Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 heyrandi ferðalagi út í pólitíska óvissu hand- an kosninga. Kjósendur vita hins vegar hvar þeir hafa Sjálfstæðisflokkinn og þeim mun fleiri sem leggja okkur lið á laugardaginn kemur þeim mun minni óvissa í framhaldinu. Það eru forréttindi að hafa fengið tæki- færi til að taka þátt í kosningabaráttu und- anfarnar vikur. Að skynja traust og þakklæti fólks á förnum vegi í garð forystusveitar sjálfstæðismanna og stjórnvalda fyrir öruggt taumhald á erfiðum tímum heimsfaraldurs og að tekist hafi á sama tíma að við- halda stöðugleika og stuðla að hraðari bata í efnahags- og atvinnu- lífi eftir Covid-dýfuna. Okkur hefur auðnast að grípa mörg tækifæri og vinna úr þeim landi og þjóð til heilla. Það ætlum við sannarlega að gera áfram því yfirskrift kosningabaráttu okkar sjálfstæðismanna, „land tækifær- anna“, er aldeilis ekki orðin tóm heldur staðreynd og innihaldsríkur vegvísir til næstu framtíðar og áfram. Sjálfstæðisflokkurinn er eina stjórnmálaaflið sem hefur birt raunhæfa áætlun um að draga úr losun koltvísýrings – CO2 – með það að markmiði að notkun jarð- efnaeldsneytis ljúki á Íslandi áður en árið 2040 gengur í garð. Við eig- um ekki að setja markið lægra en svo að Íslendingar verði í forystu í veröldinni að þessu leyti. Ísland flytji bæði út rafeldsneyti og þekk- ingu á því að hreinsa andrúmsloftið í orðsins fyllstu merkingu. Þar vísa ég til einstakrar hreinsistöðvar sem tekur við útblæstri frá Hellisheið- arvirkjun sem aðskilur brenni- steinsvetni og koltvísýring og dælir niður í jörðina til að binda efnin þar við berglög á 1.000-2.000 metra dýpi. Við eigum gott heilbrigðiskerfi sem hægt er að gera enn betra. Stundarkornið á kjörstað hverju sinni vekur með kjósandanum jafn- an sérstakar tilfinningar og hefur meiri og víðtækari áhrif en marga grunar. Hvert atkvæði skiptir máli og það á ekki síst við nú þegar boð- ið er upp á fjölda framboða með til- Þar bíða áskoranir sem teljast ekki vandamál heldur verk- efni til að vinna að og leysa. Fólk sem leitar eftir grunnheilbrigð- isþjónustu langar leið- ir á auðvitað rétt á heilsugæslu í heima- byggð. Aukið samstarf ríkisstofnana og einka- fyrirtækja í heilbrigð- iskerfinu ætti að vera sjálfgefið og auðvitað eigum við ekki að senda fólk úr landi í liðskiptaað- gerðir sem íslenskir læknar geta annast. Hvaða vit er í því þegar hægt er að framkvæma slíkar að- gerðir hérlendis fyrir mun færri krónur? Sjálfstæðisflokkurinn er og verð- ur kjölfesta í samfélaginu sem kjósendur geta treyst að taki hvorki þátt í pólitískri ævintýra- mennsku né kollsteypum sem sum framboð beinlínis lofa nú að verði að veruleika fái þau valdatauma í hendur á næsta kjörtímabili. Það dylst engum sem fylgist með málflutningi vinstriflokkanna þessa dagana að þá dreymir fyrst og síð- ast um að hækka skatta og gjöld af ýmsu tagi. Hugur okkar sjálfstæðismanna stendur til að fara í þveröfuga átt og lækka álög- ur á fólk og fyrirtæki, halda niðri vöxtum og verðbólgu og auka enn frekar ráðstöfunartekjur heim- ilanna, sem vel að merkja hafa auk- ist mikið vegna efnahagslega stöð- ugleikans. Þetta bið ég kjósendur að hafa í huga þegar þeir eru einir með sjálf- um sér í kjörklefanum. Ögurstund í kjörklefanum Eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur » Sjálfstæðisflokkur- inn er og verður kjölfesta í samfélaginu sem kjósendur geta treyst. Guðrún Hafsteinsdóttir Höfundur er oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi. STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is YFIRHAFNIR FYRIR HAUSTIÐ Stærðir 14-30 eða 42-58 Það hafa löngum verið mikil gamanmál í fyrirsögnum dagblaða. Seinni hluti fyr- irsagnar þessarar greinar er ein af mín- um uppáhalds- fyrirsögnum, beint úr Morgunblaðinu. Önnur skemmtileg fyrirsögn: „Missti tvo fingur í hausunarvél!“ Auðvit- að hefði þetta getað farið miklu verr! Ellegar: „Handleggsbrotnaði í beyg- ingarvél!“ Auðvitað er það ofstopi að brjóta í stað þess að beygja! Flestar fyrirsagnir í núverandi kosningabaráttu eru miðstigs- auglýsingar án nokkurs sam- anburðar. „Lægri skattar!“ Lægri en hvað? „Greiðari samgöngur!“ Greiðari en hvað? Sennilega er best að segja ekki neitt í kosningabaráttu. Gefast upp á öllum útskýringum og segja kurt- eislega: „Er ekki bara best að kjósa Framsókn!“ Aldrei kaus ég fram- sókn og alltaf fæ ég Framsókn! Fátækt og fátæktargildrur Eða: „Útrýmum fátækt!“ Helsta leiðin til að útrýma fátækt er að stöðva auðsöfnun. Einhvern tímann las ég um fátæktargildrur. Einn hópur var sérstaklega til umfjöll- unar, einstæðar mæður með tak- markaða menntun. Sérstaklega þeg- ar upp voru komin stoðkerfis- vandamál og geðraskanir vegna álags! Ég veit aðeins eitt ráð við því að komast í þessa stöðu en ég má víst ekki ræða hana. Þá verð ég sak- aður um og úthrópaður fyrir skort á samkennd. Það hefur verið talinn skortur á samkennd að vilja efla frjálsan sparnað í öllum aldurshópum og með öllum þjóðfélagshópum! Fátæktar- gildra öryrkja stafar að nokkru leyti af skerðingu á örorkubótum vegna fjáreignatekna. Um það má ekki ræða því þá er verið að ganga erinda auðsöfnunar. Sjúkdómavæðing Sálfræðingafélagið er gengið í lið með Öryrkjabandalaginu vegna van- efnda stjórnvalda. Mikil góðmenni eru sálfræðingar. Eða stórsókn Sam- fylkingar í geðvernd- armálum! Gott hjá hjónunum í Geðvernd! Enda þekkt góðmenni. Og svo ætla mið- flokksmenn að senda alla í læknisskoðun. Vissulega er fyrir- byggjandi heilsuvernd arðbær. Fyrirætlanir þessa sérstaka flokks liggja ekki fyrir en ein- föld sjúkdómaleit kem- ur í veg fyrir að ákveðnir sjúkdómar verði skaðlegir. Þetta er nú þegar gert án þess að Miðflokkurinn komi þar nærri! Það var reyndar drep- fyndið að sjá þingmann flokksins hlaupa í ræðustól! Þar kom fram vís- bending um lífsstílssjúkdóm. Góðmennskuköst Toppurinn í góðmennskuköstum frambjóðenda er: „Sókn í loftslags- málum.“ Þetta er auglýsing Sam- fylkingarinnar á díseltrukk. Nú vill til að þjóðin hefur verið í samfelldri sókn í loftslagsmálum frá 1930. Í öllu falli í Reykjavík þar sem hitaveitu- væðing hófst og bygging virkjana í Soginu og á Þjórsársvæðinu. Eða skógrækt í Heiðmörk. Margir sjá alls ekki skóg fyrir trjám. Peningamálastjórn Stjórnmálamenn og hagsmuna- hópar halda að þeim hafi verið falin stjórn peningamála í landinu. Einn ágætur forstjóri hafði reglulega samband við mig og tjáði mér hver væri kostnaður við að framleiða bandaríkjadollara í sínu byggðar- lagi. Oftast var það fjarri því sem Seðlabanki Íslands ákvað, með fast- gengi eða gengissigi. Forstjóranum hugkvæmdist aldrei að eitthvað væri athugavert í hans eigin rekstri. Stjórnmálamenn vilja enn ákveða gengi og vexti eins og gert var 1961. Þá voru flutt frumvörp til laga um lögfestingu vaxta. Hátekjuskattur og auðlegðarskattur Hve margir skattgreiðendur munu greiða hátekjuskatt og hverjir eru það? Í ljós kom að greiðendur voru þeir sem formælendur skatts- ins ætluðu að ná til, svo og nokkrir læknar og sjómenn! Sennilega er best að hefja töku hátekjuskatts þegar framhaldsskólakennarar byrja að kenna í yfirvinnu. Og auðvitað verða greiðendur auðlegðarskatts margir sem lokið hafa starfsævi og enn aðrir munu flytja úr landi. Ágætt framlag ofan í hjal um bætt kjör eldri borgara. Væl frá Samtökum atvinnulífsins Nú vælir framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins um hættu vegna vaxtahækkana. Er sá góði maður að halda því fram að börn og gamal- menni eigi að greiða fyrir þá pen- ingastjórn Seðlabankans sem nú er rekin? Neikvæðir raunvextir eru ekki sjálfbærir og slík peningamála- stefna leiðir til fátæktar og auðsöfn- unar skuldakónga á grundvelli óstjórnar. Hafa ber í huga að fæst íslensk stórfyrirtæki hafa áhyggjur af inn- lendum vöxtum. Þau lifa í evrópsku lágvaxtaumhverfi en dásama sum hver sveigjanleika íslensku krón- unnar. Hafa ber í huga að framkvæmda- stjóri SA var eitt sinn staðinn að því að skilja ekki eðli verðbóta! Seðlabankinn var fyrir löngu bú- inn að vara við skuldsetningu í skjóli lágra vaxta því vaxtabreytingar breyta greiðslubyrði skyndilega. Hvað með lífeyrissjóði? Lífeyrissjóðir hafa aðeins eina skyldu og hún er að greiða sjóðs- félögum lífeyri eftir starfslok. Frjáls sparnaður er einnig hluti af lífeyr- iskerfinu. Lífeyrissjóði varðar ekk- ert um þjóðarhag. Sem betur fer eiga lífeyrissjóðir flóttaleið frá pen- ingastjórn hverju sinni. Það er ekki til neins fyrir seðla- bankastjóra að biðja stjórnendur líf- eyrissjóða að styðja við pen- ingastefnu sem vinnur til verðlauna í peningastefnunefnd Seðlabankans. Skylda lífeyrissjóðanna er ekki að stuðla að framgangi opinberrar pen- ingastefnu, lífeyrissjóðir verða að lifa við þá peningastefnu og leita leiða til að vernda hagsmuni lífeyris- þega. Sú rökleysugildra, sem almanna- tryggingar eru í, þarfnast lagfær- ingar. Sú lagfæring hefur á liðnum árum gengið út á að skerða greiðslur til lífeyrisþega og ennþá meiri skerðingar til þeirra sem eiga ein- hvern frjálsan sparnað. Þeir sem fá greiðslur úr lífeyris- sjóðum spara almannatryggingum verulegar fjárhæðir, enda var að því stefnt í upphafi. Þeir spara trygg- ingunum einnig fé með kostnaðar- þátttöku í vist á hjúkrunarheimilum þar sem dvalardagurinn kostar kr. 35.000. Einn maður hefur lagt til lækkun skatta á lífeyristekjur með þeim rök- um að lífeyristekjur séu að hluta til fjáreignatekjur, en góðmennin hafa ekki hlustað á slíkt. Hvað með fátækt? Að sjálfsögðu er það samfélagsleg skylda að koma í veg fyrir fátækt og allra helst að börn alist ekki upp við fátækt. Það er því miður ekkert samband á milli „auðsöfnunar“ og fátæktar. Frjáls sparnaður er leið út úr fátækt. Til eru þeir, sem stunda auðsöfn- un með því að veita sér fáar lysti- semdir lífsins. Það leiðir ekki til fá- tæktar annarra. Miklu fremur lækkar slíkt vexti í hagkerfinu og styður þannig við ríkjandi pen- ingastefnu. Ábyrgð og ábyrgðarleysi Ég þreytist aldrei á að minna á ábyrgð mannsins á eigin lífi. Margt í hegðun getur valdið fátækt. En auð- vitað á að koma fólki úr fátæktar- gildrum. Þeir, sem stunda fátæktarrann- sóknir, eiga að gera það á grundvelli tölulegra gagna en ekki á grundvelli upplifunar eða þokukennds huglægs mats! Upplifunarvísindi eru mjög ómarkviss vísindi og algerlega gagnslaus. Rannsókn á því hvernig ungar stúlkur verða ófrískar er þó sennilega skemmtileg á grundvelli upplifunar. Tekið skal fram að höfundur greinarinnar er einn ábyrgur fyrir efninu og ber enga ábyrgð á stjórnarathöfnum eða skoðunum stjórnmálaflokka, og þeir bera ekki ábyrgð á höfundi. Í hans huga er það löstur á snær- islausum manni að kunna latínu. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Tekið skal fram að höfundur greinar- innar er einn ábyrgur fyrir efninu og ber enga ábyrgð á stjórnar- athöfnum eða skoðunum stjórnmálaflokka … Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Peningastefna, og hvernig verða ungar stúlkur ófrískar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.