Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 44

Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Kosningarnar á laugardag skera úr um hvort við fáum ríkisstjórn sem þorir að fara í nauðsynlegar kerfisbreytingar. Breytingar sem tryggja eignarhald þjóðarinnar á sjávar- auðlindinni með tíma- bundnum nýtingar- samningum og fyrirsjáanleika fyrir útgerðina. Markmið breytinganna er ekki síst sanngjarnari skipting á tekjum sjávarauðlindarinnar milli stórút- gerðar og þjóðarinnar. Því náum við best fram með því að treysta markaðnum til að ákveða verðmæti auðlindarinnar. Ekki stjórnmála- mönnum. Ekki stórútgerðinni. Það er sanngjarnt og sanngirni er ekki skammaryrði í sjávarútvegi frekar en annars staðar þar sem almanna- hagsmunir koma við sögu. Mígrenikast stjórnvalda Undir lok síðasta árs samþykkti Alþingi beiðni mína um að sjávar- útvegsráðherra léti vinna skýrslu sem sýndi eignarhald 20 stærstu út- gerðarfélaga landsins í íslensku at- vinnulífi. Þar sem teknar yrðu sam- an upplýsingar um hvar fjárfestingar þeirra lægju í atvinnu- rekstri utan sjávarútvegs. Mark- miðið var einfaldlega að veita al- menningi mikilvægar upplýsingar um hvernig hagnaði af sameigin- legri auðlind þjóðarinnar hefur ver- ið varið og sýna ítök stórútgerðarinnar í ís- lensku samfélagi í krafti nýtingar þeirra á fiskveiðiauðlindinni. Nýtingar sem ríkis- stjórn Sjálfstæðis- flokks, VG og Fram- sóknar ver með kjafti og klóm að verði ótíma- bundin þvert á vilja yfirgnæfandi meiri- hluta almennings. Hvað þá að markaðurinn fái að ráða verðinu fyrir aðgang útgerðanna að auðlindinni okkar. Vinnsla skýrslunnar var augljós- lega mikill höfuðverkur. Ekki vegna þess að upplýsingarnar lægju ekki fyrir. Staðreyndin er sú að þetta eru opinberar upplýsingar þó flækjustigið sé slíkt að það er ekki einfalt fyrir hvern sem er að draga þær saman. Mígrenikastið var til komið vegna þess að það var aug- ljóslega ekki heppilegt að upplýsa fólk um þessa stöðu. Skýrslan upplýsir að á árunum 2017, 2018 og 2019 jukust fjárfest- ingar stórútgerðarinnar í íslensku atvinnulífi um tæpa 60 milljarða á bókfærðu verði, sem er alla jafna töluvert lægra en raunverulegt markaðsverð. Engu að síður er bók- fært verð fjárfestinga stórútgerð- arinnar í óskyldum atvinnurekstri fjórfalt hærra en veiðigjöldin sem Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og VG telja þessi sömu útgerðarfyrir- tæki ráða við að greiða íslenskri þjóð fyrir aflaheimildir, fyrir afnot af sjávarauðlindinni. Svo því sé til haga haldið. Þægir eru óupplýstir? Skýrslan um eignarhald útgerðar í óskyldum atvinnurekstri segir hins vegar ekkert um eignarhald útgerðar í óskyldum atvinnurekstri. Þar er ekki kortlagt hvernig ofur- gróði af stórútgerðinni hefur verið nýttur í að fjárfesta í flutningafyr- irtækjum og fjölmiðlum, fasteignum og tryggingafélögum, í heilbrigð- isgeiranum og matvælamarkaði, í ferðaþjónustu og veitingastöðum. Svo eitthvað sé talið til. Af hverju þessi feluleikur? Getur verið að varðhundar sérhagsmun- anna í Sjálfstæðisflokknum átti sig á því að nú sé nóg komið? Að krafa almennings um sanngirni í sjávar- útvegi sé orðin svo skýr, svo sterk, að sannleikur um raunverulega stöðu mála myndi endanlega sundra vörninni? Sjálf er ég sannfærð um að svo sé. Öskrin úr vörninni um að breyt- ingar í átt að sanngirni í sjávar- útvegi myndu rústa atvinnugrein- inni eru bara það. Öskur. Fyrirsláttur. Gömul taktík sem hef- ur runnið sitt skeið á enda. Það er hægt að ná fram bæði hagkvæmni og sanngirni. Það þarf enga koll- steypu. Það sjá allir. Það vilja flest- ir. Og það mun á endanum skapa þá sátt sem okkur er öllum mikil- væg. Þeir sem verja núverandi fyrir- komulag við greiðslu fyrir nýtingu á sjávarauðlindinni gera það gegn allri skynsemi, gegn allri sanngirni – og gegn vilja yfirgnæfandi meiri- hluta þjóðarinnar. Þessu ætlum við í Viðreisn að breyta. Eftir Hönnu Katrínu Friðriksson »Markmið breyting- anna er ekki síst sanngjarnari skipting á tekjum sjávarauðlindar- innar milli stórútgerðar og þjóðarinnar. Hanna Katrín Friðriksson Höfundur er þingmaður Viðreisnar og oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hvernig varð sanngirni í sjávarútvegi skammaryrði? Á kjördag blasa skýrir valkostir við kjósendum: kyrr- stöðustjórn eða stjórn með almannahagsmuni í fyrirrúmi. Fjármála- stjórn núverandi stjórnar skilaði ósjálf- bærum ríkissjóð jafn- vel áður en heimsfar- aldurinn skall á. Þess vegna er broslegt að hlusta nú á ríkis- stjórnarflokkana þrjá tala um að stöðugleiki sé nauðsynlegur. Efnahagslegur stöð- ugleiki er vitaskuld mikilvægur en sá stöð- ugleiki sem þessi rík- isstjórn stendur fyrir fer einfaldlega gegn hagsmunum almenn- ings í landinu. Stöðug- leiki má ekki vera skjól fyrir sér- hagsmuni. Og það er sá stöðugleiki sem þessi ríkisstjórn færir okkur. Háir skattar á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn leggur nú allt kapp á að sannfæra kjósendur um að með honum fái fólk og fyrir- tæki skattalækkanir. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur frá 1995 stýrt fjár- málaráðuneytinu í heil 22 af 26 árum. Þegar skatttekjur hins opin- bera sem hlutfall af landsfram- leiðslu eru bornar saman við önnur OECD-ríki blasir skýr niðurstaða við. Árið 2019 var meðaltal OECD- ríkjanna 25% en 33% á Íslandi. Að- eins Svíar voru með hærra hlutfall. Niðurstaðan er að skattar á Íslandi eru háir. Það er því engin innistæða fyrir orðum formanns Sjálfstæðis- flokksins að flokkur hans færi fólki skattalækkanir. Viðreisn mun ekki hækka skatta á þessu kjörtímabili. Atkvæði greitt Viðreisn er þess vegna atkvæði sem er til að forða almenningi og fyrirtækjum frá frekari skattahækkunum. Markaðsgjald fyrir afnot af fiskimiðunum Arfleifð Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsmálum er að stór- útgerðin greiðir allt of lágt verð fyrir afnot af fiskimiðunum. Árum og áratugum saman hefur almenn- ingur kallað eftir breytingum á þessu. Ríkissjóður og almenningur verða af milljörðum á hverju ein- asta ári vegna þessa kerfis sem rík- isstjórnin stendur vörð um. Stöð- ugleikaloforð ríkisstjórnarflokkanna í þessu máli felst í því að ganga samhentir gegn hagsmunum almennings en með hagsmunum hinna fáu. Kvótakerfið sem slíkt hefur sannað gildi sitt og gagnsemi til að stýra veiðum og tryggja sjálfbæra auðlind. Út af stendur að innheimta eðlilega gjald- töku fyrir afnot af fiskimiðunum á markaðsvirði. Viðreisn vill að hluti kvótans fari á frjálsan markað á ári hverju og markaðurinn svari því hvert verðmætið er. Með þessu munu ríkissjóður og almenningur fá umtalsvert hærri tekjur sem nýta má til samfélagslegra verkefna. Þessi leið mun jafnframt skapa greininni stöðugleika og fyrirsjáan- leika, en gerðir verða langtíma- samningar við útgerðina um nýt- ingu á auðlindinni. Sjálfstæðisflokkurinn sem í orði kveðnu kveðst markaðssinnaður berst hvergi harðar fyrir óbreyttu ástandi en hér. Daglegt líf fólksins í landinu Í kosningabaráttunni hefur Framsókn- arflokkurinn reynt að sannfæra fólk um að hann sé rétt að byrja. Flokkurinn ætli að bæta hag barna. Dag eftir dag greina fjöl- miðlar frá átakanlegum sögum barna í bið eftir grundvallarþjónustu. Börn eru á biðlista alls staðar í kerfinu. For- eldrar þessara barna þekkja þennan veru- leika. Framsókn- arflokkurinn hefur frá 1995 stýrt félagsmála- ráðuneytinu í 20 af 26 árum. Það er því hár- rétt sem Framsókn- arflokkurinn segir: hann virðist nefnilega varla byrj- aður – þrátt fyrir að hafa haft til þess áratugi. Efnahagsmál snúast um daglegt líf fólks Efnahagslegar afleiðingar heims- faraldurs eru yfir þúsund milljarða ríkisskuldir. Fólk er aftur farið að sjá mynd sem við þekkjum. Vextir á húsnæðislánum fara hækkandi. Þrátt fyrir að vextir séu lægri en áð- ur eru vextir hér engu að síður margfalt hærri en t.d. á Norður- löndunum. Almenningur veit að lág- ir vextir hérlendis eru aldrei annað en tímabundið ástand. Stöðugleiki Sjálfstæðisflokksins er ekki meiri en það. Fyrir venjulegt fólk, fjölskyldur og einstaklinga, hefur mesta þýð- ingu í daglegu lífi að hafa atvinnu og að kostnaðurinn við að reka heimili sé viðráðanlegur og fyrirsjáanlegur. Fyrir fyrirtækin er grundvall- aratriði að geta gert áætlanir og að vissa sé um helstu útgjaldaliði. Svo er ekki í íslensku umhverfi. Þess vegna er íslenskt samfélag ekki samkeppnishæft til lengri tíma litið. Það er stjórnvalda að skapa skilyrði til að daglegt líf fólks og fyrirtækja í landinu sé gott, stöðugt og sam- keppnishæft. Til að þess þarf stöð- ugan gjaldmiðil. Viðreisn vill tengja krónuna við evru, líkt og Danir hafa gert. Það mun færa stöðugleika sem hér vantar. Dæmigerð fjölskylda með 31 milljónar króna húsnæðislán gæti með þessari leið haft 72.000 krónum meira á milli handanna í mánuði hverjum. Gefðu framtíðinni tækifæri Valkostirnir á kjördag eru skýrir. Spurningin er hvernig viljum við sjá Ísland vaxa og hvaða tækifæri við viljum færa æsku landsins. Viðreisn vill fjárfesta markvisst í menntun og nýsköpun og gefa heilbrigðisþjón- ustunni tækifæri. Við viljum forða almenningi og fyrirtækjum frá frek- ari skattahækkunum og skapa þeim skilyrði til að sækja fram. Verkefnið er einfaldlega að skapa samfélag sem býður fólkinu í landinu lífskjör og lífsgæði sem eru góð og sam- keppnishæf og fyrirtækjum um- hverfi þar sem þau geta staðist sam- keppni að utan. Þess vegna á að kjósa Viðreisn. Valkostirnir eru skýrir Eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugs- dóttur » Stöðugleiki má ekki vera skjól fyrir sér- hagsmuni. Og það er sá stöð- ugleiki sem þessi ríkisstjórn færir okkur. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. thorbjorg.s.gunnlaugsdottir@althingi.is Atvinna ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.