Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
#9?4+ C :CB=23). 15= <8--+ 2E3 0?+32DA<+0-+ !9-93?=F
%D;6*31)<0+< G 'A<
"E--23). G (B23). G !>00+<
&13=?)7 *;5+<
!4042/5, " 650-53*2)./ '& " 7+/1# $%$%(%( <)3/-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sagan hefur glatast en lífið heldur
áfram. Viðbrögðin eru sterk. Mér
heyrist á öllum að ekki komi annað
til greina en að kirkja verði aftur
reist í eyjunni okkar, þótt lítið sé
hægt að segja nú og ekkert hafi
verið ákveðið, svo skammt er liðið
frá brunanum,“ segir Alfreð Garð-
arsson, formaður sóknarnefndar
Miðgarðasóknar í Grímsey.
Tilgátur eru um að kviknað hafi í
út frá rafmagni þegar Miðgarða-
kirkja í Grímsey brann til kaldra
kola í fyrrakvöld. Rafmagnstafla
var í turni kirkjunnar, þar sem
sjónarvottar sáu mikinn eld. „Þegar
turninn var brunninn segir fólk
mér að eldurinn hafi bókstaflega ét-
ið kirkjuna upp á svipstundu,“ segir
Alfreð. Hann er sem stendur í landi
í fríi en hefur verið í góðu sam-
bandi við sitt fólk í Grímsey vegna
þessa.
Stjórnvöld styðji
við heimamenn
Menn frá rannsóknardeild lög-
reglunnar á Norðurlandi eystra og
úr Reykjavík fóru í Grímsey í gær
til kanna aðstæður og eldsupptök.
Prestar Dalvíkurprestakalls, sem
þjóna eynni, fóru sömuleiðis á stað-
inn. Kirkjubruninn hefur vakið
sterk viðbrögð víða í þjóðfélaginu
og margir tjáð sig um málið. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði
á Facebook þetta vera mikið áfall
fyrir samfélagið í Grímsey og ljóst
að þarna hefðu „… margar merkar
menningarminjar eyðilagst, sem er
óbætanlegt tjón. Hugur minn er hjá
íbúum og öllum þeim sem unnu
þessari merku kirkju. Stjórnvöld
munu ræða við heimamenn og ég
er viss um að það verður ríkur vilji
allra til að styðja við bakið á þeim í
kjölfarið.“
Miðgarðakirkja var byggð 1867
af Árna Hallgrímssyni á Garðsá í
Eyjafirði og hans mönnum. Hæg
voru heimatök um efnivið; rekavið
sem rak að landi norðan úr höfum.
Kirkjan var 7,7 m að lengd og 4,8
m á breidd, með kór undir minna
formi. Upphaflega var byggingin
ögn minni, en árið 1956 var hún svo
endurvígð, þá eftir stækkun og
miklar endurbætur, sem sr. Sig-
urgeir Sigurðsson, þáverandi bisk-
up Íslands, hafði hvatt til eftir vísi-
tasíu sína í eyna.
Fjöldi merkra
kirkjugripa fór forgörðum
Kirkja hefur verið í Grímsey frá
fyrstu dögum í kirkjusögu Íslands.
Fornar bækur greina frá kirkju-
vígslu þar á árunum 1110-1120. Í
Grímsey sátu prestar langt fram á
síðustu öld að sú breyting var gerð
að þjónusta við eyna var færð til
presta Akureyrarkirkju. Seinna
varð Grímsey hluti af Lögmanns-
hlíðarprestakalli í Glerárhverfi á
Akureyri. Síðastliðin 20 ár hefur
Grímsey og kristnihald þar verið
hluti af skyldum Dalvíkurpresta.
Meðal gripa sem glötuðust í
kirkjubrunanum í Grímsey í fyrra-
kvöld var altaristafla sem sýnir síð-
ustu kvöldmáltíðina, eftirmynd af
verki Leonardos da Vincis. Töfluna
gerði Arngrímur Gíslason málari
(1829-1887), alþýðulistamaður í
Svarfaðardal, en slíkar er að finna í
allmörgum kirkjum, einkum á
Norðurlandi. „Altaristöflurnar eru
mesta stórvirki hans,“ segir dr.
Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður
og forseti Íslands, í bókinni Arn-
grímur málari sem kom út 1983.
Af öðrum munum sem forgörðum
fóru í eldsvoðanum voru útskorinn
skírnarfontur, prédikunarstóll mál-
aður í mahóní- og furulit, aldagaml-
ir ljóshjálmar, gamlar kirkjuklukk-
ur og svo mætti áfram telja.
Biskup styður uppbyggingu
„Mér finnst óhugsandi að engin
kirkja verði í Grímsey,“ sagði sr.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Ís-
lands í samtali við Morgunblaðið.
Hún átti í gær samtöl við formann
sóknarnefndar Miðgarðasóknar og
sóknarprest vegna eldsvoðans.
„Kirkjan er hjartað í hverju plássi,
staðurinn þar sem fólk kemur sam-
an á stundum gleði og sorgar. Nú
er íbúa í Grímsey að taka ákvörðun
um uppbyggingu, sem ég styð.
Þarna gætu til dæmis kirkjuþing og
ýmsir fleiri komið að málum. Orð
eru til alls fyrst og hafa vægi. Guð
er með okkur í öllum aðstæðum og
blessar þá uppbyggingu sem fram
undan er,“ segir Agnes enn fremur.
Í Grímsey hefur að jafnaði verið
messað fjórum sinnum á ári. Þá eru
ótaldar tilfallandi athafnir svo sem
skírnir, fermingar, hjónavígslur og
útfarir sem stundum er valinn tími
eftir því hvernig stendur á ferðum
til eynnar sem heimskautsbaug-
urinn liggur um.
Eldurinn bókstaflega át kirkjuna
- Merkar menningarminjar fóru forgörðum - Miðgarðakirkja brann á 20 mínútum - Áfall fyrir
samfélagið - Sterk viðbrögð - Óhugsandi að engin kirkja verði í Grímsey, segir biskup Íslands
Ljósmynd/Henning Henningsson
Rústir Aðeins sökklar standa eftir og stórt sár er í þorpsmyndinni. Strax er hugur í fólki að reisa nýja kirkju.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reisuleg Miðgarðakirka var reist árið 1867 en síðar stækkuð. Var að stofni
til úr rekaviði, sem rak norðan úr höfum að eynni á baugnum.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Innandyra Forgörðum fór í eldinum altaristafla eftir Arngrím Gíslason sem
sýndi síðustu kvöldmáltíðina, samkvæmt fyrirmynd Leonardos da Vincis.
Agnes M.
Sigurðardóttir
Alfreð
Garðarsson
„Áfallið er
stórt,“ segir sr.
Pálmi Matt-
híasson. Hann
var sóknar-
prestur við
Glerárkirkju á
Akureyri 1981-
1989 og því
embætti fylgdi
Grímsey.
„Þegar ég varð prestur
Grímseyinga voru þeir 124. Eyj-
arskeggjum hefur fækkað tölu-
vert síðan. Bæði búendum og
brottfluttum þykir þó áfram
vænt um kirkjuna sína sem hef-
ur verið sameiningartákn,“ seg-
ir sr. Pálmi. „Í gamla daga henti
stundum við messur að karl-
arnir dottuðu undir helgihaldi,
sem sagði mér að þeim liði þá
einfaldlega vel í kirkjunni. Slíkt
er mikils virði.“
Sr. Pálmi var í gær í sambandi
við Grímseyinga vegna brunans,
en mörgum þeirra tengist hann
ættarböndum. „Fólk er í áfalli.
Því er ekkert hægt að segja til
um hvort ný kirkja verði reist.
Slíkt verkefni yrði að minnsta
kosti að formgera vel svo fljótt
sjáist til lands. Ég er reyndar
viss um að margir vilja leggja
lið, svo mikilvægan sess á þessi
eyja í þjóðarsálinni.“
Grímsey er í
þjóðarsálinni
KIRKJAN SAMEINAR
Pálmi
Matthíasson