Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-9139
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-8929
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-8809
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-7573C
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-8929
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-8929
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-8542
19.995.- / St. 41-46
Vnr.: URB-7573C
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
HERRASKÓR
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Eldfjallið sýndi sannarlega listir sín-
ar. Langbesta „live-show“ sem ég hef
séð allt mitt líf og það besta sem ég
hef upplifað,“ segir Jolanta Kaziu-
koniene í samtali við K100.is en hún
fór ásamt dóttur sinni Gabija Kaziu-
konyte í sérstaka ferð til Íslands, í lok
ágúst, til að berja eldgosið í Geld-
ingadölum augum. Eldgosið og Ís-
landsferðin heillaði mæðgurnar það
mikið að þær ákváðu að fá sér húðflúr
í stíl með mynd af eldgosinu.
Húðflúrið er byggt á teikningu af
eldgosinu sem þær fengu listamann í
London til hanna fyrir sig.
„Þetta er eitthvað sem dóttir mín
stakk upp á fyrir löngu, að við ættum
einhvern tímann að fá okkur húðflúr í
stíl og þetta var fullkominn tími.
Þetta var eitthvað sérstakt sem við
sáum og nú erum við með minn-
inguna um það á okkur,“ segir
Jolanta.
Eldfjallið var í fullu fjöri
Mæðgurnar, sem eru
litháískar að uppruna en
hafa búið í Bretlandi í 13 ár,
nutu Íslandsferðarinnar í
botn en þær ákváðu að nýta
tækifærið og ganga að eld-
fjallinu fyrsta kvöldið sem
þær komu til landsins. Sú
ákvörðun reyndist mæðg-
unum vel en eldfjallið var í
fullu fjöri þetta tiltekna
kvöld.
„Við notuðum tækifærið á
meðan við gátum. Næstu
daga var eldfjallið svo ekki
virkt svo við ákváðum að
ferðast um landið,“ segir Jolanta en
þær mægður heimsóttu meðal ann-
ars Gullfoss, Geysi, Vík, Reynisfjöru,
Skógarfoss, Dyrhólaey, Þingvelli og
Bláa lónið á þeim fjórum dögum sem
þær dvöldu á Íslandi.
Grét næstum
Mægðurnar undirbjuggu sig að
sögn Jolanta vel og fylgdust vel með
virkni eldfjallsins en Jolanta hafði
lengi fylgst með eldgosinu í gegnum
vefmyndavél á netinu.
„Í sannleika sagt þá grét ég næst-
um því þegar ég sá hraunið í fjar-
lægð. Af því að þarna sá ég það með
mínum eigin augum en ekki í gegnum
vefmyndavél,“ sagði Jolanta.
Í lok ferðarinnar ætluðu mæðg-
urnar að ganga aftur að eldfjallinu en
vegna þess hve slæmt veðrið var og
mikil þoka ákváðu þær að skoða þess
í stað nýja hraunið í Nátthaga sem
var að sögn Jolanta afar mikil-
fenglegt.
„Það rauk upp úr hrauninu þegar
regndroparnir snertu það enda er
það enn heitt. Manni leið smá eins og
það væri kominn heimsendir,“ sagði
Jolanta.
Þriðja Íslandsferðin
Þetta er í þriðja skipi sem Jolanta
hefur komið til landsins en hún hefur
mikla ástríðu fyrir Íslandi. Hún
heimsótti landið í fyrsta sinn árið
2015 á 20 ára brúðkaupsafmæli sínu
ásamt eiginmanni sínum þar sem hún
upplifði það meðal annars að sjá
norðurljósin í allri sinni dýrð. Í annað
skipti ferðaðist hún til Íslands um há-
vetur með syni sínum. Jolanta vonast
til þess að heimsækja landið aftur í
framtíðinni og að ná þá að keyra
hringinn í kringum Ísland.
Fengu sér húðflúr með eld-
gosinu eftir Íslandsferðina
Ísland Mæðgurnar, Jolanta Kaziukoniene og Gabija Kaziukonyte, urðu al-
gjörlega heillaðar af Íslandi en Jolanta var sjálf að heimsækja landið í þriðja sinn.
Í stíl Jolanta fékk sér húðflúr rétt fyrir of-
an ökkla en Gabija á framhandlegginn.
Mæðgurnar Jolanta
Kaziukoniene og Gabija
Kaziukonyte heilluðust
algjörlega af sjónarspili
eldgossins í Geldinga-
dölum, svo mjög að þær
létu húðflúra eldfjallið á
líkama sinn.
Útsýni Í sannleika sagt þá
grét ég næstum því þegar ég
sá hraunið í fjarlægð, segir
Jolanta sem hafði aðeins séð
gosið í vefmyndavél.
Flott Húðflúrið er sérhannað.