Morgunblaðið - 23.09.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 23.09.2021, Qupperneq 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 31.995 kr. / St. 40-47 Vnr.: E-83170452600 31.995 kr. / St. 41-46 Vnr.: E-83170451052 ECCO TRACK ÞÆGILEGIR GORETEX VETRARSKÓR MEÐ GRÓFUM SÓLA. 29.995 kr. / St. 41-47 Vnr.: E-83183454639 29.995 kr. / St. 40-49 Vnr.: E-83183451052 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE EES-samningurinn 1994 er mikilvægasti og áhrifamesti alþjóða- samningur sem Ísland á aðild að. Ná áhrifin til efnahagslífs og lög- gjafar. Einungis Gamli sáttmáli frá 1262 jafn- ast á við mikilvægi og áhrif EES-samningsins á Íslandi. Með Gamla sáttmála varð Ísland skattland norsku krún- unnar en skilyrði Íslendinga var að konungur léti þá ná friði og íslensk- um lögum. Með sáttmálanum varð Ísland hluti af hagsvæði norsku krúnunnar. Gamli sáttmáli var skil- málaskrá Íslendinga við konungs- hyllingar í fjórar aldir. Löggjafarvald var í höndum kon- ungs og Alþingis, einkum konungs. Noregskonungur beitti sér fyrir rétt- areiningu innan norska ríkisins, sem leiddi til lögtöku Jónsbókar 1282, lögbókar Íslendinga um aldir og er enn í dag mikilvæg í íslenskum rétti. Með tímanum fjaraði undan löggjaf- arvaldi Alþingis og urðu dómstörf að- alverkefnið. Íslendingar gengust undir einveldi og afsöluðu sér sjálf- stjórn í hendur konungi við erfðahyll- inguna á Kópavogs- fundinum 1662. Íslenskir stórbændur gerðu Gamla sáttmála til að leysa stjórnmála- vanda, efla landsfrið, sem þeir gátu ekki tryggt á annan hátt. EES-samningurinn er samstarfssamningur og er ætlað að efla við- skipta- og efnahags- tengsl samningsaðila með sömu reglum til að mynda einsleitt evrópskt efnahagssvæði (EES). Markmiði samstarfsins er náð með fjórfrelsi, sem eru frjálsir flutningar vöru, fólks, fjármagns og þjónustu- starfsemi, og kerfis sem tryggir sam- keppni og samvinnu í rannsóknum og þróun, umhverfismálum, menntun og félagsmálum. Með samningnum fær Ísland að- gang að innri markaði ESB án að- ildar að ESB. Á móti er Ísland skuld- bundið að taka í landsrétt ESB-gerðir í viðaukum samningsins og sem sameiginlega EES-nefndin ákveður að taka upp í hann og eru hluti fjórfrelsisins, en með stjórn- skipulegum fyrirvara um samþykki Alþingis. Ísland getur hafnað að af- létta hinum stjórnskipulega fyrir- vara og vísað máli aftur til sameigin- legu EES-nefndarinnar, sem ber skylda til að gera sitt ýtrasta til að ná samkomulagi sem aðilar geta sætt sig við. Lögbókin Járnsíða hentaði ekki aðstæðum Íslendinga og var mót- staða við lögtöku hennar á Alþingi 1271, sem leiddi til lögtöku Jóns- bókar 1282. Orkustefna ESB og aðild að orku- sambandi ESB hentar ekki að- stæðum Íslendinga og tekur ekki til- lit til landfræðilegrar legu Íslands sem eyju í Norður-Atlantshafi fjarri meginlandi Evrópu, orkuauðlinda- nýtingar landsins og mikilvægis hennar fyrir sjálfstæði og efnahags- lega hagsæld. Krafa Íslands á að vera að orku- stefna ESB gildi ekki um Ísland. Málsmeðferð hjá sameiginlegu nefndinni myndi skýra stöðu Íslands innan EES-samstarfsins og þýðingu hins stjórnskipulega fyrirvara til langrar framtíðar. Það myndi styrkja EES-samstarfið. Í dag er það í krísu og að óbreyttu mun grafa enn frekar undan samstarfinu vegna fullveld- isafsals í orkumálum. Raforka sem vara fellur ekki hvað Ísland varðar undir fjórfrelsi EES- samningsins því raforka flæðir ekki frjálst frá Íslandi og þjóðin hefur ekki tekið ákvörðun um að tengjast innri raforkumarkaði ESB með lagn- ingu sæstrengs. Fráleitt er að Ísland sé að lögtaka ESB-lög um raforku- viðskipti yfir landamæri og gangist undir eftirlitsstofnun með slíkum við- skiptum þegar Ísland stundar ekki slík viðskipti. Því hefur verið haldið fram til heimabrúks að Íslandi geti hafnað því að lagður verði sæstreng- ur til ESB. Það er líkt og að sam- þykkja frjálsa vöruflutninga en hafna byggingu vöruflutningahafna sem gera frjálsa flutninga vöru mögulega. Eini þröskuldur sæstrengs er hár kostnaður, ekki vilji þjóðarinnar eða Alþingis. Sæstrengur er skilyrði raf- orkuviðskipa yfir landamæri. Í 25 ára sögu EES-samningsins hefur hinn stjórnskipulegi fyrirvari aldrei verið nýttur og hefur ekki kom- ið til þess að máli hafi verið vísað aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Það dregur ekki úr gildi hins stjórnskipulega fyrirvara í EES- samstarfinu. Engin forsenda er því fyrir aðild Íslands að Orkusambandi ESB. Með aðild að Orkusambandi ESB er Ís- land að ganga inn í ESB á sviði orku- mála. Í EES-samningnum var samið um orkusamvinnu, ekki þátttöku í orkusambandi. ESB-ríkin sköpuðu grundvöll fyrir orkusambandi ESB með Lissabon-sáttmálanum 2007, fimmtán árum eftir undirritun EES- samningsins 1992. Ísland á því að hafna aðild að orku- sambandi ESB. Þannig eru hags- munir Íslands best tryggðir innan EES-samstarfsins. Líti Ísland svo á að beiting hins stjórnskipulega fyr- irvara feli í sér uppsögn á EES- samningnum eða að hann sé ekki raunverulegur valkostur innan EES- samstarfsins felst í því viðurkenning á að hið raunverulega löggjafarvald á þeim sviðum sem falla undir EES- samninginn sé í raun hjá sameigin- legu EES-nefndinni. Þetta viðhorf grefur undan löggjafarvaldi Alþingis og með tímanum mun fjara undan því. Það hefur gerst áður í sögunni. Fullveldi þjóðarinnar í orkumálum hefur reynst okkur Íslendingum heilladrjúgt og á því höfum við byggt velmegun okkar. Mikilvægt er að þjóðin hafni í alþingiskosningunum því fullveldisafsali sem á sér stað með innleiðingu orkustefnu ESB. Segið NEI við orkusambandi ESB með því að kjósa Flokk fólksins á kjördag. Kjósum fullveldi í orkumálum og höfnum orkusambandi ESB Eftir Eyjólf Ármannsson »Mikilvægt er að þjóðin hafni í alþingiskosningunum því fullveldisafsali sem á sér stað með innleiðingu orkustefnu ESB. Eyjólfur Ármannsson Höfundur skipar 1. sæti á F-lista Flokks fólksins í NV-kjördæmi og er formaður Orkunnar okkar, samtaka um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. eyjolfur@flokkurfolksins.is Þegar ég kom til Ís- lands heilluðu auglýs- ingarnar um borð í Ice- landair-þotunni. Ég flaug frá París, borg ástarinnar. Það „vöru- merki“ Parísar hefur náð að loða við þá fögru borg í áratugi. Borgin er einnig borg listar, menningar og heim- speki svo eitthvað sé nefnt. Hvers vegna? Lent var á Keflavík- urflugvelli árið 2000. Hekla spúði eldi í febr- úar það ár og snarvit- laust veður gekk yfir. Ég var komin á eyju langt, langt í norðri. Þegar voraði og ég kom aftur að sumri sá ég fegurðina betur. Ég skildi að landið hefur upp á margt að bjóða. Ég aðlagaðist eins og ég gat, öðlaðist ríkisborgara- rétt, vann víða hjá fyrirtækjum og stofnaði svo mitt eigið. Ég starfa í ferðaþjónustu. Við hrun fjármálakerfisins réðust bankar og kröfuhafar á almenning með lítinn skilning á vaxtalögum nr. 38/2001. Þeir nutu stuðnings þá- verandi seðla- bankastjóra, m.a. þess norska, og síðustu vinstristjórnar Íslands. Eftir hrun byggði ég upp ferðaþjónustufyrir- tæki. Ég tók meirapróf á stóra farþegarútu og fór enn og aftur langt, langt út fyrir þæginda- rammann. Ég „píndi“ eiginmanninn einnig í að taka sama próf. Ég vildi geta rætt um spin- dilkúlur og sjálfskipt- ingar við matarborð þar sem einhver skildi mig. Svo fór ég á nám- skeið og fyllti út ómælt af pappír til að fá ferða- þjónustuleyfi, hópferðaleyfi, atvinnu- réttindin og ökuleyfi. Eins gott að lagadeild Háskóla Íslands sé góð í að kenna manni að klappa pappírs- tígrum í íslensku umhverfi. En ráða allir við þetta umhverfi? Geta allir stundað viðskipti á Íslandi ef í allri þessari fegurð ganga lausir pappírs- tígrar sem bíta hvar sem stigið er niður fæti? Ég keypti rútu og sendi bæði tengdaföður minn og eiginmann í flugi með Icelandair til Frankfurt en áfangastaðurinn var bærinn Lands- hut í Þýskalandi; fæðingarbær Hein- richs Himmlers og þar sem fyrstu fangabúðirnar eru sem nasistar opn- uðu, Dachau. Þeim feðgum var eðli- lega afar illa við Dachau en þar voru hýstir fangar án dóms og laga og af skepnuskap. Illska hversdagsleikans tekur á sig fjölmargar myndir svo vitnað sé í þýska stjórnmálahugs- uðinn Hönnuh Arendt (1906-1975). Þetta er nú þekktur ferðamanna- staður en ekki að góðu. Ég keypti litla rútu þar (reyndar í gegnum netið) og óku þeir henni heim. Ferðin gekk vel þangað til pappírsfargan Samgöngustofu varð að hraðahindrun. Norræna hafði lagt að bryggju á Seyðisfirði, þeim fagra bæ sem mér þykir sérstaklega vænt um. Þetta var fyrsta hraðahindrunin. Síðan þá og þar til Covid-19 skall á hefur margt gengið á. Fyrir utan ís- lensku pappírstígrana í vistkerfi ís- lenskrar stjórnsýslu bættist við svindl og svikráð við íslenska skatt- borgara. Íslensk stjórnvöld höfðu bú- ið svo um hnútana að hingað gátu sótt rútubifreiðar úr allri Evrópu með bíl- stjórum sem voru borgaðar um 50 evrur á dag, stundum ekkert. Þegar ég fór að eiga við stjórnkerfið til að benda á svindlið var það einhver nefnd, e.k. samræmingarnefnd víðs- fjarri skattborgurum, sem átti að samræma reglur. Reglurnar áttu svo að koma í veg fyrir þetta. Þar gerðist lítið sem ekkert. Þegar dregið var saman hverjir ættu þarna hlut að máli kom ýmislegt í ljós. Fjármálaráðherra fór með skatta- mál, skattaeftirlit og tollinn. Með lög- reglu rúntuðu fulltrúar skattsins á sérmerktum Sprinterum sem dóms- málaráðherra kom fyrir hjá ríkislög- reglustjóra. Þessir fylgdust aðallega með þeim sem höfðu allt á hreinu. Það var auðvelt því slíkir bílar eru merktir. Á meðan var svindlarinn í níu sæta bíl eða á rútu þar við hliðina og hló dátt. En embættismaðurinn gat hakað við að eitthvað hefði gerst yfir daginn. Ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar var annar ráðherra sem átti að gæta að hagsmunum ferða- þjónustunnar. Engin sérstæði hafa verið byggð upp á ferðamannastöð- um fyrir lögreglu og eftirlit eins og gert hefur verið í Noregi. Undir það ráðuneyti heyrir Ferðamálastofa, sem nánast stundar „iðnaðarnjósnir“, þvílíkt er upplýsingaflæðið sem kall- að er eftir. Félags- og barnamálaráðherra er svo yfir Vinnumálastofnun, sem á að hafa eftirlit með að þeir sem hingað koma séu á launaskrá. Það er allt í lamasessi og lögreglan veit ekki að þangað ber að leita. Það á við þegar hópferðaaðilar innan úr EES en utan Íslands flandra um á vegum landsins með bílstjórum á sultarlaunum. Þannig er samkeppnisstaðan skert. Tollurinn hleypti þessu öllu inn í landið á vertíð í lögsögu Íslands. Svo er það samgönguráðherra. Undir hann heyrir Samgöngustofa. Sú stofa er engin venjuleg skrifstofa og sýnir enga miskunn þeim sem allt hafa á hreinu. Þarna og víðar er framleiddur ómældur kostnaður gagnvart þeim sem starfa í ferða- þjónustu. Þar er þeim refsað mest sem minnst hafa til saka unnið. Aug- unum er lokað og einnig eyrum þegar minnst er á svindlið og svínaríið sem flutt er hingað inn í boði stjórnvalda. Nú undir lok kjörtímabilsins birtist umhverfisráðherra sem ætlar að loka hálendinu fyrir ferðaþjónustubænd- um sem öðrum bændum og leggja skatt á alla vegi og vegferð fólks. Er á þetta bætandi? Ferðaþjónusta, svik og flækjustig Eftir Danith Chan » Þarna og víð- ar er fram- leiddur ómæld- ur kostnaður gagnvart þeim sem starfa í ferðaþjónustu. Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. LLM-meistarapróf í lögfræði frá HÍ og MBA í viðskiptafræði frá HR. Danith Chan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.