Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 62

Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 62
62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 England Deildabikarinn, 3. umferð: Millwall – Leicester................................. 0:2 - Jón Daði Böðvarsson var ónotaður vara- maður hjá Millwall. Brighton – Swansea ................................. 2:0 Arsenal – Wimbledon............................... 3:0 Chelsea – Aston Villa ................. (1:1) 5:4 (v) Manchester United – West Ham............ 0:1 Wolves – Tottenham .................. (2:2) 4:5 (v) Ítalía AC Milan – Venezia ................................. 2:0 - Steinn Bjarkason var ónotaður varamað- ur hjá Venezia en Arnór Sigurðsson var ekki í leikmannahópnum. Svíþjóð Elfsborg – Malmö .................................... 0:1 - Sveinn Aron Guðjohnsen hjá Elfsborg var í leikbanni og Hákon Rafn Valdimars- son var varamarkvörður liðsins. Sirius –Norrköping ................................. 2:4 - Aron Bjarnason hjá Sirius er frá keppni vegna meiðsla. - Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Norrköping en Jóhannes Kristinn Bjarna- son var ekki í hópnum. Grikkland Panetolikos – PAOK ............................... 1:2 - Sverrir Ingi Ingason hjá PAOK er frá keppni vegna meiðsla. Olympiacos – Apollon Smyrnis.............. 4:1 - Ögmundur Kristinsson var varamark- vörður Olympiacos. Danmörk Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Kjellerup – Midtjylland........................... 0:5 - Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjyll- and. Nyköbing – Köbenhavn .......................... 3:0 - Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Köbenhavn og Andri Fannar Baldurs- son fyrri hálfleikinn en Hákon Arnar Har- aldsson var ekki í hópnum. B 1913 – SönderjyskE ............................. 3:4 - Kristófer Ingi Kristinsson skoraði tvö marka SönderjyskE og lék fyrstu 80 mín- úturnar. Noregur Bikarkeppnin, 3. umferð: Alta – Bodö/Glimt ................................... 1:2 - Alfons Sampsted skoraði seinna mark Bodö/Glimt og lék í 76 mínútur. Strömsgodset – Stabæk.......................... 5:1 - Valdimar Þór Ingimundarson lék í 63 mínútur með Strömsgodset og Ari Leifsson kom inn á sem varamaður á 80. mínútu. Vålerenga – Odd...................................... 0:3 - Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 68 mínúturnar með Vålerenga. Viking – Rosenborg ................................ 3:1 - Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson kom inn á sem varamaður á 77. mínútu. - Hólmar Örn Eyjólfsson var varamaður hjá Rosenborg og kom ekki við sögu. Ranheim – Aalesund ................. (1:1) 2:4 (v) - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund og skoraði í vítakeppni. Sogndal – Åsane ...................................... 0:2 - Emil Pálsson var varamaður hjá Sogn- dal og kom ekki við sögu. >;(//24)3;( Meistaradeild karla Aalborg – Montpellier ........................ 36:28 - Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð- arþjálfari liðsins. - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Montpellier. Kiel – Elverum..................................... 41:36 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði eitt mark fyrir Elverum. Noregur Bækkelaget – Drammen .................... 28:31 - Óskar Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir Drammen. Oppsal – Sola........................................ 29:34 - Birta Rún Grétarsdóttir skoraði ekki fyrir Oppsal. E(;R&:=/D HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: KA-heimilið: KA – Víkingur ................ 19.30 Kaplakriki: FH – Grótta ...................... 19.30 Framhús: Fram – Selfoss .................... 19.40 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Fylkishöll: Fjölnir/Fylkir – Selfoss .... 18.30 Austurberg: ÍR – HK U....................... 20.15 KNATTSPYRNA 1. deild karla, Lengjudeildin: Vivaldi-völlur: Grótta – ÍBV................ 17.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Evrópubikar kvenna, fyrri leikur: Ásvellir: Haukar – Uniao Sportiva ..... 19.30 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – Fjölnir ....................... 19 Í KVÖLD! KSÍ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands í knatt- spyrnu og síðar landsliðsþjálfari, til- kynnti í gær að hún hefði ákveðið að bjóða sig fram í kjöri til formanns KSÍ. Vanda, sem er lektor hjá Háskóla Íslands í tómstunda- og félagsmála- fræðum, er aðeins önnur konan í sögunni sem býður sig fram í for- mannskjöri hjá KSÍ. Halla Gunn- arsdóttir bauð sig fram árið 2007 en beið lægri hlut fyrir Geir Þorsteins- syni. Þá yrði Vanda með kjöri eina kon- an sem væri formaður knattspyrnu- sambands í Evrópu, allavega eins og staðan er í dag, en samkvæmt vef UEFA eru karlar í formannsemb- ættunum hjá öllum 55 aðildar- þjóðum sambandsins. Vanda átti mjög farsælan feril sem leikmaður, fyrst með ÍA og síð- an með Breiðabliki. Hún varð þrisv- ar Íslandsmeistari og einu sinni bik- armeistari með ÍA á árunum 1983 til 1989 og síðan sex sinnum Íslands- meistari og tvisvar bikarmeistari með Breiðabliki en Vanda var yfir- leitt fyrirliði í sínu liði. Hún var fjórða leikjahæsta kona efstu deildar með 147 leiki þegar hún lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 1996. Vanda var jafnframt spilandi þjálfari Breiðabliks þrjú síðustu árin og á árunum 1999 til 2003 varð KR þrisvar Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari undir hennar stjórn. Fyrirliði þegar Ísland komst í átta liða úrslit Vanda var fyrirliði íslenska lands- liðsins sem komst í átta liða úrslit Evrópukeppninnar 1994 og var leikjahæsta landsliðskona Íslands með 37 leiki þegar hún hætti keppni árið 1996. Þá tók hún við sem landsliðsþjálf- ari og stýrði landsliðinu árin 1997 og 1998. Inn á milli áranna hjá KR þjálfaði Vanda karlalið Neista á Hofsósi í 3. deild árið 2001 og er enn í dag eina konan sem hefur verið aðalþjálfari íslensks karlaliðs. Vanda þjálfaði síðan kvennalið Tindastóls, Breiðabliks og Þróttar á árunum 2007 til 2013 og tók jafn- framt fram skóna og lék með Tinda- stólsliðinu. „Mér þykir vænt um þessa hreyf- ingu og hef verið partur af henni stóran hluta ævi minnar. Ég tel að ég sé vel til þess fallin að leiða þá vinnu sem fram undan er,“ sagði Vanda m.a. þegar hún tilkynnti framboð sitt á facebooksíðu sinni í gær. Fyrst kvenna formaður KSÍ? - Ein sigursælasta knattspyrnukona landsins býður sig fram til forystu Morgunblaðið/Bjarni Sigursæl Vanda Sigurgeirsdóttir fær flugferð eftir að hafa stýrt Breiðabliki til sigurs á Íslandsmótinu 1994 sem spilandi þjálfari. Calvin Burks mun leika áfram með Keflavík í úrvalsdeild karla í körfu- knattleik á komandi keppnis- tímabili. Bandaríkjamaðurinn þekkir vel til hjá félaginu eftir að hafa leikið með Keflavík í úrvals- deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann var algjör lykilmaður. Hann skoraði 18 stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðal- tali í leik en Keflavík varð deildar- meistari 2020-21. Til stóð að Burks myndi ganga til liðs við Khimik í efstu deild Úkraínu en nú er ljóst að af því verður ekki. Leikur áfram með Keflavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Keflavík Calvin Burks verður áfram með á komandi tímabili. Körfuknattleikslið Njarðvíkinga verða komin á nýjan heimavöll eftir fimmtán mánuði ef áætlanir um byggingu nýs íþróttahúss ganga eftir. Víkurfréttir skýrðu frá því í gær að fullbúið íþróttahús með áhorfendastúku muni rísa við Stapaskóla. Þar muni Njarðvík fá nýjan heimavöll með áhorfenda- stæðum fyrir um 1.100 manns. Njarðvíkingar hafa um áratuga skeið leikið heimaleiki sína í íþróttahúsi Njarðvíkur, sem jafnan er kallað Ljónagryfjan, en þar rúm- ast um 500 manns með góðu móti. Njarðvíkingar fara í Stapahöll Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Njarðvík Logi Gunnarsson og áhorfendur í Ljónagryfjunni. Vetur konungur minnti á sig á Ís- landi í gær þegar fennti í byggð víða um land. Karlalið Vestra í knattspyrnu æfði í gær í snjó í Bol- ungarvík. Á Íslandsmótinu er liðið um miðja 1. deildina, og getur hvorki farið upp um deild né fallið. Hins vegar á Vestri heimaleik gegn Víkingi í undanúrslitum Mjólk- urbikarsins annan laugardag. Þar er því mikið í húfi. Á Vestfjörðum er ekki knatt- spyrnuhús til staðar eins og finnst í flestum öðrum landshlutum nú orð- ið. Utandyra hefur Vestri aðstöðu á grasvöllum í Bolungarvík og á Ísa- firði. „Aðstöðuleysið minnir á sig,“ skrifaði Jón Hálfdán Pétursson, að- stoðarþjálfari liðsins, á facebook í gær. Á morgun stendur til að Vestri mæti Kórdrengjum á Ísafirði í loka- leik 1. deildarinnar. Ljósmynd/Jón Hálfdán Æft Vestramenn á æfingu á snæviþöktum Skeiðisvelli í Bolungarvík. Æfa í snjónum fyrir undanúrslitaleikinn Haukar, bikarmeistarar kvenna í körfuknattleik, taka í kvöld á móti portúgalska liðinu Clube Uniao Sportiva í Evrópubikarnum á Ás- völlum. Liðin mætast svo aftur á heimavelli Uniao Sportiva á Asor- eyjum að viku liðinni en sigurveg- arinn úr rimmu liðanna fer í riðla- keppni. Þar er um að ræða fjögurra liða riðil og bætast þá við sex leikir í keppninni hjá liðinu sem kemst áfram. Verður þetta fyrsti Evrópuleikur hjá íslensku kvennaliði í íþróttinni í fimmtán ár. Þá voru það Haukar sem tóku þátt og léku þá sex leiki gegn liðum frá Spáni, Frakklandi og Ítalíu. Ári áður lék kvennalið Hauka einnig sex Evrópuleiki og gegn liðum frá þessum sömu lönd- um. Haukar er eina íslenska kvennaliðið sem tekið hefur þátt í Evrópukeppni í körfuknattleik til þessa. Frá árinu 2006 hefur verið rólegt yfir íslensku liðunum þegar Evr- ópukeppnir eru annars vegar. Frá þeim tíma hefur kvennalið ekki ver- ið með fyrr en nú en tvisvar hjá körlunum. Karlalið KR tók þátt ár- ið 2007 og aftur árið 2018. Uniao Sportiva hefur notið vel- gengni í portúgölsku deildinni og þá sérstaklega á síðustu árum. Lið- ið varð portúgalskur meistari 2015, 2016 og 2018. Í leikmannahópi liðs- ins eru tvær frá Bandaríkjunum og ein frá Hollandi en aðrar frá Portú- gal. Liðið er staðsett á Asoreyjum sem tilheyra Portúgal. Þær eru hins vegar ekkert sérstaklega ná- lægt Portúgal. Austasta eyjan er um 1.370 kílómetra frá höfuðborg- inni Lissabon og sú vestasta um 1.940 kílómetra frá. Íbúar á eyj- unum eru um 235 þúsund. Fimmtán ár liðin frá síðasta Evrópuleik Morgunblaði/Arnþór Birkisson Haukar Helena Sverrisdóttir og samherjar spila á Ásvöllum í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.