Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 68

Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Sérstök hátíðarsýning var haldin á Dýrinu, kvikmynd leikstjórans Valdimars Jóhannssonar, í stóra salnu.m í Háskólabíói í fyrrakvöld. Í kvikmyndinni leika Noomi Rapace og Hilmir Snær Guðnason hjón og fjárbændur sem taka að sér veru og ala upp sem afkvæmi sitt. Handritið skrifaði Valdimar með skáldinu Sjóni og má finna viðtal við Sjón á bls. 64 í blaðinu í dag. Kvikmyndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í sum- ar og var góður rómur gerður að henni þar og gagnrýnendur almennt hrifnir. Almennar sýningar á Dýrinu hefjast hér á landi á morgun. Morgunblaðið/Elsa Katrín Ólafsdóttir Gleði Leikarinn Hilmir Snær Guðnason, Eliza Reid forsetafrú, Valdimar Jóhannsson leikstjóri og Björn Hlynur Haraldsson leikari í Háskólabíói. Dýrinu fagnað í Háskólabíói Leikarahjón Nína Dögg Filippus- dóttir og Gísli Örn Garðarsson. Barnabækur eru áberandi að vanda á útgáfulista Bókabeitunnar á þessu ári. Þegar hafa komið út nokkrir titlar, þar á meðal þriðja bókin í bókaröðinni Bekkurinn minn eftir Yrsu Þöll og Iðunni Örnu, glæpasagan Farangur eftir Ragnheiði Gestsdóttur, Fugla- bjargið eftir Birni Jón Sigurðsson og Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur og tvær Ljósaseríubækur: Veran í vatninu eftir Hjalta Halldórsson sem Auður Ýr myndlýsti og Sóley og töfrasverðið eftir Eygló Jóns- dóttur sem Hafsteinn Hafsteinsson myndlýsir, en þær bækur eru svo- nefndar léttlestrarbækur. Fyrir stuttu kom svo út bókin Kennarinn sem kveikti í eftir Berg- rúnu Írisi Sævarsdóttur, en það er þriðja bókin um börnin í BÖ-bekkn- um. Nú ber svo við að krakkarnir eru sendir í dularfullan ratleik í mannlausum skólanum og í þeim leik kvikna ýmsar spurningar: Hvar er afleysingakennarinn? Hver er þrautakóngurinn? Hvern á að steikja á teini? Hringavitleysa eftir Sigurrós Jónu Oddsdóttur, sem Sigmundur B. Þorgeirsson myndlýsti, kom líka út fyrir stuttu. Í henni segir frá Fjólu og Lárusi sem skríða inn í forngrip á Þjóðminjasafninu og lenda í ýmsum ævintýrum. Holupotvoríur alls staðar! er bók í Ljósaseríu eftir Hilmar Örn Ósk- arsson, sem Blær Guðmundsdóttir myndlýsir. Í bókinni segir frá þeim Hávarði og Maríusi, átta ára bestu vinum, sem kynnast Bartek sem er nýfluttur til Íslands frá Póllandi. Það gengur erfiðlega í fyrstu fyrir strákana að tala saman en þeir láta það ekki stöðva sig. Sérstaklega ekki þegar þeir uppgötva að Bartek er á leið í lífshættulegan leiðangur. Fyrsta bók Fanneyjar Hrundar Hilmarsdóttur heitir Fríríkið og segir frá heimili hennar Öllömmu sem er sannkallað fríríki þar sem endur drekka kvöldkaffi við eldhús- borðið, froskar slaka á í klósettinu, háttatímum er breytt í gítarpartí, kassabílum í klessubíla og heima- lærdómi í leikrit. Skyndilega standa Allamma og krakkarnir Asili, Alex, Bella og hundurinn Frændi frammi fyrir baráttu við þann sem hefur völd, peninga og svífst einskis til að fá sínu fram- gengt. Þriðja bókin í röðinni Nornasögu, Þrettándinn, eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur er einnig væntan- leg. Í bókinni þurfa Katla og Máni að koma tveimur nornum aftur til Goðheima. Auk þess þarf Katla að finna örlaganornirnar og fá Skuld til að skera á galdrafjötur. Áætlanir eiga það þó til að fara úrskeiðis þegar Katla á í hlut og í þetta sinn kemur hún af stað röð atburða sem gætu haft áhrif á örlög sjálfra guð- anna. Þrettándinn er beint fram- hald bókanna Nornasaga: Hrekkja- vakan og Nornasaga 2: Nýársnótt. Á undanförnum árum hefur Hjalti Halldórsson skrifað bækur fyrir ungmenni sem sækja innblást- ur í Íslendingasögurnar. Í Eldinum segir frá því er þau Halla, Hildi- gunnur, Kári og Skarpi eru ein í skólanum, hvert með sína ástæðu. Það stóð samt aldrei til að kveikja í … eða hvað? Jónas ísbjörn og jólasveinarnir eftir Súsönnu M. Gottsveinsdóttur, sem Viktoría Buzukina myndlýsir, segir frá Jónasi sem kominn er í jólafrí. Hann hlakkar mikið til að fá gómsæta jólasteik og skógjafir frá jólasveinunum. En 19. desember er skórinn hans tómur úti í glugga og í fjárhúsinu rekst hann á afar skrít- inn karl. Jónas býður karlinum inn í hús og þá gerast heldur betur undarlegir hlutir. Þorri og Þura: Jólakristallinn eftir þær Agnesi Wild og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur er líka jólasaga og segir frá því er Þorri og Þura eiga að gæta jólakristalsins hans afa. Allt í einu hættir kristallinn að lýsa og hinn eini sanni jólaandi því í mikilli hættu. Þetta er önnur bókin í bókaröð um Þorri og Þura, í sum- ar kom út bókin Þorri og Þura – Tjaldferðalagið. Barnabækur á útgáfu- lista Bókabeitunnar - Bækur í bókaröðum fyrir alla aldurshópa Hjalti Halldórsson Fanney Hrund Hilmarsdóttir Bergrún Íris Sævarsdóttir Kristín Ragna Gunnarsdóttir Sigurrós Jóna Oddsdóttir Agnes Wild Hilmar Örn Óskarsson Súsanna M. Gottsveinsdóttir Bókaforlagið Hólar hefur þegar sent frá sér fjölbreytt úrval bóka og fleiri eru væntanlegar. Út eru komnar bækurnar Ekki var það illa meint – ljóð og lausavísur eftir Hjálmar heitinn Freysteinsson, lengi heimilislækni á Akureyri, í rit- stjórn Höskuldar Þráinssonar og Ragnars Inga Aðalsteinssonar og Ljósmæðrafélag Íslands í 100 ár – ljósmæðratal 1984-2019 og saga ljósmæðra á Íslandi, sem þær rit- stýrðu Áslaug Íris Valsdóttir Petty, Álfheiður Árnadóttir, Harpa Ósk Valgeirsdóttir, Hildur Kristjáns- dóttir, Inga Sigríður Árnadóttir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir. Af öðrum útgáfubókum má nefna Spurningabókina 2021 eftir Guðjón Inga Eiríksson, Brandara, gátur og þrautir og Fótboltaspurninginga- bókina 2021 eftir Bjarna Þór Guð- jónsson og Guðjón Inga Eiríksson. Þá kemur einnig út þriðja heftið af hinum vinsælu Fimmaurabrönd- urum, sem sótt er í safn Fimmaura- brandarafjelagsins. Spæjarahundurinn heitir ævin- týrabók eftir Guðjón Inga Eiríks- son og fjallar um bráðskarpan hund, gáfaðan og gæfan hund, sem getur líka verið grimmur ef þörf krefur. Spæjarahundurinn leysir hin erfiðustu sakamál, sem lög- reglan hefur í rauninni gefist upp á. Hann hefur aðstoðað lögreglu víða um heim og birtist jafnan óforvar- andis þar sem hans er mest þörf. Í bókinni glímir hann við harðsvírað glæpagengi sem hyggst ná heims- yfirráðum með því að fremja rán í smábænum Bjartabæ og aðstoðar Laugu löggu við að hafa hendur í hári þrjótanna. Halldór Baldursson myndlýsir bókina. Ógn – ævintýrið um Dísar-Svan, eftir Hrund Hlöðversdóttur, fjallar um Svandísi, 14 ára gamla, sem flytur úr borginni norður í land. Amma hennar heldur því fram að álfar séu til og segir barnabörn- unum sögur úr álfheimum. Svandís trúir ekki á álfa en þegar dularfull skilaboð berast henni er hún ekki lengur viss í sinni sök. Í kringum hana er margt einkennilegt á kreiki. Köttur með rauð augu, dul- arfullir hestar og fólk sem ef til vill er annað en það sýnist vera. Hún flækist inn í baráttu góðs og ills, kynnist ástinni og þarf ásamt vinum sínum að glíma við grimmar kynja- skepnur. Fuglar á Íslandi og árstíðirnar fjórar eftir Sigurð Ægisson, með undirtitlinum Fugladagbókin 2022, er einkum hugsuð fyrir þá sem hafa áhuga á fuglum, ekki síst í nærum- hverfinu, þótt einnig megi nota bók- ina sem venjulega dagbók. Í henni er hægt að skrá hjá sér í hverri viku ársins þær tegundir, og fjölda innan hverrar og einnar, sem sjást, auk þess sem ítarlegur fróðleikur er um 52 af þeim rúmlega 400 fugla- tegundum sem hingað hafa komið til lengri eða skemmri dvalar frá því farið var að halda tölur um slíkt. Hrund Hlöðversdóttir Sigurður Ægisson Hjálmar Freysteinsson Guðjón Ingi Eiríksson Fjölbreyttar bækur frá Hólum - Glens og gaman í bland við alvöru - Fugladagbók væntanleg LISTVINAFÉLAGIÐ Í REYKJAVÍK 39. STARFSÁR SCHOLA CANTORUM REYKJAVICENSIS KÓRTÓNLEIKAR Í HÁTEIGSKIRKJU REYKJAVÍK SUNNUDAGINN 26. SEPTEMBER 2021 KL. 17 IN PARADISUM SCHOLA CANTORUM HÖRÐUR ÁSKELSSON KAMMERKÓRINN STJÓRNANDI FLYTJENDUR: Miðaverð: 3.900,- Miðasala: tix.is og við innganginn í Háteigskirkju 1 klst. fyrir tónleikana listvinafelag.is - scholacantorum.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.