Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Blaðsíða 30
að nú væri hann „orðinn gagnkynhneigður“
og ætti þá bara að þagna um þau mál sem
á honum brunnu. En þannig hefur Sibbi
aldrei litið á málin, kynhneigðirnar eru hans
stóra gjöf, og hann leggur rækt við sína
gömlu vini í hópi hommanna og menningu
þeirra. Og lætur sig varða baráttuna fyrir
betra lífi okkar allra.
Það hefur margt gott gerst í
hreyfingum okkar síðustu áratugi og ný
hugtök fæðst. Í dag skilgreini ég mig sem
pansexúal, ég hrífst jafnt af konum og
körlum, transfólki af báðum kynjum og
fólki sem skilgreinir sig sem intersex. Til
allrar hamingju hafa nú þessir hópar tekið
höndum saman. Það felst í því ótrúlegur
styrkur sem við vorum lengi að koma
auga á. Og ég hef aldrei týnt áhuganum
á baráttunni þótt ég lifi sjálfur ósköp
friðsælu lífi núna. Ég hef upp á síðkastið
verið að reyna að vekja áhuga fólks á
baráttu hinsegin fólks í Rússlandi, reynt
að safna saman stuðningshópi á Netinu
til að „ættleiða“ unglinga í Austur-Evrópu
sem eiga erfitt vegna kynhneigðar sinnar
eða kynvitundar. Það gengur erfiðlega, fólki
finnst hugmyndin góð en skortir viljann
til framkvæmda. Þó að líf okkar sem erum
hinsegin hér á Norðurlöndum sé með því
besta sem þekkist þá er baráttunni ekki
lokið og við verðum að taka okkar hluta af
ábyrgðinni. Það eitt er nógu hræðilegt að
nú er terrorinn í Austur-Evrópu beinlínis
ríkisrekinn. Það var hann þó aldrei á Íslandi
og á því er stór munur.
En ég horfi ekki fram hjá því góða
sem gerist í kringum mig. Það er til dæmis
eitthvað ótrúlega sterkt og fallegt við það
að dóttir okkar Nönnu hefur bæði komið
heim með kærasta og kærustu og það þykja
engin stórtíðindi á okkar bæ. Hún fær sitt
rými til að leita að því lífi sem hún vill lifa án
þess að neinn þrýsti á um að hún skilgreini
sig eitt eða annað.
What’s One Queen Among Lovers?
Sigurbjörn Svansson dashed out of the
closet at age sixteen. Three years later he
had become part of the gay community
in Reykjavík and had found himself a
boyfriend. Then he met a girl, a makeup
artist like himself, and she became the
love of his life and his wife. Sibbi had to
admit to himself and to the world that he
was bisexual. During the 1990s he was
one of the most prominent advocates for
bisexuality in Iceland and cleared a path
for others to follow. During this time, he
was also active on the gay scene as a drag
artist and a member of the drag vocal
quartet, The Christmas Carols, who once
told the president and cabinet of Iceland
to shut up, as the queens were ready
to perform. In a lively interview, Sibbi
recalls the oppression of days past, a few
defeats and many more victories, and the
necessity of standing by one’s inner self –
regardless of whether one is wearing pants
or a dress.
Sól okkar daga...
Sibbi okkar daga...
Stolt siglir fleyið mitt
Queer Cruise from Reykjavík Harbour
ÆVINTÝRI Á SJÓ
Hvalaskoðunarferðir Eldingar eru á áætlun allt
að sex sinnum á dag og tekur hver ferð um
þrjár klukkustundir. Einnig eru áætlunarferðir
í sjóstöng og lundaskoðun daglega ásamt
ferjusiglingum til Viðeyjar. Frítt er í Hvalasetrið
þar sem gestir geta fræðst um lífríki hafsins í
máli og myndum.
ADVENTURES AT SEA
Ever since its foundation fourteen years ago,
Elding has been an actively LGBT friendly
company, emphasizing warm welcomes and a
friendly approach. The company specializes in
whale watching tours and other adventures
at sea around Reykjavík. Whale Watching
tours are scheduled up to six times a day and
each tour is approximately three hours long.
Other tours are scheduled daily, including
sea angling, puffin tours and a ferry to Viðey
Island. Access to the Whale Watching Center is
free for our passengers. Elding Whale Watching
Ægisgarður 5 – 101 Reykjavík
Tel. (+354) 519 5000 – www.elding.is
Frá gömlu höfninni
Ægisgarði,
föstudaginn 8.
ágúst kl. 22:00.
Aðgangseyrir:
2.500 kr.
From the old harbour,
Friday 8 August at
10 p.m. Price of
admission 2.500 ISK.
Föstudaginn 8. ágúst er boðið upp á hinsegin siglingu frá
gömlu höfninni í Reykjavík. Siglt er um sundin blá undir
léttri leiðsögn og við skemmtilega tónlist í um klukkustund.
Hinsegin tilboð verða á barnum um borð og blaktandi
regnbogafánar. Leiðin liggur í kringum eyjarnar á firðinum þar
sem gestum gefst tækifæri á að sjá borgina frá nýju sjónarhorni.
Reykjavík Pride invites you on a Queer Cruise! Sailing
around the small islands off the coast of Reykjavík, this
guided tour is a unique opportunity to view the city from
a different perspective. The cruise will feature fantastic
music as well as special offers at the bar. The ship will set
sail, so to speak, on Friday, 8 August, at 10:00 p.m. from
the old harbor in Reykjavík, a few minutes walk from the
city center.
58 59