Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Urður Egilsdóttir
Gísli Halldór Magnússon, bóndi á
Ytri-Ásum í Skaftártungu, kveðst
ekki hafa miklar áhyggjur af Skaft-
árhlaupi í núverandi mynd enda virð-
ast mælingar benda til þess að rennsli
sé minnkandi og að hámarki hafi verið
náð á þriðjudag.
„Ef það verður ekki meira en þetta,
ef það fer ekki hærra, þá er það mikið
happ því öll hækkun úr þessu er afleit.
Þá fer þetta að fara mikið út á gróið
land. Þetta heldur sig nokkuð við far-
vegina hér. Ef það færi að hækka um
einhverja tvo-þrjá metra úr þessu þá
fer þetta að fara hérna út um allt, eins
og það gerði 2015. Við sjáum enn farið
eftir það flóð.“
Drullan þétt sem steypa
Að sögn Gísla Halldórs hafa fyrri
hlaup leikið hann grátt þar sem flætt
hefur yfir tún og gróður í nágrenninu.
Geta eftirmálar slíks flæðis reynst af-
ar erfiðir þar sem drullan í jökulvatn-
inu fer illa með gróður og ræktað
land.
„Þetta drepur einhver veginn allan
gróður og kæfir allt. Þessi leir verður
svo þéttur. Það sjást hérna gráar
þústir, þetta var allt gróið land, vel
gróið, en þetta er bara grátt núna og
jafnar sig illa. Ræfilslegt. Það fór
hérna hlaup yfir tún og langt suður í
hrauni og þau hafa eiginlega aldrei
jafnað sig. Þetta virkar bara eins og
kal, þau bara köfnuðu. Drullan er svo
þétt, þetta er bara eins og steypa.“
Leirinn og drullan sem situr eftir
hlaupin getur skapað mikla hættu
fyrir dýr sem eiga þar för hjá. Fóru
bændur nýlega og smöluðu fé í heima-
högum til að koma í veg fyrir að það
lokist inni eða festi sig.
„Þetta verður bara kolfast í þessu
og sest svo á löppunum á því. Þetta
bara drepst í þessu og hefur náttúru-
lega drepist oft. Sumt finnst og sumt
finnst aldrei. Svo eru hrafninn og tóf-
an fljót að koma og skoða þegar það
fer að festa sig.“
Að sögn Gísla Halldórs hafa stærri
gripir en búfénaður lent í ógöngum
vegna drullunnar. Segist hann vita til
þess að hestur hafi næstum farist eft-
ir að hafa fest sig í feni suðaustur af
Hólakofanum við Hólaskjól eftir
hlaup í Skaftá. Tókst knapanum að
halda nösunum á hestinum fyrir ofan
yfirborðið á drullunni með því að toga
í tauminn. Fyrir mikla heppni voru þó
gæsaskyttur á leið fram hjá þegar at-
vikið átti sér stað með skóflur með-
ferðis og hófust þeir handa við að
moka hestinn upp. Hafðist það að lok-
um og tókst þeim að bjarga hestinum.
Gísli Halldór vekur athygli á því að
það sé þó ekki eingöngu gróður og
dýr sem séu í hættu heldur er Skaft-
ártungan einnig rík af fornminjum frá
tímum papanna og er búsetusagan
þar afar áhugaverð. Þegar stór hlaup
koma, líkt og árið 2015, er þó hætt við
því að vatnið ryðji niður árbakka og
minjar sem þar finnast.
Dreifir úr sér á næstu dögum
Að sögn Einars Hjörleifssonar,
náttúruvársérfræðings á Veðurstofu
Íslands, er hlaupið nú í rénun. Há-
marksrennsli náðist við Sveinstind á
þriðjudag, um 1.500 rúmmetrar á sek-
úndu. „Síðan þá hefur verið nokkuð
jafnt rennsli í um sólarhring og nú er
það heldur lækkandi,“ segir Einar.
Viðbúið er að vatnið muni halda
áfram að dreifa úr sér um láglendið á
næstu dögum. „Það mun taka ein-
hverja daga fyrir vatnsrennslið að
verða aftur eðlilegt,“ segir Einar.
Morgunblaðið/Eggert
Skaftárhlaup Hámarksrennsli náðist við Sveinstind á þriðjudag. Síðan þá hefur vatnsrennslið lækkað hægt og rólega en búast má við að vatnið muni halda áfram að dreifa sér um láglendið.
Dýr, gróður og
minjar í hættu
- Flóðið í árfarveginum í rénun - Drullan erfið viðureignar
Morgunblaðið/Eggert
Bóndi Gísli Halldór Magnússon, bóndi á Ytri-Ásum í Skaftártungu, kveðst
ekki hafa miklar áhyggjur af hlaupinu í núverandi mynd.
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel
Sími 555 3100 www.donna.is
Góð á erlendum
ferðalögum,
í flugvélum og
á flugvöllum
10 stk. verð
kr. 720
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma