Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Öðru hvorum megin við mánaðamót er reiknað með að útsýnispallurinn á Bolafjalli verði opnaður. Vegurinn upp á fjallið lokaðist vegna snjóa í vikunni, en í gær var aftur orðið fært þangað. Eins til tveggja daga vinna er eftir við pallinn og að því loknu er stefnt að formlegri opnun þegar gef- ur gott veður. Lokafrágangur á fjallinu Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvíkurkaupstað, segir að framkvæmdir hafi gengið vel frá því lagt var af stað í þetta verkefni með hönnunarsamkeppni árið 2019. Nú er einungis eftir að ljúka við að skrúfa grindur í gólf pallsins og jafna jarðveg sem rótað var frá berginu við uppsetninguna. Gólfplöt- urnar koma frá Ítalíu og eru með hálkuvörn, sérstaklega hannaðar fyrir aðstæður eins og í þverhníptu fjallinu í 700 metra hæð. Áður en blásið verður til opnunarhátíðar verður gerð öryggisúttekt á mann- virkinu. Síðari hluta ágústmánaðar kom í ljós að byggingarleyfi hafði ekki ver- ið gefið út vegna pallsins, en þá voru framkvæmdir langt komnar. Jón Páll segir að eftir viðræður bæjaryfirvalda og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem deili ábyrgð í málinu, hafi það mál verið leyst farsællega og leyfið gefið út í byrjun september. Hann segir ástæður þess vera margvíslegar, að ekki hafi náðst að gefa út bygging- arleyfi í tæka tíð. Fer óhræddur út á pallinn Veginum upp á Bolafjall hefur verið lokað með keðju í fyrstu snjó- um, oft undir lok september. Nú verður honum haldið opnum fram yfir opnunarhátíðina. Auk bæjarbúa verður ráðherrum, þingmönnum kjördæmisins og þeim öðrum sem komið hafa að verkefninu boðið á opnun pallsins. Jón Páll segir að framkvæmdin sé innan kostnaðaráætlunar, en endan- legur kostnaður liggi þó ekki fyrir. Framkvæmdasjóður ferðamanna- staða veitti 160 milljónir króna í byggingu pallsins á Bolafjalli. Fram- lag bæjarins var áætlað 20% af heildarkostnaði, sem stefnir í að verða innan við 200 milljónir, að sögn Jóns Páls. Stefnt er að því pallurinn verði sterkur ferðamannasegull þar sem hægt verði að njóta stórbrotins út- sýnis yfir Ísafjarðardjúpið. Jón Páll segist ekki í vafa um að svo verði og sjálfur segist hann óhræddur fara út á pallinn, sem að hluta til slútir yfir þverhnípið. Mikið útsýni Vestfirskir verktakar festa grindur á pallinn í vikubyrjun. Formleg opnun á Bola- fjalli þegar vel viðrar - Halda veginum opnum - Innan kostnaðaráætlunar Á Bolafjalli Það var kuldalegt á pallinum í gær þegar Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri og Finnbogi Bjarnason byggingarfulltrúi skoðuðu mannvirkið. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikil leynd hvíldi yfir komu erlends kvikmyndatökuliðs hingað til lands í síðasta mánuði. Tökuliðið vann að gerð stórrar kynningarmyndar fyr- ir hinn nýja iPhone 13 sem kemur í sölu í dag. Margir bíða spenntir eftir nýja iPhone-símanum, ekki síst Pro- útgáfu hans sem hefur að geyma einstaka eiginleika við myndatökur ef marka má kynningarefnið. Apple-fyrirtækið vildi sýna að iP- hone 13 Pro gæti nýst við kvik- myndatökur á erfiðustu stöðum og því var horft hingað til lands. Útkomuna má finna á Youtube. Um er að ræða 2:40 mínútna langa kynningarmynd um iPhone 13 Pro sem tekin var bæði hér á landi og í myndveri í Los Angeles. Myndin hefur þegar fengið hátt í 17 milljónir áhorfa á Youtube. Tökur fóru fram á Langjökli um miðjan ágústmánuð, í „vitlausu veðri“ eins og einn viðmælandi Morgunblaðsins orðaði það. Töku- dagar voru fjórir og yfir eitt hundr- að manns voru í tökuliðinu. Þar af komu um 20 manns að utan en um 90 Íslendingar voru á tökustað þeg- ar mest lét. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hafði íslenska fram- leiðslufyrirtækið Pegasus umsjón með tökunum hér á landi. Forsvars- menn fyrirtækisins vildu ekki stað- festa það þegar eftir því var leitað. Vinsældir iPhone-símanna eru flestum kunnar. Yfir einn millj- arður slíkra síma er í notkun í heiminum og hermt er að iPhone sé mest selda tækið í heiminum. Ís- lendingar láta ekki sitt eftir liggja en þeir þurfa þó að bíða um sinn eftir nýjustu útgáfunni af iPhone. Apple skiptir sölu iPhone eftir landssvæðum og ekki geta öll lönd hafið sölu á sama tíma. Því kemur iPhone 13 í sölu 8. október á Ís- landi. Auglýsing fyrir iPhone tekin á Langjökli - Yfir hundrað manns í tökum fyrir iPhone í brjáluðu veðri - Nær 17 milljón áhorf á Youtube á viku Landkynning Stór auglýsing fyrir iPhone 13 Pro var tekin á Langjökli um miðjan ágúst. Yfir hundrað manns unnu við tökurnar í „vitlausu veðri“. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég hugsa að heilt yfir verði þetta jákvætt fyrir neytendur. Ef tengi verða stöðluð í Evrópu munu þau ef- laust verða stöðl- uð annars staðar í kjölfarið,“ segir Guðmundur Jó- hannsson, sam- skiptafulltrúi Símans og tækni- sérfræðingur. Evrópusam- bandið tilkynnti í gær að það myndi setja reglur sem kveða á um staðl- aða tegund hleðslukapla fyrir snjall- síma. Slík ráðstöfun kemur illa við Apple sem hefur framleitt sérstaka hleðslukapla, svokölluð Lightning tengi fyrir iPhone-síma sína. Evr- ópusambandið segir að samræmd tengi fyrir öll tæki muni minnka raf- rænan úrgang. Apple heldur hinu gagnstæða fram, að úrgangur muni aukast, og að verði þetta að veru- leika muni það hægja á nýsköpun. „Það hefur verið talað um þetta lengi,“ segir Guðmundur. Hann rifj- ar upp að fyrir rúmum tíu árum hafi tæknirisarnir gert með sér sam- komulag um að nota sömu tengin. Apple hafi verið með í því en þegar á reyndi lét fyrirtækið aðeins milli- stykki fylgja símum sem hægt var að tengja USB-tengi. Nú er staðan þannig að öll tækni- fyrirtækin nema Apple noti USB-C- tengi fyrir síma sína. Til að hlaða iP- hone þarf svokallað Lightning-tengi sem Apple framleiðir. Hins vegar notast Apple við USB-C í nýjustu fartölvum sínum og sumum iPad spjaldtölvum. „Að baki þessu búa líklega markaðslegar ástæður. Það getur enginn búið til aukahlut fyrir iPhone nema að borga Apple fyrir. Apple gæti fjarlægt tengin alveg af iPhone í framtíðinni og notast aðeins við sína eigin þráðlausu hleðslu- tækni og þannig haldið áfram að fá tekjur af aukahlutum,“ segir Guð- mundur. Hann bendir á að þótt flestir kjósi að hafa hleðslukapal tiltækan fyrir síma sína hafi tengi hvorki fylgt með iPhone 12 né Samsung S21. „Að hluta má rekja það til að auðveldara er að hlaða síma þráðlaust en áður og fjölmörg heimili eiga mörg hver fjölda hleðslutækja fyrir.“ Stöðluð hleðslu- tæki fyrir síma - Evrópusambandið boðar nýjar reglur Guðmundur Jóhannsson Í umfjöllun um skýrslu um framtíð íslensks fiskeldis var haft eftir Árna M. Mathiesen að grundvöllur tæki- færa til aukinnar framleiðslu væri tækninýjungar sem tryggja að hægt verði að auka framleiðslu án þess að fara með opið sjókvíaeldi inn á þau svæði sem eru í gildandi burðarþols- mati. Hið rétta er að átt var við svæði sem eru utan nýtingarsvæða í gildandi burðarþolsmati. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Sjókvíaeldi utan nýtingarsvæða Sr. Pálmi Matt- híasson kveður söfnuð sinn í Bú- staðakirkju nk. sunnudag 26. september, við guðsþjónustu sem hefst kl. 13. Hann er nú að láta af störfum sem sóknar- prestur eftir 32 ár í Bústaðakirkju. Við guðsþjónustuna þjónar sr. Pálmi ásamt Hólmfríði Ólafsdóttur djákna. Kammerkór Bústaðakirkju og kantor Jónas Þórir og vinir verða með tónlistarveislu og að henni lokinni verður boðið upp á veitingar. Sr. Pálmi var vígður í Akureyr- arkirkju 1977 og hefur verið sókn- arprestur í 44 ár. Hann þjónaði Melstaðaprestakalli í Miðfirði í 5 ár. Var svo 1981 kjörinn prestur í ný- stofnuðu Glerárprestakalli á Ak- ureyri og vann þar að byggingu Glerárkirkju. Þjónaði einnig Mið- garðakirkju í Grímsey. Árið 1989 var Pálmi kallaður til starfa í Bú- staðaprestakalli og hefur þjónað þar síðan, nú síðast sameinuðu Fossvogsprestakalli. Kveðjumessa sr. Pálma í Bústaðakirkju Pálmi Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.