Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
NISSAN - QASHQAI ACENTA 2WD
RN. 191867. Nýskráður 2/2016, ekinn 76 þ.km.,
dísel, steingrár, sjálfskiptur, fjarlægðarskynjarar,
hraðastillir, bakkmyndavél, bluetooth, dráttarkrókur
Verð 2.790.000 kr.
TOYOTA - RAV4 VX HYBRID – RN. 331553
Nýskráður 9/2019, ekinn 26 þ.km., bensín/
rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, blindsvæðisvörn,
fjarlægðarskynjarar, dráttarbeisli, litað gler, GPS,
bakkmyndavél, bluetooth. Verð 7.190.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
VW - GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI.
Verð 4.590.000 kr.
TOYOTA - HILUX GX – RN. 153795
Nýskráður 6/2020, ekinn 17 þ.km., dísel, blár,
sjálfskiptur, kastarar, dráttarkrókur, intercooler,
túrbína, topplúga, hiti í sætum, varadekk.
Verð 7.990.000 kr.
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það eru ákveðin tækifæri núna til
að sækja fram í atvinnumálum og
við ætlum okkur að nýta þau,“ segir
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri
á Akranesi.
Akraneskaupstaður hefur hrint af
stað stóru og metnaðarfullu verk-
efni við atvinnuuppbyggingu í sveit-
arfélaginu. Um er að ræða svokall-
aða græna iðngarða í Flóahverfi á
Akranesi. Nýverið var skrifað undir
samstarfs- og markaðssamning við
fyrirtækið Merkjaklöpp um upp-
byggingu á svæðinu. Fær fyrir-
tækið það hlutverk að greina þarfir
fyrirtækja sem sjá sér hag í því að
flytja starfsemi sína þangað og
greiða götu þeirra.
Sævar Freyr segir í samtali við
Morgunblaðið að mikil uppbygging
sé fram undan í íslensku samfélagi.
Fyrirséð sé að mörg fyrirtæki muni
þurfa að færa sig af höfuðborgar-
svæðinu af svæðum sem verið sé að
skipuleggja fyrir íbúabyggð. Sam-
fara þessu hafi íbúum fjölgað mikið
á Akranesi.
„Við viljum gera fyrirtækjum það
mögulegt að koma sér fyrir í
öruggu umhverfi sem stenst kröfur
framtíðarinnar. Þar á meðal eru
umhverfismálin. Við ætlum okkur í
stórsókn,“ segir bæjarstjórinn.
Úthlutun lóða er hafin
Flóahverfi er að finna norðan við
Akraneskaupstað, undir Akrafjalli í
Garðaflóa. Um ræst land er að ræða
sem hefur um áratugaskeið verið
skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðal-
skipulagi Akraneskaupstaðar en
svæðið hefur hingað til verið notað
sem beitarland. Unnið hefur verið
að deiliskipulagi svæðisins á undan-
förnum árum en það var svo fyrir
um það bil ári að upp kom sú hug-
mynd að starfrækja þar græna iðn-
garða.
Úthlutun lóða er þegar hafin og
segir Sævar að allir innviðir séu til
staðar til að uppbygging geti hafist.
Fyrsta fyrirtækið til að hefja starf-
semi á svæðinu var Veitur en fyrir-
tækið er meðal annars að koma upp
tvöfaldri hitaveitu þar sem unnt
verður að nýta heitt vatn með
endurtekinni notkun. Þá er jafn-
framt til skoðunar hvort fýsilegt sé
að nýta glatvarma frá iðnaðarsvæð-
inu Grundartanga.
Bjóða fyrirtækjum ívilnanir
„Veitur eru fyrsta fyrirtækið á
staðnum og það er lykilfyrirtæki.
Það hefur verið mikil ásókn í lóðir á
svæðinu og búið er að sækja um
stóran hluta þeirra lóða sem eru til
úthlutunar. Eftir um það bil tvö ár
ætti því fyrirtækjum að hafa fjölgað
verulega. Okkar væntingar eru að
svæðið muni byggjast mjög mark-
visst upp á næstu fimm árum,“ seg-
ir Sævar. Meðal hvata sem kunna
að freista fyrirtækja er tveggja ára
frestun gatnagerðargjalda og að
fasteignagjöld á fyrirtæki eru lág á
Akranesi, að sögn bæjarstjórans.
Hámarka nýtingu á auðlindum
En hvað eru grænir iðngarðar?
Grænir iðngarðar eru eins konar
samfélag framleiðslu- og þjónustu-
fyrirtækja sem leita í sameiningu að
bættum umhverfis-, efnahags- og
félagslegum árangri með stjórnun á
umhverfis- og auðlindamálum. Leit-
ast er við að hámarka nýtingu á
auðlindum og takmarka sóun
þeirra. Sævar segir að allur frá-
gangur innan svæðisins verði í takt
við umhverfiskröfur og starfsemi
verði í góðri sátt við íbúa með til-
heyrandi ábyrgð gagnvart bæði
starfsfólki og samfélaginu öllu. Áð-
urnefnd tvöföld hitaveita sé dæmi
um hringrásarkerfi þar sem úr-
gangur sé nýttur sem hráefni.
Áætlanir eru uppi um að þjónustu-
fyrirtæki fari með stjórn sameig-
inlegs rekstrar garðanna. Þannig
gætu náðst samlegðaráhrif við nýt-
ingu á til dæmis orku, vatni og frá-
veitu, skipulagi og umsjón með
sorpmálum, stuðningi við nýsköpun,
upplýsingagjöf og samstarfi við
nærsamfélag auk þess sem hægt
væri að sameinast um þrif, mötu-
neyti, öryggiseftirlit og fleira.
Lagt er upp með að iðngörðunum
verði skipt í tvo hluta. Annars vegar
matvælaræktun, matvælafram-
leiðslu, ylrækt, lyfjaframleiðslu og
svo framvegis og hins vegar léttan
iðnað og þjónustu.
Aðlaðandi umgjörð fyrir
erlenda fjárfestingu
Heildarflatarmál lóða á svæðinu
er um það bil 150 hektarar að stærð
og til framtíðar eru stækkunar-
möguleikar í austur. Sævar segir að
staðsetning iðngarðanna í nágrenni
Reykjavíkur muni henta vel fyrir-
tækjum sem vilja veita þjónustu inn
á höfuðborgarsvæðið. Umrædd
uppbygging kemur sér þó ekki síð-
ur vel fyrir íbúa og fyrirtæki á
Akranesi að hans sögn. Markvisst
hefur verið horft til framtíðar í at-
vinnumálum í bænum á síðustu
misserum og er sú vinna að skila
sér.
„Þar vil ég nefna til dæmis þann
mótbyr sem skapaðist við breyt-
ingar á grunnatvinnuvegunum. Í
samstarfi við Brim erum við að um-
breyta svæði sem áður var notað til
fiskvinnslu til að byggja upp há-
tækniiðnað. Í kringum þróunar-
félagið Breið stuðlum við að því að
frumkvöðlar komist til starfa í HB-
húsinu og byggjum upp sjávar-
tengda ferðaþjónustu. Í samstarfi
við Þróunarfélagið á Grundartanga
er í undirbúningi að reisa varma-
virkjun. Þá getum við annars vegar
laðað að okkur orkusækinn iðnað
þar en einnig haft öðruvísi fókus á
Akranesi í til að mynda matvæla-
framleiðslu. Og svo eru það grænu
iðngarðarnir. Við erum að ná að
breyta áherslum frá frumstoðunum
í starfsemi sem er í takt við sam-
tímann og framtíðina. Með þessu
búum við til umgjörð sem er aðlað-
andi fyrir erlenda fjárfestingu í takt
við áherslur sem Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir nýsköpunarráðherra
kynnti ásamt Íslandsstofu nýverið í
umgjörð fyrir græna iðngarða.“
Fjölgar atvinnutækifærum
Íbúum hefur fjölgað á Akranesi
og segir Sævar Freyr að ánægju-
legt sé að geta bætt framboð á at-
vinnutækifærum í sveitarfélaginu.
„Við erum að horfa á þá stöðu að
ríflega 20% Skagamanna sækja
vinnu á höfuðborgarsvæðið. Reynd-
ar njóta margir nú þeirrar tækni-
byltingar sem Covid hefur ýtt okk-
ur út í og geta starfað heiman frá
sér. Við viljum samt sem áður
skapa hér spennandi störf og að
bærinn verði sjálfbærari hvað varð-
ar fleiri atvinnutækifæri. Öll þessi
áform styðja við fjölgun íbúa og
tryggja fleira fólki vinnu.“
Skagamenn í stórsókn í atvinnumálum
- Grænir iðngarðar rísa í Flóahverfi - Fyrirtæki geti komið sér fyrir í öruggu umhverfi sem stenst
kröfur framtíðar - Byggist hratt upp á næstu árum - Samfélag þjónustu- og framleiðslufyrirtækja
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tækifæri Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, vill nýta tækifæri í atvinnumálum á næstum árum.
Flóahverfi Þegar er mikil ásókn í lóðir í hinum nýju grænu iðngörðum.
Starfsemi Veitur hafa þegar komið sér fyrir á svæðinu og hafið starfsemi.