Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 38

Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 38
38 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 arfsmannafatnaður rir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði og öðru líni fyrir hótel Hafið samband við okkar frábæra starfsfólk og fáið nánari upplýsingar Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Njótum haustsins Jarðneskar leifar Walters Smeads undirliðþjálfa voru lagðar til hvílu sl. mánudag, rúmum 70 árum eftir að hann féll í stríðsátökum í Kóreu. Smead var skráður týndur eftir átök hinn 6. desember 1950. Er hann einn þeirra yfir 1.000 banda- rískra hermanna sem á tveimur vikum féllu í orrustunni um Chosin. Walter Smead var 24 ára gamall. Í forsetatíð Donalds Trumps var samið við stjórnvöld í Norður- Kóreu um að afhenda jarðneskar leifar 55 bandarískra hermanna sem féllu í Kóreustríðinu og er Smead einn þeirra. Yngri systkini hans tóku á móti kistunni er hún kom heim og segjast þau einungis muna lauslega eftir bróður sínum. BANDARÍKIN Jarðaður rúmum 70 árum eftir andlát Danir búa sig nú undir óveður sem spáð er að skelli á vestur- og norðvesturströnd landsins í dag. Unnið var að því í gær að fjarlægja baðskýli sem jafnan setja svip sinn á ströndina við Løkken norðarlega á Jótlandi sem er vinsæll orlofs- staður en þessi skýli hafa áður skemmst í öldu- gangi í óveðrum sem skollið hafa á ströndinni. Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður á föstu- dag. AFP Danir búa sig undir óveður Tvær nýjar kvikmyndir voru frum- sýndar í gærkvöldi í sögufrægu leik- húsi í Mogadishu, höfuðborg Sómal- íu. Var þetta í fyrsta skipti í þrjá áratugi sem þarlendar kvikmyndir eru frumsýndar. Kvikmyndirnar eru eftir sómalska leikstjórann Ibrahim CM. Mikil ör- yggisgæsla var á staðnum en vonir eru bundnar við að þess atburður marki endurreisn menningarlífs þessa stríðshrjáða lands. Myndirnar voru sýndar í þjóðleik- húsi Sómalíu, sem kínverskir verk- fræðingar byggðu fyrir kínverskt gjafafé árið 1967. Þar hefur aldrei verið sýnd sómölsk kvikmynd fyrr en nú en byggingin hefur verið vett- vangur sjálfsmorðsárása og átaka stríðandi fylkinga í landinu. „Þetta verður sögulegt kvöld og undirstrikar að nýjar vonir hafa kviknað eftir margra ára erfiðleika,“ sagði Abdikadir Abdi Yusuf leik- hússtjóri við AFP. Fyrsta frumsýn- ingin í 30 ár - Sögulegt kvöld í höfuðborg Sómalíu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, brá fyrir sig frönsku í gær þegar hann talaði til Frakka og ann- arra nágrannaþjóða vegna nýs ör- yggissáttmála Bretlands við Banda- ríkin og Ástralíu. „Donnez-moi un break,“ sagði hann við blaðamenn og hvatti Frakka til að róa sig eftir að þeir kölluðu heim sendiherra sína í Washington og Can- berra. Frakkar eru ósáttir yfir því að fá ekki að taka þátt í viðræðum um sátt- málann en hann leiddi til þess að Ástralía hætti við margra milljarða dollara samning við Frakka, sem ætl- uðu að útbúa fyrir þá nýja dísilknúna kafbáta. Í staðinn ætla Ástralar að kaupa bandaríska kafbáta sem ganga fyrir kjarnorku. Þrír samhljóma bandamenn Utanríkisráðherra Frakklands sagði að Bretland væri þriðja hjólið í samningnum og sakaði þá um stöð- uga tækifærismennsku. „Það er kominn tími fyrir nokkra af okkar kærustu vinum um allan heim að „prenez un grip“,“ sagði Boris Johnson í dag. „„Donnez-moi un break“ því að þetta er í grundvallaratriðum stórt skref fram á við fyrir alþjóðlegt öryggi,“ sagði hann við Sky News í heimsókn til Washington. „Það voru þrír mjög samhljóða bandamenn sem stóðu saman og bjuggu til nýtt samstarf um miðlun á tækni,“ bætti hann við. Ekkert leiðinlegt í samningnum „Mér finnst mjög erfitt að sjá í þessu samkomulagi eitthvað sem ekki er gaman að.“ Frakkland aflýsti á mánudaginn fundi sem átti að fara fram í þessari viku milli varnarmálaráðherra lands- ins og bresks starfsbróður hans. Hvetur Frakka til að róa sig - Frakkar reiðir út í Breta - Boris slettir á franskensku: „Donnez-moi un break“ AFP Þumlar Boris Johnson var hress og hvatti Frakka til að róa sig. Breiður hraunveggur fikrar sig nið- ur fjallshlíðarnar á eyjunni La Palma, einni af Kanaríeyjunum, en eldgos hófst þar í byrjun vikunnar. Um miðjan dag í gær hafði hraun- ið eyðilagt að minnsta kosti 320 byggingar. Alls þekur hraunið nú um 154 hektara svæði en í gær hægði heldur á hraða hraunstraumsins. Yfir sex þúsund manns hafa verið fluttir frá La Palma, þar á meðal voru 400 ferðamenn fluttir til ná- grannaeyjarinnar Tenerife. Engin slys hafa orðið á fólki í nátt- úruhamförunum en mikið tjón hefur orðið á landi og eignum fólks og ljóst þykir að fleiri hús fari undir hraun. Angel Victor Torres, héraðsstjóri á La Palma, áætlaði í samtali við AFP- fréttastofuna, að tjónið næmi um 400 milljónum evra, jafnvirði um 61 milljarðs íslenskra króna. Reynt hefur verið að bægja hrauninu frá byggð með því að nota stórvirkar vinnuvélar til að grafa skurði í átt að nálægu gili. Mikið eignatjón vegna eldgossins 1 km 10 km Hraun frá eldfjallinu Cumbre Vieja hefur valdið miklu tjóni 3,5 kílómetrar Hraun Hraun hefur farið yfir 320 byggingar Heimildir: Spænska landmælingarstofnunin, Copernicus EMS. Staðan 22. september LA PALMA Santa Cruz de La Palma Tazacorte Todoque Cumbre Vieja þjóðgarður ELDFJALL JRA Eyðilagðar byggingar Hugsanlegt tjón

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.