Morgunblaðið - 09.09.2021, Page 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Róbert Aron Róbertsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Festi, áformar að
hefja uppsteypu á fyrsta áfanga
Héðinsreits í Reykjavík um áramót-
in. Þær íbúðir
verði tilbúnar í
árslok 2023.
Framkvæmdir
við annan áfanga
hefjist svo að
óbreyttu í árslok
2022 eða snemma
árs 2023.
Hér má sjá
teikningar af fyr-
irhuguðum fjöl-
býlishúsum. Hönnunin er langt kom-
in en ekki er um endanlegt útlit að
ræða. Ríflega 200 íbúðir verða
byggðar í áföngum eitt og tvö.
Til viðbótar er verið að byggja um
hundrað íbúðir Mýrargötumegin á
reitnum. REIR verk fer með þá
uppbyggingu og er uppsteypa á
kjallaranum langt komin.
Fjölbýlishúsin sem Festir reisir í
fyrirhuguðum tveimur áföngum eru
samtals um 30.000 fermetrar með
sameign, bílastæðum í kjallara og
atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Íbúð-
irnar verða að meðaltali tæpir 100
fermetrar að meðtalinni geymslu.
Endurgerð gamla Héðinshússins í
CenterHótel Granda var fyrsta
skrefið í endurnýjun Héðinsreitsins.
Þar hefur verið opnað 195 herbergja
hótel með veitingahúsi. Á næstu
mánuðum stendur til að opna þar
jafnframt kaffihús og veitingasölu.
Þessu til viðbótar hafa verið
byggð íbúðarhús handan götunnar
við Seljaveg en Mýrargötumegin á
þeim reit er Brikk með bakarí.
Róbert segir að við val á fyrir-
tækjum í atvinnurýmin á jarðhæð
fjölbýlishúsanna verði horft til þess
hvernig þjónustan muni gagnast
íbúunum. Því verði ekki aðeins horft
til leigutekna sem hún skapar.
Tenging við netverslanir
Jafnframt sé horft til þess að net-
sala sé að færast í vöxt. Ein hug-
myndin sé að íbúar muni geta sótt
netpantanir í einhverju þessara
rýma þegar þeim hentar.
Eins og sýnt er hér til hliðar er
gert ráð fyrir stórum bakgarði.
„Svæðið er hugsað sem borgar-
miðaður garður. Það verða lifandi
gönguásar í gegnum þennan garð og
það kemur til greina að hægt verði
að efna til viðburða. Hugmyndin er
að skapa lifandi torg og að íbúar geti
sótt þangað þjónustu, keypt veit-
ingar og varið þar dagsparti,“ segir
Róbert og bendir á að margvísleg
þjónusta sé í næsta nágrenni.
Varðandi hönnun húsanna segir
Róbert lagða áherslu á að brjóta upp
byggingarmassann og gera svæðið
manneskjulegra með litahafi sem
einkenni húsin í Vesturbænum.
Arkþing – Nordic og hollenska
arkitektastofan Jvantspjiker, í sam-
starfi við THG arkitekta, eru hönn-
uðir húsanna og Studio Marco Piva
frá Ítalíu fer með innanhússhönnun
íbúða.
Við Ánanaust Áformað er að reisa húsið lengst til vinstri og miðjuhúsið í fyrsta áfanga. Á horni Vesturgötu og Seljavegar Húsin í 2. áfanga. CenterHótel Grandi er lengst til hægri.
Héðinsreitur tekur á sig mynd
- Hönnun húsa í fyrsta áfanga er langt komin - Stefnt er að því að hefja framkvæmdir fyrir áramót
- Borgargarður verður á baklóð - Íslenskir, hollenskir og ítalskir arkitektar koma að hönnuninni
Teikning/Arkþing - Nordic
Bakgarður Hugmyndin er að skapa borgargarð sem tengdur verður við þjónustu og veitingasölu á reitnum.
Róbert
Róbertsson
Teikning/Arkþing - Nordic Teikning/Jvantspjiker og THG arkitektar
10 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Riga miðaldaborg frá 12. öld.
Gamli tíminn og nýi mætast í borg sem ekki
á sinn líka. Miðstöð menningar og lista við
Eystrsaltið.
Vissir þú að Riga er ein mesta Jólaborg Evrópu ?
Fyrsta jólatréð í heiminum sem var skreytt, var í
Riga fyrir rúmum 500 árum eða árið 1510.
Aðventutíminn er svo sannarlega rétti tíminn til
að heimsækja Riga þar sem stór hluti borgar-
innar hefur verið skreyttur og skapar einstakt
andrúmsloft sem fangar alla sem þangað koma á
þessum tíma ársins.
Jólamarkaðir eru í gamla sögulega hluta borgar-
innar en sá hluti er á minjaskrá UNESCO.
Síðast en ekki síst má nefna allar verslunar-
miðstöðvarnar og aðrar verslanirnar sem kaup-
þyrstir íslendingar ættu ekki að láta fram hjá
sér fara. Þar má finna gæðavörur, merkjavörur,
allt það sem fólk er vant frá Íslandi og meira til.
Gerðu góð kaup fyrir jólin
Síðumúli 29, 108 Reykjavík | Sími 588 8900
info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
.
Aðventuferð tilRiga
Innifalið: Flug ásamt
öllum sköttum og
gjöldum, hótel með
morgunmat, akstur
til og frá flugvelli,
fararstjóri.
95.600
á mann í 2ja manna
herbergi
26. til 29. nóvember og
3. til 6. desember 2021
Jólahátíðin í Riga