Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 2

Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. 595 1000 n fy rir vaTenerife .A th . st á 29. september í 12 nætur 12 nátta ferð Flug & hótel frá 83.225 12 nætur Verð frá kr. 106.950 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fyrsti snjórinn þakti götur borgarinnar um skeið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verktakar við útivinnu fengu heldur betur að finna fyrir haustveðrinu í gær þegar haglél dundi á íbúum höfuðborgarsvæðisins. ið á höfuðborgarsvæðinu nýja stefnu þegar hagl- él féll til jarðar með miklum látum. Þurftu marg- ir að leita skjóls á meðan élið gekk yfir. Haustveðrið hefur leikið Íslendinga grátt síð- ustu daga en gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið í gildi víða um land. Í gær tók þó veðr- Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjárhagsstaða fjögurra af fimm stærstu sveitarfélögum landsins hef- ur versnað frá í fyrra samkvæmt fjárhagsuppgjöri sem þau hafa birt fyrir fyrri hluta þessa árs. Halli á rekstri þessara sveitarfélaga nær tvöfaldaðist milli ára og fór úr 5,6 milljörðum kr. í fyrra í tíu milljarða á fyrri helmingi yfirstandandi árs. Þetta kemur fram í samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga á fjárhagsuppgjöri Reykjavíkurborg- ar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðar- bæjar og Akureyrarbæjar en í þeim bjuggu rösklega 221 þúsund manns, eða tæplega 60% landsmanna. „Halli var á rekstri allra sveitar- félaganna í heild sem nemur 8,9% af tekjum, samanborið við 5,6% á sama tíma í fyrra. Mestur var hallinn á rekstri Reykjavíkurborgar, 10,4% af tekjum,“ segir í samantektinni. Bent er á að hafa beri í huga að fyrstu sóttvarnaaðgerðirnar tóku gildi í mars í fyrra og hafa því ein- ungis áhrif á hluta af fyrstu sex mán- uðum síðasta árs en margvíslegar takmarkanir vegna sóttvarna voru í gildi á fyrri hluta yfirstandandi árs sem kölluðu á aukin útgjöld. Fram kemur að uppgjör þessara sveitarfélaga séu til marks um erfiða rekstrarstöðu og aukinn halla sveit- arfélaga, þrátt fyrir að tekjur þeirra séu 11,8% hærri en í fyrra. Útgjöld sveitarfélaganna fjögurra hækkuðu um 13,7% á fyrri hluta árs- ins, þar af hækkuðu laun og tengd gjöld um 16,3%. Í ljós kemur að launakostnaður hækkaði mest hjá Hafnarfjarðarbæ, um 18,1%, en minnst hjá Akureyrarbæ, um 7,5%. Þá hækkuðu áætlaðar lífeyris- skuldbindingar um 19,3% milli ára. Veltufé frá rekstri á fyrri helmingi ársins var neikvætt um 3,2 milljarða eða 4,6% af tekjum hjá Reykjavík- urborg og var neikvætt um 2% af tekjum í Hafnarfirði en Akureyrar- bær og Kópavogsbær skiluðu já- kvæðu veltufé frá rekstri. Saman- lagðar skuldir og skuldbindingar sveitarfélaganna voru tæpir 250 milljarðar í lok júní og höfðu þá hækkað um 13,9 milljarða frá ára- mótum. Staða sveitarfélaga hefur versnað Morgunblaðið/Hari Reykjavík Á fyrstu sex mánuðum 2019 nam fjárfesting sveitarfélaganna rösklega 10% af tekjum en tveimur árum síðar aðeins 7,9%. - Halli fjögurra af stærstu sveitarfélögunum hefur nær tvöfaldast á milli ára - Skuldir hækkuðu um 13,9 milljarða frá áramótum - Mestur var hallinn hjá borginni á fyrri hluta ársins, 10,4% af tekjum Það færist í vöxt að fólk kvarti vegna þreytu í augum sem stafar af mikilli skjánotkun, að sögn Ólafs Más Björnssonar, augnlæknis hjá Sjón- lagi. Þetta á ekkert síður við um yngra fólk en eldra. „Þetta fylgir mikilli notkun tölva og snjallsíma,“ sagði Ólafur. Hann segir að þegar við beinum augunum að tölvuskjá eða síma sjái augasteinn- inn um að stilla fókusinn. „Í auganu eru vöðvar sem toga augasteininn til. Ef við sitjum lengi við tölvuskjá eða snjallsíma er ekki óeðlilegt að þreyta geri vart við sig. Augasteinninn fer að stirðna strax upp úr tvítugu þótt við finnum yfir- leitt ekki fyrir því fyrr en upp úr fer- tugu. Þá fara flestir að fá það sem við köllum ellifjarsýni,“ sagði Ólafur. „Fram að því að við fáum ellifjarsýni er ekki furða að augasteinninn geti orðið svolítið þreyttur vegna þess að við reyn- um svo mikið á hann.“ Þegar fólk situr lengi við tölvuskjá hefur það til- hneigingu til að blikka sjaldnar augunum en ella. Það veldur augn- þurrki sem líka getur stuðlað að skjá- þreytu í augum. Ólafur sagði þetta vera algengt vandamál á Íslandi þar sem hús eru vel upphituð og rakastig innandyra fremur lágt. En hvað er til ráða við skjáþreytu? „Það er fyrst og fremst að láta mæla sjónina hjá augnlækni eða sjón- tækjafræðingi til að vita hvort maður er ekki örugglega með réttu glerin miðað við fjarlægð,“ sagði Ólafur. „Margir sem finna snemma fyrir skjáþreytu hafa gott af hvíldar- gleraugum. Þau hjálpa augastein- inum að halda fókus. Þegar fólk eldist þarf að fylgjast með styrkleika á gler- augunum. Ef maður blikkar sjaldan augunum við skjáinn þornar tárafilman. Það að setja gervitár í augun gerir mikið fyr- ir þau. Eins getur gott rakastig á loft- inu hjálpað. Það getur verið gott að hafa rakatæki á skrifstofunni til að bæta það.“ Ólafur segir að gleraugu eða síur sem slá á ákveðnar bylgjulengdir lit- rófsins geti mögulega hjálpað sum- um. Stóra vandamálið sé hins vegar að við störum allt of mikið á skjái. Þess vegna geti verið gott að hvíla augun reglulega á skjá- og símanotk- un og ganga t.d. á fjöll. gudni@mbl.is Skjáþreytan sækir á augun og þjáir fólk á öllum aldri - Hvíla þarf augun af og til - Gott ráð að nota gervitár Ólafur Már Björnsson Karlmaður á þrítugsaldri lést á þriðjudag eftir að hafa misst meðvit- und í baðlóninu Sky Lagoon á Kárs- nesi í Kópavogi. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kölluð á vettvang á sjöunda tímanum og hófust endurlífgunar- tilraunir strax á vettvangi. Mað- urinn var í kjölfarið fluttur á Land- spítalann þar sem hann lést skömmu síðar. Samkvæmt heimildum Ríkis- útvarpsins höfðu vitni í baðlóninu orðið vör við að maðurinn lá hreyf- ingarlaus á botni lónsins. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en ekki leikur grunur á um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. hmr@mbl.is Lést eftir ferð í lónið Morgunblaðið/Eggert Sky Lagoon Málið er í rannsókn. - Lá hreyfingarlaus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.