Morgunblaðið - 24.09.2021, Side 8
Undirritun Kjartan bæjarstjóri með fulltrúum frá ÍAV, VSB og UMFN.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, undirritaði í
vikunni verksamning milli bæjarins
og Íslenskra aðalverktaka vegna
framkvæmda við annan áfanga
Stapaskóla. Umræddur áfangi er
fullbúið íþróttahús með plássi fyrir
1.100 áhorfendur og 25 metra inni-
sundlaug auk útisvæðis með heitum
pottum.
Við sama tækifæri var undirrit-
aður samningur við VSB Verk-
fræðistofu ehf. um eftirlit og bygg-
ingarstjórn vegna fram-
kvæmdarinnar en sú stofa hafði
sama hlutverk á fyrri áfanga Stapa-
skóla. Fullkláraður mun þessi áfangi
kosta rúma 2,4 milljarða króna en
tilboð Íslenskra aðalverktaka hljóð-
aði upp á 92% af kostnaðaráætlun.
Stapaskóli tók til starfa haustið
2020 og er heildstæður skóli með yf-
ir þrjú hundruð nemendur á grunn-
og leikskólaaldri. Skólinn stendur
miðsvæðis í nýjasta hverfi Reykja-
nesbæjar og eru leiðarljós hans
„gleði, vinátta, samvinna og virð-
ing“. Bygging skólans er stærsta
framkvæmd sem Reykjanesbær hef-
ur ráðist í.
„Með byggingu annars áfanga
Stapaskóla fær skólinn ekki aðeins
vel búna aðstöðu til íþróttakennslu
heldur mun byggingin einnig stór-
bæta aðstöðu til almennrar íþrótta-
iðkunar og með tengingu við bóka-
safnið þjóna íbúum bæjarins sem
eins konar hverfismiðstöð,“ segir í
tilkynningu frá Reykjanesbæ.
hdm@mbl.is
Annar áfanginn
kostar 2,4 milljarða
- Verksamningur við ÍAV vegna Stapaskóla
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
Í fyrra lífi sínu, sem hann vill ekki
kannast við í dag, var foringi
Sósíalistaflokksins, Gunnar Smári
Egilsson, ötull talsmaður aukins
einkarekstrar á öllum sviðum og al-
mennt aukins frjálsræðis í viðskipta-
lífinu, auk þess að
taka sjálfur þátt í því
af óheftum myndar-
skap eins og frægt
er orðið. Þá viðraði
hann, sem ritstjóri
Fréttablaðsins,
skoðun sína á ýms-
um málum og
fjallaði meðal annars um það að
stjórnmálaflokkum væri „nauðsyn-
legt að hafa trúverðuga leiðtoga“.
- - -
Hringlandaháttur er tæplega til
að auka trúverðugleika og
þess vegna er sjálfsagt að rifja upp
skoðanir Gunnars Smára áður en
hann skyndilega varð sósíalisti. Tök-
um tvö dæmi sem snerta sérstaklega
stefnumál Sósíalistaflokksins.
- - -
Um kjaramál og launahækkanir
sagði hann: „Kjarasamningar
verkalýðsfélaga geta vissulega haft
slæm áhrif á kjörin – til dæmis
samningar sem bera með sér of
miklar hækkanir á skömmum tíma
sem síðan brjótast út í hærra verð-
lagi – en þau jafna sig ávallt til
lengri tíma.“ Hvað ætli sósíalistafor-
inginn segi um þetta?
- - -
Hann fjallaði einnig ítrekað um
einkavæðingu í heilbrigðis-
kerfinu og sagði til dæmis: „Ef það
eitt að einkavæða bankana gat leyst
slíka orku úr læðingi sem við höfum
séð á undanförnum mánuðum,
hversu mikil afrek gætum við ekki
unnið í heilbrigðiskerfinu ef við
frelsuðum það undan stefnulausum
og orkusóandi ríkisrekstri?“
- - -
Þetta er áleitin spurning sem
óneitanlega snertir trúverð-
ugleika flokksforingjans – og flokks-
ins.
Gunnar Smári
Egilsson
Trúverðugleikinn
STAKSTEINAR
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Aðalmeðferð Rauðagerðismálsins
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur lauk
seinnipartinn í gær með málflutningi
verjenda og saksóknara.
Fjögur eru ákærð í málinu, einn
fyrir að hafa orðið Armando Beqirai
að bana í Rauðagerði 13. febrúar síð-
astliðinn, en hin fyrir samverknað.
Angjelin Sterkaj, einn ákærðu, hefur
játað að hafa orðið Armando að bana
en hin þrjú ákærðu neita sök. Í máli
Kolbrúnar Benediktsdóttur varahér-
aðssaksóknara kom fram að augljóst
væri að Angjelin Sterkaj hefði skipu-
lagt morðið á Armando Beqirai.
Hann hefði gengið fumlaus til verks,
verknaðurinn hefði tekið innan við
mínútu og um hefði verið að ræða
hreina og klára aftöku.
Þá segir Kolbrún einnig að með-
ákærðu í málinu hafi vitað um fyr-
irætlanir Angjelins og séu þannig sek
um samverknað með honum.
Þessu er Oddgeir Einarsson, verj-
andi Angjelins, ósammála og hefur
hann haldið fram síðan réttarhöldin
hófust að skjólstæðingur sinn hafi
beitt nauðvörn. Angjelin hafi mátt
sæta linnulausum líflátshótunum af
hálfu Armandos og því hafi hann farið
vopnaður á hans fund í Rauðagerði til
þess að geta varist árás. Þegar svo
upp úr sauð á Angjelin að hafa gripið
til þess örþrifaráðs að skjóta Arm-
ando til bana.
Aðrir verjendur í málinu gerðu lítið
úr málflutningi ákæruvaldsins um
samverknað sinna skjólstæðinga í
málinu. Einna mestur hiti hefur verið
um skýrslu lögreglu um eigin rann-
sóknarhætti í málinu, þar sem fram
koma ósannaðar kenningar lögreglu
um málsatvik. Geir Gestsson, verj-
andi ákærða, Murats Selivrada, fór
mikinn þegar hann gagnrýndi að sú
skýrsla hefði verið lögð fram í málinu
til grundvallar sekt. Fyrir því sagði
Geir að ekki væri heimild í lögum.
Morðið talið hrein og klár aftaka
- Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu lauk í gær - Verjandi talar um nauðvörn