Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 66

Morgunblaðið - 23.09.2021, Síða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Ármann Jakobsson. armannja@hi.is Þorvaldur Thoroddsen andaðist fyrir einni öld, þann 28. september 1921. Þá átti hann að baki langan og merki- legan feril sem frumkvöðull í íslensku vísindalífi og hafði fengið ýmsar við- urkenningar, var m.a. heiðursdoktor við Kaupmannahafnarháskóla og verð- launaður af bandaríska landafræði- félaginu (AGS). Hann lét einnig eftir sig mikinn fjölda vísindarita sem vert er að halda á lofti. Til að mynda lagði hann Andvara, tímariti Hins íslenska þjóðvinafélags, mikið efni til meðan á rannsóknum hans og Íslandsferðum stóð. Ógerningur er í stuttri grein að lýsa öllum ritstörfum hans svo að vert væri en í stað þess verða tekin dæmi úr fjórum sem gefa nokkra mynd af fjölþættum ritstörfum hans. Lýsing Íslands Þorvaldur Thoroddsen tók að sér að ljúka því verki sem Jón Sigurðsson og Jónas Hallgrímsson höfðu tekið að sér á sínum tíma fyrir Hið íslenska bók- menntafélag og gerði bæði styttri og lengri gerð af því riti. Útgáfa lengri gerðarinnar hófst í Kaupmannahöfn árið 1907. Íslandslýsingin er grund- vallarrit íslenskrar landafræði en staða hennar var bágborin þegar Þor- valdur hóf verkið. Eftirfarandi kafli varpar ljósi á það. Þorvaldur segir í upphafi: „Þó undarlegt megi virðast þá vantar ennþá nákvæma vissu um stærð Íslands. Til þess að reikna flat- armál einhvers lands þarf umgjörðin að vera mjög vel mæld en því fer fjarri að enn hafi tekist að marka strand- lengju Íslands með hinni fyllstu ná- kvæmni á landabréf. Fullkomin strandmæling er heldur ekkert áhlaupaverk og þegar mælingar sem nú byggjum vér á voru framkvæmdar fyrir tæpum hundrað árum síðan höfðu menn eigi nærri eins nákvæm og handhæg verkfæri eins og nú og hvorki nægilegt fé né tíma til þess að fást við það sem þurfti mikla yfirlegu ef vel átti að vera.“ Í lýsingunni gerir Þorvaldur ræki- lega grein fyrir framlagi fyrri manna til jarðfræðilegrar þekkingar á land- inu en mestur hluti hennar er ná- kvæm lýsing á landinu. Hér er stutt dæmi: „Hinir eiginlegu firðir á Íslandi hafa yfirleitt hina sömu eiginlegleika einsog firðir í öðrum löndum þó þeir hvorki séu eins djúpir né margkvísl- aðir eins og firðir í Noregi og Græn- landi og hér á landi eru heldur ekki þverdalir og sund sem sumstaðar sameina firði erlendis svo þeir eru samtvinnaðir í flækjur eins og norð- antil á austurströndu Grænlands, á vesturströnd Ameríku og víðar.“ Hér má sjá gott dæmi um hina breiðu sýn sem einkennir verk Þorvalds og stafar af hlutverki hans sem frumkvöðull. Annað eins yfirlit yfir náttúru landsins í stóru og smáu var ekki til fyrir hans daga og mikið gagn væri að því að fá rit hans öll á netið í leitarbæru formi. Landfræðissaga Íslands Íslandslýsingin er eðlilega skýrslu- kennd og sjónum beint að náttúrunni fyrst og fremst. Landfræðissagan sem einnig var gefin út fyrir Bókmennta- félagið frá 1892 og áfram er rit af öðru tagi enda er hún ekki aðeins nátt- úrusaga heldur einnig saga nátt- úrufræðinnar og öðrum þræði eitt fyrsta Íslandssöguritið. Ekki síst glímir Þorvaldur þar við siðskiptaöld- ina og 17. öldina og „hindurvitni“ hennar sem hann tekur skýra afstöðu gegn. Ritstíll Þorvaldar er ævinlega skýr og auðlæsilegur en að öðrum rit- um hans ólöstuðum er landfræðissag- an þó einna mestur skemmtilestur. Auk þess að vera frábært yfirlitsrit sem markaði tímamót þegar hún kom út er landfræðissagan fyrirtaks heim- ild um söguskoðun og mannskilning menntamanns á 19. öld. Grípa má nið- ur í lýsingu höfundar á landafræði- þekkingu miðaldamanna: „Það voru einkum tveir þjóðflokkar sem snemma á miðöldunum urðu frömuðir þekk- ingar og menningar og því nær ósjálf- rátt koma hreyfingu á andlegt og lík- amlegt líf norðurálfumanna í ýmsum greinum; báðar þessar þjóðir voru hraustar og harðfengar og brutu undir sig lönd og þjóðir með miskunnar- lausri harðneskju. Það voru Arabar að sunnan og hinir norrænu víkingar að norðan.“ Síðan fylgir löng lýsing á vík- ingum sem „Aröbum norðursins“ sem hætt er við að þjóðernissinnar nú- tímans tækju sem snoppungi. Þorvaldur stendur styrkum fótum í vísindahyggju síns tíma sem sést þeg- ar hann lýsir hugarfari 17. aldar í kafl- anum „Hindurvitni og galdratrú“. Þrátt fyrir það mat sækist hann þó eft- ir að skilja hugarfarið sem hann tekur þó skýra afstöðu gegn: „Flest íslensk náttúrufræðis- og landfræðisrit á 17. öld eru svo gagndrepa af hjátrú að vér verðum í þessum kafla að skýra nokk- uð nánar frá galdratrú og hugs- unarhætti þeirrar aldar. Það sem vér köllum hjátrú og hindurvitni var í aug- um flestra þeirra er þá voru uppi heil- agur sannleiki og þótti mjög vítavert og hegningarvert að efast um slíkt. Vér furðum oss nú á hjátrú og heimsku manna á 17. öld og galdra- og andatrúin er oss hneyxli: hugs- unarháttur þeirra tíma er svo frá- brugðinn hugmyndum nútímans að oss er hann varla skiljanlegur. Þó verður djöfla- og galdratrúin skilj- anlegri þegar nánar er athugað; hjátrúin er bein og eðlileg afleiðing heims- og lífsskoðunar miðaldanna.“ Viðhorf Þorvaldar til fyrri alda urðu áhrifamikil alla 20. öldina. Sem vís- indamaður er hann eðlilega fullur framfaratrúar og fyrir því voru eðlileg- ar forsendur: hann lifir þá tíma að vís- indin taka stórstígum framförum og þekkingin á heiminum eykst hratt. Þar var hann sjálfur í framlínunni sem frumkvöðull íslenskar landafræði og jarðfræði. Ferðabók Hin breiða sýn Þorvaldar Thorodd- sen til Íslandssögunnar og einkum hugmyndasögunnar kemur þannig skýrt fram í Landfræðissögu hans. Öllu persónulegri er Ferðabók hans sem Hið íslenska fræðafélag í Kaup- mannahöfn gaf út 1913-1915. Í Inn- gangi ritsins segir Þorvaldur: „Þegar á ungum aldri kom mér oft í hug hve undarlegt það væri að Íslendingar skyldu ekki þekkja þetta litla land sem þeir búa í, að stór svæði af hálendinu skyldu enn vera ókunnug byggða- mönnum og ókönnuð af fræðimönnum. Þótti mér minnkun að hugsa til þess að Íslendingar sjálfir ekki skyldu hafa hug á að rannsaka náttúru landsins, létu útlendinga á hlaupum vera að at- huga það sem merkilegt væri en gerðu sér sjálfir ekkert far um að grennslast eftir því sem þeim þó virtist sjálfum næst.“ Hugsjón höfundar er hér sett fram í tveimur meitluðum setningum sem lýsa í raun ævistarfi hans. Í Ferðabók kemur hagsýni Þorvald- ar vel fram. Ferðalög um lítt kannað land kröfðust vitaskuld ómældrar hag- nýtrar þekkingar og Þorvaldur er fús að deila henni með lesendum. Hér lýs- ir hann fatnaði á slíkri ferð: „Fatnaður okkar á ferðalaginu var vanalegur ís- lenskur vaðmálsfatnaður og stutt reið- stígvél. Í þeim gekk ég upp á alla fjallatinda því mjög óþægilegt er að ganga í lausaskriðu á íslenskum eða dönskum skóm því oft fer möl og sand- ur niður í þá og maður verður fljótt sárfættur. Í rigningum höfðum við eðlilega olíuföt og suðvesti.“ Næringunni lýsir Þorvaldur svo: „Á öræfum höfðum við helst til matar nið- ursoðið kjöt af ýmsu tagi og ýmsan vanalegan íslenskan mat og suðum við vínanda; hann var miklu drýgri og þrifalegri í flutningum en steinolía þó hann væri dýrari. Af kaffi drukkum við mikið þó það væri mjólkurlaust en vínfanga neyttum við mjög sjaldan og lítið; kjötsúpu úr Liebigs-ekstrakt not- uðum við alloft. Kaffi, the og sykur og ýmislegt fleira geymdum við blikkílát- um í koffortunum svo það dofnaði ekki og borðbúnaðurinn var úr blikki og tini svo hann ekki brotnaði.“ En maðurinn lifir ekki á kjöti einu saman: „Eigi allsjaldan kom það fyrir að okkur legaðist í tjaldi vegna stór- rigninga eða þoku og var þó oft leið- inlegt að hafa ekkert fyrir stafni þegar búið var að rita í dagbækur og gjöra annað er þurfti. Af þeim orsökum hafði eg jafnan með mér fáeinar smábækur sem lítið fór fyrir til að lesa í til fróð- leiks og dægrastyttingar, oftast sömu bækurnar ár eftir ár.“ Í neðanmáls- grein kemur frem að það eru Faust eftir Goethe og Ansichten der Natur eftir Humboldt. Ferðasögur Þorvaldar eru ná- kvæmar og skemmtilegar aflestrar en einnig kryddaðar fróðleik úr Íslands- sögunni og skemmtilegum athuga- semdum. Á Hornströndum gerir hann þessa þurrlegu athugasemd: „Það er oft til þess tekið að málið sé ein- kennilegt á Hornströndum og þar heyrist bæði orðskrípi og hjákátlegir talshættir. Eg varð þess ekki var að málið væri í neinu verulega frábrugðið vanalegri íslensku.“ Árferði á Íslandi Árferði á Íslandi í þúsund ár kom út hjá Hinu íslenska fræðafélagi í Kaup- mannahöfn 1916-1917 og er það hart- nær 500 blaðsíðna annáll með sér- stökum hafísannál aftast. Þorvaldur vann annál þennan upp úr ýmsum heimildum, einkum skýrslum og ann- álum en líka frásagnarheimildum á borð við íslenskar miðaldasögur sem vitaskuld eru síður áreiðanlegar. Það sem mestu skiptir er sú einstaka heild- armynd sem skapast af íslensku veð- urfari við lestur ritsins. Stundum er fátt vitað um árferðið, t.d. „Um ið mikla veður“ árið 1115 sem Þorvaldur hefur ekki önnur gögn um en þetta heiti. Á seinni öldum eykst nálægð at- burðar og heimildar og um leið verða lýsingar nákvæmari. Um árið 1659 segir. „Gott veður nýársdag, vetur upp þaðan víðast harður með jarðbönnum og ósöðugri veðráttu fram á góu, kom góður bati með mars og tók upp allan jökul en víða hafði verið lógað sauðfé á þorra.“ Þegar enn nær dregur styðst Þorvaldur við eigin reynslu. Árinu 1895 er þannig lýst: „Veðrátt var frá áramótum og út veturinn mjög mild og oft líkari sumri en vetri. Er þess sér- staklega getið að á Ströndum vestra féll enginn snjór á þorra og tók þar þá upp áfallinn sjó og þíddi ísa.“ Lestur annálsins veitir hverjum sem plægir sig í gegnum hann ein- staka tilfinningu fyrir lífinu á Íslandi, ekki síst á þeim tímum þar sem árferði skipti lífsafkomuna öllu. Eins má víða glöggt sjá hina hagsýnu tilfinningu vís- indamannsins fyrir því sem máli skipt- ir fyrir hana. Víðförull 19. aldar maður Þorvaldur Thoroddsen vann sér fyrst og fremst orðspor sem landkönn- uður og vísindamaður. Faðir hans var Jón Thoroddsen sem setti saman Pilt og stúlku og nokkuð af stílgáfu föð- urins hefur erfst til Þorvaldar; texti hans er þekkilegur og vandaður og efnið áhugavert þannig að líkt og fað- irinn hefur hann haft næma tilfinningu fyrir lesendahópnum. Þeir feðgar urðu báðir víðförlir á vængjum prentvél- anna á 19. öld; Piltur og stúlka var þýdd á flest evrópsk tungumál á fyrstu hálfu öldinni eftir útkomu hennar og Þorvaldur lét sér ekki nægja að setja saman fræðirit á íslensku heldur liggja einnig eftir hann rit á dönsku og þýsku, þar á meðal Die Geschichte der isländischen Vulkane sem kom út eftir andlát hans, árið 1925. Landkönnuður Íslands - Þorvaldur Thoroddsen, rithöfundur og vísindamaður Vísindamaður Þorvaldur og Þóra Thoroddsen og Sigríður dóttir þeirra. Úr minningabók Þorvaldar sem Hið íslenska fræðafélag gaf út 1922-1923. SMÁRALIND – KRINGLAN – DÚKA.IS 40x60 cm – 3.990,- 60x90 cm – 7.990,- 120x67 cm – 11.990,- 130x90 cm – 17.990,- 200x90 cm – 26.990,- Slitsterkar mottur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.