Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
GOLFMÓT ÚÚ
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
04. - 12. OKTÓBER
OKTÓBERFEST Á EL PLANTIO
10.000 KR.AFSLÁTTUR Á MANN EF BÓKAÐER FYRIR 30. SEPTEMBER.* GILDIR Á ALLAR GOLFFERÐIR TILALICANTE GOLF EÐA ELPLANTIOSEPTEMBER - OKTÓBER
Kíktu með okkur á El Plantio Golf Resort á Spáni
í október. Í þessari skemmtilegu ferð verða tveir
skemmtanastjórar, þeir Magnús Margeirs og
Einar Viðar Gunnlaugsson.
Golfmót ÚÚ verður haldið á meðan á ferðinni
stendur og verður fjöldi glæsilegra vinninga í
boði.
El Plantio er vinsælasti golfstaður okkar á
Spáni. Þessi skemmtilegi staður er steinsnar
frá Alicanteborg og því tilvalið fyrir þá sem vilja
spila golf og njóta menningarinnar í Alicante.
Golfvöllurinn við hótelið er 18 holu völlur sem
hentar fyrir alla kylfinga.
INNIFALIÐ
8 NÆTUR Á EL PLANTIO GOLF RESORT 4*
MORGUNVERÐUR EÐA HÁLFT FÆÐI
ÓTAKMARKAÐ GOLF
ÞÁTTTAKA Í GOLFMÓTI ÚÚ
GLÆSILEGIR VINNINGAR
AFNOT AF GOLFBÍL
ÍSLENSK FARASTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA
INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
Golfstjóri
Einar Viðar Gunnlaugsson
Fararstjóri
Magnús Margeirsson
NÝTTVINSÆL FERÐ!
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
SVIÐSLJÓS
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samkvæmt nýrri könnun, sem
MMR gerði í samstarfi við Morg-
unblaðið og mbl.is á þriðjudag og
miðvikudag, virðast þrír flokkar
vera að sigla fram úr hinum.
Eins og við er að búast er fylgið
komið á talsverða hreyfingu nú síð-
ustu dagana fyrir kosningar, en til
þess hefur verið tekið hve lítið það
haggaðist undanfarnar vikur og
mánuði ef undan er skilið hið nýja
framboð Sósíalista. Þetta virðist loks
vera að breytast.
Sjálfstæðisflokkur rís á ný
Sjálfstæðisflokkurinn heldur
fyrra forskoti og hefur hækkað
nokkuð frá síðustu könnun, Fram-
sókn heldur áfram á siglingu upp á
við og eins heldur Samfylking áfram
að bæta við sig, fremur hóflega þó.
Þá vekur athygli að fylgi Flokks
fólksins hefur styrkst verulega þótt
hann sé ekki að blanda sér í topp-
baráttuna, sem er í takt við aðrar
kannanir síðustu daga.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn bætt sig um ríflega 1,5 pró-
sentustig frá síðustu könnun, sem
lauk liðinn föstudag, og fer flokk-
urinn úr 20,3% í 21,8%. Svipaða sögu
er að segja af Framsókn, sem fer
upp í 14,3%.
Samfylkingin bætir minna við sig
og fer í 13,9%. Aðrir flokkar á vinstri
væng dala hins vegar talsvert frá
síðustu könnun, svo að Samfylkingin
er að taka nokkra forystu þeim meg-
in miðju.
Mesta fylgisaukningin er hins
vegar hjá Flokki fólksins, sem fer
upp um 1,8 prósentustig og er því
kominn í 7,3%.
Væringar á vinstri væng
Í liðinni viku mátti merkja að allir
flokkar á vinstri væng stjórnmál-
anna væru að bæta við sig, en að
Samfylkingu undanskilinni virðist sú
fylgisaukning mikið hafa gengið til
baka. Mestu munar hjá Sósíalistum,
sem mælast með 2,5 prósentustigum
minna en á föstudag, fara úr 8,6%
niður í slétt 6,0%. Píratar missa
einnig flugið, 1,5 prósentustig hafa
kvarnast af þeim á þessum dögum
og fara úr 11,8% í 10,3%.
Sömuleiðis hlýtur það að vera
Vinstri-grænum vonbrigði að hafa
lækkað frá fyrri könnun. Hún sýndi
fyrstu fylgisaukningu þeirra í tölu-
verðan tíma, en samkvæmt henni
naut flokkur Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra 12,1% fylgis eftir
að hafa lítið hreyfst úr 10,5% vikum
saman. Sú hækkun þurrkast að vísu
ekki út, en flokkurinn fær 11,0% að
þessu sinni.
Miðjan stendur í stað
Að Framsókn undanskilinni er
ekki að sjá miklar breytingar á miðj-
unni. Miðflokkurinn bætir ögn við
sig, en er enn í fallbaráttu með 4,7%
fylgi. Eins tapar Viðreisn lítilræði
frá fyrri hækkun og er nú með
10,1%.
Rétt er að hafa í huga að fylgis-
munur upp á brot úr prósentu er
iðulega innan vikmarka og því óvar-
legt að lesa of mikið í smávægilegar
fylgisbreytingar. Könnunin var gerð
í gær og í fyrradag, en þar tóku 909
manns afstöðu til framboðanna.
Þingmenn kjördæma samkvæmt skoðanakönnunum MMR
Samanteknar tölur úr þremur síðustu könnunum, 8. - 10. september, 15. - 17. september og 21. - 22. september
S
10 ÞINGMENN
J
NV
8 ÞINGMENN
J
RS
11 ÞINGMENN
J
J
SV
13 ÞINGMENN
J
J
NA
10 ÞINGMENN
J
10
14
7 4
3
8
7
6
4
J
RN
11 ÞINGMENN
JJ
J táknar jöfnunarmenn.
Fylgisþróun milli vikna hjá MMR 17. september og 22. september
Sjálfstæðis-
flokkur
Framsókn
Miðflokkur
Viðreisn
Flokkur
fólksins Samfylking
Vinstri græn
Píratar
Sósíalistar
0%
5%
10%
15%
20%
25%
JPVSFCMBD
21,8%
14,3%
4,7%
10,1%
7,3%
13,9%
11,0%
10,3%
6,0%
Aukin skautun fylgis á lokaspretti
- Sjálfstæðisflokkur og Framsókn bæta við sig - Aðeins Samfylking hækkar á vinstri kantinum
- Viðreisn og Miðflokkur standa í stað - Flokkur fólksins í sókn - Sósíalistar tapa fyrri hækkun
Elsti aldurshópurinn í könnunum
MMR, 68 ára og eldri, hefur talsvert
aðra pólitíska afstöðu en heildin, eins
og sjá má að ofan. Þar er gamli fjór-
flokkurinn í fullu fjöri, ef horft er hjá
breyttum nöfnum og merkjum
sumra þeirra.
Þar eru Sjálfstæðisflokkur og
Framsókn sterk á miðju og til hægri,
en Samfylking og Vinstri-græn á
vinstri vængnum. Þar vekur firna-
sterk staða Samfylkingar sérstaka
athygli. Nýrri flokkar eiga mun erf-
iðara uppdráttar og Píratar einir um
að komast yfir 5%.
Sú flökkusaga virðist ganga að
skoðanakönnuðir spyrji ekki eldri
borgara álits í stjórnmálakönnunum,
en það er rangt. MMR – líkt og Gall-
up, Félagsvísindastofnun og Mask-
ína – hafa engin efri aldursmörk við
gerð kannana sinna.
Fylgi framboða meðal aldraðra
Úr könnun MMR 21. til 22. september
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
JPVSFCMBD
Annað landslag hjá
elsta aldurshópnum
- Fjórflokkurinn ennþá í fullu fjöri