Morgunblaðið - 09.09.2021, Side 46
✝
Elín Magn-
úsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 24.
júní 1945. Hún lést
á kvennadeild
Landspítalans 26.
ágúst 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Pálsson, sölumað-
ur og
skiltagerðarmaður
í Reykjavík, f. 8.
ágúst 1905, d. 23. janúar 1990,
og kona hans Lovísa Helga-
urður Ingimarsson bílstjóri, f.
15. september 1943 í Reykja-
vík. Þau gengu í hjónaband 26.
desember 1964. Börn þeirra
eru: 1) Ingimar, f. 7. júní 1964,
kvæntur Birgittu Björgólfs-
dóttur, f. 11. júlí 1969, synir
þeirra eru Sigurður Jóel, f.
1993, og á hann dótturina
Viktoríu Ölbu, f. 2021, með
sambýliskonu sinni Tinnu Rut
Hauksdóttur, og Viktor Erni,
f. 1997. 2) Lovísa, f. 23. mars
1969, gift Þórði Hermanni Kol-
beinssyni, f. 5. janúar 1969,
börn þeirra eru Stefán, f. and-
vana 1992, Helena, f. 1994,
sambýlismaður Auðunn Örn
Gylfason, Brynja, f. 1997, og
Daníel Snær, f. 2003. 3) Berg-
lind Gerða, f. 1. nóvember
1978. Börn hennar eru Bríet
Líf Þorsteinsdóttir, f. 2001,
Þorsteinn Brimar Þor-
steinsson, f. 2004, og Benóný
Ingi Þorsteinsson, f. 2011.
Elín og Sigurður bjuggu all-
an sinn búskap í Reykjavík,
síðustu rúm 30 árin í Funafold
73 í húsi sem þau byggðu frá
grunni. Elín vann ýmis versl-
unarstörf, meðal annars í Hag-
kaup og Ikea, og síðustu árin
áður en hún lét af störfum hjá
Ingvari Helgasyni.
Útför hennar verður gerð
frá Grafarvogskirkju í dag, 9.
september 2021, klukkan 13.
dóttir húsmóðir, f.
24. mars 1912, d.
22. ágúst 1985.
Systkini: Ragn-
hildur, f. 8. ágúst
1937, d. 3. maí
1942; Helgi Þór, f.
29. desember
1941, d. 3. janúar
1942; Helgi Þór, f.
21. desember
1942, d. 4. júlí
2018; og Þuríður,
f. 3. mars 1951.
Eiginmaður Elínar er Sig-
Elsku yndislega Ella mín.
Ég kveð þig í bili og þessi
yndislegu 60 ár af ævi okkar
saman á bút úr ljóði sem er mér
svo kært.
Að mér snúist allt í hag
ætla ég að vona.
Þig ég hefði þráð í dag,
þú ert falleg kona.
(Sigurður Óskarsson)
Hjartað er fullt af söknuði og
sorg en á sama tíma þakklæti yfir
góðum tíma sem við vorum svo
lánsöm að eiga saman.
Ég veit að þú munt vaka yfir
okkur öllum.
Þinn elskandi eiginmaður,
Sigurður.
Það er þungt að setjast niður
og þurfa að skrifa minningargrein
um mömmu sína. Mamma var
yndislega mamma, var með hag
barna sinna í forgangi. Það var
gott að leita til mömmu með ýmis
málefni. Hafði svör við flestu. Á
eftir að að sakna að geta ekki
hringt í þig og spurt spurninga og
spjallað um daginn og veginn.
Elsku mamma, hvíldu í friði.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta. Á grænum grundum lætur hann
mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar
sem ég má næðis njóta. Hann hressir
sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir
sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um
dimman dal óttast ég ekkert illt því að
þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur
hugga mig. Þú býrð mér borð frammi
fyrir fjendum mínum, þú smyrð höfuð
mitt með olíu, bikar minn er barma-
fullur. Gæfa og náð fylgja mér alla ævi-
daga mína og í húsi Drottins bý ég langa
ævi.
(23. Davíðssálmur)
Lovísa Sigurðardóttir.
Elsku yndislega mamma mín.
Hvernig sest maður niður til að
skrifa nokkur minningarorð um
mömmu sína? Þessi fáu orð sett
niður á blað geta aldrei gefið
skýra mynd af tímanum okkar
saman og hversu mikið þú skiptir
mig máli. Þú varst ekki bara
mamma heldur svo miklu meira
en það og ég á eftir að vera þakk-
lát þér og þinni visku, umhyggju
og stuðning alla ævi.
Þú varst þeim eiginleikum
gædd að vera einstaklega um-
hyggjusöm, góð að hlusta og settir
alla aðra í fyrsta sætið nema sjálfa
þig. Að hafa fengið að alast upp
með þig sem fyrirmynd er eitt-
hvað sem á eftir að fylgja mér alla
ævi og minningarnar eftir að hlýja
hjartað þegar söknuðurinn er sem
mestur.
Þú varst líka fyrirmynd í at-
gervi og glæsileika, alltaf stór-
glæsileg og vel til höfð. Fórst aldr-
ei út úr húsi nema með blásið hár
og bleikan varalit.
Það verður skrýtið að geta ekki
tekið upp símann og hringt í þig,
ófá voru símtölin okkar á milli, það
leið ekki sá dagur síðan ég hafði
getu til að taka upp símann að ég
hringdi ekki í þig. Fyrst þegar ég
var lítil og kom heim úr skólanum
og svo eftir að ég flutti að heiman,
eignaðist mín eigin börn og þurfti
ráð eða bara að heyra í þér.
Síðustu rúmlega tvö árin hafa
bæði verið full af sorg og gleði,
sorg yfir sjúkdóminum sem við
héldum lengi vel að þú myndir
sigra og gleðinni yfir daglegu
samverustundunum okkar og að
ég fékk að annast þig á þessum
erfiðu tímum. Baráttuviljinn þinn
var mikill og uppgjöfin engin, en
við ráðum víst ekki þessu lífi.
Takk fyrir allt, elsku mamma
mín, ég veit ekki hvernig þetta líf
á að vera án þín. Takk fyrir að
hafa verið besta mamman og
besta amman sem hægt er að
hugsa sér. Þú verður fallegasta
rósin á himninum.
Ég passa pabba.
Þín dóttir
Berglind Gerða.
Elsku amma mín.
Takk fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig, þú hefur verið svo
góð og skemmtileg. Þú ert besta
amma í heimi, þú ert búin að gera
mig að þeim sem ég er í dag. Takk
fyrir að kenna mér að reima. Ég
elska þig svo mikið, þú skilur ekki
hvað ég elska þig mikið.
Benóný Ingi.
Elsku besta amma.
Man svo vel eftir öllum ferðun-
um okkar að gefa öndunum brauð
og útilegum í fellihýsinu. Þú eld-
aðir besta mat í heimi eins og t.d.
kjötbollurnar sem þú gerðir og
góða jólamatinn. Ég man eftir
gráu náttfötunum og kerrunni
sem við fórum í á leikvöllinn og
áttum margar góðar minningar.
Takk fyrir öll jól sem við höfum
átt með þér. Jólin verða ekki eins
án þín. Takk fyrir allar stundirnar
sem við áttum saman. Elska þig.
Þorsteinn Brimar.
Elsku amma.
Ó, hvað ég mun sakna þín. Þú
varst svo stór partur af lífinu
mínu, þú varst partur af deginum
mínum. Allar minningarnar sem
ég á með þér eru svo dýrmætar.
Þú hjálpaðir mér í gegnum erf-
iðleika sem ég hefði ekki getað
komist í gegnum ef það hefði ekki
verið fyrir þig. Þú varst og ert
svo ótrúlega umhyggjusöm og
settir alltaf aðra í fyrsta sæti. Ég
man eftir einu augnabliki þegar
ég, þú og afi vorum á Akureyri og
þú varst að leiða mig á klósettið
og ég horfði á þig og hugsaði með
mér hvað ég væri ótrúlega hepp-
in að eiga þig að og hvað ég elsk-
aði þig rosalega mikið. Það var
alltaf grænn Tópas og appelsín í
bílnum hjá þér sem ég var alltaf
svo spennt að fá mér. Alltaf þeg-
ar við gistum hjá þér fórum við
öll í náttföt og fórum í bíltúr á
Erlu-Ís. Amma sótti mig á hverja
einustu æfingu, ef ég vildi ekki
fara í skólann þá fór ég til ömmu
og eyddi deginum með henni.
Hún hringdi í mig eftir hvert ein-
asta próf í menntaskóla og spurði
mig hvernig mér gekk. Amma,
það er enginn eins og þú. Þú ert
svo einstök og ég mun sakna þín
svo ólýsanlega mikið, ég verð
alltaf rósin þín. Ég veit að þú
verður alltaf hjá okkur og munt
vaka yfir okkur.
Bríet Líf.
Elsku besta amma okkar, orð
fá því ekki lýst hversu mikill
söknuðurinn er en á sama tíma
erum við svo innilega þakklát
fyrir öll árin sem við áttum með
þér og allar minningarnar sem
við sköpuðum með þér í gegnum
tíðina. Það var alltaf svo gott að
koma í Funafoldina til ykkar afa
og spjalla um allt á milli himins
og jarðar og heyra hversu áhuga-
söm um lífið okkar þú varst og
auðvitað fengum við okkur alltaf
kaffi og bakkelsi saman sem eru
dýrmætar stundir í hugum okkar
allra. Við munum halda áfram að
heimsækja afa og passa vel upp á
hann fyrir þig. Þú varst einstök
með hjarta úr gulli og bestu nær-
veruna, takk fyrir allt sem þú
gerðir fyrir okkur. Við elskum
þig og söknum þín af öllu okkar
hjarta, elsku amma.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín barnabörn,
Helena, Brynja og
Daníel Snær.
Það var tekin mynd af Ellu
systur minni nokkrum mínútum
áður en hún missti meðvitund
eftir langa og stranga baráttu við
krabbamein. Hún heldur á litla
barnabarnabarninu sínu, kyssir
það á hnakkann og brosir. Minn-
ingin um þessa kveðjustund mun
aldrei gleymast og Viktoría Alba,
stúlkan litla, á eftir að geyma
myndina um alla framtíð.
Það er ekki mikið talað um
systrasambönd en í mínum huga
var samband mitt við Ellu systur
mína rauði þráðurinn í mínu lífi.
Við vorum að mörgu leyti mjög
ólíkar en það breytti engu um
það að við næðum vel saman.
Hún opnaði fjölskylduna sína
fyrir mér og leyfði mér að eiga
heimilið sitt, börnin og barna-
börnin eins og þau væru mín.
Fyrir það er ég óendanlega
þakklát. Hún sagði oft við mig að
ég væri ein af fjölskyldunni og lét
mig njóta þess bæði dagsdaglega
og þá ekki síður á hátíðum eins
og jólum og páskum. Ég ferðað-
ist heilmikið með þeim og fjöl-
skyldan hennar varð fjölskyldan
mín. Ég hefði verið einmana án
hennar
Fyrir rúmum tveimur árum
greindist hún með krabbamein
sem varð henni að aldurtila og
voru þau ár henni erfið, en hún
bar sig eins og hetja og missti
aldrei vonina og trúna. Það var
erfitt að horfa upp á fallegu systur
mína, töffarann, berjast sárkvalin,
en hún var alveg sannfærð um að
hún myndi sigra og ætlað að fara
með Sigga sínum til sólarlanda
þegar hún yrði búin með meðferð-
ina og væri orðin hressari.
Baráttunni er lokið og Ella
tapaði. Missirinn er okkar en hún
er laus frá kvölunum. Þegar ég
minnist elsku Ellu er mér efst í
huga hversu hlý og dásamleg hún
var og hvað hún reyndist mér og
öllu sínu fólki óendanlega vel.
Einnig foreldrum okkar og bróð-
ur meðan þau lifðu. Hún og Siggi
áttu yndislegt samband í nær 60
ár og er missir hans, barna og
barnabarna mikill.
Við viljum þakka starfsfólki
Landspítala og heimaþjónustu
Heru fyrir frábæra umönnun og
elskulegheit
Hvíl í friði elsku systir og takk
fyrir allt. Tilveran verður fátæk-
legri án þín. Ég veit að þeir sem á
undan eru gengnir taka vel á
móti þér.
Mig langar að kveðja með
sálmi sem Þuríður móðuramma
okkar kenndi okkur:
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín elskandi systir,
Þuríður Magnúsdóttir
(Systa).
Þín nótt er með öðrum stjörnum.
Um lognkyrra tjörn
laufvindur fer.
Kallað er á þig og komið
að kveðjustundinni er.
Dimman, þögnin og djúpið
og blöðin þín mjúk
sem bærast svo hljótt
liljan mín hvíta
sem lokast í nótt.
(Gunnar Dal)
Ella frænka var eins og liljan
hvíta í mínum augum. Snyrtileg,
sterkbyggð, ákveðin, úrræðagóð,
kærleiksrík og glaðvær. Vildi
hafa fallegt í kringum sig, hvítt
og bleikt voru hennar litir. Stolt
af Sigga sínum og afkomendum.
Þakklát er ég fyrir að hafa átt
hana að ásamt Systu, yngri syst-
ur hennar, þegar hvað mest gekk
á í litlu fjölskyldunni minni á síð-
asta áratug síðustu aldar. Þær
systur Ella og Systa voru yfir-
leitt nefndar í sömu andrá eins og
þau hjónin Ella og Siggi, sem
gengu lífsins veg hamingjusöm
saman í 60 ár. Þau þrjú tóku svo
vel utan um okkur pabba þegar
mamma lést í júní 1990, sem og
móðurforeldra mína og seinna
okkur Ívar og börnin okkar þrjú.
Fyrir það verður seint fullþakk-
að.
Barátta hennar og þrautseigja
í erfiðum veikindum var aðdáun-
arverð. Fjölskyldan hélt vel utan
um liljuna sínu hvítu allan tímann
allt til loka. Samúðarkveðjur frá
okkur til ykkar allra, elsku Systa,
Siggi, Ingimar, Lovísa, Berglind,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabarn. Megi góðar
minningar um kærleiksríka konu
styrkja ykkur í sorginni. Hún var
sannkallaður gullmoli elsku Ella
frænka mín.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Kristín Bjarnveig
Reynisdóttir.
Í dag kveðjum við yndislega
skólasystur og vinkonu til
margra ára, hana Ellu okkar. Við
kynntumst fyrir 60 árum í Gagn-
fræðaskóla verknáms en nokkrar
þekktust frá barnsaldri. Fljót-
lega stofnuðum við skólasysturn-
ar 12 saman saumaklúbb og hitt-
umst við alla tíð í hverjum
mánuði, margt var spjallað og
ógleymanlegar samverustundir
sem við áttum saman. Seinna á
lífsleiðinni stofnuðum við ásamt
mökum ferðaklúbb og fórum við í
margar skemmtilegar ferðir, t.d.
til Ísraels, Barcelona, í siglingu í
Miðjarðarhafið og margt fleira.
Ella okkar var glæsileg kona
skemmtileg og hlý. Ella og Siggi
kynntust mjög ung og voru þau
mjög samrýmd alla tíð og var
Ella mjög stolt af fjölskyldu
sinni, þau áttu glæsilegt heimili í
Grafarvogi. Það var fjölskyld-
unni og okkur vinkonunum mikið
áfall þegar hún greindist með
krabbamein fyrir nokkrum ár-
um. Fjölskyldan stóð þétt saman,
Ella talaði svo fallega um fjöl-
skylduna sína og klettinn sinn
hann Sigga sem var vakinn og
sofinn yfir henni þar til yfir lauk.
Ella er fjórða í röðinni sem kveð-
ur af okkar vinkvennahópi. Inni-
leg samúðarkveðja til Sigga og
fjölskyldunnar. Blessuð sé minn-
ing þín, elsku vinkona.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Dagmar, Erla,
Guðrún, Hallfríður,
Helga, Ingunn,
Karen, Unnur.
Elín Magnúsdóttir
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Elsku dóttir mín, systir okkar, mágkona
og frænka,
HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
Álfabrekku 9, Kópavogi,
síðast til heimilis á Hjúkrunarheimilinu
Fellsenda,
lést mánudaginn 16. ágúst. Útförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir til heimilisfólks og starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Fellsenda fyrir vináttu og umönnun.
Guðrún Sigurðardóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir Sigurður Pálsson
Þórarinn Magnús Guðmundsson
Sigurlaug Guðmundsdóttir
Birna Guðmundsdóttir
Birgir Heiðar Guðmundsson Helena Björk Pálsdóttir
og systkinabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN JÓHANNESSON,
Prestastíg 8,
lést á Landspítalanum Fossvogi
3. september.
Útför fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn
14. september klukkan 13.
Útförinni verður streymt á www.streyma.is.
Lilja Guðmundsdóttir
Jóhannes Björnsson
Gyða Björnsdóttir Sigurður Gunnarsson
Bragi Björnsson Bryndís Harðardóttir
Björn Þór Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
EGGERTS GUÐMUNDSSONAR
pípulagningameistara
frá Görðum á Álftanesi,
Stórahjalla 37, Kópavogi.
Óli Már Eggertsson Eydís Dögg Sigurðardóttir
Vignir Eggertsson Lilja Björk Kristjánsdóttir
Birna Eggertsdóttir Rúnar Hrafn Ingimarsson
barnabörn og barnabarnabörn