Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
G
unni spurði mig í beinni á
bókasafninu á Selfossi
hvort ég væri til í að
vinna með sér að barna-
bók. Við vorum þar saman ásamt
fleiri rithöfundum að lesa upp úr
bókum,“ segir Rán Flygenring um
það hvernig samstarf þeirra Gunn-
ars Helgasonar fór af stað, en þau
eru höfundar nýútkominnar barna-
bókar sem heitir Drottningin sem
kunni allt nema … Í þeirri bók segir
frá Bambalínu, ærslafullri drottn-
ingu sem telur sig geta allt í heimi
hér, en Kalli aðstoðarmaður hennar
hjálpar til þegar mest á reynir.
„Ég steypti grunninn og Rán
byggði húsið, en svo var frágang-
urinn meira sameiginlegur,“ segir
Gunnar um samstarfið og Rán bætir
við að það geti verið snúið að skapa
bókverk saman með texta og mynd-
um.
„Skilin eru ekki skörp, þetta er
samverk og samspil,“ segir Rán og
Gunni bætir glettnislega við að hann
hafi ekki teiknað neina af mynd-
unum í bókinni.
„Þá átt samt svo mikið í því
sem er að gerast í teikningunum,“
segir Rán, sem fékk í upphafi mik-
inn texta frá Gunna og hún kom
með hugmyndir að því hvar mætti
skera niður.
„Þetta var rosalega lærdóms-
ríkt fyrir mig, Rán er auðvitað at-
vinnumaður í bransanum. Ég leitaði
sannarlega til meistarans þegar ég
spurði hvort hún vildi vinna með
mér myndabók og það var ómetan-
legt fyrir mig að fá þessa leiðsögn,“
segir Gunnar, sem fannst ekki erfitt
að þurfa að skera mikið niður af
upphaflegum texta handritsins.
„Aftur á móti var það heilmikil
yfirlega sem útheimti nákvæmni, en
enginn tilfinningalegur sársauki,“
segir Gunnar og hlær. Rán segist
hafa verið pínu stressuð að leggja til
að miklum texta yrði sleppt.
„Því ég veit vel að það getur
verið sársaukafullt þegar fólk er bú-
ið að leggja vinnu í eitthvað og sjá
eitthvað fyrir sér, að þurfa svo að
aðlaga sig því að það verði einhvern
veginn öðruvísi. Það er alls ekki
sjálfgefið að það sé fyrir hendi
traust svo þessi samvinna gangi
upp. Það vilja ekkert allir vinna eins
og ég vinn; í flæði með textasmiðn-
um. Mér finnst það langskemmtileg-
ast, en oft þegar ég vinn með texta-
höfundum halda þeir að þeir þurfi
að segja mér nákvæmlega hvernig
þetta á allt saman að vera. Í sam-
vinnu texta og mynda þarf að verða
til einn samhljóma heimur, en á
sama tíma mega þessar tvær raddir
ekki endurtaka sömu söguna.
Traust er lykilatriði.“
Að viðurkenna vanmátt sinn
Gunnar segir að þegar gefin sé
út myndabók á Íslandi eftir íslenska
höfunda þá þurfi hún að vera í
heimsklassa, því hún sé í samkeppni
við þýddar myndabækur sem hér
eru gefnar út.
„Þær eru kannski valdar úr
þúsund erlendum bókum, og vænt-
anlega er sú allra besta valin til þýð-
ingar og útgáfu hér,“ segir Gunnar
og Rán bætir við að hér á landi sé
lítil hefð fyrir útgáfu innlendra
myndabóka, miðað við annars stað-
ar á Norðurlöndunum og í Evrópu.
„Hér er hið skrifaða orð hið
æðsta, en nú er mikilvægi mynd-
læsis aðeins komið í umræðuna. Er-
lendis eru gefnar út myndabækur
fyrir fullorðna, en við erum föst í því
hér að myndabækur séu aðeins fyrir
börn.“
Gunnar segir að markmiðið hjá
þeim Rán hafi verið að fullorðnir
gætu líka haft gaman af nýju bók-
inni þeirra um Bambalínu.
„Endirinn býr yfir spennu fyrir
yngstu lesendur en ferðalagið sjálft
í gegnum bókina lumar á fullorðins-
elementi, þar leynist til dæmis
ástarsaga. Mömmu finnst reyndar
að aðalpersónurnar séu hún og
pabbi minn,“ segir Rán og hlær.
„Það má lesa í þetta alls konar
samskipti sem við sjáum bæði í
parasamböndum og samböndum
foreldra og barna. Í nútíma-
samfélagi er mikið af drottningum,
prinsum og kóngum og á öllum
aldri. Við þekkjum öll þessar mann-
gerðir sem líður eins og þær kunni
allt og geti allt, en þurfa stundum að
viðurkenna vanmátt sinn,“ segir
Rán, sem á það til að lauma ýmsu,
sem vísar í það sem hún hefur áður
gert, inn í sínar bækur. Það á við
um tanngleiðan gapandi hest Bam-
balínu í þessari bók.
„Þetta er hestur úr hestabók
okkar Hjörleifs Hjartarsonar, en sá
hestur á fyrirmynd í málverki eftir
Picasso.“
Ófullkomið fullorðið fólk
Þau segja mikla ábyrgð felast í
því að skapa bækur fyrir börn, þau
þurfi sem höfundar í þeirri vinnu að
setja upp ýmis gleraugu; kynja-
gleraugu, fötlunargleraugu, um-
hverfisgleraugu, kynþáttagleraugu
og fleiri slík.
„Mér finnst gaman að skrifa
um ófullkomið fullorðið fólk, af því
að krökkum finnst gaman að lesa
um „gallaða“ og breyska fullorðna
einstaklinga. Stellubækurnar mínar
eru einmitt um slíka einstaklinga.
Krökkum finnst spennandi að sjá
aðeins inn í heim fullorðna fólksins.
Upp að ákveðnum aldri hjá krökk-
um eru mamma og pabbi ósnert-
anleg, óbreytanleg fullkomin stærð
og án fortíðar, en mér finnst gaman
að sprengja litla sprengju í höfðinu
á krökkum með því að sýna aðra
hlið í mínum bókum,“ segir Gunnar.
Langar að búa til töfraheim
Þegar þau eru spurð hvaðan
nafnið Bambalína komi segja þau
hálfs árs vinnu á bak við nafnið.
„Hún hét allt annað fyrst, en
við tókum það út því það reyndist
vera til í annarri bók. Það var her
manns að reyna að finna nafn sem
væri ekki til og listinn í tölvunni yfir
nöfn á þessa drottningu er mjög
langur hjá mér,“ segir Gunnar og
hlær.
„Við fengum hjálp frá mörgum
með hugmyndir að nöfnum, frá Fés-
bók, stórfjölskyldum okkar og frá
öllum sem starfa á Forlaginu. Við
sættumst að lokum á Bambalínu,
sem er samsetning úr nöfnunum
Bambaló og Lína. Bambalína er
slangurorð á ítölsku sem merkir
meðal annars fjörug sætabína, og
passar vel við okkar drottningu,“
segir Gunnar og bætir við að nú
þurfi að leggja höfuð í bleyti til að
finna nöfn á hina í fjölskyldunni sem
ekki hafa enn komið við sögu; kóng-
inn, prinsinn og prinsessuna.
„Já, við ætlum að gera fleiri
bækur um Bambalínu og fjölskyldu
hennar,“ segir Gunnar og bætir við
að hann hafi spurt Rán fyrir ári
hvort hann mætti ekki sækja um til
leiklistarráðs að setja söguna á svið.
„Hún sagði já og við fengum
styrk hjá Gaflaraleikhúsinu til að
gera þetta og Rán verður með í ráð-
um með leikmyndina. Ég er bæði
spenntur og hræddur, því það eru
endalausir möguleikar á því hvaða
leið skuli velja í að færa þessa bók á
svið. Mig langar að búa til töfra-
heim,“ segir Gunnar og bætir við að
leikritið verði sýnt seint í vor eða
snemma næsta haust.
Við þekkjum öll þessar manngerðir
„Í nútímasamfélagi er mikið af drottningum, prinsum
og kóngum og á öllum aldri,“ segja þau Rán Flygen-
ring og Gunnar Helgason sem sendu nýlega frá sér bók
um Bambalínu, en hún mun líka fara á leiksvið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samvinna Rán og Gunnar með afkvæmi sínu, bókinni um Bambalínu.
Góð með sig Bambalína drottning í bók þeirra Ránar og Gunnars er heldur betur ánægð með sig, hún telur sig kunna allt og geta allt, en annað á eftir að koma í ljós þegar líður á söguna.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2020