Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 55
MINNINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 stór maður, með stórt og hlýtt hjarta, glaðlyndur, duglegur og kappsamur. Okkar leiðir lágu saman eftir að ég varð skotinn í fósturdóttur hans og kom því svo oft sem verða mátti í heim- sókn á heimili þeirra í Hraun- bænum. Þá mætti ég honum í forstofunni, með sítt hár og vík- inga-skegg, hann í stuttu fríi af loðnuvertíð. Mér leist ekkert á blikuna en þétt handtakið og brosið gaf vísbendingar um það sem á eftir fylgdi. Hann reynd- ist mér og fjölskyldu minni vin- ur í raun, umhyggjusamur og hjálpsamur. Hann var háseti á Grindvík- ing þegar ég kynntist honum, netaveiði, loðna og síld og oft langar útilegur. Sótt í Norðursjó og við Nýfundnaland og þegar heim var komið fylgdi gjarnan eitthvað sérstakt og gómsætt með til heimilisnota. Heimilislíf- ið mótaðist á þessum árum af fjarveru hans, Kolla eiginkona hans bar hitann og þungann af heimilisrekstrinum, naut aðstoð- ar Guðnýjar systur sinnar sem var svo lánsöm að fara í fóstur hjá þeim Kollu og Gumma við fráfall móður sinnar aðeins 5 ára gömul. Gummi var mikils metinn í flotanum, sterk tengsl hans við Grindavík og starfsmenn út- gerðarinnar Fiskaness rofnuðu ekki þótt hann færi í land. Við tók rekstur sendibíls og hafði hann í nógu að snúast, keyrði aðallega fyrir innflutningsfyrir- tækið Dreifingu, McCain-fransk- ar kartöflur í tonnavís á hverj- um degi. Þar kom dugnaður hans og kappsemi að góðum not- um, hann sinnti hlutverki sínu eins og hann væri eigandi Dreif- ingar en ekki dreifingarstjóri. Hann hætti sendibílarekstri og hóf störf hjá Elíasi syni sínum við byggingafyrirtækið Sérverk, eljusemi og dugnaður, rík sam- viskusemi einkenndi áfram störf hans. Ekkert gert með hálfum hug, alltaf á fullu gasi, enda kall- aður Gassi af vinum. Það fór ekki á milli mála hvað honum var annt um fólkið sitt, eftirtektarvert hvað hann rækt- aði samband sitt við börnin sín, systkini og tengdafólk. Ára- mótaboð og árleg stórfjölskyl- duútilega batt sístækkandi hóp- inn þétt saman, þar gegndu Gummi og systkini hans lykil- hlutverki. Einkenni stórfjöl- skyldu Gumma var samheldni, umhyggja og hjálpsemi, við Guðný og börnin okkar tekin með frá fyrsta degi. Síðustu mánuðir reyndust Gumma erfiðir, heilsunni hrak- aði, stoðkerfisvandi og veikara hjarta tóku frá honum getuna til að sinna fjölskyldu sinni og áhugamálum eins og hugur hans stóð til. Að endingu þakka ég fyrir vináttu hans í 46 ár og ekki síst hve góður fósturfaðir hann reyndist Guðnýju konu minni. Guðbrandur Kristinn Jónasson. Fallinn er frá góður vinur minn Guðmundur Jónsson, Gassi. Gassa kynntist ég í gegnum Ella og var á milli okkar mikill vinskapur. Ég fór þó nokkra veiðitúra með þeim feðgum hvort sem það var í laxveiði eða silungaveiði í ár eða upp á heiði. Gassi var mikill veiðimaður og hafði mjög gaman af því að veiða. Sögurnar sem hann sagði frá í veiðitúrum voru mjög skemmtilegar og var Gassi alltaf hrókur alls fagnaðar. Mér þótti alltaf gaman að því þegar hann sló saman lófunum og sagði ÉG ELSKA LÍFIÐ. Gassi var einn- ig mikill KR-ingur og var KR honum mjög kært félag og veit ég ekki um nokkurn annan jafn- mikinn KR-ing og Gassi var, hann talaði alltaf vel um KR og ef KR gekk illa þá sagði hann þetta kemur í næsta leik hjá okkur. Gassa hitti ég af og til þegar hann og Kolla komu til okkar í Sérverk í kaffi og þá var iðulega talað um KR eða veiði. Nú kveð ég vin minn Gassa, sterkan karakter, og hans verð- ur sárt saknað. Ég votta Kol- brúnu, Ella, Ingu Dóru, Jóni Þór, Hafdísi, Guðnýju og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Ólafur Arnarson. Handtakið var þétt. Brosið náði til augnanna. Það fór ekki á milli mála að hér fór maður sem hafði þurft að hafa fyrir lífinu. Dýft höndunum í kalt vatn og migið í saltan sjó. Guðmundur Reynir Jónsson – Gassi – var lífsglaður maður. Naut þess að vera til. Alltaf stutt í hláturinn og grallaralegt brosið. Hann var KR-ingur í gegnum þykkt og þunnt, kunni að lesa leikinn betur en flestir. Gassi var sjálfstæðismaður af gamla skólanum, vildi að fólk fái að njóta eigin dugnaðar og ef eitthvað fór illa í hann var það leti, hvort heldur í leik eða starfi. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur. Hreinskiptinn og sagði skoðanir sínar án þess að sykurhúða eitt né neitt. Engu skipti hvort um var að ræða frammistöðu liðs eða einstakra leikmanna á fól- boltavellinum, eða stöðuna í þjóðmálum og framgöngu stjórnmálamanna. Gassi las stjórnmálin ekki síður en fót- boltann. Í áratugi fórum við á hverju sumri í veiðiferðir með Gassa og syni hans Elíasi – Ella. Á ár- bakkanum naut Gassi sín. Barnsleg gleðin þegar fyrsti fiskurinn var kominn á land var fölskvalaus, skipti engu hvort hann sjálfur hafði sett í laxinn eða einhver okkar hinna. En ekki þótti honum verra að ná að landa laxi á undan syninum, sem þurfti þá að sitja undir háðs- glósum, jafnvel löngu eftir að leikurinn var jafnaður. Samband þeirra feðga var einstakt. Það fór ekki fram hjá neinum hve sterk vinátta var á milli feðganna. Vinátta sem byggð var á gagnkvæmri virð- ingu og leyfði góðlátlegt grín og stríðni í garð hvors annars. Við veiðifélagarnir fengum auðvitað okkar skammt en náðum yfir- leitt aldrei að eiga síðasta orðið. Gassa varð sjaldan orða vant, fljótur að svara fyrir sig og brosið lék um allt andlitið. Gassi var vinur vina sinna. Stóð þétt við bakið á þeim og kom þeim til varnar ef á þurfti að halda. Drengskapur var hon- um í blóð borinn. Við sendum fjölskyldu Gassa okkar dýpstu samúðarkveðjur. Að leiðarlokum þökkum við ein- staka vináttu sem aldrei brást. Megi guð blessi minningu heið- ursmannsins Guðmundar Reynis – Gassa. Hjörtur Nielsen Óli Björn Kárason Guðmundur Reynir Jónsson er látinn, pabbi Jóns Þórs míns góða vinar. Gassinn eins og hann var kallaður var einkar skemmtilegur maður og margs að minnast frá öllum þeim stundum sem maður hitti hann. Sjómaður sem kallaði ekki allt ömmu sína, harðasti KR-ingur- inn í Árbænum. Við tókumst á með það; ég reyndi að finna Fylkistaug í honum en náði því ekki á þeim tæpu fimmtíu árum sem ég þekkti hann. Gassinn var KR-ingur, fór á alla leiki og varð fljótlega liðsstjóri í meistara- flokki, ég man eftir blaktandi KR-treyjum á snúrum á Digra- nesveginum sem varð heimili fjölskyldunnar eftir Hraunbæ- inn. Maður hugsaði með sér: hver gerir svona, þvo treyjurnar af liðinu heima hjá sér? Það gekk ekki sérstaklega vel hjá KR á þessum árum, það var ekki fyrr en Guðjón Þórðarson kom til KR að eitthvað stórt fór að gerast. Tókst mikill vinskap- ur milli þjálfarans og liðsstjór- ans, sem varð til þess að Guðjón tók Gassann með sér þegar hann tók við landsliðinu. Gass- inn fór þá um allan heim með landsliðinu, m.a. til Indlands, og undi því einkar vel. Gassinn lét mig oft og iðulega vita þegar Fylkismenn voru með allt niðr- um sig, ég reyndi að svara fyrir mig en málstaðurinn ekki alltaf góður. Hann hefði nú aldeilis gott tækifæri í dag til að skjóta á mig. Ég minnist þess þegar við vinir Jóns Þórs vorum að fá okkur í tána á Digranesveginum á gamlárskvöld og Gassinn kall- ar í okkur rétt fyrir miðnætti til að skjóta upp. Gassinn með risa- stóran fjölskyldupakka frá KR, einn af okkur gætti ekki að sér og henti rokeldspýtu í pakkann hjá Gassanum. Gassinn tók á rás, þessum spretti gleymi ég aldrei. Pakkinn sprakk ekki upp í heilu lagi, en við grenjuðum allir af hlátri, ekki síst Gassinn. Ég kveð þennan góða mann með söknuði. Fjölskyldu Jóns Þórs vinar míns sendi ég sam- úðarkveðjur. Björn Arnar Ólafsson. Í dag er til moldar borinn á sínu 82. aldursári, mikill heið- ursmaður, góður félagi og KR- ingur. Guðmundur Reynir eða Gassi, eins og hann var ávallt kallaður, ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur. Eins og ætterni hans gefur til kynna var sjó- mennskan honum í blóð borin, og stýrði lífi hans fyrstu áratug- ina. Það gafst því ekki mikill tími fyrir boltaspark, eins og hjá mörgum öðrum drengjum í Vesturbæ. En eitt var hann með á hreinu, hann var gallharður KR-ingur eins og félagarnir og vinirnir og stuðningur hans við félagið var ævilangur og fölskva- laus. Eftir að Gassi kom í land um 1980, opnuðust honum mögu- leikar til að taka að sér störf fyr- ir KR. Þó að heimilið og fjöl- skyldan væri nú flutt handan við bæjarmörk Kópavogs, þá var stuðningur hans aldrei meiri. Hann var kjörinn í stjórn knatt- spyrnudeildar KR árið 1981 og sat hann fyrst í varastjórn og síðan í stjórn deildarinnar næstu 10 árin. Þar kom Gassi að ýms- um málum svo sem getraunum, stúkubyggingunni og auðvitað flugeldunum, en hann var einn af mikilvægum hlekkjum í upp- gangi KR-flugelda, sem tóku flugið á þessum árum. Það þurfti ekki að spyrja að því hvar Gassi varði jólafríinu, þar kom ekkert annað til greina en flug- eldasala KR. Er Ian Ross tók við þjálfun meistaraflokks KR árið 1988, tók Gassi að sér hlutverk liðs- stjóra, og þar fann hann fjölina sína. Hann gegndi starfinu með miklum sóma næstu 10 árin. Það má hiklaust segja að hann hafi að mörgu leyti mótað þetta mik- ilvæga starf – og ekki bara í KR heldur meðal knattspyrnufélaga í efstu deild. Hann starfaði með ýmsum þjálfurum, auk Ross voru þeir helstir Ivan Sochor, Guðjón Þórðarson og Luka Cos- tic. Skömmu eftir að Guðjón var ráðinn þjálfari A-landsliðs Ís- lands árið 1997 var Gassi ráðinn liðsstjóri þess. Því gegndi hann næstu sjö árin, er hann settist í helgan stein frá knattspyrnustú- ssinu. Í blaðaviðtali í Mbl. var eftirfarandi haft eftir honum: „Það var engu líkt að vera í kringum þessa stráka enda eru þeir allir vinir mínir. Leikmenn eins og Rúnar Kristinsson og Heimir Guðjónsson voru ein- stakir í klefanum og að öðrum ólöstuðum var Gaui, Guðjón Þórðarson, sér á parti sem þjálf- ari – mikill vinnuþjarkur.“ Gassi lét sig sjaldan vanta á völlinn þegar leikur var hjá KR. Og ef menn vildu hitta hann á heimaleikjum var alveg ljóst hvar hann var að finna – á girð- ingunni norðvestan vallarins, og þá gjarnan í samfylgd sona sinna og í námunda við „þver- sviðið“. Það svæði hefur reyndar verið lokað á Covid-tímum þegar krafist er skráningar í sæti. Gassi lét það þó ekki stoppa sig og mætti ótrauður á nokkra heimaleiki KR í sumar. Gassi var hress og góður fé- lagi, og vinur sem var gaman að hitta. Við félagarnir og vinirnir í starfinu hjá KR vissum að heils- an var erfið síðustu árin og áföll- in nokkur. Kveðjustundin kemur samt alltaf á óvart. KR sendir Kolbrúnu og fjölskyldu þeirra hjóna innilegustu samúðarkveðj- ur. Eftir standa félagarnir og syrgja góðan vin og traustan samstarfsfélaga. Lúðvík S. Georgsson, formaður KR, Stefán Haraldsson, fv. formaður knspd. KR. Gassi, Guðmundur R. Jóns- son, KR-ingur. Ég kynntist Gassa ungur maður í KR þegar hann var liðsstjóri. Gassi var góður félagi leikmanna og ein- staklega vel liðinn innan félags sem utan. Gassi kunni sögur að segja enda marga fjöruna sopið. Störf sín fyrir félagið vann hann ávallt af mikilli alúð og skyldu- rækni. Hjá Gassa skyldu menn umgangast keppnistreyjuna af virðingu. Svo lágu leiðir aftur saman í KSÍ. Gassi var orðinn liðsstjóri landsliðsins. Maðurinn var vel liðinn af leikmönnum, hann hafði þennan góða hæfileika að vinna sín störf og þjappa hópnum saman, án þess að gnæfa yfir hópinn. Margar voru stundirnar í góðra vina hóp þar sem Gass- inn fór á kostum án þess að halla á nokkurn mann. KR er öflugt félag af því að menn eins og Gassi gáfu alltaf sitt. Hans verður minnst fyrir óeigingjörn og vel unnin störf fyrir KR og landsliðið. Samúð okkar er hjá fjölskyldu Guð- mundar R. Jónssonar og gæti ég mælt fyrir hönd mikils fjölda fyrrverandi leikmanna og félaga sem hann þekktu, þá væri þakk- læti og vinátta efst í huga þegar góður félagi kveður. Minning Gassa lifir. Geir Þorsteinsson. Elsku mamma, amma og tengdamamma, GUÐRÚN HRUND SIGURÐARDÓTTIR hönnuður, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans 3. september. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. september klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni https://youtu.be/uok4mRSBPLQ Streymið má einnig finna á Mbl.is/andlát Hildur Georgsdóttir Ólafur Már Ægisson Ragnhildur Katla Edda Guðrún Lárus Gauti Georgsson Laura Daniela Hurtado Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæra SIGURÐAR EGGERTSSONAR, fyrrverandi hljóðmeistara Þjóðleikhússins, Hvassaleiti 58. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar Landspítala fyrir góða umönnun. Elín Sigurvinsdóttir Jónína Sigurðardóttir Rafn Ingólfsson Sigrún Sigurðardóttir Helgi Daníelsson Sigurður Sigurðsson Elín Ólafsdóttir Sigurvin Sigurðsson Kristrún Daníelsdóttir barnabörn, langafabörn og langalangafabörn Við þökkum af alhug hlýjar kveðjur og samhug vegna fráfalls STEINARS GEIRDAL, ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahlynningar, dagdvalar Ísafoldar og Skógarbæjar ásamt frímúrarastúkunni Sindra. Vigdís Erlingsdóttir Sverrir Geirdal Lára Jóhannesdóttir Snorri Geirdal Christina Byø Dagný Geirdal Bergþór Haukdal Jónasson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BIRNA FRIÐGEIRSDÓTTIR, Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði 16. september. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 24. september klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalar- og hjúkrunarheimilið Hornbrekku, Ólafsfirði. Sigurður Guðmundsson Valgerður Sigurðardóttir Rúnar Guðlaugsson Guðmundur Sigurðsson Sigurborg Gunnarsdóttir Friðgeir Sigurðsson Ragnhildur Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður •www.buumvel.is Hafnarhvoli, Tryggvagötu 11, 2. hæð,101 Reykjavík Vantar þig þjónustu við dánarbússkipti, sölu og ráðstöfun eigna? Sérhæfð lögfræðiþjónusta vegna búsetuskiptameð áherslu á 60+
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.