Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 urunum tíu sem komu til landsins 1973 og reyndust í flesta staði vel. Ólafur segir að skipin hafi verið vel byggð á sínum tíma og mikið sé eftir af Múlaberginu. Nú eru aðeins Múla- berg og Ljósafell frá Fáskrúðsfirði eftir af Japanstogurunum í íslenska flotanum. Óarðbærar humarveiðar Rammi gerir einnig út Fróða II ÁR 38 og Jón á Hofi ÁR 42, sem verið hafa á humri og fiskitrolli. Hrun varð í humarstofninum við landið fyrir nokkrum árum og í ár var heimilað að veiða 143 tonn, sem er aðeins 6-7% af því sem veitt var fyrir áratug. Beðið sé nýliðunar í stofninum og þegar stofninn taki við sér taki 5-7 ár áður en möguleiki verði að veiða eitthvað að gagni. Ólíklegt sé að það verði næsta áratuginn. Rammi, Skinney-Þinganes og Vinnslustöðin eru með mesta hlut- deild í humarveiðum og segir Ólafur að eins og sakir standa séu humar- veiðar óarðbærar. Fylgjast þurfi þó áfram með veiðislóðinni og þróun stofnsins, en jafnframt að veiða hluta af heimildum sem leyfðar verða í samráði við Hafrannsóknastofnun. markmiðið með endurnýjuninni að minnka kolefn- isspor útgerð- arinnar. Hvernig veiðum verði síð- an háttað og á hvaða skipum sé ekki tímabært að ræða á þessari stundu. Líklegast sé að áherslan á nýja skipinu verði lögð á bolfisk- veiðar og einnig veiðar á humri taki humarstofninn við sér. Það sé ekki hugsað sem rækjuskip. Frystitogarinn Sólberg er flagg- skipið í flota Ramma, en það kom nýtt til landsins í maí 2017. Skipið hefur mest komið með hátt í 14 þús- und tonn að landi á einu ári og vel hefur gengið á þessu ári að sögn Ólafs. Ísfisktogarinn Múlaberg (áður Ólafur Bekkur) hefur síðustu ár verið á rækjuveiðum frá því í mars og út september, en á bolfiskveiðum yfir vetrartímann. Skipið var smíðað í Japan 1973 og verður því hálfrar ald- ar gamalt þegar nýja skipið kemur. Múlabergið er eitt af Japanstog- Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að því að nýr ísfisktogari hefji veiðar fyrir Ramma hf. á Siglu- firði haustið 2023. Unnið er að lokafrágangi samnings um nýsmíðina milli Ramma og skipasmíðastöðv- arinnar Celiktrans í Tyrklandi. Áætl- að smíðaverð er nálægt þremur millj- örðum króna, að sögn Ólafs Marteinssonar, framkvæmdastjóra Ramma. Skipið er hannað af Nautic ehf. og verður mesta lengd 48,1 metri og breiddin 14 metrar. Það verður búið fjórum togvindum og aðalvélin 1.795 hestöfl. Skipið verður heldur styttra og aðeins breiðara en Akurey og Við- ey, en búnaður áþekkur í skipunum. Þau skip voru smíðuð hjá Celiktrans fyrir Brim hf. og komu til landsins 2017. Aldur skipa og breyttar aðstæður Ólafur segir að aldur og samsetn- ing skipa Ramma og hrun í humar- veiðum hafi kallað á breytingar í flota fyrirtækisins og því hafi verið ákveð- ið að ráðast í nýsmíðina. Jafnframt er Tölvumynd/Nautic Rammi Nýi ísfisktogarinn er væntanlegur til Siglufjarðar eftir tvö ár og verður svipaður og Akurey og Viðey RE. Nýr togari Ramma smíðaður í Tyrklandi - Japanstogarinn Múlaberg 50 ára þegar nýja skipið kemur Ólafur Marteinsson Borgarráð hefur samþykkt viðbót- arsamning við leigusamning milli Landsbankans hf. og Reykjavík- urborgar vegna Álfabakka 10. Um er að ræða viðbótarhúsnæði fyrir velferðarsvið borgarinnar. Reykjavíkurborg hefur leigt húsnæði á 2. hæð í Álfabakka 10 frá 1. maí 2019. Húsnæðið er nýtt fyrir þjónustumiðstöð Breiðholts. Vegna aukinna umsvifa var þörf á viðbótarhúsnæði. Því tekur borgin á leigu 392,3 fermetra og leigir nú alls 950 fermetra í hús- inu. Viðbótarleiga er krónur 706.158 á mánuði og rúmast hún innan rekstrarramma velferðar- sviðs. Þjónustumiðstöð Breiðholts stækkar Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga 11-15 laugardaga. www.spennandi-fashion.is VANDAÐUR KVENFATNAÐUR FRÁ ÍTALÍU OG SPÁNI Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Kosningabaráttan sem nú er í hæstu hæðum hefur einkennst af markaðs- setningu á einstaklingum og trú- verðugleika þeirra til forystu og síð- ur af umræðu um málefni. Ekkert málefni hefur orðið að aðalkosningaefni sem tröllríður allri umræðu. Um þetta eru Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar og athafnastjóri, og Gísli Freyr Val- dórsson, ráðgjafi og ritstjóri Þjóð- mála, sammála. Þau eru gestir Karítasar Rík- harðsdóttur í Dagmálum þar sem meðal annars er farið yfir leiðtoga- umræður Dagmála, stöðu barátt- unnar þegar einungis tveir dagar eru til alþingiskosninga og loks möguleika á stjórnarmyndun. Inga bendir á að í þetta skiptið komi ákall og ákvörðun um málefni frekar frá grasrótar- og félaga- samtökum en frá forystu stjórn- málaflokka og tekur sem dæmi sól- arkvarða Ungra umhverfissinna og einkunnagjöf Samtakanna ’78. Gísli Freyr tekur undir það og bætir við að ýmis hagsmunasamtök á borð við BHM, BSRB, ASÍ, ÖBÍ, VR, SA, Viðskiptaráð og fleiri reki sína eigin kosningabaráttu. „Þau styðja engan ákveðinn flokk opinberlega en það vita allir fyrir hverja þau eru að tala. Fullveldi ekki kosningamál Alveg eins og það er ekki salur fyrir umræðunni um stjórnarskrá þá er ekki salur fyrir umræðunni um fullveldi, fólk er ekki að velta fullveldi fyrir sér,“ sagði Gísli Freyr um mögulegar skýringar þess að kosningamál Miðflokksins virðast ekki vera að skila tilætluðum ár- angri miðað við skoðanakannanir. Hann segir Sigmundi ekki hafa tek- ist að vera sá senuþjófur í barátt- unni sem margur bjóst við að hann yrði. Inga og Gísli Freyr eru sammála um að úr þessu skipti mestu máli að enginn klúðri neinu á lokasprett- inum en ólíklegt sé að ný mál geti komið fram núna sem breyti gangi kosningabaráttunnar. Gísli spáir meiru fylgi Vinstri-grænna en nú er. Morgunblaðið/Arnar Dagmál Gísli Freyr og Inga Auðbjörg ræða stöðuna í kosningabaráttunni. Snýst um trúverð- ugleika leiðtoga - Samtök taka þátt í kosningabaráttu 2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.