Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIR Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerrusmíða 2012 2020 GOLF Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Ryder-bikarinn í golfi hefst á morgun og stendur yfir alla helgina. Vanalega hefur mótið verið haldið á tveggja ára fresti síðan það var fyrst haldið árið 1927, en í ár verða þrjú ár liðin síðan Evrópa hélt bikarnum sín megin Atl- antshafsins á heimavelli. Mótinu var frestað um ár í fyrra vegna faraldurs- ins og er það í annað skiptið á síðustu 20 árum sem mótinu er frestað um ár. Árið 2001 átti mótið að fara fram aðeins örfáum dögum eftir árásina á tvíburaturnana, 11. september. Ryd- er-bikarinn hefur alltaf einkennst af mikilli leikgleði og skemmtun fyrir áhorfendur og því þótti Bandaríkja- mönnum sérstaklega óviðeigandi að halda mótið í skugga slíkra hörm- unga. Mótið verður því haldið á tveggja ára fresti héðan í frá, alltaf á oddatöluári, eftir um 20 ára mótshald á ártölum með slétta tölu. Þess ber að geta að mótið fór ekki fram á styrj- aldarárunum 1939-1945. Ryder-bikarinn er sérstakt golf- mót fyrir margar sakir. Einna helst þó vegna þess að leikin er svokölluð holukeppni. Þar keppast kylfingar um að fara hverja holu á sem fæstum höggum og vinna þannig eina holu í einu. Ólíkt því er höggleikur, sem er hefðbundnara form íþróttarinnar, þar sem kylfingar reyna að fara á sem lægstu skori á heilum hring. Meiri dramatík Holukeppni býður gjarnan upp á meiri dramatík og sviptingar enda spila kylfingar, eða lið kylfinga, hvor- ir gegn öðrum – eins og í skylmingum eða glímu. Eins og fyrr segir var mótið haldið fyrst árið 1927 í Massachusetts. Frá þessu fyrsta móti og til ársins 1979 var Ryder-bikarinn keppni milli bestu kylfinga Bandaríkjanna annars vegar og Bretlands og Írlands hins vegar. Árið 1979 var þó ákveðið að kylfingar úr allri Evrópu myndu etja kappi við kylfinga frá Bandaríkj- unum og svo hefur það haldist síðan. Bandaríkin einokuðu enda Ryder- bikarinn fyrir árið 1979, 19 sigrar alls gegn þremur sigrum Bretanna. Lukka Bandaríkjamanna fór þó hverfandi þegar Evrópa öll skarst í leikinn ‘79. Var það einna helst fyrir tilstilli Seve Ballesteros, Spánverjans litríka, að gengi Evrópumanna fór að vænkast. Frá árinu 1979 og til dags- ins í dag hefur Evrópa 12 sinnum far- ið með sigurorð af Bandaríkjunum, sem sigrað hafa átta sinnum frá ’79. Keppt um heiðurinn Ólíkt því sem gerist á stærstu mótaröðunum í golfi, PGA- mótaröðinni bandarísku og Evr- ópumótaröðinni, er ekki leikið um svimandi peningaverðlaun í Ryder- bikarnum – þar er aðeins keppt um heiðurinn. Þrátt fyrir það eru kylf- ingar sjaldnar blóðheitari en þegar þeir keppa í Ryder-bikarnum og eru dæmi um að kylfingar spili illa allt tímabilið, en blómstri síðan í raf- mögnuðu andrúmslofti Ryders-ins. Gott dæmi um það er Ian Poulter, Englendingur, sem af mörgum er tal- inn einn ofmetnasti kylfingur íþrótt- arinnar. Poulter hefur aldrei unnið á einu fjögurra risamótanna í golfi og hefur ekki oft unnið mót í PGA- mótaröðinni, mótaröð þeirra bestu. Þrátt fyrir það vill enginn etja kappi við Poulter í Ryder-bikarnum, hvort sem hann heitir Tiger Woods, Jordan Spieth, Bryson DeChambeau eða Brooks Koepka. Raunar kemst Poulter yfirleitt ekki nægilega of- arlega á stigalista hvers tímabils, sem veitir kylfingum keppnisrétt á mótinu, og er hann iðulega annar tveggja kylfinga, sem þjálfari Evr- ópuliðsins fær að velja í sitt 12 kylf- inga lið. Bandaríkjamenn eru oft sterkari aðilinn þegar að mótinu kemur. Í ár líkt og fyrri ár prýða stærstu stjörn- ur golfíþróttarinnar, kylfingar sem spila vel mót eftir mót, bandaríska liðið. Í því evrópska er frekar að finna eldri kylfinga með meiri reynslu og þykkari skráp, menn sem spila af ástríðu. Spennandi ár, sem fyrr Það er ekki þar með sagt að Bandaríkjamenn séu lausir við alla ástríðu fyrir golfíþróttinni eða Ryd- er-bikarnum. Eftirminnilegt er þeg- ar Bandaríkjamaðurinn Justin Leon- ard setti niður 40 feta langt pútt og tryggði Bandaríkjamönnum sigur ár- ið 1999 eftir lygilega endurkomu þeirra á síðasta degi mótsins. Leon- ard, liðsfélagar hans, eiginkonur þeirra allra og sjónvarpsfréttamenn NBC þustu þá inn á flötina og tröðk- uðu á púttlínu Spánverjans, José María Olzábal. Það verður því fróðlegt að sjá hvort ástríðufullir Evrópumenn eða stórstjörnur úr liði Bandaríkjamanna sigri í ár. Evrópu hefur gengið mun betur undanfarin ár og er handhafi bikarsins. Það þýðir að jafntefli dugir þeim að stigum til þess að halda bik- arnum á evrópskri grundu. AFP Evrópa Evrópumenn fagna sigri árið 2018 á Le Golf National í Frakklandi. Fremst á mynd eru Francesco Molinari og Tommy Fleetwood, sem léku saman allt mótið og komu mjög á óvart. Ljósmynd/Sky Sports Bandaríkin Justin Leonard gat ekki hamið sig eftir púttið fræga á 17. holu Brookline árið 1999, sem tryggði Bandaríkjunum sigur í mótinu. Ein eftirminnilegasta stund golfsögunnar. Heiður, dramatík og ættjarðarást - Evrópa og Bandaríkin keppa sín á milli um hinn sögufræga Ryder-bikar í golfi um helgina Fyrir liggur hverjir leika fyrir hönd Bandaríkjanna og Evrópu í Ryder- bikarnum, sem hefst á morgun. Steve Stricker er liðsstjóri bandaríska liðsins sem er á heimavelli í þetta sinn en leikið verður á Whistling Stra- its í Wisconsin. Padraig Harrington er liðsstjóri evrópska liðsins. Búast má við því að Steve Stricker þurfi að tala sína menn vel til enda hefur þess gætt að ósætti sé á milli liðsmanna hans, þeirra Brooks Koepka og Bryson DeChambeau. Báðir eru þeir meðal fremstu kylfinga heims og er núningur þeirra á milli því mikill. Ef það er eitthvað sem lið þurfa sterklega á að halda í Ryder-bikarnum er það liðsheildin. Lið Bandaríkjanna: Collin Morikawa, Dustin Johnson, Bryson DeCham- beau, Brooks Koepka, Justin Thomas, Patrick Cantlay, Tony Finau, Xand- er, Shauffele, Jordan Spieth, Harris English, Daniel Berger og Scottie Scheffler. Lið Evrópu: Jon Rahm, Spáni, Rory McIlroy, N-Írlandi, Viktor Hovland, Noregi, Paul Casey, Englandi, Tommy Fleetwood, Englandi, Tyrrell Hatton, Englandi, Bernd Wiesberger, Austurríki, Matt Fitzpatrick, Englandi, Lee Westwood, Englandi, Shane Lowry, Írlandi, Sergio Garcia, Spáni og Ian Poulter, Englandi. Brooks Koepka og Bryson DeChambeau til vandræða RYDER-BIKARINN 2021 Ljósmyndir/AFP Ósáttir Bryson DeChambeau og Brooks Koepka eru liðsfélagar en ekki vinir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.