Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 211. tölublað . 109. árgangur .
TEKUR VIÐ
FORMENNSKU Í
LANDSBJÖRG
BORGARLEIK-
HÚSIÐ KYNNIR
NÝTT LEIKÁR
EYÞÓR HEFUR
SPILAÐ Á BÖLL-
UM Í 44 ÁR
STÆKKA SJÓNARSVIÐIÐ 60 SEXTUGUR Í DAG 56OTTI SIGMARSSON 14
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Enn rís land við eldstöðina Öskju og
hefur nú risið um 6,5 til 7 sentimetra
síðan bera fór á því í byrjun ágúst.
Miðja þenslunnar er við vesturjaðar
Öskjuvatns nálægt Ólafsgígum.
„Þetta virðist vera hröð þensla,“
segir Benedikt Gunnar Ófeigsson,
sérfræðingur Veðurstofunnar á sviði
jarðskorpuhreyfinga, í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta er virk eldstöð
en hún hefur verið kannski frekar
róleg undanfarið. Þannig að það var
tímaspursmál hvenær þetta færi í
gang aftur.“
Landrisið sést glögglega á GPS-
stöð sem staðsett er inni í öskjunni.
Að auki nýtast gervitunglamyndir til
að staðsetja betur miðjuna á landris-
inu. Þær eru teknar á nokkurra daga
fresti. „Þannig getum við fylgst með
færslum upp á sentimetra, með því
að bera nýjustu myndirnar saman
við fyrri myndir. Þær sýna sambæri-
legt ris á við GPS-stöðina.“
Ef þessi þensla endar með gosi, er
þá ekki líklegra að það verði seinna
heldur en fyrr?
„Jú, ég myndi halda það. Þegar
maður sér eitthvað byrja í eldstöð þá
er það nú oftast eitthvað sem tekur
smá tíma til að vaxa og verða eitt-
hvað meira.“
Síðast gaus Askja árið 1961. Land-
ris mældist síðan við eldstöðina á ár-
unum 1970-1972.
Hröð þensla við Öskju
- Land hefur risið um 6,5 til 7 sentimetra frá því í byrjun
ágúst - Landrisið sést vel á GPS-stöð sem er inni í öskjunni
Morgunblaðið/Eggert
Eldstöð Askja sést hér í forgrunni
og Vatnajökull er í bakgrunni.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tapaði fjórða leik sín-
um í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í gærkvöldi.
Liðið mætti sterku landsliði Þjóðverja og mátti þola stórt tap;
0-4. Íslenska liðið sá aldrei til sólar í leiknum og hefði sigur
Þjóðverja vel getað orðið stærri. Ísland er áfram í fimmta og
næstneðsta sæti riðilsins með fjögur stig eftir sex leiki en
Þjóðverjar eru með 15 stig í efsta sætinu. Markvörðurinn
Hannes Þór Halldórsson tilkynnti eftir leikinn að hann hefði
leikið sinn síðasta landsleik. »58-59
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslendingar sáu aldrei til sólar gegn sterkum Þjóðverjum
VÍTAMÍNDAGAR
9.--15. SEPTEMBER
25% AFSLÁTTUR AF
NOW, GULA MIÐANUM,
BIO KULT OG BETTER YOU
25%
AFSLÁTTUR
Halldóra Mogensen, þingflokks-
formaður Pírata, segir að Píratar
muni reikna út og birta fyrir kosn-
ingar hvaða ríkisútgjöld tillögur í
stefnuskrá þeirra muni hafa í för
með sér. Píratar hafa birt ítarlega
stefnuskrá um verkefni, sem þeir
vilja beita sér fyrir á komandi kjör-
tímabili, en þar er ekki getið um
áætlaðan kostnað eða ætlaðar tekjur
til þess að mæta honum.
Þetta er meðal þess, sem fram
kemur í forystuviðtali Dagmála
Morgunblaðsins, sem birt er í opnu
streymi á mbl.is í dag. Jafnframt er
útdrátt úr viðtalinu að finna í blaðinu
í dag.
Píratar vilja m.a. stíga fyrstu
skref í átt til borgaralauna, nýja
skipan lífeyrissjóða, almannatrygg-
inga og stóraukin ríkisumsvif. »6
Píratar ætla að
reikna kostnaðinn
- Halldóra Mogensen í Dagmálum
Morgunblaðið/Unnur Karen
Dagmál Halldóra Mogensen.