Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 21

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 21
Þegar nýsjálenski leikstjórinn Grant Lahood ákvað að gera heimildarmynd um líf intersex fólks vissi hann fátt um intersex og gerði ráð fyrir að það væri mjög sjaldgæft ástand. Það var áður en hann hitti Mani Bruce Mitchell, fyrstu „opinberu“ intersex manneskjuna á Nýja-Sjálandi, sem einnig er þulur myndarinnar. Lahood komst að því að undir intersex-regnhlífina fellur margs konar líkamsgerð og að ástandið er í raun fremur algengt. Til dæmis fæðast um það bil 1 af hverjum 2000 börnum með „óræð“ ytri kynfæri og því er svarið við spurningunni sem langflestir spyrja þegar barn fæðist – „er það strákur eða stelpa?“ – alls ekki einfalt. Í heimildarmyndinni Intersexion birtast viðtöl við fjölmarga intersex einstaklinga úr ólíkum heimshornum og áhorfendum er veitt innsýn í heim fólks sem passar ekki snyrtilega inn í kynjaflokkunarkerfið og hina hefðbundnu skiptingu í karl- og kvenkyn. Myndin er persónuleg, hjartnæm, hreinskilin og fyndin athugun á viðfangsefni sem enn þann dag í dag er mikið tabú. When the director Grant Lahood started the journey of making the documentary Intersexion, he did not know too much about intersex, and assumed, like so many others, that it was something that was very rare. That was before he met Mani Bruce Mitchell, New Zealand’s first “out” intersex person, who is also the presenter of the film. Lahood discovered that the various conditions that fall under the banner of intersex are far from unusual. For example, approximately 1 in 2000 babies are born with ambiguous genitals, and there is thus no easy answer to the question most of us ask when a baby is born: “Is it a boy or a girl?” While making Intersexion, Lahood interviewed intersex people from all over the world, and the film takes a look into the world of people who do not fit neatly into the male or female category. The resulting documentary is a personal, moving, frank and funny exploration of a subject that is still very much a taboo. Intersexion Heimildarmynd / Documentary and Q&A Að sýningu lokinni mun Kitty Anderson sitja fyrir svörum Mani Bruce Mitchell, fyrsta „opinbera“ intersex manneskjan á Nýja-Sjálandi Bíó Paradís / Bíó Paradís cinema Þriðjudaginn 5. ágúst kl. 21.00 / Tuesday 5 August at 9 p.m. Aðgangur ókeypis / Free admission #pinkiceland 40

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.