Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Page 19
Að festast í samkynhneigða skápnum
Tvíkynhneigð, pankynhneigð og hinsegin samfélagið
Sigurður, viltu hefja samtalið á að
útskýra hvers vegna þú taldir þörf
á að stofna sérstakt félag fyrir
tvíkynhneigða og pan einstaklinga?
Sigurður: Ég taldi vera kominn tíma á að
gera eitthvað til að lyfta málefninu upp og
vekja umræðu. Það hafa lengi verið ýmsar
þreifingar í gangi innan þessa samfélags
án þess að nokkuð hafi orðið úr. Mitt
markmið var að reyna að fá tvíkynhneigða
og panfólk saman til að hreinlega ræða
málin, skoða aðgerðir og velta upp áríðandi
spurningum sem við stöndum frammi fyrir,
eins og hver sé framtíð þessa hóps.
Hluti af vandanum er sá að hópurinn
er tvístraður og ólíkar hugmyndir eru uppi
um hvað sé best að gera. Mín upplifun
af fundinum síðasta haust var sú að
ákveðinn hópur fólks vildi stunda þessa
málefnavinnu alfarið utan Samtakanna
‘78 á meðan aðrir vildu stofna félag fyrir
tví- og pankynhneigða undir verndarvæng
Samtakanna. Þriðji hópurinn taldi síðan
ákjósanlegast að kljúfa félagið algjörlega úr
Samtökunum ‘78 og stofna ný samtök fyrir
hinsegin fólk.
Setta og Sólver, eruð þið
sammála lýsingunni sem kemur
fram í fundarboðinu, til dæmis
að tvíkynhneigðir og panfólk
séu jaðarhópur innan hinsegin
samfélagsins og ýmiskonar fordómar
hafi fengið að viðgangast þar óáreittir?
Setta: Ég er algjörlega sammála þessari
lýsingu og hef sjálf upplifað slíka fordóma.
Það vill oft gleymast þegar talað er um
hinsegin samfélagið að við erum ekki
öll eins og mjög oft fellur umræðan í þá
gryfju að tala um hópinn sem einungis
samkynhneigða einstaklinga. Það tel ég
vera ákveðna tegund af þöggun.
Auk þess eru margir gagnkynhneigðir
og samkynhneigðir haldnir margskonar
fordómum gagnvart hópnum og viðhalda
skrítnum hugmyndum um hvernig það sé að
vera tvíkynhneigður eða pan.
Sólver: Það fyrsta sem ég hugsaði var
„loksins“. Út af sögunni var maður dálítið
nervus vegna þess að fundurinn átti að fara
fram undir hatti Samtakanna en á sama
tíma vonaði ég að þetta leiddi til stofnunar
alvöru félags sem fengi í framhaldinu
fulltrúa í trúnaðarráði Samtakanna og þar af
leiðandi fasta rödd þar innanborðs.
Undanfarin ár hefur hinsegin réttindabarátta á Vesturlöndum í
auknum mæli beinst að jaðarhópum sem lengi vel stóðu í skugganum
af réttindabaráttu samkynhneigðra. Á Íslandi stóðu málefni
tvíkynhneigðra og seinna pankynhneigðra einstaklinga – þeirra sem
laðast að fólki óháð kyni og gera ráð fyrir að kynin geti verið fleiri
en tvö – lengi vel á hliðarlínunni. Árið 1993 klofnuðu Samtökin
‘78 til dæmis vegna togstreitu innan hreyfingarinnar um stöðu
tvíkynhneigðra í réttindabaráttu hinsegin fólks.
Á haustdögum síðasta árs var boðið til opins undirbúningsfundar
um stofnun félags fyrir tví- og pankynhneigða í Regnbogasal
Samtakanna ‘78 að frumkvæði Sigurðar Júlíusar Guðmundsssonar,
þáverandi varaformanns Samtakanna. Í fundarboðinu stóð meðal
annars: „Tvíkynhneigð og síðar pansexual fólk hefur lengi verið
jaðarhópur innan hinsegin samfélagsins og hafa sætt ýmiskonar
fordómum sem hafa fengið að viðgangast óáreittir allt of lengi.
Margar raddir hafa heyrst tala um að tvíkynhneigðir hafi verið skildir
eftir í réttindabaráttunni og hafi einnig orðið undir þegar kemur að
fjölmiðlaumfjöllun og fræðslu sem hafi leitt til þess að þekking fólks
á hugtakinu er takmörkuð og lituð fáfræði.“ Jón Kjartan Ágústsson
settist niður með Sigurði til að ræða nánar um tilurð fundarins, sem
og stöðu og réttindabaráttu tvíkynhneigðra og panfólks á Íslandi.
Einnig var rætt við Sesselju Maríu Mortensen (Settu), fyrrverandi
formann Q – félags hinsegin stúdenta, og Sólver Hafstein Sólversson
en þau hafa bæði tekið virkan þátt í réttindabaráttu innan raða
tvíkynhneigðra og panfólks.
Það er ennþá útbreitt viðhorf að tví- eða
pankynhneigð sé tímabundið ástand og
að tví- og pankynhneigðu fólki sé síður
treystandi til stofna til stöðugs sambands
en öðrum. Af hverju haldið þið að þessar
hugmyndir lifi enn svo sterku lífi?
Setta: Það er alveg rétt að margir taka
tímabil þar sem þeir kalla sig tvíkynhneigða
á meðan þeir eru að átta sig á kynhneigð
sinni. Það má ekki gleyma því að þetta
getur verið erfitt tímabil og mikill
tilfinningarússíbani. En hins vegar er ekki
réttlætanlegt að samfélagið varpi þeirri
upplifun yfir á allt tví- og pankynhneigt fólk.
Sigurður: Vandamálið er þessi tilhneiging
að þurfa að draga fólk í dilka. Til dæmis er
algengt að tvíkynhneigt fólk sem er komið
í samband sé samviskusamlega flokkað í
kynhneigðir út frá því af hvaða kyni maki
þeirra er. Þetta er mál sem ég heyri mjög
oft, að um leið og tvíkynhneigt fólk fari í
samband með manneskju af gagnstæðu
kyni, þá sé ekki lengur litið á það sem
tvíkynhneigt.
Hvernig eru viðhorf gagnvart
tvíkynhneigðum og panfólki innan
hinsegin samfélagsins?
Setta: Hinsegin samfélagið er ótrúlega stór
hópur, þannig að það fer algjörlega eftir
því hverja þú umgengst og hverja þú ert að
hitta. Ég man vel eftir fyrsta fundinum sem
ég sat með þáverandi stjórn Samtakanna
‘78 fyrir nokkrum árum og þurfti að hlusta á
fyrrverandi formann segja að tvíkynhneigðir
væru ekki raunverulegur hluti af hópnum
sem væri að berjast fyrir réttindum hinsegin
fólks. „Hvað er maðurinn að tala um?“
hugsaði ég með mér og sökk niður í sætið.
Sigurður: Annar punktur í þessu er að
„pansexúal“ er tiltölulega nýtt hugtak.
Þegar ég kom fyrst úr skápnum kom ég út
sem tvíkynhneigður en hætti með tímanum
að skilgreina mig þannig því mér fannst
það ekki passa. Ég upplifði mig mun sterkar
sem samkynhneigðan. Það var ekki fyrr en
ég fór að lesa mér til um pankynhneigð
að hlutirnir fóru að passa aðeins betur.
Myndin fór loks að skýrast þegar ég lærði
um kynhneigðina „androsexúal“, sem lýsir
sér þannig að ég laðast að karlkyns atferli
og persónuleika fólks en ekki kyni. Oft velti
ég fyrir mér hvort það séu ekki fleiri sem
eru einnig á flakki á þessu litrófi. Fólk sem
kannski hefur ekki getað skilgreint sig sem
tvíkynhneigt og velur því eitthvað annað
upp á einfaldleikann. Það er nefnilega ekki
spennandi tilhugsun að vera tvíkynhneigður
í samfélaginu eins og það er í dag.
Sólver: Í gegnum tíðina hef ég, líkt og
margir, upplifað fordóma innan hinsegin
samfélagsins. Viðbrögð sumra þegar þeir
uppgötva að ég er tvíkynhneigður eru köld
og í kjölfarið snúa þeir oft bakinu í mann.
Sama fólk segir einnig gjarnan að það gæti
aldrei hugsað sér að deita tvíkynhneigða.
Samtökin ‘78 létu gera könnun á högum
hinsegin fólks á Íslandi í byrjun þessa
árs. Þar kom meðal annars fram að
tvíkynhneigðir upplifa oftar fordóma en
samkynhneigðir og eiga erfiðara með
að koma út skápnum. Hver voru ykkar
viðbrögð við þessum niðurstöðum?
Sólver: Fyrstu viðbrögð mín voru að klípa
mig í handlegginn og spyrja hvernig gæti
staðið á þessu árið 2014 en eftir smá
umhugsun kom þetta í raun ekkert á óvart.
Maður þekkir fullt af dæmum þar sem fólk
er fast í samkynhneigða skápnum.
Setta: Ég hef átt mörg samtöl við aðra
tvíkynhneigða og paneinstaklinga sem hafa
deilt því með mér að það einfaldlega nenni
ekki að útskýra kynhneigð sína fyrir fólki,
aftur og aftur.
Sigurður: Það er einfaldlega svo að
samfélagið hafnar þessu og línan er að
tvíkynhneigð sé ekki málið og eigi ekki
að vera til. Um leið og þú segir að þú sért
opin/n fyrir einhverju öðru en einhverju
einu, þá er þér ekki treystandi. Fólk á
að drífa sig út úr skápnum og velja sér
eitthvert lið!
Setta: Þetta voru nákvæmlega viðbrögðin
sem ég mætti þegar ég var 17 ára og kom
úr skápnum sem tvíkynhneigð. Ég fann
að ef ég sást ekki í sambandi með stelpu
fór umhverfið að ýta mér hægt og sígandi
aftur í skápinn. Síðan eftir að ég byrjaði
í langtímasambandi með strák var líkt
og kynhneigð mín væri ekki lengur tekin
alvarlega. Þess vegna hætti ég alveg að tala
um þessi mál þar til nokkrum árum síðar
þegar við slitum sambúð og í framhaldinu
kom ég í raun aftur út úr skápnum, fyrst
sem tvíkynhneigð og síðar sem pan.
Upplifunin frá samfélaginu hefur hingað til
verið sú að kynhneigð mín sé ekki „alvöru“
nema þegar ég er í sambandi með stelpu.
Sólver: Þetta kemur fram á fleiri sviðum. Í
sjónvarpsþáttum sér maður tvíkynhneigða
oft notaða sem illmenni eða ótraustvekjandi
„femme fatale“.
Sigurður: Nákvæmlega, lauslátir
einstaklingar sem eru kynferðislega leitandi.
Wild card!
Setta: Stjórnleysingjar sem geta ekki valið
eitthvað eitt!
Hvað þarf að gera til að auka vitund
samfélagsins um hópinn og lyfta
umræðunni?
Setta: Fræðsla, hvetja fólk til að gúgla!
Sólver: Fólk getur nýtt persónuleg tengsl
inn á borð fjölmiðla til að fræða þá og
tryggja málefnalega umræðu.
Sigurður: Fræðsla er mjög mikilvæg og í
gegnum tíðina hefur verið ótrúlega lítil
fræðsla um tvíkynhneigð. Í raun tók barátta
samkynhneigðra yfir allt og tvíkynhneigðum
var ýtt til hliðar ásamt transfólki. Í dag
erum við að sjá málefni transfólks fá örlítinn
meðbyr en slíkt hið sama hefur ekki átt sér
stað hjá tvíkynhneigðum og panfólki. Það
sem tvíkynhneigða og panfólk hefur skort
að mínu mati eru áberandi talsmenn. Ef við
horfum aftur í tímann og skoðum baráttu
samkynhneigðra þá var það breiður hópur
sem stóð að henni. En það var líka alltaf
einhver einn eða tveir sem voru tilbúnir að
tala máli hópsins og afhjúpa sig fyrir alþjóð.
Að sjálfsögðu er flókið að ætlast til þess
að ein manneskja geti talað fyrir heilan
hóp en það hefur gríðarleg áhrif upp á
36 37