Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra „ÉG NOTA YFIRLEITT HEIMABANKANN.“ „ÉG ÞARF FJÓRA LÍTRA Í VIÐBÓT AF LOFTAMÁLNINGUNNI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að kyssast út í eitt. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG STEMMDI AF ÁVÍSANAHEFTIÐ RYKSUGAÐI HÚSIÐ OG TÓK TIL Í FORSTOFU- SKÁPNUM ÞETTA VAR LAAAANGT AUGLÝSINGA- HLÉ ÉG KOMST EKKI HJÁ ÞVÍ AÐ SJÁ GRÓSKUMIKLA, ELDRAUÐA HÁRBRÚSKINN … HA, HA! HVAÐ GET ÉG SAGT? … Í NÖSUNUM Á ÞÉR! ÉG SEGI BARA BLESS! shiatsu-námið og kom fólk víða að. Þarna voru margir læknar og fólk úr heilbrigðisstéttum. Þaðan útskrif- aðist ég 2004 sem endaði með boði um mánaðar starfsnám í Beijing sem var mjög lærdómsríkt. Því má segja að mannslíkaminn hafi verið starfsvettvangur minn alla tíð. Helstu áhugamál Eyglóar eru sund, fjallgöngur, hjólaferðir, ýmis heilsurækt, útivera og ferðalög. Fjölskyldan Eiginmaður Eyglóar er Svein- björn Reynir Pálmason, f. 26.2. 1947. Þau hafa búið í Reykjavík allan sinn búskap, lengst af á Rauðalæk í 40 ár. Foreldrar Reynis eru hjónin Pálmi Pálsson, bóndi á Hjálmsstöðum í Laugardal, Árn., f. 6.6. 1911, d. 19.2. 1992, og Ragnheiður Sveinbjörns- dóttir, f. 17.7. 1916, d. 7.4. 2007, hús- freyja á Hjálmsstöðum. Börn Eyglóar og Reynis eru 1) Ingibjörg Reynisdóttir, f. 4.12. 1970, leikkona, rithöfundur og stuðnings- fulltrúi. Maki: Óskar Gunnarsson, f. 1969, byggingatæknifræðingur; 2) Eyjólfur Reynisson, f. 24.4. 1977, líf- fræðingur. Maki: Björg Norðfjörð, f. 1980, sálfræðingur; 3) Ragnheiður Helga Reynisdóttir, f. 25.6. 1980, ljósmóðir. Maki: Ingvi Rafn Haf- þórsson, f. 1980, tölvunarfræðingur. Barnabörn Eyglóar og Reynis eru ellefu og eitt langömmubarn er á leiðinni. Alsystkini Eyglóar eru Ólöf Jóna, f. 10.12. 1952, Jón Bergþór, f. 20.10. 1955, og Hugrún, f. 25.4. 1960. Hálf- bræður Eyglóar sammæðra: Viðar Þórhallsson, f. 28.5. 1936, dó af slys- förum í apríl 1948, og Kári Jak- obsson, f. 10.11. 1946. Foreldrar Eyglóar voru hjónin Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 12.1. 1915, d. 18.3. 2015, húsfreyja á Möðruvöllum í Kjós, og Þorgeir Jónsson, f. 12.8. 1921, d. 24.8. 1996, bóndi á Möðruvöllum í Kjós. Guðbjörg Eygló Þorgeirsdóttir Sigríður Árnadóttir húsfrú á Hafursá Gísli Jónsson bóndi á Hafursá í Skógum, S-Múl. Guðbjörg Gísladóttir ljósmóðir og húsfrú á Hámundarstöðum Sveinbjörn Sveinsson bóndi á Hámundarstöðum í Vopnafirði Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir húsfrú á Möðruvöllum María Guðmundsdóttir húsfrú á Selási Sveinn Stefánsson bóndi á Selási í Víðidal, V-Hún. Kristbjörg Sigurðardóttir húsfrú á Melum Jón Jónsson bóndi á Melum á Kjalarnesi Ólöf Jónsdóttir húsfrú á Möðruvöllum Jón Bergþór Guðmundsson bóndi á Möðruvöllum í Kjós Guðlaug Jónsdóttir húsfrú á Möðruvöllum Guðmundur Sigurðsson óðalsbóndi á Möðruvöllum í Kjós Úr frændgarði Eyglóar Þorgeirsdóttur Þorgeir Jónsson bóndi á Möðruvöllum í Kjós Ég hef verið að fletta Árbók Ferðafélagsins frá 2007, sem fjallar um Húnaþing eystra frá jökl- um til ystu stranda, og heldur Jón Torfason á penna. Það er skemmti- leg lesning og fróðleg. Þangað sæki ég efni þessa Vísnahorns. Þar segir frá Páli Bjarnasyni (d. 1838) klerki á Undirfelli. „Hann var fjörmaður mikill, klerkur góður og liðugt skáld, samanber þessar lipru stök- ur sem hann kvað við dótturdóttur sína, Guðrúnu Ólafsdóttur“: Guðrún litla fírugt fitlar, fjörið kitlar ört. Mikið skoppar hún og hoppar, háratoppa björt. Gamlan afa Guðrún skrafar viður, margt á góma mál þeim ber, mjög lærdómaríkt sem er. Þar segir, að Hannes Pálsson af Guðlaugsstaðaætt hafi lengi att kappi við Jón Pálmason á Akri um þingsæti sýslunnar en jafnan beðið lægri hlut. Eftir einar kosning- arnar var þetta ort: Stöðugt flykkjast fleiri menn Framsóknar á prikið en hundrað vantar Hannes enn, helvíti er það mikið. Enn segir, að burtfluttir Hún- vetningar hafi mjög stundað þá þraut að finna rímorð á móti „norð- an“ og „norður“, að ekki sé talað um að ríma á móti „Húnaþing“. Hér er dæmi eftir Ásgrím Kristinsson frumbýling í Ásbrekku: Græn eru túnin gripum stráð, glit á brúnu lyngi. Unaðsrún er ennþá skráð yfir Húnaþingi. Ólafur, sonur Sigfúsar bók- bindara Jónssonar í Forsæludal, drukknaði sviplega í Mjóavatni á Auðkúluheiði árið 1986. Hann orti að loknum fundi: Eg hef fundi átt í dag með ýta kindum alsjáandi á eigin hag en annars blindum. Þá er sagt frá því, að Sigríður Guðmundsdóttir, systir Skáld-Rósu, hafi búið skamma hríð á Geitabóli. – „Hún var eitthvað dauf í dálkinn eitt sinn þegar Rósa kom að heim- sækja hana og kvað“: Þeir sem reyna þankans meina greinir gera ekki að gamni sín geðs um bekki, systir mín. Rósa svaraði: Þrátt ég reyni þankans meina greinir, geri ég þó að gamni mín, svo gefist ró og sefjist pín. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stökur eftir ýmsa í Húnaþingi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.