Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 64

Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 64
eru kindurnar og hrútarnir þannig að þau eru aldrei ein. Þau eru tvær persónur í þessari sögu og það, á vissan hátt, gefur okkur tilfinningu fyrir því að þau séu einmitt ekki hin alvalda manneskja á þessum stað.“ – Svo kemur ein manneskja þarna til viðbótar sem verður ákveðið hreyfiafl og nú þori ég varla að segja meira … Einmitt og þegar þau hafa geng- ist þessum nýja veruleika á hönd, sem fylgir því verkefni að taka að sér þetta afkvæmi, er sett spurning- armerki við hvað er að gerast. Það er spurning hvað það stenst og hvaða úthald er í þeirri athugasemd sem gerð er við það sem er að eiga sér stað á bænum,“ svarar Sjón. Dýrið vakti blaðamann til um- hugsunar um ýmislegt tengt mann- inum og náttúrunni, rétt manneskj- unnar til að ganga á náttúruna og móðureðlið. Það borgar sig ekki að storka örlögunum, eins og allir vita, og einnig má finna vangaveltur um hamingjuna, svo fátt eitt sé nefnt. Sjón kinkar kolli yfir þessum hug- leiðingum blaðamanns og er spurð- ur að því hvort þeir Valdimar hafi haft einhverja eina merkingu eða boðskap í huga við handritsskrifin. „Nei, við áttuðum okkur snemma á því að þetta væri saga sem myndi flytja með sér mjög margt og eins og með þjóðsöguna og dæmisöguna áttuðum við okkur á því að það yrði hægt að lesa allt mögulegt í þetta,“ svarar Sjón. „Þannig að við fórum í það verkefni að láta þetta ganga upp og þegar Valdi kom til mín, haustið 2010 held ég, og kynnti þessa hugmynd fyrir mér og spurði hvort ég vildi koma að þessu verk- efni með honum sem handritshöf- undur, þá sá ég strax að þetta væri gríðarlega mikil áskorun. Að skapa trúverðugan veruleika úr þessu efni og finna leið í frásögninni sem gerði það að verkum að áhorfandinn dregst inn í þetta og hættir að sjá þessar sérkennilegu aðstæður. Ég held að okkur hafi tekist það ein- faldlega með því að kynna til sög- unnar tvær manneskjur sem við höfum áhuga á að fylgjast með og vera með í þeirra lífi. Þannig að þegar þetta kemur inn í þeirra veru- leika erum við orðin, á vissan hátt, tilfinningalega bundin þessum tveimur manneskjum sem þó virð- ast vera algerlega ófærar um að tjá tilfinningar sínar. Við lesum okkur inn í þau þannig að þegar þau fara að takast á við þetta erum við með þeim í þessu.“ Í heimi málleysingjanna – Mér fannst myndatakan mjög sérstök og áhrifarík, mikið um að dýr horfi í linsuna, stundum ótta- slegin, jafnvel að vara okkur við … „Dýrin eru öll stödd í sömu sögu en við erum allan tímann að minna á að manneskjan er ekki ein þarna, þetta er líka saga dýranna. Það eru þarna dýr eins og kötturinn og hundurinn sem eru vitni að því sem er að gerast. Myndatakan í þessari mynd er stórkostleg, leikstjórnin er stórkostleg og leikararnir eru ótrú- legir. Það sem þau gera fyrir okkur með nærveru sinni og með því að skapa þessa innri frásögn, mér finnst það alveg makalaust. En af því við byrjum í heimi málleysingj- anna, í heimi dýranna, þá byrjum við líka að lesa fólkið í þögn sinni og augnaráði og andardrætti,“ svarar Sjón. Hann segist þakklátur Valdimari fyrir að leita til hans eftir samstarfi við handritsskrifin og telur kvik- myndina vel heppnaða. „Ég verð að segja að þegar ég sá myndina fyrst þá klökknaði ég vegna þess að það sem okkur langaði til að tækist þeg- ar við byrjuðum, fyrir 11 árum, var þarna á tjaldinu. Það tókst.“ Sjón segist fyrst hafa séð mynd- ina með fámennum hópi þeirra sem komu að gerð hennar og síðar á frumsýningu í Cannes fyrir fullum sal sem hann segir hafa verið mikla upplifun og ánægjulega. „Þegar við sátum með áhorfendum í salnum vorum við minnt á það að þetta er engin venjuleg mynd,“ segir Sjón kíminn, „og margt sem við höfðum alveg gleymt að gæti til dæmis orðið fyndið vorum við sannarlega minnt á. Það var gaman að fylgjast með því hvað fólk var þakklátt þegar það fékk að hlæja, kíma eða kumra yfir einhverju. Það hefði auðvitað drepið myndina ef hún hefði bara verið alvarleg,“ segir Sjón glettinn. Höfundar myndarinnar viðurkenni fúslega að hún sé skrítin. Tækifæri og veisla Sjón segir tækifærið sem hann hafi fengið nú, að vinna í þessu list- formi með frábærum leikstjórum á borð við Valdimar, Abbasi og Ro- bert Eggers, mikla veislu fyrir hann en Eggers skrifaði handrit með Sjóni að kvikmyndinni The Nort- hman sem skartar heimskunnum leikurum á borð við Alexander Skarsgård, Nicole Kidman, Willem Dafoe, Ethan Hawke og Claes Bang. Í henni leika einnig Björk Guðmundsdóttir, Ingvar E. Sigurðs- son og heljarmennið Hafþór Júlíus Björnsson. Sú mynd verður frum- sýnd á næsta ári. Sjón segir handritsferlið alltaf svipað, hvort heldur unnið er að Hollywood-mynd á borð við The Northman eða ódýrri, íslenskri kvikmynd á borð við Dýrið. Hið skapandi ferli sé á endanum hið sama og samvinnan svipuð í eðli sínu. „Maður er alltaf bara augliti til auglitis við samstarfsfélagann í því að skapa heiminn og söguna og per- sónurnar,“ útskýrir Sjón. „Það sem skiptir máli er að ná sögunni réttri og vera í augnhæð við samstarfs- aðilann.“ – Þú getur leyft þér hvað sem er í skáldsögu en þarna ertu alltaf bund- inn því sem hægt er að gera. „Já, já. Í skáldsögu getur maður alltaf látið himnana opnast og her- skarana koma siglandi úr skýjunum, hvort sem það eru guðlegar verur eða geimverur,“ svarar Sjón kíminn og að í tilfelli Dýrsins hafi þeir Valdimar vitað að snúið yrði að vinna gervin, hanna veruna og láta það allt saman virka. Þeir hafi líka verið meðvitaðir um að fjármagn væri af skornum skammti og því legið yfir gömlum kvikmyndum þar sem nærvera einhvers konar furðu- veru eða skrímslis var sköpuð með öðrum brögðum, t.d. hljóðmynd eða skuggum. „The Thing, upphaflega myndin, er algjör kennslubók í því hvernig maður gerir þetta og við reyndum að halda það út eins og við gátum en fyrir okkar sögu varð ver- an að sjást og það tókst,“ segir Sjón. Hvað The Northman varðar hefur mikil leynd hvílt yfir efni hennar og takmarkaðar upplýsingar verið veittar. Sjón brosir þegar hann seg- ir blaðamanni að hann megi mjög lítið segja um hana. „Fólk veit í rauninni ekkert nema það litla sem dreifingaraðilinn sendi frá sér fyrir nokkrum mánuðum. Þetta er mynd um norrænan prins sem leitar hefnda fyrir föður sinn og sést ekki fyrir í þeim leiðangri.“ Furða samofin veruleika Sjón er spurður að því hvort hann sjái tengingar milli skáldsagna sinna og kvikmyndahandrita og seg- ist hann vita af hverju hann hafi verið beðinn um að skrifa handrit yfirleitt. „Það eru ákveðnir þættir í skáldsögunum sem kvikmyndaleik- stjórarnir telja að ég geti komið með inn í söguna og inn í heims- smíðarnar,“ svarar hann og að hon- um hafi tekist ágætlega, í mörgu af því sem hann hafi skrifað, að gera einhvers konar furðu algjörlega samofna veruleika sögunnar eða persónunnar. „Ég held að Robert hafi til dæmis talað við mig af því hann las Rökkurbýsnir fyrir mörg- um árum og það er ákveðið sjónar- horn á tilveruna þar sem honum fannst spennandi að vinna með í The Northman. Það er að heimur goðsögunnar, heimur þess sem við teljum yfirnáttúruleg fyrirbæri eða ímynduð fyrirbæri, er veruleiki fólksins sem lifir á tilteknum tíma.“ – Þessir leikstjórar finna kannski líka fyrir því að þú áttar þig vel á tíðarandanum sem þú ert að skrifa söguna inn í … „Já, svo er ég náttúrlega líka van- ur að vinna með períódur og það er eitt verkefni sem var að fá styrk úr Kvikmyndasjóðnum heima – ég held að það hafi verið tilkynnt fyrir þrem eða fjórum dögum – sem ég er að vinna með Vesturporti. Það er handrit sem nefnist Klara miðill og gerist á stríðsárunum í Reykjavík,“ svarar Sjón. Í Klöru miðli segi af ástandinu í Reykjavík eftir að Bret- ar hernámu landið. Klara miðill er frægasti miðill Reykjavíkur og setja sumir spurningarmerki við hversu trúverðug hún er, að sögn Sjóns. Þrjár bækur í einu – Að lokum, ertu líka að skrifa bók, ofan á þetta allt saman? „Já, ég er svo heppinn að ég er yfirleitt að skrifa þrjár skáldsögur í einu,“ segir Sjón og kímir. Oftast sé hann með þrjú verkefni í vinnslu og að mjaka þeim áfram, prófa sig áfram með frásagnaraðferðir og stíla. „Yfirleitt eru þetta líka sögur sem krefjast mikillar heimildavinnu og rannsóknar og svo gerist það nú yfirleitt að það er eitthvert eitt púsl sem fellur á réttan stað og þá veit ég að það verður næsta bók.“ – Ertu þá með stóra korktöflu með minnismiðum um hvað er búið að gerast í hverri bók? „Ég er með stóra korktöflu í höfð- inu á mér,“ svarar Sjón að bragði, glettinn á svip. Vera Noomi og Hilmir Snær í hlutverkum Maríu og Ingvars. María sinnir verunni á meðan Ingvar hitar pela. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bíómaður Sjón hefur komið víða við í listinni og er mikill áhugamaður um kvikmyndir og segir þær hafa skipað stóran þátt í hans menningaruppeldi. „Þetta er líka saga dýranna“ - Hjón taka að sér sérkennilega veru í Dýrinu - „Dýrin eru öll stödd í sömu sögu en við erum allan tímann að minna á að manneskjan er ekki ein þarna,“ segir Sjón, annar tveggja handritshöfunda VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningar hefjast á morgun á kvik- myndinni Dýrið eftir leikstjórann Valdimar Jóhannesson sem skrifaði handritið að henni með rithöfund- inum Sjón, Sigurjóni Birgi Sigurðs- syni. Dýrið var frumsýnt á kvik- myndahátíðinni í Cannes í sumar, hlaut þar verðlaun sem frumlegasta kvikmyndin en hún var sýnd í keppnisflokknum Un certain reg- ard. Þykir mikill heiður að komast í þann flokk og ekki síst þegar um fyrstu kvikmynd leikstjóra er að ræða, líkt og í tilfelli Valdimars. Blaðamaður sló á zoom-þráðinn til Sjóns í tilefni af frumsýningu Dýrsins hér á landi en hann dvelur þessa dagana við skriftir í Sviss. Eitt af því sem hann er með á skrif- borðinu er handrit að kvikmynd sem byggt er á Hamlet og mun sænska leikkonan Noomi Rapace leika Hamlet. Verður kynja- hlutverkunum sumsé snúið við í út- gáfu Sjóns og íransk-sænski leik- stjórinn Ali Abbasi verður við stjórnvölinn. „Ég er þessa dagana að ljúka fyrstu gerð af handritinu og skila því af mér núna á sunnudaginn,“ segir Sjón og á þar við nýliðinn sunnudag þar sem viðtalið fór fram 15. september. „Þetta er spennandi verkefni og frábært að fá aftur tækifæri til að vinna aftur með Noomi,“ segir hann um Hamlet en Rapace fer með eitt af þremur aðal- hlutverkum Dýrsins. Hin eru í höndum Hilmis Snæs Guðnasonar og Björns Hlyns Haraldssonar. Óvættur á jólanótt Blaðamaður sá Dýrið á dögunum og hreifst af kvikmyndinni sem er þess eðlis að lítið sem ekkert má segja um það sem gerist svo hinu óvænta verði ekki spillt fyrir bíó- gestum. Til að forðast slík spilliefni er Sjón beðinn að segja frá mynd- inni. „Það má einfaldlega segja fólki að þetta sé mynd sem gerist í af- skekktum dal á Íslandi þar sem hjón búa, sauðfjárbændur, og þeim óafvitandi heimsækir einhvers kon- ar óvættur eða óvætt fjárhúsin á jólanótt, eins og gjarnan gerist í íslenskum þjóðsögum. Á jólanótt sleppa öll hin yfirnáttúrulegu öfl laus, á meðan maðurinn dregur sig í hlé og tignar sinn guð þá heimsækja öflin skepnurnar,“ segir Sjón. „Afleiðingin af þessari heimsókn er fæðing sérkennilegrar veru, þeg- ar kindurnar fara að bera um vorið. Þessi vera er sending, þau upplifa hana sem sendingu sem fyllir upp í tómarúm í þeirra lífi. Ég held að það sé allt í lagi að segja fólki að þau eru barnlaus og það er ástæða fyrir því. Þau ákveða að taka þessa litlu veru að sér og ala hana upp sem barnið á heimilinu og að sjálfsögðu fylgir svona sendingu ýmislegt og við sem áhorfendur vitum það alveg frá upphafi að þarna er ekki allt sem sýnist.“ Rapace og Hilmir Snær leika hjónin, Maríu og Ingvar og Björn Hlynur bróður Ingvars, Pét- ur, sem birtist óvænt dag einn. Sjón segir að þessi vitneskja áhorfandans um heimsóknina á jóla- nótt leggist undir allt sem síðar ger- ist og hið hversdagslega líf hjónanna með sínum bústörfum. „Við vitum að þarna kraumar eitt- hvað undir og að í þessu hrikalega landslagi sem umkringir þau búa öfl sem mögulega eru að fylgjast með framgangi mála á bænum.“ Manneskjan er ekki ein „Við staðsetjum manneskjuna þannig í sögunni að hún er ekki ein,“ bendir Sjón á. „Fyrstu persón- urnar sem við kynnumst í sögunni 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.