Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 20

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 20
F.v. Sigurður, Setta og Sólver samfélagsumræðuna. Setta: Ég er ósammála þessu. Oft er spurningin hverjum maður gefur rödd og á hvern er hlustað. Fólk heyrir oft heldur ekki um hvað er verið að tala. Það er fullt af einstaklingum í okkar röðum, pan, tvíkynhneigðir og allskonar þar á milli, sem eru að tala um málefnið. Ég tala til dæmis um hinsegin málefni og er ekkert að fela með hverjum ég er. Á einhverjum tímapunkti hljótum við að gera þá kröfu að samfélagið hlusti aðeins betur. Sigurður: Það sem ég á við er að þetta talsfólk hefur ekki náð sömu athygli fjölmiðla og til dæmis Hörður Torfa eða Páll Óskar gerðu. Þar erum við einnig að tala um þjóðþekkta einstaklinga sem eiga töluvert auðveldara með að ná athygli fjölmiðla en við hin, sauðsvartur almúginn. Sólver: Gott dæmi um þörf á aukinni fræðslu eru orð eins og „hjónaband samkynhneigðra“ sem mátti heyra fjölmiðla hjakka á hér um árið þegar þeir þýddu „same sex marriage“ úr erlendum miðlum. Þá fannst mér mikilvægt að banka í þá blaðamenn sem ég þekkti til að minna þá á að það eru til allskonar hjónabönd, ekki einungis gagnkynhneigð eða samkynhneigð. Þetta var lítið dæmi sem var erfitt að koma inn í samfélagsumræðuna. Til hvaða aðgerða geta Samtökin ‘78 gripið og hvaða kröfur þarf að gera til forystunnar? Setta: Mér finnst ástandið hafa breyst mikið undir forystu tveggja síðustu formanna, sem hafa verið dugleg að tala í fleirtölu og tala um hinsegin fólk frekar en einungis samkynhneigða. Slíkt skiptir máli. Mér finnst ég vera velkomnari en áður og tek því virkari þátt í starfinu. Þessu þarf að viðhalda og samhliða því að hvetja fólk til að temja sér „inclusive“ orðræðu. Sigurður: Ég tek undir þetta. Ég myndi samt vilja sjá Samtökin taka tvíkynhneigða málaflokkinn enn sterkari tökum. Það væri til dæmis sterkur leikur hjá Samtökunum að bjóða tvíkynhneigða og panfólk á sérstaka fundi til að ræða hvaða málefni hvíla á hópnum, sérstaklega ef Samtökin ætla að leiða einhverja baráttu fyrir tvíkynhneigða og panfólk. Það vantar umræðuvettvang um hvað eigi að gera og hvert eigi að stefna. Setta: Ef til vill væri hægt að nota svipað fléttuform og stjórnmálaflokkar gera varðandi kynjahlutföll frambjóðenda sinna. Krefjast þess að fjölbreyttur hópur sitji í stjórn Samtakanna hverju sinni. Sólver: Núverandi formaður, ásamt síðustu tveimur, hefur staðið sig mjög vel í að tryggja rými fyrir alla hópa innan Samtakanna. Hér áður fyrr, þegar ég starfaði fyrir FSS (sem síðar varð Q – félag hinsegin stúdenta) fann maður stundum fyrir ónotatilfinningu innan veggja Samtakanna vegna ýmissa atvika þar sem gefið var í skyn að tvíkynhneigðir og trans væru ekki æskilegur hluti af baráttunni. Það hefur sem betur fer breyst. Að lokum, hvað brennur á ykkur þessa stundina? Setta: Mín tilfinning er sú að fólk sé of fljótt að draga ályktanir og þessar ályktanir bjóða upp á takmarkaða valmöguleika fyrir okkur. Ég passa ekki inn í þessar ályktanir og mér finnst þær leiðinlegar og óþægilegar. Þessi tilfinning nær yfir alla sem eru að velta vöngum yfir kynhneigð minni; gagnkynhneigt fólk sem telur mig vera gagnkynhneigða og samkynhneigt fólk sem telur mig samkynhneigða. Sigurður: Ég er á sömu línu og Setta. Við erum stanslaust krafin um að festa okkur í einhverjum boxum sem samfélagið vill negla okkur í og þar af leiðandi þurfum við að takmarka okkur. Tilhneiging fólks til að fella alla í eitthvert norm, sem það hefur búið til fyrir sjálft sig, gengur ekki upp fyrir alla. Við erum of mörg að þjást út af einhverjum væntingum og ímynduðu samfélagslegu kjaftæði. Setta: Við erum ekki og verðum aldrei öll eins. Það er ekki hægt. Það verður að gera ráð fyrir fleiri valmöguleikum. Sólver: Það er grátlegt að vita til þess að alls staðar er fólk fast í skápum og þorir ekki að koma út eins og það er. Umræðan verður að halda áfram að vera „inclusive“. Vonandi losar það tvíkynhneigða, panfólk og alla aðra, sama hvar þeir eru staðsettir á litrófinu, við þessa bagga sem við burðumst með á bakinu. Stuck in the Gay Closet The bi- and pansexual activists, Sigurður, Setta and Sólver, met with the Reykjavik Pride magazine for a roundtable discussion on the most important issues facing the Icelandic bi-/pansexual community. Despite a general acceptance of gays and lesbians, Icelandic bi/ pansexual people still face prejudice and discrimination. Whilst society's acceptance of gays and lesbians is growing alongside an improved social understanding of transgender issues and civil rights, among the general population (and some gays) bi-/pansexuality is still regarded as a temporary condition, or a phase, that shouldn’t be taken seriously. The discussion reveals that a large majority of the bi-/pansexual community experiences a lack of understanding in regard to their identity and sexual expression, both from heterosexuals and the queer community. Therefore it is not uncommon for bi-/ pansexual people to simply choose to pretend to be gay or lesbian, rather than defend or explain their true sexual identity. „ “ Það er einfaldlega svo að samfélagið hafnar þessu og línan er að tvíkynhneigð sé ekki málið og eigi ekki að vera til. 3938

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.