Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Cvítamín Fyrir ónæmiskerfið. Bragðgóðar tuggutöflur með appelsínubragði. Frábær kostur fyrir þá sem eiga erfitt með að kyngja stórum töflum. Hentar öllum aldri. Fæst í apótekum og flestum stórmörkuðum 2021 ALÞINGISKOSNINGAR „Stjórnmálamenn virðast gera sér grein fyrir mikilvægi heil- brigðisþjónustu. Því verður þeim haldið við efnið,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. „Leiðrétta verður kynbundinn launamun, draga úr álagi í starfi og bæta starfsumhverfi. Eftir kórónuveiruna blasa áskoranir í heilbrigðisþjónustu við; mál sem verður að leysa án þess að töfralausnir séu til.“ Töfralausnirnar eru ekki til „Nauðsynlegt að koma Íslandi út úr Covid-kreppunni og skapa ferðaþjónustunni eðlileg starfsskilyrði. Þar skiptir stöðugt gengi krónunnar miklu máli,“ segir Hallgrímur Lárusson, framkvæmdastjóri Snælands – travel. „Áfram þarf að bæta vegakerfið. Öflug ferðaþjónusta er besta byggðastefnan. Ís- land má ekki vera dýrasta land í heimi; slíkt kemur niður á at- vinnulífinu, gjaldeyrisöflun og lífskjörum almennings.“ Ísland má ekki vera dýrast í heimi „Loftslagsmálin eru mikilvæg,“ segir Þórdís V. Þórhalls- dóttir viðskiptafræðingur. „Hvar ætlum við að standa í al- þjóðasamfélaginu árið 2035? Við þurfum að byrja strax í dag í úrbótum. Umhverfismál í víðu samhengi þurfa að komast á dagskrá; hringrásarhagkerfi, úrgangsmál og fjölnota lausnir í stað einnota. Þá þarf ríkisstjórnin að mæta smærri fyrir- tækjum sem vinna í þessa átt, fá þau ívilnanir eða afslætti?“ Loftslag og hringrás „Vegakerfið á landinu öllu er í slæmu ástandi og úr því þarf að bæta, bæði með nýframkvæmdum, miklum endurbótum og stöðugu viðhaldi,“ segir Stefán Gestsson, framkvæmda- stjóri á Þrótti - vörubílastöð. „Þá er mjög nauðsynlegt að lækka álögur á atvinnulífið, svo sem tryggingagjaldið sem nú er 6,1%. Sá skattur, sem greiðist af öllum launum sem fyrir- tækin greiða starfsfólki, bítur í og er enn alltof hár.“ Lækka álögur á atvinnulífið Hvað brennur á kjósendum? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kjósendur í Reykjavík við kosning- arnar næstkomandi laugardag eru 89.093 eða 35,76% þeirra lands- manna sem kosningarétt hafa. Í Reykjavíkurkjördæmi suður eru alls 45.725 á kjörskrá, eða 17,95% þeirra Íslendinga sem kjósa mega. Í Reykjavíkurkjördæmi norður eru kjósendurnir 45.368 manns, eða 17,81% atkvæðisbærra. Kjördæmamörk Reykjavíkur- kjördæmanna liggja þvert í gegn- um borgina; frá Ánanaustum í Vesturbænum og þaðan til austurs um Hringbraut, Miklubraut, Ár- túnsbrekku og Vesturlandsveg. Þar er komið í Grafarholtshverfi sem skiptist milli kjördæma eftir götunni Jónsgeisla að Krosstorgi. Þaðan liggja mörkin eftir Gvendar- geisla og Biskupsgötu hverfið á enda. Tvö kjördæmi jafna vægi Í suðurkjördæmi Reykjavíkur eru Hagar, Melar og Skjól í Vest- urbænum, Vatnsmýri, Hlíðarnar að nokkru, Fossvogur, Grensás- og Bústaðahverfi og Breiðholtið, sem kalla mætti hverfi fjölbreytileikans enda búa þar ótal nýir Íslendingar. Í norðurkjördæminu eru gamli Vesturbærinn, Kvos, Þingholt, Skólavörðuholt, Norðurmýri, Hlíð- ar, Laugarnes, Laugardalur, Vog- ar, Grafarvogur, nokkrar götur í Grafarholti og Kjalarnesið. En hvers vegna er Reykjavík skipt upp í tvö kjördæmi? Flestum er tamt að líta borgina sem eina heild sem hún líka er í flestu tilliti. Aðspurð segir Kristín Edwald, for- maður landskjörstjórnar, að þegar núverandi kjördæmaskipan var komið á árið 1999, með breytingum á stjórnskipunarlögum, hafi mark- miðið verið að jafna vægi atkvæða og tryggja jöfnuð milli stjórn- málaflokka miðað við kjörfylgi þeirra á landinu öllu. Tilgangurinn var einnig að einfalda kosn- ingakerfið. Ekki þyrfti að beita flóknum aðferðum við úthlutun þingsæta. Níu jöfnunarsæti á landsvísu tryggðu því sem næst jöfnuð milli flokka og framboða miðað við kjörfylgi á landsvísu. Nánast jafnauðvelt eða jafnerfitt – hvernig sem á málin er litið – fyrir stjórnmálahreyfingar sem bjóða fram að ná kjördæmissæti hvar sem er á landinu. Reykjavík hefur jafnan verið brennidepill í stjórnmálum á Ís- landi. Forystufólk á landsvísu hverju sinni er gjarnan oddvitar á framboðslistum í borginni – og að þessu sinni eru sex af ráðherrum ríkisstjórnarinnar oddvitar lista. Það eru Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir og Guðlaugur Þór Þórð- arson, ráðherrar Sjálfstæðisflokks, Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir frá VG og sitt í hvoru Reykjavíkurkjördæmi eru efst þau Lilja Alfreðsdóttir og Ás- mundur Einar Daðason, sem flutti sig úr Norðvesturkjördæmi til Reykjavíkur. Í oddvitasætum ann- arra flokka og stjórnmálahreyfinga er sömuleiðis fólk sem vegur þungt í umræðunni. Hagsmunir ráða Sé litið til síðustu kosninga haustið 2017 sést að lítill munur er á fylgi stjórnmálaflokka milli Reykjavíkurkjördæmanna. Fylgi Sjálfstæðisflokks var 22,6-22,8% og Samfylkingar 12,85-13,0. Mestur var munurinn hjá VG. Í norður- kjördæminu fékk flokkurinn 18,9% fylgi en 21,5% í suðrinu – þar sem Katrín Jakobsdóttir var og er í oddvitasæti. Meginlínur í samfélaginu og þró- Úrslit kosninga í október 2017 1.901 atkv. 5,3% B – Framsókn 8,9% 1 þingm. 3.013 atkv. 8,4% 1 þingm. C – Viðreisn 14,4% 2 þingm. 8.108 atkv. 22,6% 3 þingm. D – Sjálfstæðisflokkur 21,2% 2 þingm. 2.547 atkv. 7,1% 1 þingm. F – Flokkur fólksins 3,8% 1 þingm. J – Sósíalistaflokkur 6,7% 2.509 atkv. 7,0% M – Miðflokkur 2,0% 4.885 atkv. 13,6% 2 þingm. P – Píratar 15,8% 2 þingm. 4.575 atkv. 12,8% 1 þingm. S – Samfylking 16,8% 2 þingm. 7.727 atkv. 21,5% 3 þingm. V – Vinstri græn 10,3% 1 þingm. Ásmundur Einar Daðason B Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir C Jón Steindór Valdimarsson C Guðlaugur Þór Þórðarson D Jóhann Páll Jóhannsson S Helga Vala Helgadóttir S Katrín Jakobsdóttir V Halldóra Mogensen P Andrés Ingi Jónsson P Diljá Mist Einarsdóttir DFjöldi á kjörskrá: 45.368 sem er fækkun um 741 frá kosningunum í október 2017 Fjöldi þingsæta: 11 (þar af tvö jöfnunarþingsæti) Talning atkvæða verður í Laugardalshöll Reykjavíkur- kjördæmi norður Þingmenn og fylgi nú samkvæmt könnunum MMR frá 8. til 22. september Tómas A. Tómasson F Sex ráðherrar oddvitar fram Reykvíkingar eru um þriðj- ungur kjósenda á landinu. Í borginni koma meginlínur í þróun samfélagsins fram í pólitíkinni, þó sértækari mál eins og umferðar- teppur séu einnig rædd. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugsýn Úthverfin ráða gjarnan úrslitum í kosningum, það er sjónarmið hins breiða fjölda. Horft yfir austurborgina og fjölmenn hverfin þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.