Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 58
58 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
✝
Ester Guðbjörg
Haraldsdóttir
fæddist í Hafn-
arfirði 4. júlí 1941.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
vangi í Hafnarfirði
24. ágúst 2021. For-
eldrar hennar voru
Haraldur Agnar
Guðmundsson, f. 29.
júlí 1913, d. 6. maí
1989, og Halldóra
Sigríður Guðvarðardóttir, f. 16.
ágúst 1922, d. 27. ágúst 2008.
Alsystkini hennar eru: Fanney
Haraldsdóttir, f. 16. maí 1940, d.
11. des. 1992, Sigríður Kolbrún
Diego Haraldsdóttir, f. 27. ágúst
1942, d. 3. mars 2006, Bentína
Haraldsdóttir f. 29. sept. 1944, d.
24. des. 2018, Guðvarður Har-
aldsson, f. 2. ágúst 1949. Sam-
feðra bróðir er Jóhannes G. Har-
aldsson, f. 6. mars 1938.
Sammæðra systkini eru: Ómar
Örn Eysteinsson, f. 17. des. 1954,
d. 27. júlí 1997, Pétur Kúld Ey-
steinsson, f. 12. apríl 1958, d. 3.
júní 1997, og Hallfríður Hjördís
Eysteinsdóttir, f. 22. nóv. 1961.
Ester giftist Haraldi Hafsteini
Júlíussyni, f. 21. júní 1938, þau
skildu 1964. Dætur
þeirra tvær eru
Halldóra Sigríður,
f. 18. des. 1959, gift
Vali Sveinbjörns-
syni, f. 10.10. 1956,
börn þeirra eru Est-
er Björg, Sandra
Lind og Valur Þór;
Margrét, f. 28. mars
1962, gift Þorsteini
Þorsteinssyni, f.
14.10. 1966, börn
þeirra eru Oddbjörg Lilja, Þor-
steinn Halldór, Axel og Egill.
Barnsfaðir Esterar var Ásgeir
Sigurðsson, f. 19. nóv. 1927, d. 4.
mars 2009. Barn þeirra er Jó-
hann Smári, f. 2. jan. 1967, börn
hans eru Erlingur Ívar, Lilja Rut
og Elísa Rún.
Eiginmaður Esterar frá 20.
nóv. 1976 var Ívar Hreinberg
Jónsson, f. 18. nóv. 1941, d. 5.
mars 1977.
Eftirlifandi eiginmaður Ester-
ar er Agnar Þór Aðalsteinsson, f.
29. ágúst 1938, en þau hófu sam-
an búskap árið 1984 og giftust
4.10. 2002.
Barnabarnabörn Esterar eru
15 talsins.
Úrförin fór fram í kyrrþey.
Elsku mamma, það er erfitt að
kveðja, svo ólýsanlega erfitt að
skrifa þessi orð og það er stórt
tómarúm í hjarta mínu eftir að þú
kvaddir þennan heim. Þú sem
varst alltaf mín stoð og stytta
þrátt fyrir að þú stæðir alltaf ein í
foreldrahlutverkinu. Þú varst líka
dásamleg amma og langamma
sem börnin mín gátu alltaf leitað
til og treyst. Þú stóðst þig vel í öll-
um þessum hlutverkum og gerðir
það af miklu stolti.
Þú stóðst þig alltaf eins og
hetja þrátt fyrir að þú lentir í svo
mörgum áföllum í leit að ham-
ingju og betra lífi. Ég man þegar
þú sagðir okkur frá því að í þínum
uppvexti hefðuð þið systkinin
þurft að upplifa ákveðna mismun-
un í ykkar uppeldi. Síðar í lífinu
þurftir þú horfa upp á okkur
systrunum vera hafnað af okkar
eigin föður og fara á þannig á mis
við það að alast upp með báðum
foreldrum. Það var þér eðlilega
mjög erfitt en þú reyndir samt að
vera okkur í senn móðir og faðir.
Þú sagðir svo oft að það ætti eng-
inn að þurfa að finna þann sárs-
auka í hjarta sínu að vera hafnað.
En þrátt fyrir þessa staðreynd þá
verndaðir þú alltaf þá föðurímynd
sem við höfðum og lést aldrei
styggðaryrði falla.
Það var alltaf svo yndislegt að
heyra þig tala um ríkidæmi þitt
þegar barnabörnin fæddust og
síðar barnabarnabörnin. Hver
einasti afkomandi þinn var krafta-
verk í augum þínum. Það var þér
mjög mikilvægt að allir þínir
fengju jafn mikla athygli og ást.
Ég veit að þú fórst með bænir þín-
ar alla daga bæði kvölds og
morgna, þú varst guði þínum
þakklát fyrir gjafirnar sem hann
færði þér.
Árið 1984 fannstu svo hamingj-
una sem var samt búin að standa
fyrir framan þig í mjög mörg ár
þegar þið Agnar fóruð að vera
saman. Það var vart hægt að finna
betri mann en Agnar sem bjó yfir
einstakri manngæsku og ást, sem
tók öllum þínum afkomendum
sem sínum eigin á svo aðdáunar-
verðan hátt. Tengslin sem þá
mynduðust munu aldrei slitna
enda elska börnin okkar hann sem
afa sinn sem hann svo sannarlega
reyndist þeim. Þið áttuð einstak-
lega vel saman og þó svo samband
ykkar hafi ekki verið laust erfið-
leika þá áttuð þið virkilega góðan
tíma saman og nutuð lífsins.
Það var því mjög erfitt fyrir þig
þegar Agnar fór á Sólvang og þú
varst oft döpur yfir stöðunni en í
leiðinni líka létt, því þú vissir að
þar fengi hann bestu aðhlynningu
sem völ væri á. Þú varst svo mjög
dugleg að heimsækja hann eða
eins oft og þín heilsa leyfði og þið
hringduð mikið hvort í annað eftir
að Covid skall á. Heilsu þinni
hrakaði hratt núna seinustu daga í
þínu lífi og ekkert gat búið mig
undir að þurfa að kveðja þig og
hafa þig ekki lengur hjá mér.
Sama hversu djúpt ég sökkvi mér
í góðu minningarnar þá þarf ég að
horfast í augu við þá staðreynd og
lifa með það að þú sért farin frá
mér.
Ég sagði svo oft við þig að þrátt
fyrir erfiðleika þína, þröngan kost
og að þú gast ekki veitt okkur
hluti sem önnur börn fengu þegar
ég var að alast upp, þá átti ég
samt dásamlega æsku og á ynd-
islegar minningar tengdar henni.
Ég veit að það var af því að þú
varst mamma mín, þú varst alltaf
til staðar og þú fórst ekki frá mér
og það öryggi sem þú veittir mér
varð til þess að ég upplifði mig
sem mjög hamingjusamt barn. Þú
lagðir mikið á þig við að halda
okkur saman og kenna okkur lífs-
ins gildi. Fyrir það, elsku mamma
mín, er ég þér svo endalaust þakk-
lát.
Þú lifir í hjarta mínu að eilífu.
Þín dóttir,
Margrét.
Nú er hún tengdamóðir mín öll
en hún fékk að kveðja þessa jarð-
nesku tilveru sína í faðmi fjöl-
skyldu sinnar á hjúkrunarheim-
ilinu Sólvangi í Hafnarfirði þar
sem hún bjó síðustu mánuði ævi
sinnar. Það var í raun ákveðin
blessun yfir því að hún Ester fékk
að kveðja á Sólvangi enda var hún
komin aftur þangað sem hún undi
sér alltaf vel, hennar gamla vinnu-
stað og í raun hennar fyrra heimili
því hún bjó á starfsmannavistinni
sem ung stúlka á sínum fyrstu
starfsárum.
Ester kynnist eiginmanni sín-
um Haraldi Hafsteini og eignaðist
með honum tvær dætur, Halldóru
Sigríði og Margréti, en þau skildu
tveimur árum eftir að Margrét
fæddist. Við tók krefjandi tímabil
fyrir unga einstæða og efnalitla
móður sem þurfti nú að vinna eins
mikið og hún gat til þess að standa
undir húsleigunni og nauðsynjum
fyrir sig og tvær ungar dætur sín-
ar. Ester var dugleg og gaf ekkert
eftir, passaði vel upp á dætur sín-
ar og sá til þess að þær hefðu það
sem til þurfti þó svo það væri ekki
mikið umfram það enda þröngt í
búi. Ester vann nánast alla sína
starfstíð á Sólvangi en inn á milli
var gripið í vertíðarvinnu, bæði í
hvalverkun, loðnu og síld þegar
það gafst og vænkaðist þá jafnan
hagur heimilisins um stund. Ester
eignast síðar son sinn Jóhann
Smára með barnsföður sínum Ás-
geiri Sigurðssyni en kynni þeirra
voru stutt og Ester var nú einstæð
þriggja barna móðir og þurfti að
sjá fyrir sér og sínum börnum á
eigin spýtur. Það hindraði Ester
þó ekki í að koma sér upp fallegu
heimili en hún keypti sína fyrst
íbúð að Sléttahrauni 15 í Hafnar-
firði og bjó þar þangað til börnin
uxu úr grasi og barnabörnin fóru
að koma í heiminn. Ester kynntist
eiginmanni sínum Ívari Hrein-
berg Jónssyni en þau giftust fljót-
lega eftir sín kynni. Ívar lést á vo-
veiflegan hátt aðeins fjórum
mánuðum eftir brúðkaup þeirra
og enn á ný tók við nokkuð krefj-
andi tímabil í lífi Esterar. Barna-
börnin voru ljósið í lífi hennar og
þau sóttu mikið í að vera hjá
ömmu sinni á Sléttahrauninu
enda var hún dugleg að sinna
þeim og passa þegar á þurfti að
halda.
Það birtir svo meira til í lífi Est-
erar þegar hún tekur saman við
eftirlifandi eiginmann sinn Agnar
en þau höfðu þó þekkst lengi sem
vinir en þau byrja að búa saman
1984 og giftast árið 2002 þann 4.
október. Þetta var góður tími í lífi
Esterar, þau ferðuðust mikið
saman á Íslandi, fóru títt í útileg-
ur, veiðitúra og Agnar var dugleg-
ur að þeytast með tjaldvagninn
um allar koppagrundir. Ester og
Agnar flytja svo á Krosseyrarveg-
inn í Hafnarfirði og lífið heldur
áfram, barnabarnabörnunum
fjölgar og fjölskylduhópurinn
verður æ stærri með hverju árinu
sem líður.
Alla tíð sinntu þau fjölskyld-
unni vel og gættu vel að því að allir
fengju sína verðskulduðu athygli
og ást. Ester var dugleg og metn-
aðargjörn húsmóðir sem lét sig
ekki muna um að henda í eina al-
vöru hnallþóru og brauðtertu.
Þegar heilsu Agnars fer að hraka
fær hann inni á Sólvangi þar sem
hann fær umönnun í takt við sínar
þarfir. Ester var alltaf ern þó svo
líkamleg heilsa væri ekki góð og
svo fór að Ester fékk loksins sitt
langþráða pláss á Sólvangi fyrir
aðeins fjórum mánuðum en hún
átti þar engu að síður afskaplega
góðan tíma og naut þess að vera
komin heim á Sólvang aftur þar
sem hún gat hitt Agnar sinn hvern
einasta dag fram á sitt síðasta.
Blessuð sé minning þín, elsku
Ester. Þinn tengdasonur,
Þorsteinn.
Elsku amma mín, ég á erfitt
með að ímynda mér lífið án þín. Þú
ert með í öllum mínum æskuminn-
ingum, enda bjuggum við saman
þangað til ég var að verða þriggja
ára og tengdi það okkur sérstak-
lega. Ég man eftir okkur á Slétta-
hrauninu, ég gisti oft hjá ykkur
afa, man eftir lyktinni á baðher-
berginu, ostasamlokunni, kjöl-
farsinu með hvítkálinu og ómót-
stæðilegu súkkulaðitertunni með
bananakreminu. Þegar ég var
átta ára fóruð þið með mig í mína
fyrstu utanlandsferð. Við fórum
til Benidorm á Spáni með Arnar-
flugi og ég man að ég var stjörf af
hræðslu alla leiðina og skildi ekki
að hægt væri að ganga um í vél-
inni án þess að botninn færi und-
an. Á Spáni áttum við yndislegan
tíma saman og var ekkert sparað
á tívolítúrana eða ævintýraferð-
irnar. Þegar bræður mínir þrír
fæddust man ég eftir að hafa verið
hjá þér, þú varst alltaf svo stór
hluti af lífi mínu. Þegar við fjöl-
skyldan fluttum til Danmerkur
1991 var ég 11 ára og þá fannst
mér einna erfiðasta að fara frá
þér. Ég íhugaði meira að segja að
fá að búa hjá þér en ég var líka
mikil mömmustelpa og ég gat ekki
verið án fjölskyldunnar minnar.
Við skrifuðumst mikið á og ég
man að ég hljóp heim úr skólanum
til þess að lesa bréfin þín. Þegar
ég kom heim til Íslands á sumrin
þá bjó ég hjá ykkur. Ég man sér-
staklega hvað ég hló mikið að þér
þegar þú talaðir í síma við
mömmu sem var í Danmörku, þú
talaðir svo hátt að afi heyrði til þín
niður í bíl þó þú værir uppi á
þriðju hæð, það var eins og þér
hefði fundist þú þurfa að tala
hærra því hún var i öðru landi. Ég
valdi svo að vera áfram í Dan-
mörku þegar mamma og pabbi
fóru heim en kom heim eins og ég
gat og oft án þess að segja ykkur
frá, bankaði bara upp á með
mömmu og ykkur til stórrar undr-
unar í hvert skipti. Þetta fannst
mér ótrúlega skemmtilegt. Ég sá
alltaf gleðina og ástina í augunum
þínum og þú elskaðir okkur mikið
og lést okkur öll vita af því. Það er
ótrúlega mikils virði í dag. Ég er
þakklát fyrir að ég fékk að eiga
þig að öll þessi ár og þú fékkst að
upplifa börnin mín fjögur sem þú
elskaðir líka heitt. Og þú varst
óskaplega stolt af þeim öllum, þú
gast talað um þau klukkutímum
saman. Ég er þakklát fyrir að hafa
verið svona náin þér, en við töl-
uðum þá mikið saman í síma og þá
hafðir þú alltaf tíma til að hlusta á
ruglið í mér en varst samt alltaf
hreinskilin á þinn hátt. Ég er
þakklát fyrir að hafa knúsað þig
mörgum sinnum í sumar og að
Isabella Lilja fékk að kynnast þér
en hún mun muna eftir þér, ég
mun sjá til þess. Elsku amma, við
eigum svo margar minningar um
þig, margar svo skemmtilegar
enda varstu alveg bráðfyndin,
kannski ekki alltaf að eigin vali en
við elskuðum þig fyrir það. Það
verður alltaf talað um þig þegar
við stelpurnar hittumst í frænku-
hitting. Þess á milli mun ég hugsa
til þín, bera þig í hjarta mínu og
vera þakklát fyrir að þú fékkst að
fara áður en þú þurftir að þjást
allt of mikið. Ég veit að þetta er
gangur lífsins en ég var ekki tilbú-
in en held að þú hafir kannski ver-
ið það. Þú náðir að hitta og kveðja
svo marga þetta sumar, jafnvel af-
komendur sem komu langt að og
einn þeirra fór frá landinu daginn
áður en þú kvaddir. Mér finnst
það falleg hugsun um þína síðustu
daga og ég vel að trúa að þú hafir
verið tilbúin, það gerir þetta að-
eins auðveldara. Ég gleymi þér
aldrei, elsku amma mín.
Þín dótturdóttir,
Oddbjörg Lilja
(Bogga).
Elsku yndislega amma mín, að
hafa þig í lífi mínu í 43 ár voru for-
réttindi. Við vorum svo góðar vin-
konur og upplifðum svo margar
yndislegar stundir saman. Þegar
þú bjóst á Sléttahrauninu var ekk-
ert skemmtilegra en að fá að gista
hjá ömmu. Ég man þegar þú
kynntist afa og þið sóttuð mig
þegar ég var að koma og gista, ég
var sko alls ekkert ánægð með
þennan mann sem var að koma og
vera með okkur, vildi ekki deila
athyglinni með honum. En þessi
maður ávann sér fljótlega titilinn
afi! Það sem hann gerði þig ham-
ingjusama. Þegar hann var að
keyra leigubílinn um helgar, þá
eyddi ég kvöldstundum með þér
um helgar þar sem við horfðum á
Bingó, Lottó, þætti og bíómyndir.
Alltaf með súkkulaðirúsínur á
milli okkar. Við vorum trúnaðar-
vinkonur og töluðum svo mikið
saman þessi dýrmætu kvöld.
Þú skilur eftir þig margar ynd-
islegar minningar. Ég mun aldrei
gleyma þegar ég fór með þér og
afa til Ítalíu. Það sem þið gerðuð
til að gera ferðina ógleymanlega
fyrir mig. Óteljandi ferðir í búð til
að kaupa ís, Kinder-egg og ferðir í
sundlaugina. Alltaf þegar við
komum í heimsókn var eitthvað á
boðstólum. Þú stóðst gjarnan við
eldavélina að baka pönnukökur og
búin að smyrja eitthvað gott.
Ógleymanlegt var þegar ég átti
heima í Danmörku og þú tókst
upp á vídeóspólur efni og sendir
okkur út. Pakkarnir frá þér voru
langskemmtilegastir og mest
spennandi. Við eigum líka svo
margar góðar minningar frá öll-
um útilegunum, veiðiferðunum.
Sérstaklega upp á Haukadals-
vatn. Þér fannst svo gaman að
púsla og áttum við góðar stundir
við að spjalla og púsla á stóra
borðstofuborðinu þínu. Einnig
þegar þú hugsaðir svo vel um mig
eftir hálskirtlatökuna. Ég varð
svo veik en þú bjóst til hafragraut-
arseyðið og passaðir upp á að ég
fengi einhverja næringu. Ég
nefndi það oft við þig hvað ég var
þakklát þér. Þú varst best!
Þú varst óendanlega stolt af
börnunum þínum, barnabörnum
og barnabarnabörnum. Þú gerðir
svo margt fyrir okkur. Þú hafðir
svo gaman af að segja okkur hvað
allir væru að gera hverju sinni. Þú
varst svo ánægð þegar ég eign-
aðist Heklu Mjöll og varst svo
montin yfir því að þú hétir Ester,
ég væri nafna þín Ester og að
dóttir mín væri Esterardóttir.
Seinustu árin þín voru mjög
erfið vegna mikilla veikinda. Þeg-
ar þú loksins komst inn á Sólvang,
þá geislaði af þér gleðin. Loksins
varstu komin nær afa og gast hitt
hann daglega. Ég er svo þakklát
fyrir þetta sumar. Við fengum að
halda upp á 80 ára afmæli þitt oft-
ar en einu sinni, fórum í Fanneyj-
arlund og í Fly Over Iceland. Þér
fannst þetta allt svo yndislegt og
mikil upplifun.
Núna ertu búin að sameinast
Fanneyju systur þinni sem þú
hefur saknað svo mikið. En sárs-
aukinn og söknuðurinn er mikill
fyrir okkur sem eftir erum. Ég
lofa að tala mikið um þig við
Heklu Mjöll þannig að minningin
um þig lifi áfram. Ég passa líka
upp á afa fyrir þig og heimsæki
hann oft. Þú lofaðir líka að ætla að
fylgjast með okkur þegar þú vær-
ir farin og ég treysti á það, elsku
amma mín.
Þín
Ester Björg.
Elsku amma mín, amma Habbó
eins og ég kallaði þig alltaf. Það
eru ótalmargar fallegar minning-
ar sem koma upp í huga minn þeg-
ar ég hugsa til baka um þann tíma
sem við áttum saman. Það var allt-
af gott að koma til ykkar afa á
Sléttahraunið, hvort sem það var
að sitja öll saman við eldhúskrók-
inn og fylgjast með þér í eldhúsinu
að útbúa einhverjar kræsingar,
þegar við hittumst öll og bjuggum
til slátur eða þegar við mættum í
flottu veislurnar þínar eða seinna
þar sem ég kom til ykkar og svo
þín í kaffibolla í litla sæta húsið.
Útilegurnar við Haukadalsvatn
voru líka skemmtilegar. Ferð sem
við fjölskyldan fórum með ykkur í
á hverju ári þrátt fyrir litla sem
enga veiði.
Þú elskaðir að vera í kringum
fjölskylduna þína, það voru alltaf
allir velkomnir til þín. Þú elskaðir
heitt, þú varst stolt af okkur öllum
og montaðir þig af okkur. Þú varst
alltaf hrein og bein og sagðir ná-
kvæmlega það sem þú varst að
hugsa, sem var skemmtilegt en
gat líka stundum komið þér í
vandræði.
Þú varst loksins komin inn á
Sólvang, þar leið þér vel og þar
áttir þú heima, aftur undir sama
þaki og afi. Þú blómstraðir þar
síðustu mánuði og það var dásam-
legt að fylgjast með því. Það er
sárt að hugsa til þess að þú hafir
ekki fengið lengri tíma þar og með
okkur öllum en ég veit í hjarta
mínu að þú ert komin á góðan stað
og vakir yfir okkur.
Hún þraukaði hallæri, hungur og fár.
Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár.
Hún enn í dag fórna sér endalaust má.
Hún er íslenska konan, sem gefur þér
allt sem hún á.
(Ómar Ragnarsson)
Ég elska þig, amma mín.
Þín,
Lilja.
Ef ég loka augunum þá heyri
ég þig söngla með lagi sem aðeins
þú þekkir. Þú stendur í eldhúsinu
að baka og ég hlusta á sönglið.
Þetta er svo notalegt og ég finn
ilminn af vöfflunum. Þú snýrð þér
að mér og brosir til mín og setur
svo næstu vöfflu í járnið. Þú elsk-
aðir að baka fyrir barnabörnin þín
og vildir helst hafa okkur alltaf hjá
þér. Ég á ótal minningar með þér
og matur tengist flestum þeirra.
Þú sást til þess að ég borðaði nóg
og lagðir þig fram við að búa til
allt það sem mér fannst svo gott
að borða. Elsku amma, hvernig
má það vera að þú hafir ekki lifað
að eilífu. Í sorginni minni er ég lítil
stelpa sem saknar ömmu sinnar.
Mig langar bara til að heyra söng-
lið aftur og finna vöffluilminn. Mig
langar til að heyra sögurnar þínar
þó þær væru oft á tíðum rauna-
sögur því ég sá alltaf bara sterka
konu sem barðist fyrir börnunum
sínum. Þú sagðir einu sinni við
mig að þig langaði ekki til að deyja
því þá myndir þú missa af því af
fylgjast með afkomendum þínum.
Ég sagði þá við þig að þú þyrftir
engar áhyggjur að hafa því þú
myndir ekki missa af neinu því þú
yrðir verndarengillinn okkar og
myndir fylgjast með hverju spori.
Þú horfðir á mig og það kom léttir
yfir þig og þú sagðir: „Já, ég verð
verndarengillinn ykkar. Það er
það sem ég vil.“ Þú elskaðir alla
afkomendur þína af öllu hjarta og
varst svo stolt af okkur öllum.
Enda var það mikil raun fyrir þig
að ala ein upp þrjú börn í sam-
félagi þar sem einstæðar mæður
fengu lítinn sem engan stuðning.
Þú varst stolt af því hvað börnin
þín eru flottir einstaklingar og þú
máttir alveg vera það.
Það eru svo margar minningar
sem streyma fram þessa dagana.
Margt sem ég hafði ekki hugsað
um í mörg ár. Ég var búin að
gleyma að þú kenndir mér að
naglalakka mig og setja á mig
varalit. Ég man hvað mér fannst
það æðislega gaman og hlakkaði
til að koma til þín til að laga negl-
urnar og setja á mig smá varalit.
Þú varst alltaf svo fín og vel til-
höfð. Ég á ennþá nokkra fallega
kjóla sem þú gafst mér frá því að
þú varst ung kona. Það leyndi sér
ekki hversu góðan fatasmekk þú
varst með á þeim tíma. Ég man
svo vel stundirnar okkar saman að
púsla. Þú varst með risapúsl og ég
hlakkaði alltaf til að koma og
hjálpa þér. Á jólunum breyttir þú
íbúðinni þinni í lítið jólaland og ég
á ótal minningar af áramótunum
hjá þér. Allar þessar minningar
sem sækja á mig núna þegar þú
ert farin, en þær verða ekki fleiri.
Hvernig má það vera? Elsku
amma, ég veit þú ert komin á betri
stað. Ég veit að þú fylgist með og
ert verndarengillinn okkar. Ég
finn fyrir þér á hverjum degi. Ég
veit að ég mun á endanum sætta
mig við að minningarnar verði
ekki fleiri, að þú sért ekki lengur
hjá okkur og að ég geti ekki hringt
í þig þegar ég er með fréttir sem
ég veit að munu gleðja þig. Ömm-
ur eru ekki eilífar þó þær ættu að
vera það. Ég er þakklát fyrir það
að þú varst amma mín. Þakka þér
fyrir að hugsa alltaf vel um mig og
passa upp á mig. Ég sakna þín,
amma, alla daga.
Þín
Sandra.
Ester Guðbjörg
Haraldsdóttir
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744