Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 42
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Tobba Marinós og mamma hennar Guðbjörg Birkis standa að Granólabarnum sem hefur slegið rækilega í gegn en þar er líklega kominn eini bar landsins sem selur einungis kræsingar sem eru gerðar án viðbætts sykurs eða sætuefna. „Þetta er því bar- inn sem mamma þín vill að þú farir á,“ segir Tobba sem er í skýjunum með viðtökurnar. Staðurinn selur meðal annars kald- pressaða djúsa, orkuskot, kökur, kókoskúlur og „ni- cecream“ sem er ís gerður einungis úr frosnum ávöxtum og hnetumjólk. „Ég viðurkenni að þetta er búið að vera langt og erfitt ferli að opna hér en nú loks- ins erum við að uppskera. Ég er ekki menntaður kokkur né iðnaðarmaður svo ég er að læra margt nýtt. Við mamma stöndum hér vaktina, pabbi erindast, Kalli maðurinn minn sér um tækjamál, systir mín sem er bú- sett í London var flutt inn og tjóðruð við djúsvélina og einhvern veginn gengur þetta allt upp þótt dagarnir séu vissulega langir,“ segir Tobba. Hún segist hafa staðið í Krónunni eftir lokun með hárnet og svuntu og snúist í hringi því hún mundi ekkert hvað hún ætlaði að kaupa á leiðinni heim. „Ég hef alveg litið betur út þótt ég sé í góðu líkamlegu formi af hollustufæðunni og öllum hlaup- unum í vinnunni. Eva Laufey vin- kona mín kom í heimsókn með blásið hár á háum hælum og varalit. Ég bað hana vinsamlegast að drulla sér út. Ég stóð sveitt með hárnet og bananaklessur í andlitinu á bak við afgreiðsluborðið, þrútin af litlum svefni og með náladofa í höndunum,“ segir Tobba og skellihlær. „En án gríns þá á ekki að vera auðvelt að stofna fyrirtæki. Það má vera erfitt. Ég á svo mikið af góðu fólki að að mér er ekki vorkunn. Á meðan Kalli skilur ekki við mig er ég hamingjusöm. Hann þvær striga- skóna mín á kvöldin eftir að ég er sofnuð og sér svo vel um dætur okk- ar að ég myndi breyta nafninu mínu í Kalli ef það væri ekki skrítið.“ Tobba segir að hún hafi nýlega uppgötvað að það sé hægt að fá sina- drátt í hendurnar. „Það er lítt hugguleg reynsla. Og er afkvæmi tennisolnboga og golfolnboga. Ég handgeri sum sé hvern ís í hverja einustu skál með tilheyrandi handa- drama. Ég þarf að láta lækka borðið sem ég geri ísinn á áður en einhver hringir á lögguna næst þegar ég öskra af kvölum á nóttunni – hvað gerir maður ekki fyrir heilsu þjóð- arinnar? Sem betur fer kemur elskulegur eiginmaðurinn með hita- krem og íbúfen svo ég hef fulla trú á að þetta gangi yfir. Byrjunardrama er alltaf hressandi.“ Flugvélamótor og banani Hún segir „nicecream“ ekki hafa fengist hérlendis áður en lands- menn séu að tryllast yfir þessari nýjung og flestir komi dag eftir dag. „Það er svo mikill óþarfi að borða sykurbombur þegar eitthvað sem er hollt og gott getur verið betra á bragðið en sykursprengjurnar. Auð- vitað er allt í lagi að fá sér óhollustu af og til en það á að vera frávik – ekki venjan. Sumir hafa spurt mig ítrekað hvort það sé í alvörunni bara ferskur banani sem við setjum í ís- inn en já, það er málið og blandarinn er mjög öflugur, með flugvéla- mótor.“ Þær mæðgur hafa selt handgert granóla í verslunum síðastliðin tvö ár og er það granóla hjartað í flest- um réttum þeirra á Granólabarnum. „Þetta er í raun lifandi tilraunaeld- hús. Hér prófa ég alls konar upp- skriftir sem fara svo í framleiðslu og í verslanir ef þær slá í gegn. Ég er til dæmis að lita kókosinn sem við not- um til að skreyta kókoskúlurnar með ofurdufti á borð við bláa spírúl- ínu, rauðrófuduft og túrmerik. Þannig fæ ég „sprinkles“ sem er ekki bara sykurlaust heldur mein- hollt. Dropi af rauðrófusafa litar jóg- úrtið okkar skærbleikt og við skreytum með ætum blómum og frostþurrkuðum ávöxtum. Ef það er ekki í lit þá er það leiðinlegt!“ „Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt Granólabarinn var opn- aður í ágústlok í gamalli verbúð úti á Granda. Þar hefur myndast mjög vegleg og skemmtileg matarmenning en þar fyrir má finna The Coocoos Nest, blóma- barinn Lúnu Flórens, Valdísi, Kjötkompaní og Omnom, auk íslenskra hönnunarverslana og BOHO sem selur ýmis- legt huggulegt til heim- ilishaldsins. Gegnheilt góðgæti Einungis náttúruleg litarefni eru notuð. Granóladrottningin á Grandanum Granólabarinn hefur slegið í gegn enda gegnheilt góðgæti sem gleður geðið og bætir göngulagið. Nicecream Eingöngu ferskur banani hér á ferð. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Mjög gott úrval af gæðakjöti Krydd, sósur og ýmislegt fleira
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.