Morgunblaðið - 23.09.2021, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 23.09.2021, Qupperneq 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 ✝ Ester Guðbjörg Haraldsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 4. júlí 1941. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði 24. ágúst 2021. For- eldrar hennar voru Haraldur Agnar Guðmundsson, f. 29. júlí 1913, d. 6. maí 1989, og Halldóra Sigríður Guðvarðardóttir, f. 16. ágúst 1922, d. 27. ágúst 2008. Alsystkini hennar eru: Fanney Haraldsdóttir, f. 16. maí 1940, d. 11. des. 1992, Sigríður Kolbrún Diego Haraldsdóttir, f. 27. ágúst 1942, d. 3. mars 2006, Bentína Haraldsdóttir f. 29. sept. 1944, d. 24. des. 2018, Guðvarður Har- aldsson, f. 2. ágúst 1949. Sam- feðra bróðir er Jóhannes G. Har- aldsson, f. 6. mars 1938. Sammæðra systkini eru: Ómar Örn Eysteinsson, f. 17. des. 1954, d. 27. júlí 1997, Pétur Kúld Ey- steinsson, f. 12. apríl 1958, d. 3. júní 1997, og Hallfríður Hjördís Eysteinsdóttir, f. 22. nóv. 1961. Ester giftist Haraldi Hafsteini Júlíussyni, f. 21. júní 1938, þau skildu 1964. Dætur þeirra tvær eru Halldóra Sigríður, f. 18. des. 1959, gift Vali Sveinbjörns- syni, f. 10.10. 1956, börn þeirra eru Est- er Björg, Sandra Lind og Valur Þór; Margrét, f. 28. mars 1962, gift Þorsteini Þorsteinssyni, f. 14.10. 1966, börn þeirra eru Oddbjörg Lilja, Þor- steinn Halldór, Axel og Egill. Barnsfaðir Esterar var Ásgeir Sigurðsson, f. 19. nóv. 1927, d. 4. mars 2009. Barn þeirra er Jó- hann Smári, f. 2. jan. 1967, börn hans eru Erlingur Ívar, Lilja Rut og Elísa Rún. Eiginmaður Esterar frá 20. nóv. 1976 var Ívar Hreinberg Jónsson, f. 18. nóv. 1941, d. 5. mars 1977. Eftirlifandi eiginmaður Ester- ar er Agnar Þór Aðalsteinsson, f. 29. ágúst 1938, en þau hófu sam- an búskap árið 1984 og giftust 4.10. 2002. Barnabarnabörn Esterar eru 15 talsins. Úrförin fór fram í kyrrþey. Elsku mamma, það er erfitt að kveðja, svo ólýsanlega erfitt að skrifa þessi orð og það er stórt tómarúm í hjarta mínu eftir að þú kvaddir þennan heim. Þú sem varst alltaf mín stoð og stytta þrátt fyrir að þú stæðir alltaf ein í foreldrahlutverkinu. Þú varst líka dásamleg amma og langamma sem börnin mín gátu alltaf leitað til og treyst. Þú stóðst þig vel í öll- um þessum hlutverkum og gerðir það af miklu stolti. Þú stóðst þig alltaf eins og hetja þrátt fyrir að þú lentir í svo mörgum áföllum í leit að ham- ingju og betra lífi. Ég man þegar þú sagðir okkur frá því að í þínum uppvexti hefðuð þið systkinin þurft að upplifa ákveðna mismun- un í ykkar uppeldi. Síðar í lífinu þurftir þú horfa upp á okkur systrunum vera hafnað af okkar eigin föður og fara á þannig á mis við það að alast upp með báðum foreldrum. Það var þér eðlilega mjög erfitt en þú reyndir samt að vera okkur í senn móðir og faðir. Þú sagðir svo oft að það ætti eng- inn að þurfa að finna þann sárs- auka í hjarta sínu að vera hafnað. En þrátt fyrir þessa staðreynd þá verndaðir þú alltaf þá föðurímynd sem við höfðum og lést aldrei styggðaryrði falla. Það var alltaf svo yndislegt að heyra þig tala um ríkidæmi þitt þegar barnabörnin fæddust og síðar barnabarnabörnin. Hver einasti afkomandi þinn var krafta- verk í augum þínum. Það var þér mjög mikilvægt að allir þínir fengju jafn mikla athygli og ást. Ég veit að þú fórst með bænir þín- ar alla daga bæði kvölds og morgna, þú varst guði þínum þakklát fyrir gjafirnar sem hann færði þér. Árið 1984 fannstu svo hamingj- una sem var samt búin að standa fyrir framan þig í mjög mörg ár þegar þið Agnar fóruð að vera saman. Það var vart hægt að finna betri mann en Agnar sem bjó yfir einstakri manngæsku og ást, sem tók öllum þínum afkomendum sem sínum eigin á svo aðdáunar- verðan hátt. Tengslin sem þá mynduðust munu aldrei slitna enda elska börnin okkar hann sem afa sinn sem hann svo sannarlega reyndist þeim. Þið áttuð einstak- lega vel saman og þó svo samband ykkar hafi ekki verið laust erfið- leika þá áttuð þið virkilega góðan tíma saman og nutuð lífsins. Það var því mjög erfitt fyrir þig þegar Agnar fór á Sólvang og þú varst oft döpur yfir stöðunni en í leiðinni líka létt, því þú vissir að þar fengi hann bestu aðhlynningu sem völ væri á. Þú varst svo mjög dugleg að heimsækja hann eða eins oft og þín heilsa leyfði og þið hringduð mikið hvort í annað eftir að Covid skall á. Heilsu þinni hrakaði hratt núna seinustu daga í þínu lífi og ekkert gat búið mig undir að þurfa að kveðja þig og hafa þig ekki lengur hjá mér. Sama hversu djúpt ég sökkvi mér í góðu minningarnar þá þarf ég að horfast í augu við þá staðreynd og lifa með það að þú sért farin frá mér. Ég sagði svo oft við þig að þrátt fyrir erfiðleika þína, þröngan kost og að þú gast ekki veitt okkur hluti sem önnur börn fengu þegar ég var að alast upp, þá átti ég samt dásamlega æsku og á ynd- islegar minningar tengdar henni. Ég veit að það var af því að þú varst mamma mín, þú varst alltaf til staðar og þú fórst ekki frá mér og það öryggi sem þú veittir mér varð til þess að ég upplifði mig sem mjög hamingjusamt barn. Þú lagðir mikið á þig við að halda okkur saman og kenna okkur lífs- ins gildi. Fyrir það, elsku mamma mín, er ég þér svo endalaust þakk- lát. Þú lifir í hjarta mínu að eilífu. Þín dóttir, Margrét. Nú er hún tengdamóðir mín öll en hún fékk að kveðja þessa jarð- nesku tilveru sína í faðmi fjöl- skyldu sinnar á hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi í Hafnarfirði þar sem hún bjó síðustu mánuði ævi sinnar. Það var í raun ákveðin blessun yfir því að hún Ester fékk að kveðja á Sólvangi enda var hún komin aftur þangað sem hún undi sér alltaf vel, hennar gamla vinnu- stað og í raun hennar fyrra heimili því hún bjó á starfsmannavistinni sem ung stúlka á sínum fyrstu starfsárum. Ester kynnist eiginmanni sín- um Haraldi Hafsteini og eignaðist með honum tvær dætur, Halldóru Sigríði og Margréti, en þau skildu tveimur árum eftir að Margrét fæddist. Við tók krefjandi tímabil fyrir unga einstæða og efnalitla móður sem þurfti nú að vinna eins mikið og hún gat til þess að standa undir húsleigunni og nauðsynjum fyrir sig og tvær ungar dætur sín- ar. Ester var dugleg og gaf ekkert eftir, passaði vel upp á dætur sín- ar og sá til þess að þær hefðu það sem til þurfti þó svo það væri ekki mikið umfram það enda þröngt í búi. Ester vann nánast alla sína starfstíð á Sólvangi en inn á milli var gripið í vertíðarvinnu, bæði í hvalverkun, loðnu og síld þegar það gafst og vænkaðist þá jafnan hagur heimilisins um stund. Ester eignast síðar son sinn Jóhann Smára með barnsföður sínum Ás- geiri Sigurðssyni en kynni þeirra voru stutt og Ester var nú einstæð þriggja barna móðir og þurfti að sjá fyrir sér og sínum börnum á eigin spýtur. Það hindraði Ester þó ekki í að koma sér upp fallegu heimili en hún keypti sína fyrst íbúð að Sléttahrauni 15 í Hafnar- firði og bjó þar þangað til börnin uxu úr grasi og barnabörnin fóru að koma í heiminn. Ester kynntist eiginmanni sínum Ívari Hrein- berg Jónssyni en þau giftust fljót- lega eftir sín kynni. Ívar lést á vo- veiflegan hátt aðeins fjórum mánuðum eftir brúðkaup þeirra og enn á ný tók við nokkuð krefj- andi tímabil í lífi Esterar. Barna- börnin voru ljósið í lífi hennar og þau sóttu mikið í að vera hjá ömmu sinni á Sléttahrauninu enda var hún dugleg að sinna þeim og passa þegar á þurfti að halda. Það birtir svo meira til í lífi Est- erar þegar hún tekur saman við eftirlifandi eiginmann sinn Agnar en þau höfðu þó þekkst lengi sem vinir en þau byrja að búa saman 1984 og giftast árið 2002 þann 4. október. Þetta var góður tími í lífi Esterar, þau ferðuðust mikið saman á Íslandi, fóru títt í útileg- ur, veiðitúra og Agnar var dugleg- ur að þeytast með tjaldvagninn um allar koppagrundir. Ester og Agnar flytja svo á Krosseyrarveg- inn í Hafnarfirði og lífið heldur áfram, barnabarnabörnunum fjölgar og fjölskylduhópurinn verður æ stærri með hverju árinu sem líður. Alla tíð sinntu þau fjölskyld- unni vel og gættu vel að því að allir fengju sína verðskulduðu athygli og ást. Ester var dugleg og metn- aðargjörn húsmóðir sem lét sig ekki muna um að henda í eina al- vöru hnallþóru og brauðtertu. Þegar heilsu Agnars fer að hraka fær hann inni á Sólvangi þar sem hann fær umönnun í takt við sínar þarfir. Ester var alltaf ern þó svo líkamleg heilsa væri ekki góð og svo fór að Ester fékk loksins sitt langþráða pláss á Sólvangi fyrir aðeins fjórum mánuðum en hún átti þar engu að síður afskaplega góðan tíma og naut þess að vera komin heim á Sólvang aftur þar sem hún gat hitt Agnar sinn hvern einasta dag fram á sitt síðasta. Blessuð sé minning þín, elsku Ester. Þinn tengdasonur, Þorsteinn. Elsku amma mín, ég á erfitt með að ímynda mér lífið án þín. Þú ert með í öllum mínum æskuminn- ingum, enda bjuggum við saman þangað til ég var að verða þriggja ára og tengdi það okkur sérstak- lega. Ég man eftir okkur á Slétta- hrauninu, ég gisti oft hjá ykkur afa, man eftir lyktinni á baðher- berginu, ostasamlokunni, kjöl- farsinu með hvítkálinu og ómót- stæðilegu súkkulaðitertunni með bananakreminu. Þegar ég var átta ára fóruð þið með mig í mína fyrstu utanlandsferð. Við fórum til Benidorm á Spáni með Arnar- flugi og ég man að ég var stjörf af hræðslu alla leiðina og skildi ekki að hægt væri að ganga um í vél- inni án þess að botninn færi und- an. Á Spáni áttum við yndislegan tíma saman og var ekkert sparað á tívolítúrana eða ævintýraferð- irnar. Þegar bræður mínir þrír fæddust man ég eftir að hafa verið hjá þér, þú varst alltaf svo stór hluti af lífi mínu. Þegar við fjöl- skyldan fluttum til Danmerkur 1991 var ég 11 ára og þá fannst mér einna erfiðasta að fara frá þér. Ég íhugaði meira að segja að fá að búa hjá þér en ég var líka mikil mömmustelpa og ég gat ekki verið án fjölskyldunnar minnar. Við skrifuðumst mikið á og ég man að ég hljóp heim úr skólanum til þess að lesa bréfin þín. Þegar ég kom heim til Íslands á sumrin þá bjó ég hjá ykkur. Ég man sér- staklega hvað ég hló mikið að þér þegar þú talaðir í síma við mömmu sem var í Danmörku, þú talaðir svo hátt að afi heyrði til þín niður í bíl þó þú værir uppi á þriðju hæð, það var eins og þér hefði fundist þú þurfa að tala hærra því hún var i öðru landi. Ég valdi svo að vera áfram í Dan- mörku þegar mamma og pabbi fóru heim en kom heim eins og ég gat og oft án þess að segja ykkur frá, bankaði bara upp á með mömmu og ykkur til stórrar undr- unar í hvert skipti. Þetta fannst mér ótrúlega skemmtilegt. Ég sá alltaf gleðina og ástina í augunum þínum og þú elskaðir okkur mikið og lést okkur öll vita af því. Það er ótrúlega mikils virði í dag. Ég er þakklát fyrir að ég fékk að eiga þig að öll þessi ár og þú fékkst að upplifa börnin mín fjögur sem þú elskaðir líka heitt. Og þú varst óskaplega stolt af þeim öllum, þú gast talað um þau klukkutímum saman. Ég er þakklát fyrir að hafa verið svona náin þér, en við töl- uðum þá mikið saman í síma og þá hafðir þú alltaf tíma til að hlusta á ruglið í mér en varst samt alltaf hreinskilin á þinn hátt. Ég er þakklát fyrir að hafa knúsað þig mörgum sinnum í sumar og að Isabella Lilja fékk að kynnast þér en hún mun muna eftir þér, ég mun sjá til þess. Elsku amma, við eigum svo margar minningar um þig, margar svo skemmtilegar enda varstu alveg bráðfyndin, kannski ekki alltaf að eigin vali en við elskuðum þig fyrir það. Það verður alltaf talað um þig þegar við stelpurnar hittumst í frænku- hitting. Þess á milli mun ég hugsa til þín, bera þig í hjarta mínu og vera þakklát fyrir að þú fékkst að fara áður en þú þurftir að þjást allt of mikið. Ég veit að þetta er gangur lífsins en ég var ekki tilbú- in en held að þú hafir kannski ver- ið það. Þú náðir að hitta og kveðja svo marga þetta sumar, jafnvel af- komendur sem komu langt að og einn þeirra fór frá landinu daginn áður en þú kvaddir. Mér finnst það falleg hugsun um þína síðustu daga og ég vel að trúa að þú hafir verið tilbúin, það gerir þetta að- eins auðveldara. Ég gleymi þér aldrei, elsku amma mín. Þín dótturdóttir, Oddbjörg Lilja (Bogga). Elsku yndislega amma mín, að hafa þig í lífi mínu í 43 ár voru for- réttindi. Við vorum svo góðar vin- konur og upplifðum svo margar yndislegar stundir saman. Þegar þú bjóst á Sléttahrauninu var ekk- ert skemmtilegra en að fá að gista hjá ömmu. Ég man þegar þú kynntist afa og þið sóttuð mig þegar ég var að koma og gista, ég var sko alls ekkert ánægð með þennan mann sem var að koma og vera með okkur, vildi ekki deila athyglinni með honum. En þessi maður ávann sér fljótlega titilinn afi! Það sem hann gerði þig ham- ingjusama. Þegar hann var að keyra leigubílinn um helgar, þá eyddi ég kvöldstundum með þér um helgar þar sem við horfðum á Bingó, Lottó, þætti og bíómyndir. Alltaf með súkkulaðirúsínur á milli okkar. Við vorum trúnaðar- vinkonur og töluðum svo mikið saman þessi dýrmætu kvöld. Þú skilur eftir þig margar ynd- islegar minningar. Ég mun aldrei gleyma þegar ég fór með þér og afa til Ítalíu. Það sem þið gerðuð til að gera ferðina ógleymanlega fyrir mig. Óteljandi ferðir í búð til að kaupa ís, Kinder-egg og ferðir í sundlaugina. Alltaf þegar við komum í heimsókn var eitthvað á boðstólum. Þú stóðst gjarnan við eldavélina að baka pönnukökur og búin að smyrja eitthvað gott. Ógleymanlegt var þegar ég átti heima í Danmörku og þú tókst upp á vídeóspólur efni og sendir okkur út. Pakkarnir frá þér voru langskemmtilegastir og mest spennandi. Við eigum líka svo margar góðar minningar frá öll- um útilegunum, veiðiferðunum. Sérstaklega upp á Haukadals- vatn. Þér fannst svo gaman að púsla og áttum við góðar stundir við að spjalla og púsla á stóra borðstofuborðinu þínu. Einnig þegar þú hugsaðir svo vel um mig eftir hálskirtlatökuna. Ég varð svo veik en þú bjóst til hafragraut- arseyðið og passaðir upp á að ég fengi einhverja næringu. Ég nefndi það oft við þig hvað ég var þakklát þér. Þú varst best! Þú varst óendanlega stolt af börnunum þínum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Þú gerðir svo margt fyrir okkur. Þú hafðir svo gaman af að segja okkur hvað allir væru að gera hverju sinni. Þú varst svo ánægð þegar ég eign- aðist Heklu Mjöll og varst svo montin yfir því að þú hétir Ester, ég væri nafna þín Ester og að dóttir mín væri Esterardóttir. Seinustu árin þín voru mjög erfið vegna mikilla veikinda. Þeg- ar þú loksins komst inn á Sólvang, þá geislaði af þér gleðin. Loksins varstu komin nær afa og gast hitt hann daglega. Ég er svo þakklát fyrir þetta sumar. Við fengum að halda upp á 80 ára afmæli þitt oft- ar en einu sinni, fórum í Fanneyj- arlund og í Fly Over Iceland. Þér fannst þetta allt svo yndislegt og mikil upplifun. Núna ertu búin að sameinast Fanneyju systur þinni sem þú hefur saknað svo mikið. En sárs- aukinn og söknuðurinn er mikill fyrir okkur sem eftir erum. Ég lofa að tala mikið um þig við Heklu Mjöll þannig að minningin um þig lifi áfram. Ég passa líka upp á afa fyrir þig og heimsæki hann oft. Þú lofaðir líka að ætla að fylgjast með okkur þegar þú vær- ir farin og ég treysti á það, elsku amma mín. Þín Ester Björg. Elsku amma mín, amma Habbó eins og ég kallaði þig alltaf. Það eru ótalmargar fallegar minning- ar sem koma upp í huga minn þeg- ar ég hugsa til baka um þann tíma sem við áttum saman. Það var allt- af gott að koma til ykkar afa á Sléttahraunið, hvort sem það var að sitja öll saman við eldhúskrók- inn og fylgjast með þér í eldhúsinu að útbúa einhverjar kræsingar, þegar við hittumst öll og bjuggum til slátur eða þegar við mættum í flottu veislurnar þínar eða seinna þar sem ég kom til ykkar og svo þín í kaffibolla í litla sæta húsið. Útilegurnar við Haukadalsvatn voru líka skemmtilegar. Ferð sem við fjölskyldan fórum með ykkur í á hverju ári þrátt fyrir litla sem enga veiði. Þú elskaðir að vera í kringum fjölskylduna þína, það voru alltaf allir velkomnir til þín. Þú elskaðir heitt, þú varst stolt af okkur öllum og montaðir þig af okkur. Þú varst alltaf hrein og bein og sagðir ná- kvæmlega það sem þú varst að hugsa, sem var skemmtilegt en gat líka stundum komið þér í vandræði. Þú varst loksins komin inn á Sólvang, þar leið þér vel og þar áttir þú heima, aftur undir sama þaki og afi. Þú blómstraðir þar síðustu mánuði og það var dásam- legt að fylgjast með því. Það er sárt að hugsa til þess að þú hafir ekki fengið lengri tíma þar og með okkur öllum en ég veit í hjarta mínu að þú ert komin á góðan stað og vakir yfir okkur. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún á. (Ómar Ragnarsson) Ég elska þig, amma mín. Þín, Lilja. Ef ég loka augunum þá heyri ég þig söngla með lagi sem aðeins þú þekkir. Þú stendur í eldhúsinu að baka og ég hlusta á sönglið. Þetta er svo notalegt og ég finn ilminn af vöfflunum. Þú snýrð þér að mér og brosir til mín og setur svo næstu vöfflu í járnið. Þú elsk- aðir að baka fyrir barnabörnin þín og vildir helst hafa okkur alltaf hjá þér. Ég á ótal minningar með þér og matur tengist flestum þeirra. Þú sást til þess að ég borðaði nóg og lagðir þig fram við að búa til allt það sem mér fannst svo gott að borða. Elsku amma, hvernig má það vera að þú hafir ekki lifað að eilífu. Í sorginni minni er ég lítil stelpa sem saknar ömmu sinnar. Mig langar bara til að heyra söng- lið aftur og finna vöffluilminn. Mig langar til að heyra sögurnar þínar þó þær væru oft á tíðum rauna- sögur því ég sá alltaf bara sterka konu sem barðist fyrir börnunum sínum. Þú sagðir einu sinni við mig að þig langaði ekki til að deyja því þá myndir þú missa af því af fylgjast með afkomendum þínum. Ég sagði þá við þig að þú þyrftir engar áhyggjur að hafa því þú myndir ekki missa af neinu því þú yrðir verndarengillinn okkar og myndir fylgjast með hverju spori. Þú horfðir á mig og það kom léttir yfir þig og þú sagðir: „Já, ég verð verndarengillinn ykkar. Það er það sem ég vil.“ Þú elskaðir alla afkomendur þína af öllu hjarta og varst svo stolt af okkur öllum. Enda var það mikil raun fyrir þig að ala ein upp þrjú börn í sam- félagi þar sem einstæðar mæður fengu lítinn sem engan stuðning. Þú varst stolt af því hvað börnin þín eru flottir einstaklingar og þú máttir alveg vera það. Það eru svo margar minningar sem streyma fram þessa dagana. Margt sem ég hafði ekki hugsað um í mörg ár. Ég var búin að gleyma að þú kenndir mér að naglalakka mig og setja á mig varalit. Ég man hvað mér fannst það æðislega gaman og hlakkaði til að koma til þín til að laga negl- urnar og setja á mig smá varalit. Þú varst alltaf svo fín og vel til- höfð. Ég á ennþá nokkra fallega kjóla sem þú gafst mér frá því að þú varst ung kona. Það leyndi sér ekki hversu góðan fatasmekk þú varst með á þeim tíma. Ég man svo vel stundirnar okkar saman að púsla. Þú varst með risapúsl og ég hlakkaði alltaf til að koma og hjálpa þér. Á jólunum breyttir þú íbúðinni þinni í lítið jólaland og ég á ótal minningar af áramótunum hjá þér. Allar þessar minningar sem sækja á mig núna þegar þú ert farin, en þær verða ekki fleiri. Hvernig má það vera? Elsku amma, ég veit þú ert komin á betri stað. Ég veit að þú fylgist með og ert verndarengillinn okkar. Ég finn fyrir þér á hverjum degi. Ég veit að ég mun á endanum sætta mig við að minningarnar verði ekki fleiri, að þú sért ekki lengur hjá okkur og að ég geti ekki hringt í þig þegar ég er með fréttir sem ég veit að munu gleðja þig. Ömm- ur eru ekki eilífar þó þær ættu að vera það. Ég er þakklát fyrir það að þú varst amma mín. Þakka þér fyrir að hugsa alltaf vel um mig og passa upp á mig. Ég sakna þín, amma, alla daga. Þín Sandra. Ester Guðbjörg Haraldsdóttir Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.