
Sýningar hefjast á
SkjáEinum næsta haust
Vegabréf á
ferð og flugi
Vegabréf N1 er orðinn fastur liður í sumarfríi
margra Íslendinga. Fjölskyldur á ferð inni fá
skemmti legar stimpil gjafir á þjónustu stöðvum
Taktu upp myndband af fjölskyldunni að leysa
þrautirnar í Vegabréfinu og sendu inn í gegnum
vefsíðuna www.vegabrefaleikur.is
– þú getur unnið glæsileg verðlaun.
Vegabrefaleikur.is
Fjölskylduferð til Tenerife í viku í vetur
Playstation 4
leikjatölva
Máltíð fyrir tvo
á Hamborgara-
fabrikkunni
5.000 kr.
gjafakort
í Smáratívolí
Flug og gisting fyrir fjóra (2 fullorðnir og 2 börn) að verðmæti 500.000 kr.
1X
3X
30X 30X
Samsung
spjaldtölva3X Samsung Ace 3
snjallsími 3X
Áskriftarpakki
í 3 mánuði að
SkjáEinum
30X
Safnaðu stimplum
og fáðu vinninga
Taktu þátt í skemmtilegum
leik á vegabrefaleikur.is
Vinningar:
N1 um allt land. Í lok sumars drögum við
út hundrað fullstimpluð Vegabréf sem hljóta
glæsilega vinninga.
Það er alltaf stutt
í næstu N1 stöð
Náðu í Vegabréfið
á næstu N1 stöð
8