Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Mikil tækifæri eru í fiskeldi á Íslandi en
grundvöllur þess eru tækninýjungar sem
tryggja að hægt verði að auka framleiðslu
án þess að fara með opið sjókvíaeldi inn á
þau svæði sem eru í gildandi burðarþols-
mati. Þetta segir Árni M. Mathiesen, einn
höfunda skýrslu um framtíð fiskeldis á Ís-
landi. „Áhersla er lögð á að við eigum
mikla möguleika, en til þess að nýta þá
möguleika svo vel sé verður að gera það
rétt,“ segir Árni og bætir við að útflutn-
ingstekjur af fiskeldi kunni að vera komn-
ar í um 200 milljarða króna á ári á næsta
áratug. Forsendur vaxtarins eru meðal
annars sagðar vera að stjórnvöld stuðli að
því að rekstrarumhverfi fiskeldisfyrir-
tækja með tilliti til leyfisveitingar, skatt-
lagningar og gjalda á greinina sé sam-
bærilegt og í samkeppnislöndunum. Auk
þess þarf umhverfisþátturinn að vera í
lagi þannig að hægt sé að tryggja hæsta
verð fyrir afurðirnar.
Skýrslan var unnin af Sjávarklasa Ís-
lands fyrir Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra, og var
birt í gærkvöldi. „Það er fyllilega tíma-
bært að menn fari að takast á við það að
reyna að spá aðeins í það hvernig þessari
atvinnugrein muni reiða af og hvernig við
getum styrkt undirstöður undir það að
stunda þetta á sem ábyrgastan hátt,“ seg-
ir hann.
Kynntar eru þrjár ólíkar sviðsmyndir í
skýrslunni fyrir framtíðarþróun fiskeldis
hér á landi til ársins 2030 og eru forsendur
hraðvaxtarskeiðs fiskeldisins taldar vera
ný tækni með lokaðar sjókvíar og/eða
ófrjóan fisk og að fyrirtæki hafi náð tök-
um á úthafseldi. Er talið að lokaðar kvíar
opni á ný nýtingarsvæði við Norður- og
Vesturland en úthafseldi á Suðurlandi.
Ekki er gert ráð fyrir að opnað verði fyrir
sjókvíaeldi á þeim svæðum sem eru utan
gildandi burðarþolsmats, útskýrir Árni.
„Við leggjum mikla áherslu á umhverf-
ismálin,“ segir hann. Í skýrslunni er með-
al annars fjallað um að ógnanir við ræktun
á ófrjóum fiski í opnum kvíum felist í hætt-
unni á lús og öðrum sjúkdómum sem gætu
borist í villta stofna. Þá er helsta ógnun við
vöxt í lokuðu sjókvía- eða úthafseldi ís-
lensk veðrátta.
Verði ekki tækniframfarir í fiskeldinu
er líklegt að staða fiskeldis verði að miklu
leyti óbreytt en vöxtur greinarinnar verð-
ur stöðugur og hægfara að mati höfunda.
Heildarframleiðsla kann að vera komin
yfir 100 þúsund tonn árið 2030 en óvíst er
með frekari vöxt.
Hratt af stað
Þriðja sviðsmyndin horfir fram á að
samdráttur verði í greininni en það er
byggt á þeim forsendum að fiskeldið kunni
að lenda í ógöngum svo sem vegna vetr-
arhörku og annarra áfalla. Í þessu sam-
hengi er helsta ógnin fyrir greinina talin
vera „há opinber gjöld og annar kostnaður
í greininni [sem myndi] gera eldis-
fyrirtækin vanbúin að takast á við erf-
iðleika“. Auk þess hafi ekki tekist að þróa
tækni sem dregur úr framleiðslukostnaði
landeldis og hægir því á þeim vexti.
„Við höfum nýverið fengið skýrslu um
framtíðarmöguleika sjávarútvegsins í
heild þar sem – að gefnum ákveðnum for-
sendum – framleiðsluverðmæti í sjávar-
útvegi geti vaxið úr 300 milljörðum í 600
milljarða á tíu árum og þar af á stór hluti
að koma úr fiskeldi,“ segir Kristján Þór.
„Eins og drepið er á í þessari skýrslu
eru margir þættir sem við þurfum að
vanda okkur við. Við verðum að viður-
kenna að þetta hefur byggst dálítið hratt
upp, farið hratt af stað, og við erum að
rekast á ýmislegt sem örugglega má gera
betur en við höfum verið að gera. Við verð-
um að draga lærdóm af því. Við höfum sett
upp ákveðin tæki eins og burðarþolsmatið
og áhættumat erfðablöndunar og svo
framvegis til þess að reisa skorður við því
að við göngum nærri villtum laxastofn-
um.“
Tímabært að spá í framtíð fiskeldis
- Tækni sögð forsenda vaxtar innan fiskeldis eigi ekki að fara
út fyrir samþykkt eldissvæði - Umhverfið í lykilhlutverki
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Horfur Árni M. Mathiesen kynnir Kristjáni Þór Júlíussyni skýrsluna.
„Til að fiskeldi geti vaxið hérlendis þarf að fyrirbyggja sem
mest þann umhverfisskaða sem eldi getur valdið. Með efl-
ingu rannsókna á umhverfisþáttum í tengslum við sjó- og
landeldi má betur kortleggja þau tækifæri sem felast í
sjálfbæru eldi.
Sá áframhaldandi vöxtur sem orðið getur í fiskeldi hér-
lendis má ekki verða á kostnað umhverfisins. Umhverfið
sjálft er helsta markaðstækifærið. Tryggja þarf sem best
að allar helstu upplýsingar um umhverfisþætti í tengslum
við fiskeldi liggi ávallt fyrir og séu aðgengilegar, hvort sem
um er að ræða land- eða sjóeldi,“ segir í samantekt skýrsl-
unnar um framtíð fiskeldis á Íslandi.
Þá segja skýrsluhöfundar að villti laxstofninn í Noregi
hafi hlotið skaða af mikilli nálægð sjókvíaeldis og lax-
veiðiáa. „Mikið lán var hversu fljótt var gripið til umtals-
verðra lokana svæða til fiskeldis hérlendis, sem voru í ná-
grenni laxveiðisvæða, og er ljóst að með áframhaldandi
festu í þessum efnum getur villti laxastofninn og sjókvía-
eldi á afmörkuðum stöðum á landinu vel farið saman. Hér
má þó ekki slaka á í áframhaldandi rannsóknum á lífríki og
eftirliti um leið og fylgjast þarf vel með þeim rannsóknum
sem fram fara annars staðar.“
Dreifðara eignarhald
Í skýrslunni er vakin athygli á því að fram hafi farið um-
ræða í nágrannalöndum um það hvort þurfi að tryggja
dreifðara eignarhald á eldisfyrirtækjum sem nýta
sameiginlega auðlind. Hins vegar sé það svo að hinn mikli
vöxtur í greininni kom til vegna þátttöku erlendra fyrir-
tækja, enda hefur áhugi innlendra aðila verið takmarkaður.
Telja höfundar eðlilegt að meta hvort ástæða sé til þess að
dreifa eignarhaldi en þeir telja að skráning eldisfyrirtækj-
anna á hlutabréfamarkað „geti best stuðlað að heilbrigðri
dreifingu eignarhalds og gegnsæi“.
Gert er ráð fyrir að landeldi fari vaxandi en í því sam-
hengi er talið kunna vera „skynsamlegt að markaðssetja
fisk úr landeldi með sérstökum hætti með það að mark-
miði að móta markaðssyllu þar sem fæst hærra verð.
Markaðir hafa verið reiðubúnir að greiða yfirverð fyrir vott-
aðan eldisfisk úr landeldi en áhöld eru um hvort það nái að
vega upp muninn á framleiðslukostnaði.“
Megi ekki slaka á
í rannsóknum
á umhverfisáhrifum
SKÝRSLA UM FRAMTÍÐ FISKELDIS Á ÍSLANDI
Afurðaverð á markaði
21. sept. 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 499,99
Þorskur, slægður 428,86
Ýsa, óslægð 382,06
Ýsa, slægð 371,00
Ufsi, óslægður 111,08
Ufsi, slægður 206,89
Gullkarfi 312,67
Blálanga, slægð 185,59
Langa, óslægð 66,00
Langa, slægð 200,38
Keila, óslægð 57,08
Keila, slægð 92,81
Steinbítur, slægður 397,90
Skötuselur, slægður 558,15
Grálúða, slægð 422,56
Skarkoli, óslægður 261,00
Skarkoli, slægður 428,71
Þykkvalúra, slægð 424,08
Langlúra, slægð 199,25
Sandkoli, óslægður 126,00
Skrápflúra, óslægð 5,14
Gellur 1.459,89
Gullkarfi, slægður 307,00
Hlýri, óslægður 288,00
Hlýri, slægður 372,52
Lúða, slægð 490,42
Lýsa, óslægð 43,79
Lýsa, slægð 12,00
Náskata, slægð 13,23
Skata, slægð 20,00
Stórkjafta, slægð 155,00
Tindaskata, óslægð 3,48
Undirmálsýsa, óslægð 226,83
Undirmálsþorskur, óslægður 188,84
Undirmálsþorskur, slægður 171,44
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Heiðar
Austmann
mun ha
lda uppi
fjörinu!
dagur
í spor
thúsi
nu
í dag,
fimmt
udag
milli
16.00
- 19.0
0
K 0
Opið h
ús
Kynnin
gar
Rækti
n opin
Happd
rætti