Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 33

Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 33
þykir óskaplega vænt um og munu alla tíð lifa með okkur. Við lofum að passa upp á afa fyr- ir þig. Hvíldu í friði, elsku amma. Við elskum þig. Birna, Eva Katrín og Skúli Jón. Elsku amma Birna. Það er erfitt að trúa því að við munum ekki hitta þig aftur. Að koma til Ólafsfjarðar vitandi það að þú sért ekki þar til þess að taka á móti okkur. Okkur hefur alltaf fundist þú hetjan sem hefur stigið yfir allar hindranir sem hafa orðið á þinni leið og erfitt að vita að núna hafi verið komið að síð- ustu hindruninni. Við lifum með risasafn af yndislegum minningum um þig sem gott er að skoða núna. Þessar minningar koma fljótt til manns þegar við hugsum til allra ferðanna til Ólafsfjarðar, kvöld- kaffið sem beið alltaf tilbúið á borð- um eftir langt ferðalag með ynd- islegu knúsi frá þér og afa. Gönguferðir um bæinn, veiða á bryggjunni, koma heim með fisk- inn og vera alltaf jafn hissa á því þegar þú sagðir okkur að augun á fiskinum væri besti bitinn. Ekki fór maður svangur að sofa hjá ykkur afa þar sem allur dagurinn ein- kenndist af mat, kökum, bláberjum (þar sem baráttan um bestu og flottustu skeiðina var stór hluti) og að okkur fannst óteljandi kaffi- tímar á dag. Ótal spilin sem spiluð voru í eldhúsinu með eldgömlum slitnum spilastokki því algjör óþarfi var að fara og kaupa nýjan stokk þegar öll spilin voru til staðar í þeim gamla. Nægjusemin og stuðningurinn við alla sem í kring- um þig voru var alltaf eitthvað sem við horfðum á með aðdáunaraugum og temjum okkur í okkar eigin lífi. Okkar bestu minningar með þér eru þegar við komum norður um jólin. Að halda jólin á Ólafsfirði með ykkur var alltaf einstakt. Að rölta öll saman yfir til langömmu og borða saman yndislegan mat. Hjá okkur var auðvitað hápunkt- urinn að sitja og opna pakka í marga, marga klukkutíma. Þótt það hafi ekki alltaf verið auðvelt að bíða eftir að allir opnuðu pakka þangað til röðin kom að manni aft- ur þá eru þetta minningar sem okkur þykir ótrúlega vænt um í dag. Þótt þú sért farin frá okkur þá mun minningin alltaf lifa á Ólafs- firði, þegar við komum þangað munum við rifja upp allar þessar yndislegu stundir sem við áttum með þér og munum aldrei gleyma öllu því sem þú kenndir okkur. Elsku amma Birna, takk fyrir allt. Þín barnabörn, Rannveig, Sigurður og Gunnar. Elsku amma. Við bjuggumst nú ekki við að þurfa að kveðja þig alveg strax en nú stöndum við frammi fyrir því að þú hefur kvatt þennan heim. Þú varst sterk og staðföst kona og á sama tíma svo umhyggjusöm og góðhjörtuð. Þú hafðir einstaklega þægilega nærveru og vildir allt fyr- ir mann gera. Það voru mikil forréttindi fyrir okkur systkinin að alast upp með þig og afa í næsta húsi, frá unga aldri og fram á fullorðinsár. Minn- isstæðar eru samverustundirnar við eldhúsborðið á Gunnólfsgöt- unni þar sem við sátum löngum stundum. Þú bjóst undantekning- arlaust til heitt kakó og settist nið- ur með manni við eldhúsborðið í notalegt spjall og ekki var það nú verra þegar maður fékk hina einu sönnu karamelluköku. Spilastokkurinn eða krossgáta voru aldrei langt undan. Oft þegar við komum í heimsókn á Gunnólfs- götuna þá var hálfkláraður kapall eða krossgátan úr Morgunblaðinu opin á eldhúsborðinu. Þú varst dugleg að taka í spil með okkur, hvort sem það var að spila ólsen ól- sen eða kenna okkur eitthvað nýtt. Þolinmæði þín gagnvart okkur var óþrjótandi og þú kenndir okkur jafnt að vinna og tapa. Þú hafðir unun af saumaskap og ýmiss konar handavinnu og feng- um við heldur betur að njóta þess. Við vorum mæld í bak og fyrir, síð- an voru saumaðar hinar ýmsu flík- ur á okkur, t.d. skíðagallar, íþrótta- gallar, kjólar og spariföt svo eitthvað sé nefnt. Fólkið þitt var þér ávallt efst í huga. Okkur hefur alltaf þótt vænt um hvað vellíðan allra skipti þig miklu máli. Í hvert skipti sem við hittumst vildir þú fá að heyra hvernig gengi hjá öllum, hvort sem það vorum við, makar okkar eða börnin okkar. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú hefur kennt okkur í gegn- um tíðina og alla þá umhyggju og ástúð sem þú veittir okkur. Við minnumst þín með mikilli vænt- umþykju og munum sakna þín mjög, hvíldu í friði. Hilmar Ingi, Tinna og Orri. Það er hverju byggðarlagi mik- ils virði þegar til þeirra koma sterkir einstaklingar sem hafa góð og jákvæð áhrif á byggðarlagið. Það var gæfa fyrir okkur Ólafs- firðinga þegar Birna Friðgeirs- dóttir kom til Ólafsfjarðar nýút- skrifuð úr Kennaraskóla Íslands. Birna reyndist frábær kennari, enda var hún kennari sem lagði ekki síst áherslu á það að skólinn þroskaði og byggði nemendur til að takast á við framtíðina. Birna var formaður Slysavarnadeildar kvenna í Ólafsfirði um árabil. Einnig var hún bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Ólafsfjarðar, og starf- aði þar af ábyrgð og festu. Síðari hluta af starfsævi Birnu áttum við langt og farsælt sam- starf við verslunina Valberg. Það gladdi þann sem þetta skrifar þeg- ar ég varð þess áskynja að Sig- urður frændi minn hefði kynnst þessari góðu konu, sem leiddi til hjónabands þeirra. Það var samt óþægilegt þegar ég óvart truflaði miðja giftingarathöfn þeirra, þeg- ar ég var sendur af föður mínum til að rukka tryggingargjald af ný- byggðu glæsilegu húsi þeirra! Þau Birna og Siggi áttu saman langa og einstaklega farsæla ævi. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn, Valgerði, Guðmund og Frið- geir, sem bera foreldrum sínum fagurt vitni. Við Sigrún sendum Sigurði og fjölskyldu samúðarkveðju úr fjar- lægð. Jón Þorvaldsson. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 inn upp með neitt múður hjá henni Stebbu litlu Jóns. Það þurfti líka mikla rödd til að hafa stjórn á sum- um Birkibeinum (nefni engin nöfn en þeir eru karlkyns), sem voru gjarnan óstýrlátir mjög svo frægt var um gjörvallan Skagafjörð í það minnsta austan Vatna. Afi brosti víst bara, hlóð í pípu og eftirlét þér að skamma strákana. Á mennta- skólaárunum fékk ég svo aftur at- hvarf hjá ykkur afa á Hólaveginum tvo námsvetur eftir að þið fluttuð á Krókinn. Ég er þakklátur fyrir þann tíma með ykkur afa. Minning- arnar eru endalausar - allar verð- mætar. Ég þakka Guði fyrir að þú varst heilsuhraust og lífsglöð nánast til enda þótt árin væru of mörg án Munda afa. Þegar þú veikist undir lokin fékk ég að kveðja þig með mömmu. Þú meira að segja hlóst þegar ég sagði þig vera ættarhöfð- ingja en það varstu. Ég veit að þú varst stolt af börnum þínum sem og afkomendum öllum og fylgdist vel með öllu og öllum, stóru sem litlu. Betri mömmu, ömmu og langömmu var ekki hægt að hugsa sér. Afkom- endur þínir, Birkibeinar, stórfjöl- skyldan er samstæð, falleg og hress (stundum hávær) og minning þín lifir áfram í öllum þínum. Og þú lifð- ir okkur öll. Fyrir það má þakka. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Ég veit að Mundi afi, systur þínar og bróðir taka á móti þér með faðmlagi í himnaríki. Guð blessi minningu þína elsku lang- besta amma mín. Guðmundur Stefán Ragnarsson (Muggi). Við minnumst elsku Stebbu ömmu með hlýju. Þvílík forrétt- indi fyrir okkur bræður að eiga slíka kjarnakonu fyrir ömmu, alltaf svo róleg og brosmild en einhvern veginn gat hún allt. Hún var mikil félagsvera og vildi alltaf hafa fólkið sitt í kringum sig. Siggi Úlli var sá okkar sem fékk að upplifa heimilislífið á Hofsósi mest, þar minnist hann þess hve heimilishaldið var fullt af lífi og fjöri en alltaf stóð Stebba amma róleg, ekkert að æsa sig eða skamma þótt hún hafi alveg sagt sína meiningu. Við minnum þess að amma bauð oft upp á heitt kakó og pönnukökur og já brauðtertur, alltaf var hún höfðingi heim að sækja. Það sýndi hennar karakt- er svo vel að fá alla fjölskylduna heim á jóladag, þ.e. að hafa fólkið sitt hjá sér og auðvitað var mikið fjör og amma passaði að bjóða upp á góðar veitingar og drykki við hæfi. Hún amma mín sagði mér sögur er skráðust í huga minn inn, sumar um erfiðu árin aðrar um afa minn. Og þá var sem sól hefði snöggvast svipt af sér skýjahjúp því andlitið varð svo unglegt og augun svo mild og djúp. R.Þ. Okkur þótti yndislegt að njóta nærveru hennar, visku og skýr- leika allt fram á síðasta dag. Þvílík forréttindi fyrir börnin að fá að kynnast og upplifa langömmu sína svona skemmtilega. Það var alltaf gaman að kíkja í blokkina og síðar á sjúkrahúsið og iðulega leyndist ýmis góður moli í skál eða frostp- inni í frysti. Halla og Sólveig minnast ómet- anlegra samtala við hana en báð- um fannst svo gaman að heyra Stebbu okkar segja frá lífi sínu sem ungrar stúlku í Fljótunum og síðar ungrar konu á Hofsósi. Stebba gaf lítið út á erfiðleika og sagði frá öllu með bros á vör. Þeim fannst einstakt að fá að skyggjast inn í líf hennar, konu sem hefur átt svo langa og merka ævi. Þvílíka fyrirmyndin! Þá verðum við að minnast á minnið hennar, það var algjörlega einstakt. Það var hrein unun að tala við hana og hún virtist ávallt vera með á hreinu hvernig afkom- endur hennar hefðu það, sem gat nú ekki verið auðvelt þegar af- komendurnir eru komnir hátt í 100. Því minningar mannsins um ömmur okkar eru eilífðar djásn sem gæta skal vel. Sú er bakaði snúða og prjónaði sokka er konan sem lék sér með leggi og skel. (M.) Elsku Stebba amma, við kveðj- um þig með þakklæti í huga og kærleik í hjarta fyrir ómetanlegan tíma saman. Þú varst undurfögur drottning sem var fyrirmynd af- komenda sinna. Sigurður Úlfar (Siggi Úlli), Brynjar Örn og Halla Björg, Hólmar Logi og Sólveig Guðrún Elfa, Karín, Sólon, Bryndís Eva, Hákon og Emelía Rún. ✝ Jóhann Þor- steinsson húsa- smíðameistari fæddist 22. maí 1944 í nunnu- klaustrinu í Stykk- ishólmi. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans þann 9. september 2021 Foreldrar hans voru Þorsteinn Sig- urðsson, bóndi á Vörðufelli á Skógarströnd, Snæ- fellsnesi, f. 9. mars 1902, d. 8. nóv. 1981, og Guðrún Ingunn Jónsdóttir, húsfreyja á Vörðu- felli, f. 23. apríl 1904, d. 24. maí 1993. Systur Jóhanns eru Edda Þor- steinsdóttir, f. 11. maí 1945, og Elín Þorsteinsdóttir, f. 31. des. 1948. Jóhann giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Eddu Gísladóttur, 1. júní 1974. Foreldrar Eddu voru Gísli Sigurjónsson, f. 14. sept. 1904, d. 29. des. 1985, og Guðný Rakel Hulda Jóns- dóttir, f. 3. sept. 1908, d. 31. des. 1976, frá Bakka- gerði, Reyðarfirði. Jóhann og Edda bjuggu allan sinn búskap á Reyð- arfirði. Börn Jóhanns og Eddu eru 1) Anna Elín, f. 12. okt. 1974, eignmaður hennar er Hákon Ásgrímsson, f. 15. júlí 1968. Þau eru búsett í Kópavogi. Börn þeirra eru: Jó- hann Ísfjörð, Auður og Steinar. Faðir Jóhanns Ísfjörð er Bjarg- þór Ingi Aðalsteinsson. 2) Guð- rún Hulda, f. 3. júlí 1976, eig- inmaður hennar er Tait Dylan Covert. Þau eru búsett í Seattle í Bandaríkjunum. Börn þeirra eru Aron Tait og Eva Rakel. 3) Sonja Björk, f. 17. sept. 1985, sambýlis- maður hennar er Björgvin Karl Gunnarsson, f. 19. maí 1976. Þau eru búsett á Reyðarfirði. Börn þeirra eru: Klara Sóldís og Edda Maren. Faðir Klöru Sóldísar er Ragnar Láki Jónsson. Jóhann ólst upp á Vörðufelli á Skógarströnd, Snæfellsnesi. Hann útskrifaðist sem búfræð- ingur frá Hvanneyri árið 1964. Lauk sveinsprófi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1970 og meistaraprófi árið 1974. Jóhann rak Trésmiðjuna á Reyðarfirði á árum áður og stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Verktakar, en fyrir- tækið saltaði síld frá 1981-1994 og gekk í daglegu tali undir nafninu Trésíld. Hann vann ýmis störf áður en hann fór á eft- irlaun, m.a. sem verkstjóri hjá Vegagerðinni, hjá Reyðarfjarð- arhreppi og Fjarðabyggð við viðhald fasteigna í sveitarfé- laginu og síðast við smíða- kennslu í Grunnskóla Reyð- arfjarðar frá 2004-2011, þegar hann settist í helgan stein. Útför Jóhanns fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag, 24. september 2021, og hefst athöfn- in klukkan 13. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Elsku pabbi, það er skrítin til- finning að þú sért ekki lengur með okkur. Síðustu árin reyndust þér erfið en röð heilablóðfalla og veik- inda tóku sinn toll af þreki þínu og heilsu. Í janúar á þessu ári fluttir þú á hjúkrunarheimilið Hulduhlíð á Eskifirði. Það reyndist þér erfitt skref þó svo að þú hafir talað um að þar liði þér vel. Miðvikdaginn 8. september síðastliðinn þegar þú veikist skyndilega og varst sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og komið undir læknishendur vegna alvarlegrar hjartabilunar, var mamma þér við hlið eins og ávallt og við vissum að ástandið var tvísýnt. Lokabarátta þín þennan síðasta sólarhring var í þínum anda, ekkert hálfkák og tók skamman tíma. Við minnumst þín sem orku- mikils og duglegs pabba sem vann mikið og þú sinntir vel áhugamál- um, eins og skák, bridge og svo ljósmyndun á seinni árum. Þú leit- aðir þér þekkingar og fróðleiks og sankaðir að þér alls kyns bókum. En ekkert áhugamál átti hjarta þitt og huga eins og skákin. Við höfðum gaman af að heyra sögur af þér, ein þeirra var af því þegar þú tefldir fjarskák á yngri árum við vini þína í gegnum sveitasím- ann, tepptist þá síminn á Skógar- strönd, bændunum í sveitinni til talsverðrar armæðu. Við áttum margar góðar stund- ir í Vallargerðinu þar sem við systur ólumst upp. Sérstaklega eru góðar minningar úr garðinum fallega, þar var bæði gróðurhús, rósir og jarðarber og gaman að leika sér. Þú byggðir húsið fyrir okkur fjölskyldu þína á mörgum árum samhliða vinnu og tryggðir okkur fallegt og öruggt heimili. Þegar við systur vorum farnar að heiman minnkuðuð þið mamma við ykkur og fluttuð í Efstagerðið og þaðan eigum við einnig margar góðar minningar. Það var sama upp á teningnum þar, þið bjugguð ykkur fallegt heimili og ræktuðuð garðinn ykkar af natni. Þú hafðir sérstaklega gaman af því að ferðast og ofarlega í huga eru fjölmörg ferðalög okkar fjöl- skyldunnar saman bæði innan- lands og utan. Þú vildir alltaf byrja daginn snemma og fara og sjá sem flesta staði. Minnisstæð er Evrópuferðin sem við fórum í af tilefni 60 ára afmæli þínu, þar heimsóttum við 7 lönd á tveimur vikum. Við eigum góðar minningar úr jólafríum hjá ykkur mömmu á Reyðarfirði. Minnisstætt er þegar þú spilaðir við okkur en þá var mikið hlegið og grínast. Þú hafðir í seinni tíð mikinn áhuga á íþróttum og fylgdist m.a með enska boltanum. Við höfðum gaman af því hve vel þú fylgdist með öllum tækninýjungum og varðst alltaf að eignast nýjustu græjurnar: tölvur, iPadar, iPhon- ar, kindlar, myndavélar og linsur og síðast var það þegar þú fluttir á Hulduhlíð þá valdir þú tæknileg- asta hægindastólinn. Dags daglega varst þú ekki mjög ræðinn en varst bæði snjall og úrræðagóður, og það var gott að leita til þín þegar eitthvað bját- aði á. Beinskeyttur húmorinn þinn var kapítuli út af fyrir sig, en það vita þeir sem til þekkja. Þú áttir það til að leika þér að því að ganga fram af fólki enda varstu með ein- dæmum stríðinn. Þú hafðir sterk- an persónuleika, varst ákveðinn, fróðleiksfús og með sterka rétt- lætiskennd. Þú fygdist vel með okkur systr- um og barnabörnunum alla tíð og það sem að við erum þér þakk- látar fyrir allar góðu stundirnar, og síðast núna í sumar þegar við heimsóttum þig í Hulduhlíð. Þú varst alla tíð mikill fjölskyldu- maður sem elskaðir mömmu okk- ar, okkur dæturnar og barna- börnin. Hvíl í friði elsku pabbi okkar. Þínar dætur, Anna, Guðrún (Gunna) og Sonja. Við að heyra af andláti vinar og samstarfsmanns til margra ára setur mann hljóðan. Hugurinn leitar svo til baka og upp koma í hugann ótal minningar um sam- skiptin sem við áttum á þeim tíma þegar við unnum saman að ýms- um verkum. Var það bæði við byggingarvinnu og síldarsöltun hjá Trésíld. Fyrst lágu leiðir okkar saman þegar Jói kom austur, nýbúinn að ná í hana Eddu sína og tók hann þá að sér að byggja sundlaugina og íþróttahúsið á Reyðarfirði ásamt Sigurjóni mági sínum. Ég var á þeim tíma starfandi kennari en réð mig til vinnu hjá þeim í sumarfríum. Það vatt síðan upp á sig og endaði með því að ég hætti kennslunni og fór á samning hjá Jóa til að læra húsasmíði. Þessi tími var afar lærdómsríkur á margan hátt. Ekki bara að ég hefði þarna við hlið mér afar fær- an og útsjónarsaman meistara heldur var húmor okkar á svip- uðum nótum. Minnisstæð er okk- ur hjónum ferðin okkar sem við fórum ásamt Jóa og Eddu og Döggu frænku hennar til Ítalíu sumarið 1981. Þessi ferð var farin þegar við höfðum nýlokið við smíði blokkarinnar á Reyðarfirði sem var stærsta verk okkar sam- an við smíðar. Töldum við því ástæðu til að verðlauna okkur og konur okkar fyrir allan þann tíma sem sú framkvæmd kallaði á. Þótt langt sé liðið frá ferðinni þeirri skjótast oft og tíðum upp í hugann myndbrot frá þeirri samveru og þeim fjölmörgu stórkostlegu stöð- um sem heimsóttir voru. Síðan æxluðust málin þannig að síldarsöltun tók við sem aðalvið- fangsefni okkar. Þar var Jói með stórt hlutverk sem matsmaður og þar var það sama upp á teningn- um og við smíðar. Hann hafði al- gjörlega á hreinu út á hvað starfið gekk og leysti úr öllum þeim mál- um sem upp komu. Stóð sú starf- semi í nokkur ár en varð heldur endaslepp eins og svo víða varð raunin á þeim árum. Þegar því ævintýri lauk skildi leiðir okkar. Ég fór aftur í kennslu en Jói einbeitti sér að smíðum eins og áður. Má því segja að upphaf- leg staða væri komin upp hjá okk- ur báðum. Eftir þetta fækkaði þeim stundum sem við hittumst en alltaf var samt eins gott að hitta Jóa. Húmorinn á sínum stað óbreyttur og auðvelt að hlæja að því sem um var rætt. Ég þakka af heilum hug fyrir þann tíma sem samstarf okkar stóð og er afar þakklátur fyrir þau tækifæri sem meistari minn gaf mér. Minningin um góðan félaga lifir. Hvíl í friði vinur. Við hjónin sendum Eddu og dætrunum og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur og biðj- um Guð að veita þeim styrk á þessari erfiðu stund. Hilmar Sigurjónsson. Jóhann Þorsteinsson Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ÓSKAR HARRY JÓNSSON, Gerplustræti 16, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum, Fossvogi, 8. september. Útför fer fram í kyrrþey. Margrét Jónsdóttir Ingibjörg Óskarsdóttir Pétur Björnsson Jón Harry Óskarsson Dóra Guðný Rósud. Sigurðard. Margrét Ósk Óskarsdóttir Guðrún Anna Magnúsdóttir Hrefna Huld Helgadóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.