Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 F yrsta Marvel-myndin með asískri aðalpersónu hefur litið dagsins ljós. Sú fyrsta með þeldökkri aðal- hetju, Black Panther, sló eftirminni- lega í gegn enda vel heppnuð en það sama verður því miður ekki sagt um Shang-Chi og goðsögnina um hring- ina tíu. Þó hefur myndin hlotið prýðilegar viðtökur og almennt já- kvæða dóma en tókst ekki að heilla ofanritaðan. Í myndinni segir af Shang-Chi (Liu) sem kallar sig Shaun og vinnur í San Francisco við að leggja bílum með vinkonu sinni, Katy (Awkwa- fina). Þau kunna vel við þetta ein- falda líf og í frítíma sínum skemmta þau sér við drykkju og söng á karí- ókíbar. Dag einn þegar þau eru í strætó birtast nokkrir vígalegir óþokkar og vilja að Shang-Chi af- hendi þeim hálsmen sem hann er með og hefur að geyma dularfullan grænan stein. Eftir tilkomumikið bardagaatriði (það besta í myndinni og minnir óneitanlega á strætóatriði í Nobody) þar sem óþokkarnir fá það óþvegið, neyðist Shang-Chi til að segja vinkonu sinni hver hann er í raun og veru; sonur kínversks valda- og glæpamanns að nafni Xu Wenwu (Leung) en sá er aldagamall þar sem hann ber tíu töfrahringi á hand- leggjunum sem gera hann bæði eilíf- an og ósigrandi. Í ljós kemur að sá gamli vill komast yfir hálsmen son- arins sem hann þjálfaði allt frá æsku til manndrápa og sambærilegt háls- men dóttur sinnar einnig en hvers vegna vita systkinin ekki. Shang-Chi heldur til Kína með Katy þar sem hann hittir fyrir systur sína, Xialing (Zhang), sem einnig er bardagafim með endemum. Eftir mikil átök enda þau á sveitasetri föður síns og í ljós kemur að faðirinn telur að eiginkona hans, sem dó fyrir um tuttugu árum, sé enn á lífi og haldið fanginni í af- skekktu þorpi sem hún ólst upp í. Er það einhvers konar töfraþorp sem sá gamli má ekki heimsækja því þorps- búar vilja ekki sjá hann. Hyggst hann drepa alla sem veita honum mótspyrnu og Shang-Chi og systir hans reyna að koma í veg fyrir þá slátrun. Í hóp með systkinunum slæst kunnugleg persóna úr einni myndanna um Járnmanninn (hér má ekki skemma fyrir með því að segja hver það er) og einhvers konar höf- uðlaus og loðin furðuvera með litríka vængi sem er gæludýr þeirrar per- sónu. Í þorpinu bætast við fleiri furðukvikindi og ævintýraverur, líkt og væru þau úr teiknimynd fyrir lítil börn og allt saman endar þetta svo í allsherjar tölvuteikningaofgnótt og -glundroða. Þótt myndin falli kylliflöt í seinni hlutanum má þó finna sitthvað já- kvætt í þeim fyrri. Simu Liu, fyrr- verandi áhættuleikari, er ákaflega fimur og flottur í kúngfú-atriðum myndarinnar sem eru skemmtilega útfærð og vel heppnuð og hefðu mátt vera fleiri. Awkwafina er skondin sem vinkona hans og byrjun myndarinnar er hressileg og lofar góðu. En þegar til Kína er komið, snemma í myndinni, fer að síga á ógæfuhliðina og sagan verður ein- kennilega ómarkviss og brotakennd. Hér er ný hetja kynnt til sögunnar, Shang-Chi, en allt of miklum tíma er eytt í stirt samband hans við föður sinn og for- og ástarsögu föður hans og móður, í stað þess að beina at- hyglinni að aðalpersónunni. Minnir myndin á köflum á kúngfú- ævintýramyndina Krjúpandi tígur, dreki í leynum frá árinu 2000 þar sem bardagahetjur voru ekki bundnar af þyngdarlögmálinu sem er vissulega jákvætt en alltof langur tími fer í að segja frá erfiðum upp- vexti Shang-Chi sem þjálfaður var til að berja menn og drepa allt frá átta ára aldri og varði löngum stund- um í berja hnefum sínum í staur. Faðir hans er mikil tilfinningavera, ýmist ástríkur eða illskan holdi klædd sem er svo sem ágæt tilbreyt- ing frá tvívíðum illmennum ofur- hetjumynda. Skýringin á því að faðirinn heldur að eiginkona hans sé á lífi er æði undarleg og kemur þar við sögu ein- hvers konar forsöguleg risaskepna sem nærist á sálum fólks. Þessi bræðingur á ævintýrasögum um dreka og forynjur, kúngfú-myndum og heimi Marvel er skrítinn og engu líkara en handritshöfundar hafi ekki alveg vitað hvers konar mynd þeir væru að skrifa. Simu Liu gerir sitt besta í þunnu hlutverki hetjunnar og sem fyrr seg- ir nýtur hann sín best í hasarnum, enda fyrrverandi áhættuleikari með takmarkaða leikhæfileika. Awkwa- fina er ágæt í hlutverki fyndnu vin- konunnar, sem fyrr segir og Mic- helle Yeoh glæsileg að vanda í hlut- verki móðursystur hetjunnar en hún var einmitt ein af stjörnum fyrr- nefndrar Krjúpandi tígur, dreki í leynum. Tony Leung er að sama skapi þekktur leikari frá Hong Kong og hefur leikið í mörgum vönduðum kvikmyndum, t.d. In the Mood for Love eftir Wong Kar-Wai. Hlutverk hans í þessari mynd mun seint telj- ast einn af hápunktunum á ferli hans þó hann vinni ágætlega úr því. Sú einkennilega þróun virðist hafa orðið hjá kvikmynda- og sjónvarps- deild Marvel að allt það besta ratar nú í sjónvarpsveituna Disney+ en Marvel heyrir undir risafyrirtækið Disney. Þannig hafa sjónvarpsþætt- irnir WandaVision og Loki sýnt hversu miklu máli hugmyndaflugið skiptir, að finna nýjar og áhugaverð- ar hliðar og möguleika í sagnaheimi Marvel sem þarfnast endurnýjunar. Í Shang-Chi er lítið um hugmynda- flug og eftir ágæta spyrnu af stökk- pallinum lendir Shang-Chi með skelli á maganum. Endurlit hægja nokkrum sinnum framvindu sög- unnar og furðuleg ákvörðun að troða krúttlegum furðudýrum, líkt og þau komi úr barnaþætti í morgunsjón- varpi, inn í sögu sem á að heita dramatísk í grunninn. Bardagaatrið- in, einkum þá atriðið í strætó fyrr- nefnt og annað glæsilegt utan á skýjakljúfi í Maká, eru á endanum það sem stendur upp úr og skila myndinni meðaleinkunn. Hörkutól Shang-Chi lemur óþokka í spað í besta atriði myndarinnar sem gerist í strætisvagni. Katy fylgist furðulostin með. Magalending hjá Marvel Sambíóin, Smárabíó, Laugar- ásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings bbmnn Leikstjórn: Destin Daniel Cretton. Handrit: Dave Callaham, Destin Daniel Cretton og Andrew Laham. Aðalleikar- ar: Simu Liu, Awkwafina, Tony Leung, Meng’er Zhang og Michelle Yeoh. Bandaríkin, Ástralía og Kanada 2021. 132 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.