Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 50

Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 50
Limoncello Atlantico er sætur og ferskur drykkur sem best er að bera fram beint úr frystinum. Þetta er frábær „digestivo“ til að fá sér eftir mat en hentar einnig í kokteila á borð við Limoncello Spritz og Li- moncello gin og tónik. Drykkurinn er ekki kominn í vín- búðir enn en hægt er að panta flösk- ur beint frá framleiðanda. Limoncello-kaka sem bragðast eins og sælgæti Fyrir kökuna 200 g mjúkt smjör 200 g sykur 4 egg 150 g möndlumjöl 50 g hveiti 4 msk. Limoncello Atlantico börkur af 2 sítrónum 1 tsk. lyftiduft Fyrir sírópið Safi úr 2 sítrónum 50 g sykur 60 ml Limoncello Atlantico Fyrir toppinn Safi úr 1 sítrónu. 60 g sykur Aðferð 1. Hitaðu ofninn í 160°C með blæstri. 2. Þeyttu saman smjör og sykur í um 8-10 mínútur eða þangað til það er orðið silkimjúkt. 3. Þeyttu egg í annarri skál og bættu þeim svo rólega við smjör- blönduna. 4. Taktu nú fram sleifina og hrærðu hveitinu, möndlumjölinu, sítr- ónuberkinum, Limoncello-inu og lyftiduftinu varlega saman við. 5. Helltu deiginu yfir í bökunarmót sem búið er að smyrja og klæða að innan með smjörpappír (mjög mikilvægt að sleppa ekki smjör- pappírnum). 6. Bakaðu í um 40-45 mínútur og láttu kökuna svo kólna í bök- unarmótinu. Mikilvægt að láta kökuna kólna vel. 7. Settu öll sírópshráefnin í lítinn pott á lágum hita, og leyfðu sykrinum að bráðna rólega. 8. Notaðu svo gaffal eða grillpinna til að stinga göt í kökuna og helltu svo sírópinu varlega yfir. Kældu aftur í hálftíma. 9. Blandaðu saman sítrónusafa og sykri og smyrðu því yfir kökuna. 10. Láttu þetta allt kólna í bök- unarforminu sjálfu. Þessa á ekki að bera fram heita, gefðu henni nægan tíma til að kólna. 11. Takið úr forminu, skerið í sneið- ar og berið fram. Íslensk fram- leiðsla Hægt er að fá Limon- cello Atlantico á veitingahúsum og börum víða um land. Limoncello-kaka sem bragðast eins og sælgæti Limoncello er ítalskur sítrónulíkjör sem hefur verið framleiddur í rúmlega 100 ár. Nú loksins er hægt að fá íslenska framleiðslu á þessum magnaða drykk en það er Þoran Distillery sem hefur sett Limoncello Atlantico á markað. Ljúffengur biti Gott er að gefa sér góðan tíma í baksturinn en það skilar sér í enn meiri gæðum. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Kíktu til okkar í góðan mat og notalegt andrúmsloft Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is Nýttu ferðagjöfina hjá okkur „Svona ryksugur hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér og keypti ég mér alltaf pakka af þeim þegar ég fór í IKEA, nema nú er það ekki lengur hægt,“ segir María. „Vegna mikils söknuðar ákvað ég að gera svona sjálf og er óhætt að segja að þær hafi notið mikilla vin- sælda hjá heimilisfólkinu. Mér hefur alltaf fundist þær minna mig á kókos- kúlur úr bakaríi húðaðar marsípani, og því ákvað ég að hafa fyllinguna þannig. Útkoman var lýgilega lík bit- unum í Ikea og virkilega góð. Ég mæli með að þið prófið þessa enda vel þess virði.“ Sænskar ryksugur eins og í Ikea Fylling 125 g smjör 100 g MUNA-hafrar (ekki trölla) 50 g MUNA-kókosmjöl 75 g MUNA-hrásykur 30 g MUNA-kakó 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. rommdropar ½ tsk. fínt salt Marsípan utan um 110 g MUNA-hrásykur 200 g MUNA-möndlur 1 eggjahvíta pínu salt ½ tsk. möndludropar grænn og gulur matarlitur Súkkulaðihúð ½ dl MUNA bragð- og lyktarlaus kókos- olía ½ dl MUNA-kakó 2,5 msk. MUNA-agavesíróp Aðferð Fylling 1. Mýkið smjörið með því að setja það í örbylgju eins og í 20 sek. 2. Setjið svo allt saman í skál og hnoð- ið vel saman eins og þegar eru gerðar kókoskúlur Marsípan utan um 1. Byrjið á að setja hrásykurinn í blen- der (helst í svona glasi ef þið eigið) og malið þar til verður fínn, næstum eins og flórsykur og leggið til hliðar 2. Setjið svo möndlur í matvinnsluvél eða blandara og malið þar til eru orðnar að fínu dufti en ekki of lengi samt 3. Setjið næst sykurinn og allt hitt hráefnið sem á að fara í marsípanið saman við og blandið þar til er orð- ið að fínu grænu marsípani Súkkulaðihúð 1. Bræðið olíu með lokinu á undir vatnsbaði og hellið í skál 2. Setjið agave og kakó saman við og hrærið vel saman þar til er orðið að silkimjúku súkkulaði og leggið til hliðar Samsetning 1. Breiðið út filmu á brauðbretti og setjið fyllinguna á í lengju, gott er að gera þetta í tveimur til þremur pörtum, þ.e setja ½ eða 1⁄3 fyllingu á í einu 2. Lokið filmunni og rúllið á brettinu þar til verður svona mjó lengja eins og ormur, bara smá þykkari 3. Fletjið næst út ½ eða 1⁄3 af marsíp- ani (gott er að setja smá spelt eða hveiti undir það svo festist ekki og á kökukeflið líka 4. Leggið svo fyllinguna ofan á end- ann á marsípaninu öðrum megin og rúllið upp þar til marsípanið nær hringinn og skerið þá af- gangsmarsípan frá 5. Endurtakið þar til fylling og mar- sípan hafa klárast 6. Skerið svo í eins og 5 cm bita og dýf- ið hvorum endanum ofan í súkku- laðið, mér finnst best að byrja á að dýfa öðrum endanum og láta storkna smá og dýfa svo hinum 7. Það má líka bræða 70% súkkulaði í staðinn fyrir að gera súkkulaðið frá grunni og dýfa í ef þið kjósið frekar 8. Mér finnst síðan best að geyma bit- ana í frysti eða kæli og borða þá kalda Ljósmynd/María Gomez Sænskar ryksugur eins og í IKEA Það eru sjálfsagt einhverjir sem muna eftir ryksugumolunum í IKEA en María Gomez á Paz.is hefur endurskapað þá í allri sinni dýrð. Hollt og gott „Ég reyndi líka að nota sem mest af lífrænt ræktuðu hráefni sem er næringarríkt eins og möndlur, haframjöl, hrásykur og kakó frá MUNA, segir María.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.