Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
i | w . e.
r t f r
n n
h v r e
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Nú þegar dregur að lokum kosn-
ingabaráttunnar þótti rétt að gefa
frambjóðendum frí frá Dagmálum
og áhorfendum Dagmála frí frá
þeim. Gestir Dagmála nú eru þau Líf
Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, og Árni Helgason lögmað-
ur, áður framkvæmdastjóri þing-
flokks sjálfstæðismanna. Þau eru því
bæði öllum hnútum kunnug í stjórn-
málunum, þó að hvorugt taki beinan
þátt í kosningabaráttunni.
Gestunum ber saman um að þrátt
fyrir að framboðin hafi ræst fram-
boðsvélarnar í vor og sumar, þá hafi
kjósendur ekki reynst móttækilegir
fyrir kosningabaráttunni fyrr en
langt var liðið á haustið. Landsmenn
hafi nýtt langþráð sumarfrí eins
lengi og unnt var, en svo væri ekki
hægt að líta hjá því að síðasta bylgja
heimsfaraldursins hefði haft áhrif.
Líf og Árni voru á einu máli um að
fleiri kjósendur væru óákveðnir en
venja væri og svo virtist sem vænn
hluti myndi ekki ákveða sig fyrr en á
leið í kjörklefann eða þar inni.
Þau eru bæði fylgismenn stjórn-
arflokka, en áttu ekki góðar skýr-
ingar á því hvers vegna stjórnar-
flokkarnir hefðu ekki náð að
uppskera fylgi til samræmis við vin-
sældir ríkisstjórnarinnar, sem hefðu
verið miklar og viðvarandi. Líf
minnti á skoðanakannanir sem
sýndu að tæp 42% kjósenda vildu að
Katrín Jakobsdóttir yrði áfram for-
sætisráðherra. „Þetta er ekki stuðn-
ingur sem Vinstrihreyfingin – grænt
framboð fær, en ég vona samt að það
komi upp úr kjörkössunum,“ segir
Líf og kveðst vona að Katrín myndi
vinstristjórn að kosningum loknum.
Árni var ekki sama sinnis um það,
en minnti á að kosningarnar væru
fyrri hálfleikur, stjórnarmyndunar-
viðræður væri seinni hálfleikurinn
og þar myndu úrslitin ráðast. Við
þær myndi miklu skipta hvaða fólk
gæti unnið saman. Kjósendur
myndu vafalaust taka tillit til þess,
rétt eins og persónu forystumanna. Í
þessum kosningum skiptu mennirnir
ekki minna máli en málefnin.
Ekki síður kosið um menn en málefni
- Kjósendur lengi ekki reynst móttækilegir fyrir kosningabaráttunni - Síðasta bylgja faraldursins
hafði áhrif - Kosningarnar aðeins fyrri hálfleikur og seinni hálfleikur fram undan að þeim loknum
Morgunblaðið/Hallur
Dagmál Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Árni Helgason lögmaður ræða við Andrés Magnússon í Dagmálum Morgunblaðsins í dag.
Þrátt fyrir strekkingsvind á stöku
stöðum og éljagang á hæstu fjall-
vegum ættu samgöngur að geta
gengið snurðulítið fyrir sig á kjör-
dag – og þá um kvöldið þegar
greidd atkvæði úti á landi verða
flutt á talningarstaði. Spáð er NA-
og A-átt víða um land og vindstyrk
sem er 5-10 metrar á sek.
Hvassara verður á Vestfjörðum
og á útnesjum nyrðra, þar sem
sennilega verða él eða krapi. Einn-
ig gæti orðið éljagangur á Snæfells-
nesi og á Hellisheiði. Á Reykjavík-
ursvæðinu verður ágætt og milt
veður en hugsanlega einhverjar
skúrir. Um kvöld og nótt versnar
veður SA-lands og á Austurlandi.
Þar verður slagveður og jafnvel
snjókoma. Þá gæti hvesst á vestan-
verðu landinu og því fylgt él og
hálka á heiðarvegum.
Bjartviðri í síðustu kosningum
Á kjördag 29. október 2016 fór
lægð vestur fyrir land með rign-
ingu um mestallt land. Hlýtt var
nyðra. Kjörsókn þá var 79,2%. Í
kosningum árið eftir, 28. október
2017, var kalt á landinu, engin snjó-
koma og bjartviðri sunnanlands.
Alls 81,2% kjósenda neyttu atkvæð-
isréttar síns þá. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Væta Regnhlífar gætu orðið mikið
þarfaþing í Reykjavík á morgun.
Hvassviðri
með vætu
á kjördegi
- Hvasst og él á
vestanverðu landinu