Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 35

Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Eftir að hafa verið í sveitastörf- unum sem barn og unglingur var hann eiginlega staðráðinn í því að fara á Hvanneyri og verða bóndi. Svo álpaðist hann til að ná lands- prófinu með hnefann á Dadí ömmu á lofti yfir sér! Þá réð bekkjarhópurinn för. Nokkur ættarmót og stóraf- mæli hafa verið haldin í Kollafirði í gegnum árin. Þar hefur Nonni verið hinn mikli fræðari og sagt okkur frá sögu staðarins og ætt- arinnar okkar þar. Hann hefur alltaf gert þetta með miklum létt- leika og verið hrókur alls fagnað- ar. Tryggvi setti saman vísu um Nonna sextugan: Sextugur sómamaður svíkur hann engan mann. Alltaf er hann jafn glaður. Jón Sigurðsson heitir hann. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum Nonna og send- um fjölskyldunni samúðarkveðj- ur. Guðrún, Tryggvi, Steinunn, Kristín og Kolbeinn, Helgu- og Guðmundarbörn. Kynni okkar af Jóni Sigurðs- syni hófust fyrir rúmri hálfri öld þegar hann kvæntist Sigrúnu, systur okkar og mágkonu. Hann kom afskaplega vel fyrir, hressi- legur í framgöngu, ræðinn, með rökstuddar skoðanir á öllum mál- efnum, stórum sem smáum. Hann var bóngóður og greiðvikinn og dró aldrei af sér, hvorki í andleg- um né verklegum framkvæmd- um. Í fjölskylduboðum í áranna rás varð hann sjálfkrafa og óviljandi miðpunktur því það neistaði svo af honum og undir ólgaði kímni og hlátur. Aldrei miklaðist hann né sló um sig þótt honum væri svo margt gefið og hefði áorkað svo miklu á lífsleiðinni. Hann var heill í sínum skoðunum en víðsýnn og þótti sem hver hefði til síns ágætis nokkuð. Yfirdrepsskapur, sýnd- armennska og undirmál voru eit- ur í hans beinum og hann gekk hreint og beint til allra verka. Þessir eiginleikar, ásamt réttsýni, skörpum skilningi og getu til að kafa djúpt í viðfangsefnin urðu til þess að stjórnvöld leituðu oftsinn- is til hans að leysa úr málum sem voru komin í mikið óefni eða til að binda enda á óreiðu af ýmsu tagi, þótt sjaldnast færi hátt. Hann gegndi ýmsum virðingarstörfum um ævina en þótti vænst um nafn- bæturnar skólastjóri og rektor. Áhugasviðið var víðfeðmt í meira lagi. Þekkingu hans á ís- lenskum og erlendum bókmennt- um var við brugðið, sömuleiðis á sagnfræði, heimspeki og stjórn- málum, svo fátt eitt sé nefnt. Hann skrifaði ljóst og læsilega um fjölmörg efni og átti auðvelt með að semja ljóð, eins og hann átti kyn til. Hjónaband þeirra Jóns og Sig- rúnar var afar farsælt. Þar ríkti mikill kærleikur, eindrægni og samhugur en um leið gagnkvæm virðing fyrir sjálfstæði og skoðun- um hins. Veikindastríðið síðustu vikurn- ar var erfitt og hvorki Jóni né að- standendum duldist að hverju dró. Hann horfði til endalokanna af óbilandi æðruleysi og trúar- trausti og sjálfum sér líkur kvaddi hann konu sína, börn og barna- börn á sóttarsænginni með hnyttni sem kveikti hjá þeim bros. Við venslafólk Jóns kveðjum góð- an mann með trega í hjarta og þökkum fyrir gefandi og skemmtilega samleið. Sigrúnu systur okkar og mágkonu, og nán- ustu aðstandendum, vottum við okkar innilegustu hluttekningu. Pálmi Jóhannesson, Soffía Kjaran, Sigurður Jóhann- esson, Halla Guðmundsdóttir. Kveðja frá Framsóknarflokknum Í dag kveðjum við framsókn- arfólk Jón Sigurðsson, fyrrver- andi formann flokksins, hinstu kveðju. Jón hafði um nokkurt skeið barist við krabbamein. Frá þeirri reynslu sagði hann opin- skátt, örugglega í þeim tilgangi að það gæti mögulega gagnast öðr- um. Það var svolítið dæmigert fyrir Jón. Hann vildi fræða, upp- lýsa og gera samfélagi sínu gagn. Þar lagði hann víða hönd á plóg. Hann var hvað þekktastur fyrir störf sín sem kennari og skóla- maður. Margir eiga góðar minn- ingar sem nemendur Jóns, sér- staklega frá Bifröst þar sem hann var við stjórnvölinn um 10 ára skeið og leiddi umbreytingu Sam- vinnuskólans yfir á háskólastig. Jón fylgdi Framsóknarflokkn- um alla tíð og lagði honum marg- háttað lið. Tímabilið þar sem hann var ráðherra og formaður flokks- ins er aðeins lítill hluti þess. Hann ritstýrði meðal annars Tímanum um skeið og vann að málefnastarf- inu um árabil. Er þá aðeins fátt nefnt. Jón og Halldór Ásgrímsson heitinn, formaður Framsóknar á undan honum, kynntust í grunn- skóla og þar mynduðust vinabönd sem stóðu meðan báðir lifðu. Það var einmitt Halldór sem leitaði til Jóns um að taka sæti í ríkisstjórn árið 2006 þegar Hall- dór hafði tekið ákvörðun um að láta af formennsku. Jón starfaði þá sem bankastjóri Seðlabank- ans. Það var ekki sjálfgefið að hverfa frá því verkefni til að hella sér út í slaginn á hinu pólitíska sviði, sem getur verið óvæginn. En Jón tók þeirri áskorun og var svo kjörinn formaður haustið sama ár. Hann vildi sem fyrr gera allt sem hann gat til að vinna sam- félaginu til heilla. Hann fékk það hlutverk að leiða flokkinn í mjög erfiðum kosningum árið 2007. Að baki var 12 ára seta í ríkisstjórn og talsverður órói innan flokksins. Niðurstaðan varð að hann náði ekki kjöri til þings og lét þá af for- mennsku, en starfaði áfram með Framsókn og hafði þegið heiðurs- sæti á framboðslista fyrir kosn- ingarnar á morgun. Honum leið kannski aldrei mjög vel í pólitísku argaþrasi en hann kom alltaf til dyranna eins og hann var klæddur. Það var ein- faldlega hans stíll, bæði þá, fyrr og síðar. Fyrst og fremst vildi hann ávallt leita lausna og mála- miðlana í anda samvinnu og skyn- semishyggju. Hann vissi sem var að það er sjaldan hægt að ná fram breytingum nema í samvinnu við aðra og málamiðlanir eru ekki skammaryrði. Samstarfsfólk hafði gjarnan orð á því hvað hann var skipulagður. Aldrei var óþarfa hlutur á skrifborðinu í dagslok og öll mál í farvegi. Vinnudagurinn byrjaði líka snemma. Þegar aðrir mættu til vinnu voru kannski þeg- ar komnir póstar frá Jóni þar sem hann var að velta fyrir sér lausn- um á verkefnum dagsins og skipta verkum. Nú að leiðarlokum vil ég fyrir hönd framsóknarfólks þakka fyrir ómetanlegt og óeigingjarnt starf Jóns Sigurðssonar. Það verður seint metið að fullu. Blessuð sé minning Jóns Sigurðssonar og innilegar samúðarkveðjur til Sig- rúnar Jóhannesdóttur eftirlifandi eiginkonu hans, barna þeirra og barnabarna. Sigurður Ingi Jóhannsson. Glaðværð og gott hjarta eru einhverjir bestu eiginleikar sem mönnum eru gefnir. Slíkir ein- staklingar eru sannir samvinnu- menn og alls staðar aufúsugestir. Þessir tveir eiginleikar koma helst upp í hugann þegar nafn Jóns Sigurðssonar er nefnt. Jóni voru falin margvísleg trúnaðar- störf á ferli sínum og skilaði hann ávallt góðu verki. Hann var seðla- bankastjóri frá október 2003 til júní 2006. Það var þó ekki í fyrsta skipti sem hann kom að Seðla- bankanum. Hann hafði setið í bankaráði frá 2001 til 2003 og í þverpólitískri nefnd sem endur- skoðaði lög um Seðlabankann og samdi frumvarp sem varð að nýj- um lögum árið 2001. Þau mörkuðu ákveðin þáttaskil í starfi og sögu Seðlabankans. Með þeim var sjálfstæði bankans styrkt til muna, m.a. til ákvarðana í pen- ingamálum. Um leið var áréttað að meginmarkmið Seðlabankans væri að stuðla að stöðugu verðlagi og bankanum heimilað með sam- þykki ráðherra að lýsa yfir tölu- legu markmiði um verðbólgu. Það var gert með yfirlýsingunni um verðbólgumarkmið í mars árið 2001 og gildir hún enn. Í þau tæplega þrjú ár sem Jón sat í bankastjórninni heyrðu bók- haldssvið, fjármálasvið og rekstr- arsvið, þar með talin starfs- mannamál, undir hann skv. verkaskiptingu bankastjóranna. Hann lét því málefni þessara sviða sérstaklega til sín taka. Að auki lét Jón sig varða málefni safnadeildar bankans og tók með- al annars virkan þátt í undirbún- ingi á flutningi myntsafns bank- ans og Þjóðminjasafnsins í bankahúsið við Kalkofnsveg þar sem því var einkar vel komið fyr- ir. Fyrrum samstarfsfólk Jóns í Seðlabankanum minnist hans sem góðs yfirmanns og félaga þar sem saman fóru einstaklega létt lund og gott skopskyn en um leið góð og skörp yfirsýn yfir starfsemi bankans og tengd verkefni. Leiðir okkar Jóns lágu oft saman í störf- um okkar beggja eftir að ég kom heim úr námi árið 2000. Hann var ákaflega skemmtilegur viðræðu – jákvæður og víðsýnn. Við töluðum stundum um áhugamál okkar beggja – sögu og bókmenntir. Hann hafði skemmtilegar hug- myndir – sumar mjög frumlegar. Ég minnist hans því með bæði hlýju og þakklæti. Fyrir hönd Seðlabanka Íslands og fyrrum samstarfsmanna Jóns í bankanum votta ég Sigrúnu og öðrum ástvinum Jóns innilega samúð. Ásgeir Jónsson. Við fráfall Jóns vakna ljúfar minningar um gefandi stundir í starfi og leik. Mörgum ágætis- manninum hefur maður kynnst um dagana. Jón er þar í efsta kantinum, mikill persónuleiki og fjölfróður gáfumaður. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir 65 árum í Austurbæjar- barnaskólanum. Þar vorum við bekkjarfélagar í þrjú ár. Um hríð kenndum við Jón saman í MR. Þá var enn kennt á laugardögum og kom það fyrir að við færum í vett- vangsathuganir eftir laugardags- kennsluna. T.d. til ömmubróður míns, Guðmundar Árnasonar frá Stóra-Hrauni, innrömmunar- meistara og lífskúnstners, á verk- stæðið hans. Þangað komu ýmsir skemmtimenn, sögur voru sagðar og leiknar og mikið hlegið. „Það dettur enginn í depressjón í návist Guðmundar Árnasonar,“ skrifaði einn fastagestanna, Örlygur Sig- urðsson, 1973. Og nokkrum sinn- um skelltum við Jón okkur á Hót- el Borg eftir laugardagskennslu. Þar voru gjarnan frægir pamfílar. Og fleira skemmtilegt var brallað. Veturinn 1974-75 sáum við um vikulega síðu, „Á vettvangi“, í Tímanum. Þar var fjallað um stjórnmál í víðri merkingu þess orðs. Við greindum þar frá vanda- málum og sjónarmiðum, sem gjarnan vilja liggja í láginni í dæg- urmálabaráttunni. Við skrifuðum ýmist hálfa síðu hvor, eða alla síð- una saman, nú eða tókum viðtöl við ýmsa, einkum úr röðum ungs fólks. Þetta var mjög fjörugt sam- starf. Jón kom úr miklu vinstra starfi, stundum uppnefndur Jón „bolsi“ og ég kom frá hægri. Ein grein Jóns „Á vettvangi“ hét „Sí- gildur kjarni“. Þar segir m.a. um framsóknarstefnuna: „Við sí- breytilegar aðstæður hefur þessi kjarni reynzt sígildur og farsæll, og nýjustu aðstæður borgarsam- félags og neysluþjóðfélags hafa gefið honum nýtt og aukið gildi. Hann reynist einnig raunsæjasta og framsýnasta viðbragðið við vandamálum nútímans.“ Húmor Jóns var mikill og græskulaus. Ég tel því vel við hæfi að benda á, að í auglýsingu landskjörstjórnar um framboð til Alþingis á morgun, sem borin er í hvert hús, stendur að Jón heitinn sé í heiðurssæti B-lista í Rvíkur- kjördæmi norður. Það er kjör- dæmið mitt og með bros á vör krossa ég við það framboð! Jón var einlægur fylgjandi lýð- ræðislegrar umræðu sem endar í ákvörðunum meirihlutans. Hann var frumlegur hugsandi maður sem átti sterkar rætur í sögu Ís- lands, en í henni var hann sér- fræðingur, eins og í svo mörgu öðru. Ævistarf Jóns og menntun eru með ólíkindum margbrotin: Kennari, rektor, ráðherra, rit- stjóri, flokksformaður, seðla- bankastjóri o.m.fl. Íslensku- og sagnfræðingur, MA í menntunar- fræðum og dr. í rekstrarhagfræði o.fl. Og ritstörfin: Maður lifandi! Alveg ótrúleg afköst! Bókmennt- ir, saga, hagfræði, heimspeki og stjórnmál. Alúð lögð við hvert ein- asta verk, stór og smá. Minningin um Jón er minning um merkan mann sem skipti máli fyrir okkur Íslendinga. Hann lifir í verkum sínum og í minningum allra sem báru gæfu til að kynnast honum. Þessum orðum fylgja innileg- ustu samúðarkveðjur frá okkur Önnu til Sigrúnar og fjölskyldu þeirra Jóns. Guð blessi minningu Jóns Sig- urðssonar. Hjálmar W. Hannesson Kveðja frá Rótarýklúbbi Kópavogs Jón Sigurðsson gerðist félagi í Rotaryklúbbi Kópavogs fyrir um 15 árum. Það kom ekki á óvart að hann reyndist frábær félagi okkar í klúbbnum. Við leggjum meðal annarra mála mikla áherslu á að fá góða fyrirlesara á okkar fund sem fjalla um hin ólíkustu mál. Jón var fundvís í þeim efnum enda með miklar tengingar í allar áttir. Þá var alltaf fræðandi og upplífgandi að sitja til borðs með Jóni. Aldrei kom maður að tómum kofunum við samræður um hin ólíkustu málefni. Þrátt fyrir mikla þekkingu og víðtæka reynslu kom hann ávallt fram sem jafningi í okkar hópi. Starfsárið 2019 til 2020 var hann kjörinn forseti klúbbsins okkar. Því starfi sinnti hann með mestu ágætum þrátt fyrir að hann væri þegar farinn að kenna sér meins. Aldrei boðaði hann forföll á vikulegum fundum okkar þrátt fyrir aðstæður. Hvern fund hóf hann á upplífgandi hátt með lestri á ljóði eða ljóðaparti enda fullur af fróðleik í þeim efnum eins og á mörgum öðrum sviðum. Á útmánuðum flutti Jón okkur geysilega áhugaverðan og fróð- legan fyrirlestur um horfur í þró- un stjórnmála í Bandaríkjunum í kjölfar forsetaskipta. Við hvöttum hann til að flytja fyrirlestur um annað tiltekið mál fljótlega. En eigi má sköpum renna. Við félagarnir geymum með okkur ljúfar minningar um góðan félaga og þökkum samfylgdina í gegnum árin. Við sendum Sig- rúnu eiginkonu Jóns og nánustu aðstandendum okkar samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Kópavogs, Karl Magnús Krist- jánsson, forseti Rót- arýklúbbs Kópavogs. Með Jóni er genginn einhver merkasti Íslendingur samtímans. Þegar litið er yfir feril Jóns verð- ur að teljast ótrúlegt hversu miklu hann fékk áorkað og hversu víða hann kom við. Ég ætla því að- eins að fara nokkrum orðum um kynni mín af Jóni á þeim árum sem ég starfaði undir hans stjórn og í samstarfi á Bifröst árin 1987- 1995. Aðrir munu bæta um betur, því af nógu er að taka. Ég kynntist Jóni fyrst þegar okkur hjónum buðust kennslu- störf við Samvinnuskólann á Bif- röst, haustið 1987, og fluttum þá um sumarið á Bifröst. Þar með hófst samfellt átta ára afar ánægjulegt og lærdómsríkt sam- starf með Jóni og Sigrúnu konu hans. Skólinn starfaði þá á seinni tveimur árum framhaldsskóla- stigsins, en Jón var þegar 1984 kominn með hugmyndir um að færa skólann upp á háskólastig og byrjaður undirbúning að því. Þar kom til skilningur hans á þörfum skólakerfisins og samspil þess með atvinnulífinu, framsýni og metnaður fyrir hönd skólans. Hann var þeirrar skoðunar að til að skólinn héldi fyrri virðingu og stöðu sinni til að mennta fólk til starfa í atvinnulífinu yrði hann að þróast upp á háskólastigið. Það væri í takt við auknar þarfir at- vinnulífsins fyrir hagnýta mennt- un. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi næstu árin að starfa með Jóni að þessari umbreytingu á skólanum, sem endaði með því að Samvinnuháskólinn á Bifröst varð til (síðar Háskólinn á Bifröst). Á þessum tíma varð mér ljóst hver yfirburðamaður Jón var. Hann var með eindæmum afkastamikill, víðsýnn og fróður. Það var aldrei komið að tómum kofunum hjá honum. Hann var alltaf tilbúinn að hlusta á önnur sjónarmið, en fastur fyrir ef það átti við. Meiri húmorista var vart hægt að kynn- ast og oft kátt á hjalla kringum hann, jafnvel á kennarafundum, sem þó voru alltaf skilvirkir. Ég á Jóni mikið að þakka. Hann sýndi mér það traust að ráða mig sem aðstoðarrektor skólaárið 1989-1990 og aldrei bar skugga á það samstarf. Þegar Jón lét af störfum sem rektor vorið 1991 studdi hann ráðningu mína til starfa sem arftaka sinn. Jón hélt áfram störfum við skólann sem lektor, með þeirri undan- tekningu að þau hjón héldu til Ameríku til að afla sér frekara náms, en fróðleiksþorstinn og menntunarþörfin virtist óþrjót- andi. Eftir tveggja ára nám í Am- eríku sneru þau hjón aftur til starfa við Samvinnuháskólann. Þrátt fyrir hlutverkaskipti gat ég alltaf reitt mig á stuðning og að- stoð Jóns, sem sýndi og sannaði lítillæti hans og það hve laus hann var við allan hroka. Undirbúning- ur fyrir upptöku 3. árs kennslu til BS-gráðu stóð sem hæst á Am- eríkuárum Jóns og Sigrúnar, en það kom ekki í veg fyrir þátttöku Jóns í þeim undirbúningi og fram- lag hans ómetanlegt. Ég fæ seint fullþakkað fyrir kynni mín og okkar hjóna af þeim Jóni og Sigrúnu. Við minnumst Jóns af mikilli hlýju, virðingu og með góðum minningum. Hann var einstakt gáfumenni og stórbrot- inn einstaklingur. Það var mikill heiður að fá að starfa með honum og þeim hjónum. Fyrir það ber að þakka. Við Edda vottum Sigrúnu, börnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum Jóns okkar inni- legustu samúð. Vésteinn Benediktsson. Okkur hjónin á Heiðarbæ 1 í Þingvallasveit langar að setja nokkur orð á blað til minningar um einn af okkar allra tryggustu smölum. Til að taka af allan vafa nú þegar kosningar til Alþingis eru yfirvofandi var þar um að ræða smölun á sauðfé. Enda vissi Nonni hvað skipti mestu máli í líf- inu! Hann og Steinunn á Heið- arbæ, sem er móðir og tengda- móðir okkar undirritaðra, eru systkinabörn og frændsemi mjög náin hjá fjölskyldunum. Þegar við vorum við nám á Hvanneyri seint á síðustu öld var Nonni á Bifröst. Þá kom hann að því að kenna frænda sínum og bekkjarfélögum á Hvanneyri þjóðhagfræði. Nonni gerði þessa mikilvægu grein að hreinni skemmtun. Svo líða nokkur ár, þá erum við tekin við búi á Heiðarbæ og Nonni og Sigrún flutt á mölina. Hann verið langdvölum í sveit ungur maður og smalað í Borg- arfirði er hann bjó þar, og fannst nú vanta eitthvað í líf sitt. Því hafði hann samband við frænda sinn á Heiðarbæ og spyr hvort hann geti ekki fengið að taka þátt í sauðfjárböðunum, smala- mennskum eða einhverju slíku. Sauðfjárbaðanir höfðu þá því mið- ur verið lagðar af fyrir nokkru. Smalamennskur eru hins vegar mannfrekasti atburður ársins á hverju sauðfjárbúi, og þar skiptir máli að hafa með fólk sem veit hvert það ætlar sér og er tilbúið að setja sig inn í hugsanagang sauðkindarinnar. Fyrsta smaladaginn sinn í Þingvallasveit smalaði Nonni ríð- andi, á hestinum Trefli sem frændi okkar Guðmundur Björns- son, Kolbeinssonar frá Kollafirði hafði afhent Jóa frænda. Sá varð einn allra besti smalahesturinn á bænum, en Nonni smalaði þó gangandi alla tíð eftir það, vel á annan áratug eða þar til „læknavesen“ fór að trufla hann í því. Hann fór með Helgu frænku sinni og fleirum á Hlíðina, það var allt í öruggum höndum, en jafn- framt sérhæfði hann sig í Ár- mannsfellinu, einhverju erfiðasta smalasvæði sveitarinnar. Hann var grjótharður göngumaður og mjög útsjónarsamur og athugull smali. Í einni smalamennskunni fann hann tvö hross aflokuð í Stórkonugili, sem höfðu tapast úr rekstri fyrr um sumarið, það varð þeim til lífs. Guðmundur Björnsson og bræður hans, Steini og Gunni, smöluðu árum saman í Þingvalla- sveit. Með Nonna fylgdu margir af hans legg, bræður hans, synir tveir og bróðursonur. Þetta til við- bótar hópi smala af Helgu legg varð til þess að samheitið von Kollan (frá Kollafirði) varð ein- kennisheiti sem borin er virðing fyrir í smalamennskum og víðar í þjóðlífinu. Þótt mikilvægt sé að ná fénu til byggða þá hefur það ekki síður verið okkur hjónum mikil- vægt, og verður áfram, að fá að njóta þess góða félagsskapar við eldhúsborðið á milli orusta á heiði og fjalli. Þar var Nonni alltaf í lyk- ilhlutverki, og þótt hann hefði gaman af að tala þá var hann líka afbragðshlustandi og yfirburða- greinandi. Þá skipti ekki máli hvort rætt var um pólitík, smala- mennskur, ættfræði, eða hvað sem var. Við þökkum og munum þessar stundir allar. Jóhannes (Jói) og Björg, Heiðarbæ. Fundum okkar Jóns Sigurðs- sonar bar saman í vinnu fyrir samvinnuhreyfinguna. Þá stýrði hann skólanum að Bifröst í Borg- arfirði Nú hefur Jón kvatt eftir erfið veikindi og þar er skarð fyrir skildi. Samskipti okkar í seinni tíð voru að mestu símleiðis, og þar var komið víða við. Jón var ein- staklega fróður um menn og mál- efni, og hann var skemmtilegur í viðræðu. Skipti þá ekki máli hvert umræðuefnið var, hvort það voru stjórnmál, bókmenntir, lífið í landinu, sagan eða eitthvað allt annað. Það var jafnan gott að tala við hann, ekki síst fyrir það hvað hann var jákvæður í garð fólks al- mennt og fundvís á góðar hliðar og skemmtilegar í mannlífinu, og talaði gjarnan um þær. Jón var óhræddur við að fara nýjar leiðir í lífinu, skipta um starfsvettvang, hvort sem það var að fara til náms á fullorðinsárum erlendis eða gerast seðlabanka- stjóri, eða formaður í stjórnmála- flokki. Hann var ritstjóri dag- blaðsins Tímans um skeið og vann hjá Menningarsjóði við bókaút- gáfu. Hann var rithöfundum og gaf út bækur um söguleg efni. Ritstörf og sagnfræði lágu einkar vel fyrir honum. Hann var sann- arlega þúsundþjalasmiður. Jón var einn af þeim mönnum sem voru forréttindi að kynnast. Hann var orðheppinn og skemmtilegur, án þess að vera skaplaus. SJÁ SÍÐU 36

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.