Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Side 28
Ég velti því stundum fyrir mér hvernig hún
varð til þessi þörf, að ögra heiminum og
reyna að standa með sjálfum mér. Kannski
á ég allt þetta að þakka þeirri staðreynd
að ég gekk í gegnum hræðilegt einelti í
æsku. Ég er fæddur árið 1968 og ólst upp
í Danmörku fyrstu ár ævinnar. Fjölskyldan
fluttist svo til Íslands þegar var ég á áttunda
ári og ég settist í Snælandsskóla í Kópavogi,
í hóp krakka sem höfðu verið saman frá því
þau voru sex ára. Þeim þótti ég skrýtinn. Ekki
svo að skilja að ég talaði með hreim, þvert
á móti talaði ég óvenju vandaða íslensku
sem ég hafði lært af foreldrum mínum, var
harðmæltur eins og mamma, og kunni alls
ekkert íslenskt slangur. Það eitt nægði til að
gera mig öðruvísi í augum krakkanna.
Tilraun til manndráps í Snælandsskóla
Ég hafði heldur engan áhuga á þeirra
hugðarefnum, gat til dæmis engan veginn
skilið hvað væri svona spennandi við íþróttir
og smám saman jókst eineltið. Þegar ég var
tólf ára leið mér hræðilega. Þann vetur bað
söngkennarinn okkur einu sinni um að velja
lag sem okkur langaði til að syngja og koma
með tillöguna í tíma. Ég fékk mikið hrós frá
kennaranum fyrir það hvað ég hefði sett
mál mitt vel fram og útskýrt hvað mér þætti
svona gott við lagið. Þá tók steininn úr og
á heimleiðinni þennan dag var setið fyrir
mér. Ég var laminn sundur og saman, ég
missti meðvitund, með háræðasprengingar
í augum og illa marinn á barkakýlinu eftir
kverkatak strákanna í bekknum. Faðir minn
læknirinn sá til þess að ég fór í rækilega
skoðun og þar var kveðinn upp sá úrskurður
að aðeins hefði munað hársbreidd að ég
hefði verið drepinn. Þetta varð auðvitað
stórmál og kom til kasta skólastjórans en
þar var engan stuðning að fá. Hann sneri
málinu á hvolf, spurði hvort ég gæti ekki látið
minna fyrir mér fara því það væri greinilega
eitthvað við mig sem storkaði fólki. Með þann
dóm á bakinu þraukaði ég næstu árin.
Nakinn drengur á kletti
Og svo lá leiðin í Menntaskólann í
Kópavogi. Það varð hans mikla happ
því að fæstir af gömlu félögunum úr
Snælandsskóla fóru í framhaldsnám. Í
nýjum skóla var Sibbi óþekkt stærð.
Þessu fylgdi alveg ótrúlegt frelsi og
nú braust hann út þessi vilji til að finna
sjálfan mig og kveðja litlu mýsluna. Og ég
kom út úr skápnum á þann hátt sem sextán
ára strákur kunni best. Ég fór markvisst
að senda heiminum mín skilaboð og
varð „flamboyant“ svo um munaði. Einn
daginn mætti ég í skólann með lakkaðar
neglur, annan daginn með tvílitt hár og
þann þriðja með gloss á vörum og bleikan
augnskugga. Það merkilega var að þessu
var tekið meðal krakkanna, þetta var
um miðjan níunda áratuginn og ég féll á
einhvern hátt inn í ærslin og ókyrrðina sem
lá í loftinu. Stundum olli þetta fjaðrafoki á
efri hæðum en þó keyrði um þverbak þegar
við nokkrir strákar stofnuðum Pervertafélag
Ingólfsskóla, PISK. Eina framtak félagsins
var að búa til fyrstu síðu í dagatali með
mynd af „dreng mánaðarins“ og auðvitað
varð ég fyrstur fyrir valinu. Af mér voru
teknar þessar fínu myndir þar sem ég sat
nakinn uppi á kletti og síðan búið til plakat
sem við hengdum upp á skólaganginum.
Þá upphófst mikið fjaðrafok meðal
sumra strákanna í skólanum, þeim fannst
karlmennskunni ógnað og það varð til
þess að Ingólfur skólameistari skipaði
mannskapnum að fjarlægja myndina undir
eins. Þar endaði félagsstarfið í PISK og
næsti „drengur mánaðarins“ komst aldrei
upp á vegg. En ég man að þetta voru flottar
svarthvítar nektarmyndir!
Á þessum árum voru Samtökin ’78
fyrir löngu orðin sýnileg í samfélaginu,
allir vissu af þeim og þau buðu upp
á vandaða fræðslu og umræðufundi
í framhaldsskólum. Fyrstu árin mín í
menntaskóla var það reyndar átak að mæta
á fund, og strákarnir mönuðu hver annan
upp í alls konar fíflalátum til að geta látið
sjá sig. Svo var sportið það að reyna að
fíflast á fundunum. En þetta breyttist hratt
þessi fjögur ár og síðasta veturinn minn í
skólanum þótti sjálfsagt mál að mæta á þessa
fundi. Nú vildu allir fá Samtökin í heimsókn.
Sparkað inn í Samtökin ’78
Í öllum þessum fíflalátum gerðist nokkuð
sem hafði áhrif á líf mitt. Einn daginn
barst mér umslag frá Samtökunum ’78,
fréttabréf og gíróseðill og mér tilkynnt að
ég yrði þar fullgildur félagi um leið og ég
greiddi félagsgjaldið. Einhverjir spaugarar í
vinahópnum höfðu skráð mig símleiðis og
haldið sig vera að gera mér grikk. En ég tók
tilboðinu, fór niður á Lindargötu 49 þar sem
félagið var til húsa og greiddi mitt gjald. Þar
var fólk alveg miður sín og ég margfaldlega
beðinn afsökunar, svona lagað átti ekki að
geta gerst. En ég þakkaði bara pent fyrir
mig, hrekkurinn truflaði mig ekki meira en
svo. Eiginlega má segja að mér hafi verið
sparkað inn í Samtökin ’78!
Þar með var Sigurbjörn orðinn „einn af
hommunum“. Brátt fór hann að blanda geði
við fólk á vettvangi félagsins og það var
„svolítið sjokk“ eins og hann orðar það.
Ég man að þegar ég kom fyrst inn í
félagsmiðstöðina á fimmtudagskvöldi sat
þar fyrir hópur af miðaldra mönnum sem
stukku beinlínis á mig – ég var jú nítján ára.
Tólf ára í Snælandsskóla.
Drengur mánaðarins á fyrsta ári. Myndin sem eitt sinn
olli uppnámi í menntaskóla er hins vegar löngu glötuð.
Og ég man hvað samkynhneigð var ógurlegt
tabú fyrir mörgum. Fólk var að leggja bílum
sínum niðri við Skúlagötu og laumast eftir
krókaleiðum að húsinu og forðast svo að
lenda í geislanum af næsta ljósastaur á leið
inn í húsið. Þetta fannst mér skrýtið, en
eftir á að hyggja er hollt að hafa fengið að
kynnast þessum tímum og óttanum sem
lá í loftinu. Þetta átti svo eftir að breytast
ótrúlega hratt á næstu árum. Og áður en ég
vissi af var ég kominn í ungliðahópinn og
búinn að finna mér þennan fína kærasta.
En örlögin ætluðu Sigurbirni aðra leið.
Kvöld eitt var hann staddur á veitingahúsi
og við næsta borð sat stúlka með félaga
sínum úr hópi hommanna sem Sibbi
kannaðist við. Saman héldu þau svo öll í partí
vestast í Vesturbænum og þar fengu gestirnir
að gista í sófanum um nóttina. Stúlkan sem
kúrði við hliðina á Sigurbirni hét Nanna og var
förðunarfræðingur eins og hann.
Rændir sínum besta syni
Ég man að við löbbuðum heim um
morguninn og stoppuðum á nokkrum
kaffihúsum á leiðinni til að drekka te. Við
höfðum um svo margt að tala. Þegar við
kvöddumst vorum við orðnir vinir. Svo
fórum við að hittast og smám saman urðu
til sterkar tilfinningar sem hafa verið með
okkur síðan. Þegar ég áttaði mig á því að
ég var orðinn yfir mig ástfanginn af Nönnu
þá fyrst fannst mér ég verða að draga
andann djúpt. Tvíkynhneigð var ægilega
viðkvæmt málefni innan Samtakanna ’78,
alls staðar í kringum mig var fólk sem sagði
að þeir sem kölluðu sig tvíkynhneigða
væru bara að blekkja sig, þetta væru
hommar og lesbíur sem ekki treystu sér
til að koma úr skápnum. Eflaust var það
brot af sannleikanum, sumir höfðu farið
þá leið, en það var bara brot. Áður hafði
Einar Þorleifsson talað opinberlega um
tvíkynhneigð sína í Mannlífi árið 1986,
en af því vissi ég ekki þá og hafði engar
fyrirmyndir sem ég þekkti. Enn og aftur
stakk ég í stúf við heiminn, ég hafði komið
út sem hommi en varð svo að fara í hina
áttina og játa það fyrir sjálfum mér og
öðrum að ég væri tvíkynhneigður.
Þetta kostaði mikið stríð. Ég fann
fyrir mikilli reiði og í hópi hommanna var
harður kjarni sem lagði bókstaflega fæð á
Nönnu. Ýmsir muna Trixí sem nú er látinn.
Það var hreinlega óbærilegt að hitta hann
á götu. Hann ætlaði beinlínis í Nönnu og
hún fékk að heyra það að hún hefði rænt
hommaþjóðina sínum besta syni! Hún gat
ekki komið á mannamót þar sem Trixí var
staddur. En við áttum stuðning ungliðanna,
þeim fannst þetta mál okkar Nönnu og voru
ekkert að efast um tilfinningar okkar. Þetta
var sárast fyrir þann sem ég hafði átt að
kærasta nokkrum mánuðum áður. Þá kom
þessi spurning: Voru þá tilfinningar þínar til
mín bara blekking? En við fórum saman í
gegnum sársaukann og erum nánir vinir í dag.
Átök og klofningur
Átökin færðust svo á stærri vettvang
því að nú gerðum við ungliðarnir þá
kröfu til Samtakanna ’78 að þau nefndu
tvíkynhneigða í undirheiti félagsins. Málið
bar nokkuð brátt að og við skiptumst í
tvær fylkingar. Ég fékk að heyra það að
verið væri að útvatna tilgang og markmið
félagsins með þessari tillögu. Sjálfum fannst
mér óskiljanlegt að hópur sem barðist svo
hart fyrir réttinum til að staðfesta sig hvar
sem væri sem samkynhneigðar manneskjur
gæti haft svona harða afstöðu gegn
tvíkynhneigðum. Það var mikil reiði í loftinu
en minna um gagnleg skoðanaskipti og svo
fór að tillaga ungliðanna um það að nefna
tvíkynhneigða í heiti félagsins var felld á
aðalfundi 1993. Ég sé ennþá þennan fund
í móðu, ég var svo reiður, fannst ég hafa
verið svikinn af hópi sem ég hélt að stæði
með mér. Við þetta klufum við okkur út úr
félaginu, ungliðarnir, og stofnuðum Félagið,
félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra.
Þetta var erfiður róður en við störfuðum
þó í nokkur misseri og þar var ég formaður
fyrsta árið.
Félagið var til húsa við Lindargötu, á
efri hæð hússins sem hýsti ÁTVR og er nú
horfið. Beint á móti stóð hús Samtakanna
’78 og það var lítið talast við yfir götuna
næsta árið. En svo sameinuðumst við um
kröfugöngu sumarið 1994 og þá um haustið
minnir mig að flest í hópnum hafi aftur verið
komin á vettvang Samtakanna ’78.
Ertu ekki eins og þeytispjald?
Á þessum árum mæddi mikið á Sigurbirni,
hann var skýrasti og skeleggasti málsvari
tvíkynhneigðra í íslensku samfélagi, rólegur
og rökfastur svo eftir var tekið. Við hann
Hans alter ego – Fríða Johansen.
Íslenskur þokki – Fegurðarsamkeppni á Moulin Rouge 1991. Ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýsla er fimmta frá hægri.
54 55