Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Allmörg dæmi
eru þekkt
að fornu og
nýju um pólitísk
smælki sem ráða
óvæntum úrslitum
í lífi stjórnmálamanna og
-flokka. Og eins eru dæmin
ekki fá um að lélegur trúnaður
við stjórnmálalega stefnu
flokksins, eða subbulega um-
gengni forystumanna um hana
reynist dýrkeypt. Hitt er vissu-
lega til að menn nái að „kjafta
sig út úr“ meintum svikum með
„vísun í gjörbreyttar aðstæður“
sem réttlæti slíkar gerðir.
Alþekkt er einnig, úr hinum
stóra heimi, að losaraleg um-
gengni í siðferðilegum efnum af
ýmsu tagi verði mönnum dýr-
keyptari en þeir ætluðu. En
hitt var lengi þekkt að stjórn-
málamenn hafi lengi sloppið
með ólíkindum vel frá slíku
mynstri. John F. Kennedy,
„með sína fallegu fjölskyldu“,
myndi ekki sleppa í dag, dáður
og dýrkaður til hinstu stundar
eins og þá. Síðari forseti og
flokksbróðir þótti drjúgur í
sömu efnum en var þó eins og
hvítskúraður engill hjá sinni
miklu fyrirmynd. Í fyrra dæm-
inu gengu allir helstu „fjöl-
miðlar“ Bandaríkjanna upp í
því að frétta helst aldrei neitt
um þessa hlið forsetans. Vísast
telur valda- og frægðarfólk sér
öruggara að að stilla slíku óhófi
í mun meira hóf en gert var á
þessum árum. Þau sjónarmið
eru reyndar viðruð að of mikil
áhersla sé lögð á að slík „feil-
spor“ skuli hafa stjórnmála-
legar afleiðingar en rétt sé. Á
hinn bóginn sleppi stjórn-
málamenn allt of létt frá svikn-
um loforðum og næsta frjáls-
legri umgengni við sannleikann
og þau fyrirheit sem gefin voru
kjósendum í aðdraganda kosn-
inga.
Fróðlegt er að horfa á „B-in
þrjú“ í þessu samhengi. Saga
Joe Bidens er alþekkt og auð-
velt að spila myndbrot um
framgöngu hans til áratuga þar
sem orð og gerðir núverandi
forseta stangast í sífellu á og
eiga reyndar sjaldnast nokkra
samleið. En eins og nú er komið
er ekki lengur hægt að gera
kröfur til þess að hann sé sjálf-
um sér samkvæmur.
Sem nýleg dæmi um smámál
sem hafa farið fyrir brjóstið á
almenningi er atvikið um ógeð-
fellt gláp hans á armbandsúr
sitt á viðkvæmustu stundu,
þegar forsetinn tók á móti
sveipuðum kistum með líkams-
leifum bandarískra hermanna í
hópi nánustu ættingja þeirra.
Þess háttar kæk má afsaka hjá
manni sem hefur litla stjórn á
sjálfum sér eftir að hafa lent
inni á kvikmynd sem var miklu
leiðinlegri en hann bjóst við.
En það er reyndar annað al-
kunnugt atvik um forseta og
úrið hans sem pirr-
aði marga. Þegar B
númer 2, Bush
eldri, var í kapp-
ræðu við Clinton og
Perot, áskorendur
hans, náðu sjónvarpsvélar
myndum af því þegar forsetinn
glápti á úrið sitt þegar and-
stæðingarnir voru að tala.
Hæpið er þó að halda því fram
að það atvik hafi ráðið úrslitum
en það var mikið sýnt og fékk
mikið áhorf. En hvað réð þá
úrslitum um að Bush tapaði í
kosningum sem kannanir höfðu
lengi sýnt að hann myndi senni-
lega vinna tiltölulega auðveld-
lega? Miklu skipti að auk fram-
bjóðanda demókrata náði
flokksbróðir forsetans ekki
aðeins að komast í alvörufram-
boð, heldur einnig að draga
miklu meira fylgi frá Bush en
spáð var og dugði það til sigurs
Clintons þótt hann hefði miklu
minna fylgi en repúblikanarnir
tveir höfðu samanlangt. En það
sem tryggði aukaframboðið og
ósigur Bush var að mati
margra að hann braut kosn-
ingaloforð sitt frá síðustu kosn-
ingum á undan.
Er það virkilega að svik við
kosningaloforð geti haft þvílík
áhrif? Yrði þá nokkur þingmað-
ur frá kjörtímabilinu á undan
áfram á Alþingi eftir kosn-
ingar? Það er vissulega sjald-
gæft að svik við kosningaloforð
hafi jafn afdrifarík áhrif og svik
á einu loforði höfðu í þessu til-
viki. Fyrir kosningarnar 1988
hafði George Bush eldri lofað
því með eftirminnilegum hætti
að hann myndi alls ekki hækka
skatta á nýju kjörtímabili. Og
útslagið gerði að hann gaf það
loforð oft og sérlega eftirminni-
lega: „READ MY LIPS,“ sagði
hann ítrekað og benti á varir
sínar: „Ég mun ekki hækka
skatta.“ Fullyrt var að ekkert
eitt hafi verið jafnoft spilað í
kosningasjónvarpi og þetta um
forsetann og varir hans.
En hvar kemur þriðja B-ið
við þessa sögu? Boris lofaði því
auðvitað í kosningunum að enn
eitt B-ið, Brexit, yrði efnt fengi
hann þingstyrk til þess og það
gerði hann fljótt og myndar-
lega og mun lengi hafa heiður
af. En hann og hundruð með-
frambjóðenda minntu einnig
samfleytt á að Íhaldsflokkurinn
væri eina örugga vörnin gegn
skattahækkunum og myndi
snúa af braut skattahækkana
strax þegar færi gæfist. Boris
minnir nú á að þessar kosn-
ingar voru í desember 2019
áður en nokkur maður í okkar
heimshluta vissi að veirunnar
væri von. Og það séu einmitt af-
leiðingar hennar sem líta verði
til þegar fyrirhugaðar skatta-
breytingar eru skoðaðar. Enn
eru flokksbræður hans og
-systur ekki alveg sannfærð um
þetta.
Þau eru mörg sporin
sem hræða þegar
glöggt er skoðað}
B-in þrjú og basl þeirra
E
ru eldri borgarar baggi á sam-
félaginu? Þannig er um okkur
talað, nú síðast í kvöldfréttum
RÚV á sunnudaginn. Þar var tal-
að um að auka þyrfti framlög til
eldri borgara um 3% af vergri landsframleiðslu
og svo framvegis. Spruttum við eldri borgarar
fram úr álfasteini og urðum allt í einu til?
Það er þekkt staðreynd að árgangarnir sem
fæddust eftir síðari heimsstyrjöld voru mjög
stórir. Það er því algjör fáfræði að tala niður til
okkar sem nýs vandamáls. Við erum búin að
vera til staðar í heilan mannsaldur og erum
loks að komast á eftirlaun. Við teljum okkur
hafa byggt upp atvinnulíf þjóðarinnar og skilað
miklu til samfélagsins. Í mínu tilfelli var ég
virkur þátttakandi í að byggja upp ferðaþjón-
ustuna. Við byggðum líka upp lífeyrissjóða-
kerfið sem stjórnvöld hafa með kjafti og klóm reynt að
ræna okkur og eru atvinnurekendur helstu aðstoð-
armenn stjórnvalda í þeim verknaði.
Atvinnurekendur sigla undir fána húsbóndavaldsins,
orð sem fyrir löngu ætti að vera horfið úr íslenskri
tungu. Lífeyrissjóðirnir á almenna vinnumarkaðinum
voru stofnaðir af vinnandi höndum og greiddu sjóðs-
félagar bæði framlag sitt og hið svokallaða framlag at-
vinnurekenda og eru þeir því í 100% eigu fólksins. Því
eiga sjóðsfélagar að stýra þeim. Stjórnvöld og atvinnu-
rekendur eiga ekkert erindi inn í lífeyrissjóðina.
Annað dæmi er framkvæmdasjóður aldr-
aðra sem við greiðum í með sköttum okkar
og ætlaður var til að byggja upp dval-
arheimili aldraðra. Honum hefur verið rænt
til annarra verka.
Í þessu liggur stór hluti af vandanum,
stjórnvöld beita skerðingum til að hrifsa til
sín þær krónur sem við fáum greiddar úr
lífeyrissjóðunum, skerðingarnar eru allt
upp í rúm 70% af tekjum fólks. Ísland
greiðir minnst allra OECD-landa í laun
eldri borgara eða um 2,6% af vergri lands-
framleiðslu. Meðaltal OECD-landanna er
7%. Ísland þarf að efla kjör eldra fólks
verulega til að vera á pari við Dani sem
borga 8%.
Látið ekki blekkjast af fagurfræði eins og
hjá sjálfstæðismönnum sem eru að byggja
upp kerfi sem enginn skilur.
Við viljum að komið sé fram við eldri borgara og ör-
yrkja eins og aðra þjóðfélagsþegna, annað er einelti sem
ekki verður liðið.
Brjótum múra, bætum kjörin!
Hættum að skattleggja fátækt!
Gerum efri árin að gæðaárum!
Kjósum X-F
Wilhelm
Wessman
Pistill
Spruttum við fram úr álfasteini?
Höfundur skipar annað sæti á lista
Flokks fólksins í Reykjavík suður.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
F
rændþjóðir okkar á Norð-
urlöndunum stefna allar
að því að létta af öllum
sóttvarnaaðgerðum
vegna kórónuveirufaraldursins á
næstunni, þar sem hátt bólusetn-
ingarstig og ágæt staða í barátt-
unni gegn Delta-afbrigðinu eru
sögð leyfa það. Þannig ætla dönsk
stjórnvöld að aflétta öllum sam-
komutakmörkunum og öðrum að-
gerðum frá og með morgundeg-
inum, 10. september.
Magnus Heunicke, heilbrigðis-
ráðherra Danmerkur, sagði þegar
ákvörðunin var tilkynnt í lok ágúst
að náðst hefði að koma böndum á
faraldurinn og ekki væri lengur lit-
ið á veiruna sem almenna ógn við
samfélagið. Hins vegar hét hann
því að brugðist yrði hratt við ef far-
aldurinn færi aftur úr böndunum.
Um 73% Dana á fullorðinsaldri
eru nú fullbólusett gegn kórónu-
veirunni, og eru einungis Malta og
Portúgal með hærra hlutfall af
aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Í krafti þessa ákváðu Danir að
létta um síðustu mánaðamót af
kröfum um að fólk sýni svonefndan
bólusetningarpassa við flest tilefni
utan dyra. Hins vegar mun enn
þurfa slíkan passa til að sækja inn-
anhússviðburði sem fleiri en 500
manns sækja og næturklúbba.
Sænsk stjórnvöld tilkynntu í
fyrradag að þau hygðust létta af
nánast öllum sínum sóttvarna-
aðgerðum frá og með 29. sept-
ember næstkomandi, en að fólk
verði áfram hvatt til að fylgja
reglum um hreinlæti og samskipta-
fjarlægð á opinberum stöðum.
Lena Hallengren, heilbrigðis-
ráðherra Svíþjóðar, sagði við það
tækifæri að markmið stjórnvalda
hefði alltaf verið að aflétta aðgerð-
um sínum við fyrsta tækifæri.
„Samfélag okkar er á nýjum og
betri stað,“ sagði Hallengren, en
miðað er við að öllum samkomu-
takmörkunum verði aflétt hinn 29.
september, auk allra reglna sem
takmarki fjölda gesta á börum og
veitingahúsum.
Þá verður ekki lengur lagt til
að Svíar vinni heiman frá sér ef
mögulegt er, en sú ráðlegging var
ekki lagalega bindandi. Vinnuveit-
endur hafa þó fengið tilmæli um að
fara sér hægt við að kalla þá
heimavinnandi aftur til vinnu á
staðnum.
Þetta verður fjórða skrefið af
fimm samkvæmt afléttingaráætlun
Svía. Upphaflega átti að reyna að
stíga það í lok ágústmánaðar en
staðan í faraldrinum leyfði það ekki
þá, þar sem tilfellum hefur fjölgað
nokkuð. Þá eru einungis um 58%
Svía á fullorðinsaldri fullbólusett.
Frestuðu afléttingum sínum
Norðmenn stefndu að því að
létta af sínum aðgerðum í júlí en ör
fjölgun tilfella neyddi ríkisstjórnina
til að fresta þeim áformum fram í
miðjan ágúst og síðan fram í sept-
ember. Í síðustu viku ákvað ríkis-
stjórnin að fresta afléttingunni í
enn eitt skiptið, en að þessu sinni
er stefnt að því að síðustu sótt-
varnaaðgerðum Norðmanna verði
aflétt ekki síðar en í lok september.
Þá er vonast til þess að 90% full-
orðinna Norðmanna verði full-
bólusett, en það hlutfall er nú um
77%.
Núgildandi takmarkanir heim-
ila samkomur innandyra fyrir allt
að 5.000 manns og utandyra fyrir
allt að 10.000 manns.
Finnsk stjórnvöld tilkynntu á
mánudaginn að síðustu sóttvarna-
aðgerðum verði aflétt þegar 80%
allra Finna 12 ára og eldri verði
fullbólusett. Þá hyggjast finnsk
stjórnvöld aflétta tveggja metra
reglunni, og er gert ráð fyrir að
það verði samþykkt af þinginu á
næstu dögum.
Sanna Marin, forsætisráðherra
Finna, sagði markmiðið að þegar
samfélagið opnaðist á ný yrði því
haldið opnu og að lykillinn til þess
væri að bólusetja sem flesta.
Nú hafa 61,3% allra Finna tólf
ára eða eldri verið fullbólusett, og
er stefnt að því að 80% markið ná-
ist í októbermánuði.
Afléttingar í kortum
frændríkjanna
AFP
Afléttingar Ungir Kaupmannahafnarbúar kanna hér næturlíf borgarinnar
í upphafi mánaðarins, en Danir ætla að aflétta öllum sóttvörnum á morgun.
Þó að staðan í faraldrinum sé al-
mennt góð á Norðurlöndum eru
teikn á lofti um að Delta-afbrigðið
geti leikið ríki Evrópu grátt, ekki
síst þá Evrópubúa sem enn eru
óbólusettir.
Hans Kluge, framkvæmdastjóri
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar WHO í Evrópu, varaði við því
í síðustu viku að um það bil
236.000 manns gætu farist af
völdum kórónuveirunnar á næstu
þremur mánuðum, þar sem Delta-
afbrigðið væri nú að knýja fram
fjölgun tilfella, ekki síst í fátækari
ríkjum álfunnar.
Þá varaði Kluge við því að farið
yrði of skarpt í afléttingar sótt-
varnaaðgerða, sér í lagi þar sem
hægst hefur nokkuð á bólusetn-
ingum gegn veirunni.
1,3 milljónir Evrópubúa hafa nú
þegar farist af völdum kórónuveir-
unnar.
Vara við fjölgun dauðsfalla
WHO Í EVRÓPU