Morgunblaðið - 24.09.2021, Side 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
„ÞUNGLYNDISLYFIÐ VIRKAR – VIÐ
ÞURFUM BARA AÐ GERA ÞAÐ MINNA
„GEÐVEIKT GOTT“.“
„HEMMI FRÆNDI ER FARINN AÐ VINNA Í
DÝRAGARÐI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera til þjónustu
reiðubúinn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÓÐINN! HVÍ Í
ÓSKÖPUNUM GERÐIR
ÞÚ ÞETTA?
TIL AÐ
HERÐA ÞIG!
ÉG ER DULUR
KÖTTUR
ENGINN VEIT HVAÐ
ÉG ER AÐ HUGSA
ÞÚ ERT AÐ
HUGSA UM
PÍTSU
JÁ, EN MEÐ
SKINKU EÐA
PEPPERÓNÍI?
ÓKEI! BÚÐU ÞIG UNDIR AÐ
ÉG MÓTMÆLI HARÐLEGA!
LYFJA-
PRÓFANIR
in Guðjón Friðgeirsson, f. 13.6. 1929,
d. 13.9. 1986, skrifstofustjóri, og Ás-
dís Magnúsdóttir, f. 26.12. 1936, d.
4.9. 2013, verkakona. þau voru búsett
í Kópavogi. Fyrri eiginmaður Huldu
Ragnheiðar er Kolbeinn Kjartans-
son, f. 25.12. 1965, bóndi á Hraunkoti
í Aðaldal.
Börn Huldu Ragnheiðar eru 1)
Hafrún Kolbeinsdóttir, f. 18.7. 1993,
tækniteiknari og starfsmaður á tann-
læknastofu. Sambýlismaður: Hyo
Sam Nandkisore; 2) Guðrún Kristín
Huldudóttir, f. 17.7. 1995, nemi og
starfsmaður ÁTVR. Sambýlismaður:
Haukur Daði Guðmarsson, 3) Kjart-
an Árni Kolbeinsson, f. 3.5. 1997,
flugmaður. Sambýliskona: Alex-
andra Rós Aldísardóttir. Börn
Magnúsar eru 1) Guðjón Már, f. 2.9.
1986, flugvirki. Sambýliskona: Stein-
unn Árnadóttir; 2) Sigrún Ásta, f.
29.9. 1987, viðskiptafræðingur.
Eiginmaður: Steinar Már Sveinsson;
3) Hákon Örn, f. 13.1. 1998, nemi.
Kærasta: Jóhanna Ósk Jónsdóttir.
Barnabörn Magnúsar eru Viktor
Örn, f. 2011, Róbert Björn, f. 2012,
Rut, f. 2015, og Rakel, f. 2019.
Systkini Huldu Ragnheiðar eru
Ingveldur Árnadóttir, f. 13.7. 1960,
iðjuþjálfi, búsett á Grásíðu í Keldu-
hverfi, Anna Kristín Árnadóttir, f.
7.5. 1963, þroskaþjálfi á Breiðdalsvík;
Björgvin Árnason, f. 6.5. 1965,
sjúkrabílstjóri á Húsavík; Guðrún
(Dúna) Árnadóttir, f. 6.8.1969, fjár-
málastjóri, búsett í Fagralandi í
Kjós.
Foreldrar Huldu Ragnheiðar:
Hjónin Helga Magnúsdóttir, f. 6.5.
1940, d. 2.2. 2016, málarameistari, og
Árni Vilhjálmsson, f. 14.6. 1937, raf-
virkjameistari. Þau giftu sig 1960 og
bjuggu alla sína búskapartíð á Baug-
hóli 15 á Húsavík.
Hulda Ragnheiður
Árnadóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðmundur Helgason
járnsmiður í Reykjavík
Ingveldur Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Magnús Sveinbjörnsson
skrifstofustjóri í Reykjavík
Helga Magnúsdóttir
málarameistari á Húsavík
Guðlaug Magnúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sveinbjörn Erlendsson
verslunarmaður í Reykjavík
Jónína Gunnhildur
Friðfinnsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Árni Stefánsson
húsasmiður á Akureyri
Guðrún Árnadóttir
húsfreyja og sjúkranuddari í Reykjavík
Vilhjálmur Kristinn Hallgrímsson
rafvirkjameistari í Reykjavík
Sigurveig Sveinsdóttir
húsfreyja á Felli
Hallgrímur Brynjólfsson
bóndi á Felli í Mýrdal
Úr frændgarði Huldu Ragnheiðar Árnadóttur
Árni Vilhjálmsson
rafvirkjameistari á Húsavík
Hér yrkir Ingvar Gíslason og
kallar „Haust á heimavist“:
Þegar Ögmundur sagði sóló,
Sigmundur spilaði nóló.
Andköfum móðir
af ásthita rjóðir
þeir ýttust á kersknir um Lóló.
Og hér er „Söngur fjallalambs-
ins“:
„Já, gott er um græna haga
á góðviðrissumri að naga
hvert safaríkt strá
og saðningu fá.
En steikt gleð ég munn þinn og maga.“
Á Boðnarmiði yrkir Magnús Hall-
dórsson um „sunnlenskt slag-
veður“:
Um stund nú hefur verulega vætt
og vindhraðinn hér engan gleður.
Það er að vísu ágætlega stætt
ekki þó stuttbuxnaveður.
Ólafur Stefánsson skrifaði á
þriðjudag: „Skítasumar. Flesta
morgna hef ég risið af beði og kíkt
út um svefnherbergisgluggann,
sem snýr í norður í átt til fjalla-
hringsins kæra og ekkert séð nema
þoku, þoku, þoku“:
Þokuveggur þekka hylur sýn,
það eru fjöllin kæru er sá í fyrra.
Þó er ekki þörf slíkt láta pirra,
þegar annars geðheilsan er fín.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson segir að
nú styttist í kosningar og eins og í
lífinu sjálfu líti hver sínum augum á
silfrið:
Kýrin hún kannar hvern lit
og gaumgæfir áferð og glit
og með blíðlegar sjónir
á bæjarlæk gónir
en hjá bóndanum snýst allt um nyt.
Magnús Halldórsson um „Nýj-
ustu skoðanakannanir“:
Þær sýna að hún ekki’ í sorg fari,
samt er hún velþekktur orgari.
Gefið mun hér,
að galdurinn er
á tilboði’ einn Tommaborgari.
Hallmundur Guðmundsson segir
að sér hafi orðið það á að hnoða
þetta í spjalli við vin:
Ellin leikur alla keik,
eðal leikjum státar.
Ef að veikum bregður Bleik,
brottu reika mátar.
Gömul vísa að lokum:
Eru kotin Odda hjá
Ekra, For og Strympa,
Vindás, Kumbli, Kragi þá;
kemur Oddhóll skammt þar frá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sunnlenskt slagveður
og þoka, þoka, þoka
Höfum opnað á Selfossi
komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar
GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ
www.tengi.is
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040