Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Qupperneq 24
Tónleikar Hinsegin kórsins
Reykjavík Queer Choir concert
Hinsegin kórinn efnir til tónleika í tilefni Hinsegin daga í
Reykjavík í Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 8. ágúst.
Kórinn hefur á undanförnum misserum getið sér gott orð
undir stjórn Helgu Margrétar Marzellíusardóttur og er meðal
annars nýkominn frá Dublin á Írlandi þar sem hann tók þátt í
Various Voices, alþjóðlegu kóramóti hinsegin kóra. Þar hlaut
Hinsegin kórinn mikið lof fyrir frammistöðu sína. Kórinn
er öllum opinn að undangengnum raddprófum. Næstu
raddpróf fara fram mánudaginn 11. ágúst klukkan 19:30 í
nýju húsnæði Samtakanna ´78 suðurgötu 3.
Að vanda er efnisskrá tónleikanna afar fjölbreytt og því
ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Forsala miða fer
fram hjá kórfélögum og í Kaupfélagi Hinsegin daga.
The Reykjavík Queer Choir performs in Fríkirkjan Church
in Reykjavík on Friday 8 August. The choir participated
in Various Voices, an international LGBT choral festival,
in Dublin in June, where it received much praise. Their
programme includes a great variety of songs so everyone
should find something to their taste.
Fríkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 8. ágúst
kl. 19:30. Aðgangseyrir:
1.900 kr. í forsölu. Við hurð:
2.400 kr. Pride-passi veitir
500 kr. afslátt við hurð.
Fríkirkjan Church,
Friday 8 August at
7:30 p.m. Pre-sale
tickets: 1.900 ISK. Full
price tickets: 2.400 ISK.
500 ISK discount at the
door with Pride pass.
Fræðsluviðburðir á Hinsegin dögum
Nekt, kynlíf og önnur tabú
Nudity, Sex and Other Taboos
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 12:00
Thursday 7 August at 12 p.m.
Hvernig varð nekt vandamál í
gleðigöngunni? Eru kynlífsjaðarhópar
velkomnir í hinsegin samfélaginu? Af hverju
er ekki talað um vændi? Eru geirvörtur
velkomnar í göngunni? Þessum spurningum
og fleirum verður velt upp á lifandi og
opnum umræðufundi.
This talk will focus on prudeness in the
Icelandic LGBT rights movement. Where
is the queerness? The event will be in
Icelandic.
Intersex líf
The Intersex Experience
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 18:00
Thursday 7 August at 6 p.m.
Eins og fram kemur í viðtali við Kitty
Anderson í þessu tímariti hefur intersex
fólk lengi þurft að glíma við margvíslega
samfélagslega þöggun og illa meðferð á
borð við óþarfar skurðaðgerðir. Í þessum
fyrirlestri fræðir Kitty gesti um intersex og
ýmis mál því tengd auk þess að greina frá
eigin reynslu og sýn á hvernig það er að lifa
sem intersex einstaklingur.
In this lecture, Kitty Anderson discusses
various problems and issues intersex
people have to deal with in their everyday
lives. The event will be in Icelandic.
Hinsegin dagar standa fyrir þremur fræðsluviðburðum þar sem gestir og þátttakendur fá
tækifæri til að rökræða og fræða hver annan um málefni tengd hinsegin samfélaginu á
Íslandi og úti í heimi. Viðburðirnir fara fram á efstu hæð á Loft Hosteli og eru öllum opnir.
Loft Hostel býður upp á hamingjustund (happy hour) alla daga frá 16:00–20:00 og mun þar
að auki bjóða upp á sérstök tilboð á barnum fyrir handhafa Pride-passans.
This year Reykjavík Pride invites their guests to three educational events which focus
on various gender and sexuality issues. The events will take place at Loft Hostel in
Bankastræti, where Pride Pass holders get a special offer on drinks and Happy Hour is on
between 4 and 8 p.m.
Hinsegin og forréttindi
Queer and Privileges
Föstudaginn 8. ágúst kl. 12:00
Friday 8 August at 12 p.m.
Af hverju er forsvarsfólk hinsegin
baráttunnar hvítt, ófatlað, „gender
confirming“ og vel stætt? Á þessu pallborði
mun fjölbreytilegur hópur fólks ræða um
hvernig gefa megi fleirum rödd í umræðu
um hinsegin málefni. Viðburðurinn fer fram
á ensku.
Why are the spokespeople for the
LGBT rights movement mostly white,
non-disabled, gender conforming and
affluent? A diverse panel of participants
will debate how the movement can empower
more voices to participate in the queer
movement. The event will be in English.
Loft Hostel,
Bankastræti 7
Aðgangur ókeypis
Free admission
Kaupfélag Hinsegin daga
Pride Service Center
Í nýju húsnæði Samtakanna ’78 við Suðurgötu 3 / at Suðurgata 3
Kaupfélagið er opið alla daga frá 4. til 8. ágúst kl. 12:00–20:00
Open from 12 p.m. to 8 p.m. from 4 August to 8 August
Pride-passar, aðgöngumiðar og hátíðarvarningur í miklu úrvali
Offers everything you need for the Pride
NÝJAR VÖRUR
Í BOÐI!
46 47