Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 54

Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 ✝ Guðmundur Reynir Jónsson fæddist í Reykjavík 10. janúar 1940. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 15. september 2021. Foreldrar hans voru hjónin Jón Þórarinsson, skip- stjóri frá Ánanaust- um í Reykjavík, f. 29.6. 1905, d. 10.11. 1967, og Guðrún Þorkelsdóttir, húsfreyja frá Valdastöðum í Kjós, f. 11.8. 1911, d. 28.11. 1982. Systkini Guðmundar eru: 1) Halldór Heiðar, f. 18.10. 1935, d. 10.10. 2009, maki Helga Jó- hannsdóttir, f. 10.11. 1935, d. 8.2. 2021. 2) Þórarinn Þorkell Jónsson, f. 7.6. 1938, d. 23.11. 2009, eftirlifandi maki Þorbjörg Jónsdóttir, f. 20.12. 1939. 3) Ragnheiður, f. 10.5. 1942, d. 15.11. 1954. 4) Halldóra Borg, f. 30.7. 1945, d. 10.5. 2002, eftirlif- andi maki Kristján Kristjánsson, f. 18.4. 1944, samb.k. Kristín Einarsdóttir. 5) Þórleif Drífa, f. 6.9. 1951, maki Finnbogi B. 12.1. 1984. b) Ragnhildur Dóra, f. 12.7. 1991, maki Ásgeir Hall- dórsson, f. 27.6. 1986, c) Halldór Ingi, f. 1.11. 1996. 3) Jón Þór, f. 15.11. 1968, maki Kolbrún Sig- urðardóttir, f. 16.9. 1970. Börn Jón Þórs: a) Hrannar, f. 8.9. 1997. b) Hilmir Jónsson, f. 7.11. 2000. 4) Hafdís, f. 6.2. 1974, maki Róbert Ericsson, f. 24.3. 1971. Börn Hafdísar: a) Kolbrún f. 14.12. 1996 b) Viktor Máni f. 25.7. 2000, c) Alexander, f. 25.4. 2006, Guðmundur f. 25.4. 2006. 5) Fósturdóttir, Guðný Halldórs- dóttir, f. 13.2. 1956, maki Guð- brandur K. Jónasson, f. 8.7. 1954. Börn Guðnýjar: a) Ingunn, f. 9.7. 1978, maki Hjalti Bald- ursson, f. 11.10. 1978. b) Jónas Kristinn, f. 20.8. 1982. Guðmundur fór ungur til sjós með Halldóri bróður sínum og föður þeirra en það var á bátn- um Drífu sem faðir hans átti og rak, hann stoppaði stutt þar og réð sig á Arnfirðing og síðan lá leiðin á Grindvíking þar sem hann var til sjós í fjöldamörg ár. Hóf akstur á Nýju sendibíla- stöðinni með eigin rekstur í nokkur ár. Seinna hóf hann störf í fyrir- tæki sonar síns, Sérverki, en þar endaði hann sína starfsævi. Útförin fer fram frá Linda- kirkju í dag, 23. september 2021, klukkan 15. Ólafsson, f. 1.2. 1949, d. 22.8. 2014. Hinn 25. febrúar 1961 kvæntist Guð- mundur Kolbrúnu Halldórsdóttur, f. 28.10. 1941. For- eldrar hennar voru Halldór Kristinn Jónsson, sjómaður í Reykjavík, f. 12.8. 1913, d. 8.12. 1997, og Ingunn Elías- dóttir húsfreyja, f. 27.9. 1914 í Reykjavík, d. 2.9. 1961. Börn og fósturdóttir Guð- mundar og Kolbrúnar eru: 1) Inga Dóra, f. 24.12. 1960, maki Snorri Torfasson, f. 22.7. 1959. Börn Ingu Dóru: a) Thelma, f. 13.2. 1988, maki Við- ar Örn Hafsteinsson, f. 6.5. 1985. b) Reynir, 16.7. 1990, maki María B. Baldursdóttir, f. 26.5. 1990. c) Hlynur, f. 4.6. 1996, samb.k. Eva Sif Einarsdóttir, f. 29.8. 1996. 2) Elías, f. 14.2. 1964, maki Alda Rós Ólafsdóttir, f. 1.8. 1964, d. 17.10. 2016. Börn Elíasar: a) Elín Rut, f. 12.7. 1989, maki Birnir Sveinsson, f. Elsku pabbi minn, nú er kom- ið að kveðjustund sem mér finnst erfitt að hugsa til því við vorum miklir vinir og félagar og áttum svo mikið saman en ég veit að í nokkur mörg ár hefurðu fundið fyrir minna baráttu þreki vegna veikinda, en þegar maður hugsar um allar þær stundir sem við áttum saman þá getur maður ekki annað en verið þakklátur og heppinn að hafa eignast góðan og ljúfan pabba og já eins og minn besti vinur orðaði það hann var mikill kar- akter, fyrir það minnist ég hans. Allar þær minningar sem maður býr yfir eru manni svo dýrmætar á svona stundu, allar útilegurnar og veiðitúrarnir og ferðin okkar til Mallorca sem við töluðum oft um, veiðiferðirnar í Grenilækinn með þér og Dóra bróður þínum og strákunum hans sem voru einstakar og skemmtilegar ferðir sem við Elli bróðir og frændur okkar tölum oft um, ferðirnar á Hraun í Ölf- usi á Saabnum þar sem við vor- um háðir flóði og fjöru með bíl- inn svo hann færi ekki á haf út og maður hugsaði oft þegar maður sá Saabin í sandinum, þessi bíll hefur margar fjörurnar sopið í veiðiferðum. Svo er önn- ur minning sem situr fast í mér og hefur fengið mig til að brosa oft af en hún var þannig að þeg- ar við komum á veiðistaði þá var ekki verið að drolla neitt við að setja saman, það var gert af ógnahraða því það lá allt undir að koma færinu út í og ef maður bað um hjálp þá var því ekki vel tekið svona rétt á meðan hann græjaði sig fyrstan með stöng- ina og sagði hann oft hvað er þetta þú átt að kunna þetta ég er búinn að kenna þér þetta margoft, en það var líka alveg rétt hjá honum. Við fórum oft á völlinn já KR- völlinn, ég þú og Elli, þú varst mikill KR-ingur og í raun var alltaf eitt lið á vellinum sama hvernig liðið spilaði, við bræður sögðum oft hvað KR hefði verið slakt í hinum og þessum leikjum en þú varst nánast aldrei sam- mála, sagðir við okkur þið hafið verið að horfa á annan leik og skiljið ekki leikinn kom stundum líka, KR var hans lið, hann var líka liðsstjóri hjá KR og lands- liðinu til margra ára og hann þekkir margt frábært fólk í kringum boltann og honum fannst gaman að fylgjast með þeim strákum sem voru með honum hjá KR en það eru miklir vinir hans og gaman að sjá hvað þeir komu margir og heilsuðu upp á hann fyrir leik eða hvar sem hann hitti þá, honum þótti vænt um það. Pabbi var sjómaður og heyrði maður margar sjóarasögur af honum frá mönnum sem voru með honum til sjós en allar áttu þær það sameiginlegt, pabbi þinn var hörkusjómaður var oft sagt við mig og maður var nú stoltur að heyra það. Pabbi og mamma voru svo áhugasöm að fylgjast með manni og þurftu að fá að vita allt um hvað væri að gerast, hvort sem ég fór á Þingvelli að veiða eða með fjölskylduna utan þá gat ég verið viss um að hann myndi hringja og fá fréttir um stöðu mála, „Hvað ertu búinn að veiða marga og hvernig er veðrið, er ekki heitt og hvernig hafa strák- arnir og Kolla það?“ var meðal þeirra spurninga sem maður fékk og á ég eftir að sakna að fá ekki lengur símtöl frá pabba. Takk fyrir allt elsku pabbi minn! Þinn sonur, Jón Þór. Elsku pabbi minn. Það er skrítið að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Þú, sem hefur alltaf náð að standa upp aftur eftir öll þín veikindi, enda algjör nagli sem gafst aldrei upp. Ég er svo þakklát fyrir að hafa unnið í for- eldralottóinu, því að betri pabba og mömmu er ekki hægt að hugsa sér. Þú varst alltaf svo áhugasamur um okkur og fylgd- ist vel með barnabörnunum þín- um, hvort sem það var í leik eða starfi. Þú varst svo stoltur af afas- telpunni þinni, Kolbrúnu, sem þú áttir svo mikið í og það var yndislegt að fylgjast með gæða- stundunum ykkar saman. Þegar Viktor Máni, Alexander og Guð- mundur voru að keppa í fótbolta, þá varstu ávallt fyrstur til að hringja og fá upplýsingar um hvernig leikurinn fór og hvernig þeim hafði gengið. Eftir að Vikt- or Máni fór í háskólanám til Kansas varstu fljótur að læra að hringja í hann í gegnum face- time og voru símtölin ykkar mörg í mánuði, þú varst svo áhugasamur um hann og vildir fylgjast vel með honum. Alexander og Guðmundur áttu góðan vin í afa sínum sem gerði allt fyrir afastrákana sína. Við erum líka svo heppin að hafa búið í sama húsi og þið mamma síðastliðin 14 ár og samveran því mjög mikil á milli okkar, enda stutt í kaffibolla og spjall. Við hittumst nánast daglega og ef það liðu einn eða tveir dagar á milli, þá hringdir þú alltaf í mig til að láta mig vita að þið væruð heima og spurðir hvort ég ætlaði ekki að kíkja á ykkur. Fyrir nokkrum árum skapað- ist sú hefð að við systkinin kom- um alltaf í kaffi til ykkar á laug- ardagsmorgnum og ég veit að það gaf ykkur mömmu svo mikið að fá alla til ykkar. Við skipt- umst á skoðunum um fótbolta, pólitík og allt þar á milli. Þetta voru yndislegar samverustundir sem skilja svo mikið eftir núna, enda höfum við alltaf verið sam- rýnd fjölskylda og gert mikið saman. Það er erfitt að hugsa sér lífið án þín elsku pabbi minn og ég mun sakna þín svo mikið. Ég lofa þér því að við munum hugsa vel um mömmu fyrir þig. Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Þín dóttir, Hafdís Mjöll. Elsku afi okkar. Við eigum erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur, enda héldum við öll að við fengj- um meiri tíma með þér. Það eru forréttindi að hafa kynnst þér og erum við svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem afa. Þú varst okkar stærsti stuðn- ingsmaður í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur, enda fyrstur til að fá upplýsingar, hvort sem þær tengdust áhugamálum, skóla eða starfi. Þú varst alltaf jafn áhugasam- ur um okkur og gleðin skein í gegn þegar við komum í heim- sókn. Við erum svo lánsöm að hafa búið fyrir neðan ykkur ömmu í öll þessi ár og heim- sóknir til ykkar voru nánast daglegar. Þú varst fljótur að láta okkur vita þegar þér fannst langt liðið frá síðustu heimsókn, þótt það hefðu aldrei verið meira en nokkrir dagar. Jólahátíðirnar voru okkar bestu samverustundir en þar skapaðist sú hefð í Ásakór að jólasteikin var borðuð hjá ykkur ömmu en pakkarnir opnaðir hjá okkur. Það er eitthvað sem við munum öll frá því að við vorum pínulítil og eru þær minningar okkur mjög dýrmætar. Söknuð- urinn verður mikill en minning- arnar um góðan afa munu lifa að eilífu. Hvíldu í friði elsku afi okkar, við elskum þig. Þín afastelpa og afastrákar, Kolbrún, Viktor Máni, Alexander og Guðmundur. Elsku Gummi bróðir. Nú er komið að því að kveðja þig í síðasta sinn. Það má þakka fyrir að við fengum að hafa þig hér hjá okkur þó svona lengi. Það komu tímar sem við héldum þú værir að yfirgefa okkur en alltaf reist þú upp aftur, það var alveg ótrúlegur kraftur í þér. Ég átti alls ekki von á fréttunum af andláti þínu því ég hafði verið hjá ykkur Kollu helgina á undan og þá voru þið að segja frá hvernig þið fjölskyldan ætluðuð að halda upp á 80 ára afmælið hennar Kollu sem er í næsta mánuði. Þegar hugsað er til baka komu upp ánægjulegar minning- ar sem hægt er að hugga sig við á svona stundum. Það var mikið fjör þegar allur hópurinn hittist hjá mömmu þar sem systkina- börnin voru mörg á svipuðum aldri. Fjölskylduferðirnar sem farið var í á hverju sumri í mörg ár voru ómetanlegar og urðu til þess að hópurinn þekktist mjög vel. Hefðin var einnig að hittast alltaf á hverju ári 2. janúar til að fagna nýju ári og þá varst þú og þín fjölskylda alltaf með nóg af flugeldum, blysum og stjörnu- ljósum, sem auðvitað var allt keypt hjá KR. Núna síðustu árin eftir að við vorum bara tvö eftir af systk- inunum og Finnbogi fallinn frá höfum við hist mjög reglulega. Það var mér mjög dýrmætt hvað þið Kolla tókuð vel á móti Guð- jóni vini mínum þegar ég kynnt- ist honum. Það kom í ljós að þið áttuð ýmislegt sameiginlegt sem þið gátuð rætt um þar sem Guð- jón hafði verið til sjós í gamla daga eins og þú. Í stað þess að kaupa afmæl- isgjafir fyrir hvert annað ákváðum við að fara út að borða í hádeginu ásamt Tobbý mág- konu og ég vona að við sem eftir erum höldum því áfram. Elsku Kolla mín og fjölskylda þið hafið misst yndislegan mann en minningarnar lifa í hjörtum ykkar og okkar um ókomna tíð. Gummi minn núna er ég ein eftir af okkur systkinum en ég hef notið þess að vera litla systir alla tíð. Farðu í friði og guð fylgi þér. Takk fyrir allt. Þín systir Þórleif Drífa. Svili minn og „tengdafaðir“ Guðmundur Reynir Jónsson var Guðmundur Reynir Jónsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR barnakennari og skáld, lést á líknardeild Landspítalans 16. september. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 28. september klukkan 15. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat Egill Arnaldur Ásgeirsson Þorgeir Elís Þorgeirsson Guðrún Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, systir okkar og mágkona, EDDA SVAVA ARNÓRSDÓTTIR, lést sunnudaginn 5. september í Osló. Ólafur Jónsson Víðir Kalmar Arnórsson Jóhanna Lúðvíksdóttir Guðlaug Sigríður Arnórsd. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN RUNÓLFSSON bóndi á Dvergasteini, Lindasíðu 2, Akureyri, lést sunnudaginn 19. september á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 4. október klukkan 13. Benedikt Björgvinsson Vilborg Björgvinsdóttir Davíð Stefánsson Jón Björgvinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, amma og langamma, HLÍF HELGADÓTTIR, Furugrund 70, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans 9. september. Hjartans þakkir til starfsmanna líknardeildar fyrir yndislega umönnun. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Dís, börn og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA S. GUÐMUNDSDÓTTIR frá Grenivík í Grímsey, sem lést á Landspítalanum mánudaginn 6. september, verður jarðsungin frá Digraneskirkju miðvikudaginn 29. september klukkan 15. Erlendur Geirdal Kolbrún Matthíasdóttir Guðmundur Gísli Geirdal Linda Jörundsdóttir Halldóra Sæunn Sæmundsd. ömmu- og langömmubörn Okkar ástkæri ÞÓR MATTHÍASSON, Klapparstíg 3, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 11. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur senda alúðarþakkir fyrir frábæra þjónustu til líknardeildarinnar og Heru. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeildina í Kópavogi og líknarþjónustuna Heru. Yrja Þórsdóttir Janet Matthíasson Freyja Matthíasdóttir Edda Matthíasdóttir Swan Sif Matthíasdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.