Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Mikil tækifæri eru í fiskeldi á Íslandi en grundvöllur þess eru tækninýjungar sem tryggja að hægt verði að auka framleiðslu án þess að fara með opið sjókvíaeldi inn á þau svæði sem eru í gildandi burðarþols- mati. Þetta segir Árni M. Mathiesen, einn höfunda skýrslu um framtíð fiskeldis á Ís- landi. „Áhersla er lögð á að við eigum mikla möguleika, en til þess að nýta þá möguleika svo vel sé verður að gera það rétt,“ segir Árni og bætir við að útflutn- ingstekjur af fiskeldi kunni að vera komn- ar í um 200 milljarða króna á ári á næsta áratug. Forsendur vaxtarins eru meðal annars sagðar vera að stjórnvöld stuðli að því að rekstrarumhverfi fiskeldisfyrir- tækja með tilliti til leyfisveitingar, skatt- lagningar og gjalda á greinina sé sam- bærilegt og í samkeppnislöndunum. Auk þess þarf umhverfisþátturinn að vera í lagi þannig að hægt sé að tryggja hæsta verð fyrir afurðirnar. Skýrslan var unnin af Sjávarklasa Ís- lands fyrir Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, og var birt í gærkvöldi. „Það er fyllilega tíma- bært að menn fari að takast á við það að reyna að spá aðeins í það hvernig þessari atvinnugrein muni reiða af og hvernig við getum styrkt undirstöður undir það að stunda þetta á sem ábyrgastan hátt,“ seg- ir hann. Kynntar eru þrjár ólíkar sviðsmyndir í skýrslunni fyrir framtíðarþróun fiskeldis hér á landi til ársins 2030 og eru forsendur hraðvaxtarskeiðs fiskeldisins taldar vera ný tækni með lokaðar sjókvíar og/eða ófrjóan fisk og að fyrirtæki hafi náð tök- um á úthafseldi. Er talið að lokaðar kvíar opni á ný nýtingarsvæði við Norður- og Vesturland en úthafseldi á Suðurlandi. Ekki er gert ráð fyrir að opnað verði fyrir sjókvíaeldi á þeim svæðum sem eru utan gildandi burðarþolsmats, útskýrir Árni. „Við leggjum mikla áherslu á umhverf- ismálin,“ segir hann. Í skýrslunni er með- al annars fjallað um að ógnanir við ræktun á ófrjóum fiski í opnum kvíum felist í hætt- unni á lús og öðrum sjúkdómum sem gætu borist í villta stofna. Þá er helsta ógnun við vöxt í lokuðu sjókvía- eða úthafseldi ís- lensk veðrátta. Verði ekki tækniframfarir í fiskeldinu er líklegt að staða fiskeldis verði að miklu leyti óbreytt en vöxtur greinarinnar verð- ur stöðugur og hægfara að mati höfunda. Heildarframleiðsla kann að vera komin yfir 100 þúsund tonn árið 2030 en óvíst er með frekari vöxt. Hratt af stað Þriðja sviðsmyndin horfir fram á að samdráttur verði í greininni en það er byggt á þeim forsendum að fiskeldið kunni að lenda í ógöngum svo sem vegna vetr- arhörku og annarra áfalla. Í þessu sam- hengi er helsta ógnin fyrir greinina talin vera „há opinber gjöld og annar kostnaður í greininni [sem myndi] gera eldis- fyrirtækin vanbúin að takast á við erf- iðleika“. Auk þess hafi ekki tekist að þróa tækni sem dregur úr framleiðslukostnaði landeldis og hægir því á þeim vexti. „Við höfum nýverið fengið skýrslu um framtíðarmöguleika sjávarútvegsins í heild þar sem – að gefnum ákveðnum for- sendum – framleiðsluverðmæti í sjávar- útvegi geti vaxið úr 300 milljörðum í 600 milljarða á tíu árum og þar af á stór hluti að koma úr fiskeldi,“ segir Kristján Þór. „Eins og drepið er á í þessari skýrslu eru margir þættir sem við þurfum að vanda okkur við. Við verðum að viður- kenna að þetta hefur byggst dálítið hratt upp, farið hratt af stað, og við erum að rekast á ýmislegt sem örugglega má gera betur en við höfum verið að gera. Við verð- um að draga lærdóm af því. Við höfum sett upp ákveðin tæki eins og burðarþolsmatið og áhættumat erfðablöndunar og svo framvegis til þess að reisa skorður við því að við göngum nærri villtum laxastofn- um.“ Tímabært að spá í framtíð fiskeldis - Tækni sögð forsenda vaxtar innan fiskeldis eigi ekki að fara út fyrir samþykkt eldissvæði - Umhverfið í lykilhlutverki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Horfur Árni M. Mathiesen kynnir Kristjáni Þór Júlíussyni skýrsluna. „Til að fiskeldi geti vaxið hérlendis þarf að fyrirbyggja sem mest þann umhverfisskaða sem eldi getur valdið. Með efl- ingu rannsókna á umhverfisþáttum í tengslum við sjó- og landeldi má betur kortleggja þau tækifæri sem felast í sjálfbæru eldi. Sá áframhaldandi vöxtur sem orðið getur í fiskeldi hér- lendis má ekki verða á kostnað umhverfisins. Umhverfið sjálft er helsta markaðstækifærið. Tryggja þarf sem best að allar helstu upplýsingar um umhverfisþætti í tengslum við fiskeldi liggi ávallt fyrir og séu aðgengilegar, hvort sem um er að ræða land- eða sjóeldi,“ segir í samantekt skýrsl- unnar um framtíð fiskeldis á Íslandi. Þá segja skýrsluhöfundar að villti laxstofninn í Noregi hafi hlotið skaða af mikilli nálægð sjókvíaeldis og lax- veiðiáa. „Mikið lán var hversu fljótt var gripið til umtals- verðra lokana svæða til fiskeldis hérlendis, sem voru í ná- grenni laxveiðisvæða, og er ljóst að með áframhaldandi festu í þessum efnum getur villti laxastofninn og sjókvía- eldi á afmörkuðum stöðum á landinu vel farið saman. Hér má þó ekki slaka á í áframhaldandi rannsóknum á lífríki og eftirliti um leið og fylgjast þarf vel með þeim rannsóknum sem fram fara annars staðar.“ Dreifðara eignarhald Í skýrslunni er vakin athygli á því að fram hafi farið um- ræða í nágrannalöndum um það hvort þurfi að tryggja dreifðara eignarhald á eldisfyrirtækjum sem nýta sameiginlega auðlind. Hins vegar sé það svo að hinn mikli vöxtur í greininni kom til vegna þátttöku erlendra fyrir- tækja, enda hefur áhugi innlendra aðila verið takmarkaður. Telja höfundar eðlilegt að meta hvort ástæða sé til þess að dreifa eignarhaldi en þeir telja að skráning eldisfyrirtækj- anna á hlutabréfamarkað „geti best stuðlað að heilbrigðri dreifingu eignarhalds og gegnsæi“. Gert er ráð fyrir að landeldi fari vaxandi en í því sam- hengi er talið kunna vera „skynsamlegt að markaðssetja fisk úr landeldi með sérstökum hætti með það að mark- miði að móta markaðssyllu þar sem fæst hærra verð. Markaðir hafa verið reiðubúnir að greiða yfirverð fyrir vott- aðan eldisfisk úr landeldi en áhöld eru um hvort það nái að vega upp muninn á framleiðslukostnaði.“ Megi ekki slaka á í rannsóknum á umhverfisáhrifum SKÝRSLA UM FRAMTÍÐ FISKELDIS Á ÍSLANDI Afurðaverð á markaði 21. sept. 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 499,99 Þorskur, slægður 428,86 Ýsa, óslægð 382,06 Ýsa, slægð 371,00 Ufsi, óslægður 111,08 Ufsi, slægður 206,89 Gullkarfi 312,67 Blálanga, slægð 185,59 Langa, óslægð 66,00 Langa, slægð 200,38 Keila, óslægð 57,08 Keila, slægð 92,81 Steinbítur, slægður 397,90 Skötuselur, slægður 558,15 Grálúða, slægð 422,56 Skarkoli, óslægður 261,00 Skarkoli, slægður 428,71 Þykkvalúra, slægð 424,08 Langlúra, slægð 199,25 Sandkoli, óslægður 126,00 Skrápflúra, óslægð 5,14 Gellur 1.459,89 Gullkarfi, slægður 307,00 Hlýri, óslægður 288,00 Hlýri, slægður 372,52 Lúða, slægð 490,42 Lýsa, óslægð 43,79 Lýsa, slægð 12,00 Náskata, slægð 13,23 Skata, slægð 20,00 Stórkjafta, slægð 155,00 Tindaskata, óslægð 3,48 Undirmálsýsa, óslægð 226,83 Undirmálsþorskur, óslægður 188,84 Undirmálsþorskur, slægður 171,44 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Heiðar Austmann mun ha lda uppi fjörinu! dagur í spor thúsi nu í dag, fimmt udag milli 16.00 - 19.0 0 K 0 Opið h ús Kynnin gar Rækti n opin Happd rætti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.