Morgunblaðið - 23.09.2021, Side 72
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
FAST SENDINGARGJALD MEÐ PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER!
Haustdagar
Nýjar vörur
FLORA BLÓMAVASI Ø25CM
3.995 kr.
STONE SÆNGURVER 140x200CM
14.995 kr.
MAI KERTASTJAKIMARGIR LITIR
1.495 kr.
RONA ÁBREIÐURMARGIR LITIR 130x170CM
7.995 kr.
BEND KERTI H14.5CM 4.995 kr.
BOBBIE SKÁL LEIR. Ø26,5CM 7.995 kr.
RONA ÁBREIÐAMAUVE 130x170CM
7.995 kr.
AUBREY GÓLFLAMPI
H128CM
19.995 kr.
Félagi íslenskra bókaútgefenda bárust
samtals 702 umsóknir frá bóka-
unnendum sem áhuga hafa á að velja at-
hyglisverðustu bækur ársins í dóm-
nefnd Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Þetta eru 429 fleiri
umsóknir en í fyrra. Alls sóttu 151 karl
(21,5%) og 551 kona (78,5%) um að gegna dómnefnd-
arstörfum. Umsækjendur gátu sótt um að komast í
eina eða fleiri nefndir, en þrír dómnefndarmenn starfa í
hverri nefnd. Alls sóttu 458 á aldrinum sjö til 83 ára
um að vera í dómnefnd barna- og ungmennabóka, 64
karlar (14%) og 394 konur (86%); 557 á aldrinum 18 til
83 ára sóttu um að vera í íslensku skáldverkadóm-
nefndinni, 115 karlar (21%) og 442 konur (79%), og
244 á aldrinum 23 til 83 ára sóttu um að vera í dóm-
nefnd fræðibóka og rita almenns efnis, 76 karlar (31%)
og 168 konur (69%). Verðlaunanefnd félagsins fer yfir
umsóknirnar og leggur fram tillögur sínar á stjórnar-
fundi félagsins. Greint verður opinberlega frá nöfnum
dómnefndarmanna um leið og tilnefningar verða
kynntar, hinn 1. desember.
702 vilja velja vinningsbækurnar
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 266. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Vanda Sigurgeirsdóttir tilkynnti í gær framboð sitt í
kjörinu á formanni Knattspyrnusambands Íslands. Nái
hún kjöri verður hún fyrst kvenna til að gegna embætt-
inu og um leið væntanlega eina konan sem væri í for-
svari fyrir knattspyrnusambönd 55 Evrópuþjóða. Sjálf
á Vanda að baki glæsilegan feril sem knattspyrnukona
og þjálfari. »62
Fyrst kvenna á formannsstól KSÍ?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þetta á upphaf sitt í því að þegar
Unnur var í sjötta bekk í grunnskóla
var handavinnukennarinn hennar
hér í Flúðaskóla að reyna að finna
eitthvað fyrir hana að gera sem
hæfði henni. Hún vissi að í framtíð-
inni myndi Unnur hafa nægan tíma
og því væri upplagt að kenna henni
að sauma út,“ segir Marta Hjalta-
dóttir, móður ungrar konu, Unnar
Þórsdóttur, en hún situr við dagana
langa og saumar út púða sem seldir
eru til styrktar Downs-félaginu, en
sjálf er Unnur einstök stúlka með
Downs-heilkenni.
„Unnur er með heilmikla þrá-
hyggju og hún festist alveg í púða-
útsaumnum, sem er ástæða þess
hversu miklu hún hefur afkastað.
Hún situr við útsaum alla daga hér í
eldhúsinu á Kópsvatni, en ég er með
henni í þessu; ég set spottana á rétt-
an stað og svo geng ég frá þeim.
Unnur er mjög glögg á þetta og læt-
ur mig strax vita ef ég rétti henni
rangan lit af garni,“ segir Marta
og bætir við að Unnur hafi fengið
handavinnuverðlaun í sjöunda
bekk í Flúðaskóla, því það varð
svo mikil framför hjá henni í
saumaskapnum.
„Þá fékk hún í verðlaun mynd
af Mjallhvíti til að sauma út og
sú er orðin að púða sem prýðir
stofuna hjá okkur,“ segir Marta
og bætir við að Unnur sé með
ódæmigerða einhverfu, kvíða og
fleira.
„Hún var með þráhyggju fyrir
Disney-lögum og horfir mikið á
Disney-myndir, þess vegna vill hún
helst eingöngu sauma út teikni-
myndafígúrur. Teiknimyndir eru
aðalmálið hjá henni, Konungur ljón-
anna er í miklu uppáhaldi.“
Næstum hundrað myndir
Marta segir að á þeim sextán ár-
um sem liðin eru frá því að Unnur
byrjaði að sauma út hafi eðli málsins
samkvæmt safnast upp mikið magn
af útsaumsmyndum.
„Þetta voru orðnar um níutíu
myndir, en hún hefur líka saumað út
litlar jólamyndir og fleira. Við höfum
í gegnum tíðina gefið Unnar-púða í
jólagjafir innan fjölskyldunnar,
brúðkaupsgjafir og fleira, enda vill
Unnur mjög gjarnan gefa púðana
sína. Ella Jóna vinkona mín í Tungu-
felli, sem er mikil saumakona, fékk
þessa hugmynd að taka að sér að
setja upp púðana og selja þá inni á
síðunni sinni ellajona.net, en þar
kallar hún sig: Fjallafrúin saumar.
Hver púði kostar átta þúsund krón-
ur en fimm þúsund renna til Downs-
félagsins. Þrjú þúsund krónurnar
sem eftir eru fara upp í kostnað á
efniskaupum, því ámáluðu stramm-
arnir eru dýrir og svo þarf að kaupa
efni í púðabak, fyllingu og rennilás.
Við gefum alla okkar vinnu, Unnur,
Ella Jóna og ég. Núna í september
stofnaði Ella Jóna facebooksíðuna
Unnar púðar, þar sem fólk getur
keypt púða til að styrkja Downs-
félagið.“
Marta segir að þegar Unnur fór á
starfsbraut í Fjölbrautaskóla Suður-
lands hafi kennararnir þar kennt
henni að sauma ýmislegt fleira.
„Til dæmis jólateppi sem við not-
um alltaf undir jólatréð. Unnur get-
ur með miklum stuðningi gert flókn-
ari hluti. Ef hún fengist til að láta
einhvern annan en mig hjálpa sér
væri hún ábyggilega búin að læra að
ganga sjálf frá púðunum, en hún vill
fá mikla þjónustu hjá mér, enda er
ég umboðsmaður listakonunnar.“
Vandvirk Unnur við út-
saum við eldhúsborðið
heima á Kópsvatni.
Unnar-púðar eru seldir til
styrktar Downs-félaginu
- Unnur Þórsdóttir er afkastamikil við útsauminn
Fallegir Hér er sýnishorn af út-
saumuðu púðunum hennar Unnar.