Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
NJÖRVI & NJÖRVI+
Öflug árekstrarvörn
Njörvi er öflugur stólpi til
að verja mannvirki og
gangandi fólk. Hentar líka
vel til skyndilokana vega
og til að afmarka
akstursleiðir og bílaplön.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Minnisvarði Björns Jónssonar í
Nesi var afhjúpaður af Vilhjálmi
Lúðvíkssyni, fyrrverandi formanni
Garðyrkjufélags Íslands, og Ás-
gerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra
Seltjarnarnesbæjar, í Urtagarð-
inum í Nesi í gær.
Björn var fyrsti lyfjafræðingur
og apótekari okkar Íslendinga en
hann fæddist 1. nóvember 1738 og
lést 19. september 1798. Tilefni
minnisvarðans er að í desember á
síðasta ári voru 250 ár liðin frá því
að Björn útskrifaðist sem lyfjafræð-
ingur frá háskóla í Kaupmanna-
höfn, og kom hann þá til starfa í
Nesi við Seltjörn.
Steinninn var hannaður og út-
færður af Guðrúnu Indriðadóttur,
lyfjafræðingi og listkonu, en á hon-
um má sjá sortulyng sem talið er að
Björn hafi notað sem lyfjafræð-
ingur. hmr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert
Minnisvarði
Björns
afhjúpaður
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
telur varhugavert að Íslendingar
festi krónuna við evruna. Telur
hann það illframkvæmanlegt og
geti það meðal annars leitt til hærri
stýrivaxta. Frá þessu var greint á
vef Viðskiptablaðsins í gærkvöldi.
Seðlabankastjórinn telur ómögu-
legt fyrir bankann að halda fast-
gengi við evru en til að það gangi
upp þyrfti meðal annars að beita
öllum gjaldeyrisforðanum til að við-
halda því. Auk þess yrði ríkisstjórn-
in ávallt að taka mið af jafnvægi
gengisins í fjárlögum og samkomu-
lag þyrfti að ríkja við verkalýðs-
félög um launahækkanir. Að þess-
um skilyrðum uppfylltum væri þó
enn ekki hægt að
treysta á að fast-
gengið myndi
ganga eftir þar
sem aðrir óvissu-
þættir væru enn
til staðar.
Telur Ásgeir
að tenging krón-
unnar við evruna
gæti meðal ann-
ars leitt til hærri stýrivaxta þar
sem nauðsynlegt gæti orðið að
hækka vexti til að verja gengið.
Segir hann ekki ráðlegt að bera
saman stöðu Íslendinga nú og þeg-
ar krónan var tengd við reikniein-
inguna ECU árið 1989. Hafi það
fyrirkomulag gengið upp í ljósi fjár-
magnshafta sem eru ekki til staðar
í dag.
Myndi taka mið af Evrópu
Segir Ásgeir að Íslandi bjóðist
tvær leiðir, annars vegar evran og
innganga í Evrópusambandið, og
hins vegar sjálfstæð peningastefna.
Hvað varðar upptöku evrunnar seg-
ir Ásgeir Íslendinga þurfa að inn-
leiða efnahagsstefnu og launastig
sem myndu taka mið af gangi mála í
Evrópu. Ef laun hér á landi væru í
miklu ósamræmi við önnur lönd í
Evrópu gæti það haft neikvæðar af-
leiðingar fyrir samkeppnishæfni ís-
lenskra fyrirtækja. hmr@mbl.is
Erfitt að tengja við evru
- Seðlabankastjóri telur það illframkvæmanlegt að tengja
íslensku krónuna við evruna - Hætta á hærri stýrivöxtum
Ásgeir Jónsson
Hlutfall atvinnulausra sem eru á
aldrinum 16-24 ára hefur aldrei
mælst lægra í ágústmánuði frá upp-
hafi samfelldrar vinnumarkaðsrann-
sóknar Hagstofunnar. Áætlað er að
800 einstaklingar á þessum aldri hafi
verið án atvinnu í seinasta mánuði,
sem samsvarar 2,5% atvinnuleysi og
var hlutfall starfandi á vinnumark-
aðinum sem eru á þessu aldursbili 16
til 24 ára 76,7%.
Jókst hlutfallið um rúm átta pró-
sentustig á milli ára. Þetta kemur
fram í niðurstöðum vinnumarkaðs-
könnunar Hagstofu Íslands sem birt
var í gær. Þá mældist samkvæmt
könnuninni 5,1% heildaratvinnuleysi
yfir allt landið þegar tekið hefur ver-
ið tillit til árstíðasveiflna á þessum
árstíma.
Reikna má með að yfir landið allt
hafi um 5.200 karlar verið atvinnu-
lausir í seinasta mánuði og heldur
fleiri konur eða 5.700. Stóð árstíða-
leiðrétt atvinnuleysi í stað á milli
mánaða.
Í gögnum Hagstofunnar úr rann-
sókninni kemur fram að áætlað er að
211.600 manns á aldrinum 16 til 74
ára hafi verið á vinnumarkaðinum í
ágústmánuði og jafngildir það 79,8%
atvinnuþátttöku. Af þessu vinnuafli
voru tæplega 201 þúsund við störf en
aðrir voru atvinnulausir og í atvinnu-
leit. Hefur hlutfall starfandi fólks
aukist um 1,4 prósentustig á milli ára
og atvinnuleysið dregist saman um
1,4 prósentustig að jafnaði sam-
kvæmt greiningu Hagstofunnar.
Að jafnaði var vinnutími starfandi
fólks á vinnumarkaðinum 35,2 stund-
ir á viku í ágústmánuði. omfr@mbl.is
Minnsta atvinnu-
leysi 16-24 ára
- Hagstofan mæl-
ir 5,1% atvinnu-
leysi í ágúst
Morgunblaðið/Ómar
Við störf Atvinnuleysi á landinu var
5,1% í ágúst að mati Hagstofunnar.
Hinn 1. janúar næstkomandi mun
breytt fjármögnun Landspítalans
taka gildi þar sem klínísk starfsemi
spítalans verður fjármögnuð í sam-
ræmi við umfang veittrar þjónustu.
Samningur um nýja greiðslufyrir-
komulagið var undirritaður í gær en
í því felst að þjónusta stofnunarinnar
verður flokkuð samkvæmt sjúk-
dómaflokkunarkerfi. Hver flokkur
lýsir umfangi þjónustunnar er liggur
að baki hverju tilfelli og verður það
mælt í DRG-einingum. Mun spítal-
inn síðan fá greitt í samræmi við ein-
ingarnar.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítala, kveðst ánægður með að
samningur um þjónustutengda fjár-
mögnun sé loks í höfn. Taki nú við
mikil vinna við innleiðingu greiðslu-
fyrirkomulagsins þar sem mæla þarf
með réttum hætti framleiðsluna og
kostnaðargreina hvert verk.
Hann vekur athygli á að þótt
samningurinn nái yfir stóran hluta
starfsemi spítalans séu enn margir
þættir sem þjónustutengda fjár-
mögnunin muni ekki ná til. Bráða-
móttaka og geðheilbrigðisþjónusta
munu til að mynda verða undanþeg-
in þessari fjármögnun. Er það mark-
miðið að öll þjónusta Landspítala
verði þjónustutengd á næstu árum.
hmr@mbl.is
Breytt fjármögn-
un Landspítala
- Fjármögnun í samræmi við þjónustu