Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Sýningaropnun laugardaginn
11. september kl. 14 Opið virka daga
10–18,
laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
MÝRMANN
Sýning í Gallerí Fold 11.-25. september
TILVIST
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Hefur starfsfólki Vox, undir
vökulu auga Guðrúnar Bjarkar
Geirsdóttur, tekist að sigla milli
skers og báru þegar kemur að því
að fylgja breytilegum sóttvarna-
reglum og blessunarlega hefur
ekkert smit komið upp í tengslum
við dagana. Er það í raun ákveðið
afrek í ljósi þess að þúsundir gesta
hafa tekið þátt í dagskránni.
Það var í júlí í fyrra sem Guðrún
Björk settist niður með Stefáni E.
Stefánssyni, stofnanda Kampa-
vínsfjelagsins, og tók að ræða hug-
myndina að þessu verkefni.
„Það vatt fljótt upp á sig og úr
varð að Kampavínsfjelagið flutti
inn talsvert magn af víni frá hús-
inu Philipponnat sem hefur lengi
verið í uppáhaldi hjá mér. Við buð-
um svo gestum og gangandi á
smakk 16. september í tengslum
við það þegar matreiðslumeistarar
Vox höfðu sett saman forvitnilegan
og spennandi matseðil sem par-
aðist fullkomlega við nokkur af
vínum hússins sem lengi hefur
verið í uppáhaldi hjá frábærum
veitingastöðum á borð við Ger-
anium í Kaupmannahöfn og Le
George í París.“
Viðbrögðin létu ekki á sér
standa og á skömmum tíma höfðu
100 manns skráð sig í smakkklúbb
á vegum félagsins og á fimmta
hundrað gesta nutu lystisemdanna
á Vox þá fimm daga sem fyrstu
Kampavínsdagarnir stóðu yfir.
Sex hús verið kynnt nú þegar
Varð úr að leikurinn var end-
urtekinn í desember og frá þeim
tíma hafa félagsmenn Kampa-
vínsfjelagsins og gestir Vox
kynnst flestum vínunum sem koma
úr smiðju Philipponat, Drappier,
Bollinger, Pol Roger og Lanson.
„Viðtökurnar hafa verið þannig
að markaðurinn kallar alltaf eftir
einhverju nýju og spennandi. Og
það er úr nægu að velja. Húsin í
Champagne eru á fjórða hundrað
talsins og sum þeirra framúrskar-
andi,“ segir Stefán.
Og nú er komið að kampavíns-
húsinu Charles Heidsieck, sem
stofnað var árið 1851 af manninum
sem það dregur nafn sitt af. Hann
var ævintýragjarn og kynnti
kampavín fyrstur manna fyrir
Bandaríkjamönnum, aðeins ári eft-
ir að hann stofnaði húsið.
„Charles Heidsieck hefur lengi
verið talið í hópi fremstu húsa. Það
framleiðir um milljón flöskur á ári
og er fastagestur á vínlistum
glæsilegustu hótela og veit-
ingastaða. Sérstaða þeirra felst í
ótrúlegri þolinmæði. Þeir geyma
vínin og geyma, alveg þar til þau
eru í fullkomnu standi til þess að
koma út á markaðinn,“ segir Stef-
án og bendir á að Brut Réserve er
ódýrasta grunnvín hússins en það
tekur kjallarameistara þess þó 24
ár að búa hverja flösku til.
Hverjum Kampavínsdögum hef-
ur fylgt einhver sérstaða, bæði í
vali á vínum og mat. Dagarnir að
þessu sinni eru sannarlega engin
undantekning í því efni. Nú er í
fyrsta sinn boðið upp á nautasteik
í aðalrétt og er hann paraður við
rósakampavín. Annars vegar í
standard-pörun með Rosé Réserve
og hins vegar í premium-pörun
með Rosé-árgangsvíni frá 2008.
Erum enn að læra mikið
„Þetta er allt gert til þess að
dýpka skilning fólks og auka á
upplifun þess af kampavíninu. Við
eigum svo ótrúlega margt ólært í
þessum efnum,“ segir Stefán.
Þá hefur Kampavínsfjelagið ráð-
ist í það í tengslum við þessa daga
að flytja til landsins gríðarlega fá-
gæta flösku sem ekki á sér hlið-
stæðu í vínskápum þessa lands.
Einstök á margan hátt
„Okkur stóð til boða að kaupa úr
kjöllurum Charles Heidsieck
magnaða flösku sem ekki var hægt
að líta fram hjá. Það er flaska úr
svokölluðu Collection Crayeres-
safni hússins sem framleitt var í
minningu stofnandans á áttunda
og níunda áratug síðustu aldar.“
Þar vísar Stefán til þriggja lítra
flösku sem nú er til sýnis í einum
af glæsilegum vínskápum Vox og
er hún árgangsvín frá uppskerunni
1985.
„Þegar fyrri gerjun vínsins lauk
snemma árs 1986 var flaskan búin
til seinni gerjunar og snúið á hvolf.
Þannig var hún látin standa á
hvolfi þar til í fyrra eða í 34 ár. Þá
var hún tekin af geri eins og það
er kallað. Vínið er ferskt og gló-
andi. Aðeins 165 flöskur voru
framleiddar og við fengum þá sem
er númer 51 í röðinni.“
Þegar Stefán er spurður út í
hvort flaska af þessu tagi sé ekki
dýr, brosir hann og færist undan
að svara.
„Það er svo sem ekki hægt að
komast hjá því að svara þessari
spurningu enda er flaskan á vín-
seðli Vox og þar með til sölu.
Verðmiðinn er hins vegar nokkuð
sérstæður. Þessi flaska kostar
svipað og gott rafmagnshjól frá
Cube eða Specialized.“
Af svipnum að ráða er Stefán
ekki í vafa um hvort yrði fyrir val-
inu, rafmagnshjólið eða flaskan, ef
það stæði til boða.
Kampavínsdagarnir standa yfir
á Vox frá 9. til 19. september og
marka árs afmæli verkefnisins
sem hefur fest sig í sessi í mat-
armenningu landsmanna síðasta
árið.
Fágæt og fokdýr flaska
Nú í september stendur mikið til á Vox Brasserie á Hilton Reykjavik Nordica. Starfsfólk veitingastaðarins er í óðaönn við að undirbúa
viðburð sem raunar hefur fest sig í sessi en ár er liðið frá því veitingahúsið efndi til samstarfs við Kampavínsfjelagið um svokallaða
Kampavínsdaga. Nú eru þeir haldnir í sjötta sinn, þrátt fyrir allar þær samkomutakmarkanir sem í gildi hafa verið.
Ljósmynd/Pétur Valmundarson
Stóð á hvolfi í 34 ár
„Þessi flaska kostar svip-
að og gott rafmagnshjól
frá Cube eða Speciali-
zed,“ segir Stefán.
Góð hjónabandssæla stendur ávallt
fyrir sínu og hér er það engin önn-
ur en María Gomez á Paz.is sem
deilir með okkur uppskrift sem er í
miklu uppáhaldi hjá henni.
Hjónabandssæla
4 dl tröllahafrar
3 dl fínt spelt eða hveiti
1 dl hrásykur
2 dl púðursykur
1 tsk. matarsódi
1 tsk. fínt borðsalt
190 g smjör
1 egg
400 g rabarbarasulta
2-3 tsk. hrásykur til að dreifa yfir fyrir
bakstur
Skerið kalt smjör í teninga og
setjið með öllum hráefnunum nema
egginu í matvinnsluvél eða bland-
ara og hrærið þar til orðið að grófri
mylsnu
Bætið þá egginu út í og ýtið
nokkrum sinnum á púlstakkann þar
til allt er svona frekar gróf mylsna
Smyrjið eldfast mót með smjöri
og þjappið helmingnum af deiginu
á botninn með því að nota puttana
Smyrjið svo sultunni jafnt yfir
allan botninn
Takið svo afganginn af deiginu
og myljið jafnt yfir sultuna og
dreifið eins og 2-3 tsk. af hrásykri
jafnt í þunnu lagi yfir allt (gefur
toppnum stökkleika).
Bakið á 190°C blæstri eða 200°C
án blásturs í 35-40 mínútur.
Ljósmynd/María Gomez
Dýrindishjónabandssæla