Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
LÝSTU UPP
skammdegið með
LYSS veggljós – 22.900,-
LYSS borðlampi – 22.900,-
LYSS gólflampi – 34.900,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
2
1
Auglýsing um framkvæmdaleyfi
BæjarstjórnAkraness samþykkti á fundi þann6. september 2021 aðveita
framkvæmdaleyfi fyrir aðfjarlægja asbestlögn sem liggur fráVatnsbóli
við Berjadalsá að lýsingarhúsi áGolfvelli Leynis (ÁsarGeislahús).
Framkvæmdaleyfið er gefið út skv 10. gr. reglugerðar nr. 772/2012
um framkvæmdaleyfi.
Vakin er athygli á að niðurstaða bæjarstjórnar er kæranleg til útskurð-
arnefndar umhverfis og auðlindamála, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík, sbr.
52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kærufrestur er einnmánuður frá
birtingu auglýsingar um leyfið, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um
úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Gögn framkvæmdaleyfis
Umsókn um framkvæmdaleyfi•
Minnisblað „Áhættur tengdar fjarlægingu asbests“•
Teikningar af framkvæmd•
HallaMarta Árnadóttir, skipulagsfulltrúi
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Gögn vísindamanna sýna skýrt fram
á niðursveifluna í laxastofnunum og
stefnan virðist vera í átt að útrým-
ingu. Ég er því svo sannarlega svart-
sýnn á stöðu laxastofnanna,“ sagði
sir Jim Ratcliffe eftir málþing sem
félag hans, Six Rivers Project, stóð
fyrir um stöðu atlantshafslaxins í
Reykjavík. Six Rivers Project, sem
áður var Veiðiklúbburinn Strengur,
fer meðal annars með veiðina í Selá
og Hofsá í Vopnafirði og var nýlega
kynnt metnaðarfull áætlun um upp-
byggingu veiðihúsa og aðstöðu við ár
félagsins sem einnig leggur mikla
fjármuni í rannsóknir á laxinum og
umhverfi ánna.
Málþingið stóð í tvo daga og voru
vísindamenn frá Íslandi, Bretlandi,
Norðurlöndunum, Írlandi og Kan-
ada með framsögu. Verndaráætlun
og rannsóknir Six Rivers Project
voru kynntar, þar á meðal rann-
sóknir tveggja doktorsnemenda á
sviði seiða- og stofnstærðarrann-
sókna á laxi í Vopnafirði. Þá var til
dæmis fjallað um alvarleg vandamál
sem laxastofnar í Kanada og á
Norðurlöndum standa frammi fyrir,
til að mynda vegna ofveiði, hnúðlaxa
og laxeldis; greint var frá rann-
sóknum á laxinum í hafi og verndar-
áætlunum á ýmsum svæðum en eitt
meginstef umræðunnar var að
atlantshafslaxinn heyr alls staðar
varnarbaráttu og margt kom fram
sem studdi það, þótt svörin við því
hvað þurfi til bjargar séu ekki ljós.
Úr 45.000 löxum í 200
Jim Ratcliffe segir erindi vísinda-
manna á málþinginu hafa staðfest þá
vitneskju að með sama áframhaldi
þá stefni laxinn í útrýmingu. „Marg-
ar aðrar dýrategundir á jörðinni
eiga í sama vanda en á síðustu 40 til
50 árum hefur atlantshafslaxinum
líklega fækkað úr um 10 milljónum
fiska niður í um 2,5 milljónir. Og ef
við lítum enn lengra aftur þá voru
stofnarnir enn sterkari. Mögulega
er laxafjöldinn kominn niður í um
fimm prósent af því sem hann einu
sinni var – við heyrum bara slæmar
fréttir af stöðu laxins.“
Ratcliffe bætir við að á mál-
þinginu hafi til dæmis verið sýnt
fram á mikla hnignun laxastofnanna
í skosku ánum og eins í ánum við
Fundy-flóa við austurströnd Kan-
ada. „Þar var áður mjög stór laxa-
stofn með nánast jafn mikinn fjölda
laxa og er í öllum íslensku ánum nú,
um 45.000 laxa – en nú eru ekki eftir
nema um 200 á vatnasvæðinu. Við
heyrum bara slæmar fréttir og mér
finnst fátt breytast, laxinum heldur
bara áfram að fækka þar til hann
verður útdauður. Já, ég er svartsýnn
á stöðu laxins,“ sagði Ratcliffe.
Beita verður þekkingunni
Þetta var í annað sinn sem Rat-
cliffe og félag hans hér standa fyrir
slíku þingi um laxinn. Er það í von
um að eitthvað jákvætt gerist með
því að menn taki höndum saman?
„Já, vissulega, því ef þróuninni
verður ekki snúið við þá mun hið
óhjákvæmilega gerast – eftir 20 eða
40 ár – og við munum öll harma það.
Því ef við mennirnir endum á því að
byggja einir jörðina, eftir að hafa
drepið allar helstu dýrategundirnar,
þá verður það ömurleg tilvera.
Eitt af því sem við heyrðum hér er
að atlantshafslaxinn er ein mest
rannsakaða dýrategund jarðar, og
við skiljum margt og vitum margt
um laxinn, en höfum samt ekki náð
að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir
sem byggjast á þekkingunni. Til ein-
hvers sem eykur lífslíkur laxa. Það
er gott að vinna að öllum þessum
rannsóknum og ég hvet til þeirra því
aukin þekking er alltaf af hinu góða.
En að lokum verður að taka þekk-
inguna og beita henni í aðgerðum
sem skipta máli,“ sagði Ratcliffe.
„Heyrum bara slæmar
fréttir af stöðu laxins“
- Félag Jims Ratcliffes með málþing um atlantshafslaxinn
Morgunblaðið/Einar Falur
Umræður Jim Ratcliffe veltir hér stöðu laxastofnanna fyrir sér á málþingi Six Rivers Project. Earl Perry, forseti
Atlantic Salmon Trust, og Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatnssviðs Hafrannsóknastofnunar, hlýða á.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vinna við frekari undirbúning
Sundabrautar hefur verið í fullum
gangi hjá Vegagerðinni. Félagshag-
fræðileg greining framkvæmdarinn-
ar er langt komin og liggja fyrir drög
að niðurstöðum.
Verulegur samfélagslegur ávinn-
ingur er af framkvæmdinni og hún
metin sem hagkvæm þegar horft er
til félagshagfræðilegra þátta, upp-
lýsir Guðmundur Valur Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs Vegagerðarinnar, á frétt á
heimasíðu stofnunarinnar.
Ferðatíminn styttist
„Meginávinningurinn er sparnað-
ur í ferðatíma vegfarenda svo og
minni akstursvegalengdir en um-
ferðarlíkön gera ráð fyrir að við opn-
un brautarinnar geti heildarakstur á
höfuðborgarsvæðinu minnkað um
tæplega 60 milljónir kílómetra ár-
lega eða um 160 þús. km á sólar-
hring. Tímasparnaður og styttri
vegalengdir leiða jafnframt af sér
minni útblástur kolefnis, færri slys,
minni hávaða og minni mengun. Allt
þetta á við, hvort sem um er að ræða
Sundabrú eða Sundagöng,“ segir
Guðmundur Valur.
Starfshópur um legu Sundabraut-
ar skilaði greinargerð í janúar 2021.
Þar var farið yfir þá valkosti við
þverun Kleppsvíkur sem helst hafa
komið til greina, annars vegar Sun-
dabrú sem tengist Sæbraut til móts
við Holtaveg og hins vegar Sunda-
göng yfir að Laugarnesi.
Niðurstaða starfshópsins var sú
að mæla með Sundabrú. Áætlað var
að brúin muni kosti um 14 milljörð-
um kr. minna í framkvæmd en
Sundagöng. Áætlaður heildarkostn-
aður við Sundabraut milli Sæbrautar
og Kjalarness með Sundabrú yfir
Kleppsvík er um 69 milljarðar króna
en með Sundagöngum um 83 millj-
arðar kr. Svokallaðir innri vextir
Sundabrúar eru metnir yfir 10%.
Hefðbundin viðmið um að verkefni
séu talin fýsileg er að innri vextir séu
yfir 3,5%. Innri vextir eru þeir vextir
sem gera það að verkum að núvirði
kostnaðar af framkvæmdunum er
jafnt núvirði tekna af þeim. Ábati
notenda Sundabrautar, hvort sem er
akandi, hjólandi eða með almenn-
ingssamgöngur sé því verulegur.
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra og Dagur B. Egg-
ertsson, borgarstjóri í Reykjavík,
undirrituðu í júlí síðastliðnum yfir-
lýsingu um lagningu Sundabrautar.
Vegagerðin undirbýr nú næstu
skref við undirbúning framkvæmd-
arinnar, þ.e. mat á umhverfisáhrif-
um og breytingar á aðalskipulagi í
samstarfi við Reykjavíkurborg.
Stefnt sé að því að framkvæmdir við
Sundabraut geti hafist eigi síðar en
2026 og að brautin verði tekin í notk-
un árið 2031.
Sparar 60 millj-
óna kílómetra
akstur árlega
- Verulegur samfélagslegur ávinningur
verði ráðist í byggingu Sundabrautar
Morgunblaðið/Eggert
Handsalað Dagur B. Eggertsson og
Sigurður Ingi Jóhannsson í sumar.